Þjóðviljinn - 21.04.1982, Blaðsíða 15
El
Hringið í síma 81333 kl. 9-5 alla
virka daga, eða skrifið Þjóðviljanum
Verðið í
London
ogReykja-
vík
Lesandi sendi okkur
um daginn verð á ýms-
um grænmetistegundum
í London, en lesandinn
býr þar sem stendur.
Hann (sem reyndar er
hún) spyr hvers vegna
verðið sé svo miklu
hærra uppi á Islandi en í
London. Við tökum í
sama streng. Og hér
kemur svo verðið á
grænmetistegundunum i
London annars og vegar
og hjá Vörumarkaðnum
hinsvegar:
I öllum tilfellum má
margfalda breska verð-
ið með a.m.k. þremur til
að fá út hið íslenska.
Hver er skýringin?
lesendum
Kilóiö af hvitkáli kostar kr. 5.4S i East End i Lundúnum, en 12.55
hér á Fróni (i Reykjavik). Hvernig vikur þvi viö, spyr lcsandi.
Kíló London Reykjavík
Blómkál 6.35 (hausinn) 62.95 (kg)
Laukur 3.60 10.20
Gulrætur 5.45 18.25
Rófur 3.60 12.80
Hvítkál 5.45 12.55
Barnahornid
Hlín Einarsdóttir er
f imm ára snót sem býr á
öldugötu 44. Hún teikn-
aði þessa mynd og sendi
okkur og við þökkum
kærlega fyrir.
Miövikudagur 21. april 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Ævintýri
fyrir börnin
Tciknimynd um ævintýri
selsins Kotik veröur á dagskrá
sjónvarpsins klukkan sex i
dag. Þessi mynd er ein fimm
hálftima teiknimynda, sem
óskarsverölaunaleikstjórinn,
Chuck Jones, er skrifaöur fyr-
ir og sjónvarpiö hefur tekiö til
sýninga á þessum tfma. Eru
þær feikilega vel gcröar og á
minu heimili fellur smáfólkinu
þegar i staö verk úr hendi,
þegar dýröin hefst.
Annars er Hviti selurinn
byggöur á frumskóga-
ævintýrum Rudyards Kiplings
eins og Rikki Tikki Tavi,
myndin sem sýnd var i fyrri
viku (sum þessara ævintýra
hafa veriö þýdd á islensku
undir nafninu Dýrheimar).
Selurinn Kotec ætlar aö gleöja
hugi og hjörtu islenskra barna
i sjónvarpinu klukkan sex i
dag. Hafi sjónvarpiö þökk fyr-
ir aö sýna okkur þessar
frábæru teiknimyndir.
Sagan segir frá selnum Kotik
og hinu langa feröalagi hans
um útsæi i leit aö eyju, þar
sem selir gætu veriö óhultir
fyrir versta óvininum —
manninum.
Siónvarp
kl.18.00: ,
Steinunn Siguröardóttir á tali viö skáldiö.
„Meiningar um Laxness”
„Minningar og meiningar
um Halldór Laxness”, heitir
annar þátturinn af þremur um
Halldór Laxness áttræöan, en
sá fyrsti var sendur út sl.
sunnudagskvöld.
t fyrsta þættinum ræddi
Steinunn Siguröardóttir viö
Halldór Laxness og konu hans,
Auöi, um lifiö og tilveruna. I
þættinum i kvöld ræöir hún viö
ýmsa aöila um kynni þeirra af
Laxness og veröur án efa
fróölegt aö heyra álit þeirra á
skáldinu. En nú koma fram
Auöur Jónsdóttir, Jón Helga-
son, Jón Viðar Jónsson,
Kristján Aöalsteinsson,
Kristján Albertsson, Málfriö-
ur Einarsdóttir, Pétur Gunn-
arsson, Rannveig Jónsdóttir,
Sigfús Daöason, Sigriöur
Bjarklind, Þórarinn Eldjárn
og Ragnar i Smára.
Þriðji og siöasti þátturinn
verður svo sýndur n.k. sunnu-
dagskvöld.
Sjónvarp
kl. 20.40:
Hver man nú þessa tlö? I dag er siöasti vetrardagur, og þótt
Majorkahitinn láti sig vanta hérlendis er þó altént hægt aö kom-
ast leiöar sinnar á sumrin, svona mestanpart.
Fjörkippur í vetrarlok
Siöasti vetrardagurinn er
runninn upp og ekki seinna
vænna aö fara aö fagna
sumarkomunni. Útvarpiö hef-
ur fengiö Hermann
Gunnarsson til þess aö sjá um
þessa hliö mála fyrir sig, og i
kvöld munu hann og aöstoöar-
mcnn hans teygja lopann fram
á sumar.
„Þetta er ekki beinlinis
skemmtiþáttur”, sagöi
Hermann i stuttu samtali viö
blaöiö. „Eg fæ marga góöa
gesti i heimsókn, t.d. popp-
söngvarann Ragnhildi Gisla-
dóttur, leikarann Hjalta
Rögnvaldsson og hérumbil-
leikarann Magnús Ólafsson
(Þorlákur þreytti öðru nafni
hér i bæ). Þetta er semsé fullt
af góöu fólki og enginn i fýlu”.
Þá sagöi Hermann, aö
hljómsveitin START léki i út-
varpssal og sagðist hann vona
að allir fyndu eitthvaö viö sitt
hæfi i þeim flutningi, þótt
START væri annáluö popp-
hljómsveit. Siöan sagöist
Hermann ætla aö gripa niöur i
gamla, góöa útvarpsþætti eins
og þeir geröust bestir aö sinu
mati.
,,Eg fer allt niður i 30 ára
gamla þætti,” sagöi Hermann.
Hann sagöi útvarpið allt of
stirt við að halda úti skemmti-
þáttum af fyrsta gæöaflokki,
eins og t.d. Svavar Gests og
Matthildingarnir gerðu á sin-
um tima. Þetta væru nauösyn-
legir þættir aö sinu mati og út-
varpið ætti aö reyna aö örva
þá framleiðslu — fremur en
hitt.
Þáttur Hermanns Gunnars-
sonar er ætlaöur fólki á öllum
aldri: — „Fólk getur melt
þetta ef þaö nennir,” sagöi
Hermann.
Útvarp
kl. 22.35: