Þjóðviljinn - 21.04.1982, Side 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 21. apríl 1982
Auglýslng
frá Æskulýðsráði ríkisns
Samkvæmt9. gr. III. kafla laga um æsku-
lýðsmál hefur æskulýðsráð rikisins
heimild til þess að veita stuðning við ein-
stök verkefni i þágu æskufólks. Stuðningur
þessi getur bæði orðið beinar fjárveitingar
af ráðstöfunarfé ráðsins og/eða ýmis önn-
ur fyrirgreiðsla og aðstoð.
Æskulýðsráð samþykkti á fundi sinum 6.
april s.l. að óska eftir umsóknum frá
æskulýðssamtökum og öðrum aðilum er
að æskulýðsmálum vinna um stuðning við
einstök verkefni er fallið gætu undir þessa
grein laganna. Slikar umsóknir ásamt
upplýsingum og áætlunum um verkefni
þurfa að berast Æskulýðsráði rikisins,
Hverfisgötu4—6, fyrir 10. júni 1982.
Æskulýðsráð rikisins.
Frá Æfingaskóla
Kennaraháskólans
Innritun i forskóladeildir þ.e. 5 og 6 ára
barna fer fram i skólanum mánudaginn
26. ogþriðjudaginn27. april n.k. kl. 13—16.
Skólastjóri
• Blikkiðjan
Ásgarði 7, Garöabæ
önnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboö
SÍMI53468
Skjót viðbrögð
Þaö er hvimleitt aö þurfa aö harösnúnu liöi sem bregöur
biöa lengi meö bilaö ratkerli, sK/órt viö
leiöslur eöa tæki
Eöa ný heimilistæki sem þarl
aö leggja tyrir.
Þess vegna settum við upp
neytendaþjónustuna - meö
RAFAFL
~ w ' SmiÖshölSa 6
ATH. Nýtt simanúmer: 85955
Tveir ungir mynd-
listarmenn, sem stundað
hafa framhaldsnám í
Bandaríkjunum, sýna
verk sín í Reykjavík um
þessar mundir.
Valgarður Gunnarsson sýndi
málverk i Nýlistasafninu og
lauk sýningu hans á sunnu-
daginn var.
Valgarður lauk námi frá
grafikdeild Myndlista- og hand-
iðaskólans 1979 og fór þá til
Bandarikjanna, þar sem hann
hefur stundað framhaldsnám
undanfarin 2 ár við Empire
State College of Art á Man-
hattan i New York.
Sýning Valgarðs hafði á sér
hæverskan en sterkan persónu-
legan biæ, og eru myndir hans
Hundur I gildru, grafikteikning eftir Vigni Jóhannsson.
Bandarískir straumar
e.t.v. i anda hins nýja
bandariska expressionisma,
þar sem leikið er á samspil
óhlutbundinna forma og mann-
legrar skirskotunar.
Smámyndir Valgarðs, unnar i
þekjulit, hafa að geyma
sjaldgæfa ljóðræna eiginleika
og óheft hugmyndaflug.
í heild ber sýningin vott um að
hér er á ferðinni Jjroskaður
.listamaður, sem hefur tamið sér
öguð vinnubrögð af sannri
fagmannlegri hógværð.
I Listmunahúsinu við Lækjar-
torg stendur nú yfir sýning
Vignis Jóhannssonar á teikn-
ingum, sem hann kallar
„Hindranir ásamt búnaði
nokkrum”.
Vignir Jóhannsson er þritugur
Akurnesingur, sem stundaði á
sinum tima nám i Myndlista- og
handiðaskólanum og útskrifað-
ist frá grafikdeild skólans 1978,
ári á undan Valgarði Gunnars-
syni.
Siðan hefur Vignir dvalið i
Bandarikjunum, þarsem hann
lauk m.a. prófi i grafik frá
Rhode Island School of Design
1981.
Teikningar Vignis eru fag-
mannlega unnar og af öruggu
handbragði. Þær sýna okkur
gjarnan þann trylling og hraða,
Nafnlaus mynd eftir Valgarð Gunnarsson.
L.e
Minning:
sem finna má i nútimanum, og á
þetta ekki sist við um myndir
hansafhundum oggildrum, þar
sem við sjáum blinda likamlega
orku mæta óyfirstiganlegum
vélrænum hindrunum i trylltum
og óhjákvæmilegum árekstrum.
Aðrar myndir sýna okkur
mannslikamann fjötraðan i
tækjabúnaði eða þá mælistikur
rikisvaldsins andspænis
kaótisku landslagi.
Sýningin er fjóröa einka-
sýning Vignis og er ótviræður
vitnisburður um að hann hefur
þegar skipað sér i fremstu röö
meðal islenskra teiknara.
Þeir straumar, sem hingað
hafa borist frá Bandarikjunum
með sýningum þeirra Vignis og
Valgarðs eru ánægjulegur
viðauki við þá fjölbreytilegu
grósku, sem nú á sér stað i yngri
myndlist á Islandi.
:,eJ
Sigríður Guðmundsdóttir
Fædd 15. júlí 1896 —
Dáin 10. apríl 1982
Sigriður Guömundsdóttir
verður jarðsett frá Fossvogs-
kirkju i dag.
Hún var fædd að Hvitanesi,
Vestur-Landeyjum, 15. júli 1896.
Foreldrar hennar voru hjónin
Guðmundur Einarsson og Kristín
Sigurðardóttir. Fimm barna
þeirra hjóna af sjö er þau eignuö-
ust náðu fullorðinsaldri en eru nú
öll látin. Sigriður missti foreldra
sina þegar hún var barnung og
tvistraðist þá heimilið. Hún átti
erfiða bernsku, enda tæpast hægt
að segja að bjart væri framundan
hjá munaðarlausum börnum um
aldamótin siðustu, en þó rættist
úr fyrir henni, þegar hún komst
til móöursystur sinnar, Guð-
bjargar, er þá bjó aö Strandar-
höfði.
Sigriöur var hugrökk og dug-
mikil strax á unga aldri. Hún vildi
bjargast af eigin rammleik, og
eftir að hafa starfað við hjúkrun á
Vifilsstöðum og Akureyrar-
spitala, þar sem hún ávann sér
vináttu og traust bæði sjúklinga
og samstarfsfólks, dreif hún sig
til Kaupmannahafnar til hjúkr-
unarnáms.
En þar fór eins og oft áður hjá
efnalitlu fólki' bágur fjárhagur
kom i veg fyrir að hún lyki námi.
Sigriður dvaldi i Danmörku i
fimm ár. Þar eignaðist hún elstu
dóttur sina, Kömmu. Þær fluttu
heim til tslands árið 1925.
Veturinn næstan á eftir vann
Sigriður á heimili Páls Kolka,
héraðslæknis i Vestmannaeyjum.
A vertið i Eyjum var þá ungur
bóndasonur, sveitungi Sigriðar,
það var Sigurjón, sonur hjónanna
Þórunnar Jónsdóttur, ljósmóöur
og Jóns Gislasonar, oddvita og
Dannebrogsmanns, er bjuggu i
Ey i V-Landeyjum.
Sigriður og Sigurjón gengu i
hjónaband 11. desember 1926 og
hófu búskap á Kanastööum I
A-Landeyjum I sambýli við Hall-
dór, bróður Sigurjóns og konu
Halldórs, Guðriði Jónsdóttur. Þar
bjuggu þau til ársins 1929 er þau
fluttust til Reykjavikur, þar hóf
Sigurjón nám i húsasmiði og vann
að iðn sinni meðan kraftar entust.
Hann átti við heilsuleysi að striða
árum saman og lést úr berklum
árið 1956.
Þau hjónin eignuöst tvær
dætur, Kristinu og Þórunni, einn-
ig tóku þau sér i sonar stað elsta
barn Kömmu, örn Sveinsson.
Það þarf ekki að fara I graf-
götur með, að Sigriöur þurfti oft
að leggja hart að sér við vinnu
utan heimilisins, þegar Sigurjón
var óvinnufær langtimum saman
vegna veikinda sinna. Hún vann
þá á sjúkrahúsum og viö sauma-
skap og annað, sem til féll.
A heimili þeirra hjóna var oft
gestkvæmt, sveitungar og vinir
dvöldu þar er þeir áttu erindi til
Reykjavikur. Þau hjónin voru
gestrisin og oft var glatt á hjalla
þegar Sigurjón lék á orgelið og
gestir og heimafólk tóku lagið.
Þess má geta að Sigurjón var
organisti i sóknarkirkju sinni
áður en hann flutti suður.
Sigriður var greind kona og
skemmtileg I viðræðum, viölesin,
minnug og hafði rika kimnigáfu,
með henni bjó sterk réttlætis-
kennd, og gefur auga leiö að kona
með eins stórbrotna skapgerð,
tók ávallt málstað litilmagnans.
Hér hefur verið stiklað á stóru i
ævi tengdamóður minnar. Margs
er að minnast og margt að þakka.
Fyrstu fimmtán búskaparár okk-
ar hjóna bjuggum við I sama húsi
og hún. Þar fæddust synir okkar
og undu marga stund hjá ömmu
sinni. Marga visuna og söguna
fengu þá ungir sveinar i vega-
nesti.
Ég þakka samfylgdina.
Leifur Björnsson.