Þjóðviljinn - 04.05.1982, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 4. mal 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Lúðvík Jósepsson ræðir um samþykkt nýs hafréttarsáttmála:
Merkilegur og þýöingarmikill
í samskiptum þjóða heimsins
Mjög víðtœk samstaða og ákvœði
sem skipta íslendinga miklu máli
— Formleg afgreiðsla
nýja haf réttarsáttmálans
er mikilvæg vegna þess að
úr því sem nú er komið
verður ekki lengur hægt að
halda uppi deilum og við
getum verið öruggir um
það að á rétt okkar íslend-
inga verður ekki gengið
nema þá gegn ótvíræðum
alþjóðlegum lögum um
hafréttarmál, sagði Lúð-
vík Jósepsson i samtali við
blaðið í gær, en hann kom
heim frá New York um
helgina þar sem hann
starfaði í sendinefnd ís-
lands á lokafundi þriðju
Haf réttarráðstef nu Sam-
einuðu þjóðanna.
Samþykkt þessa nýja hafrétt-
arsáttmála verður að telja mjög
merkilega og þýyðingarmikla i
samskiptum þjóðanna, þvi að
miklar og margvislegar deilur
hafa lengi verið uppi um land-
helgismál, mengun fiskveiðar og
siglingarétt, en með þessum nýja
sáttmala er búið í ýtarlega út-
færðum lögum að setja ákvæði
um nær öll slik deilumál, og i
þeim efnum er gert ráö fyrir sér-
stökum dómstól sem hafi fullt
vald til þess að skera úr deilum
sem upp kunna að koma og varða
þessa nýju löggjöf. Telja verður
að hér hafi náðst mjög viðtæk
samstaða, þvi nær allar þjóðir
heims standa að þessari samn-
ingagerð, og hljóta aö verða að
beygja sig fyrir henni i reynd,
jafnvel þó að einhverjar örfáar
þjóðir fáist ekki til að undirskrifa
sáttmálann eða staðfesta hann.
Kröf uharka auðhringa
Nýr hafréttarsáttmáli var sam-
þykktur föstudaginn 30. april á
fundi þriðju hafrcttarráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna I New York.
Lokaatkvæðagreiðsla um sátt-
málann fór á þann veg að 130
þjóðir samþykktu, 4 greiddu at-
kvæði á móti og 17 sátu hjá. Þjóð-
viljinn innti Lúðvik eftir þvi
hvernig meta bæri þessi úrslit
mála.
— Þau fjögur riki sem greiddu
atkvæði á móti voru Bandarikin,
Tyrkland, Israel og Venesúela. Af
þessum rikjum eru það i raun og
veru Bandarikin ein sem telja má
að hafi alvarlegar athugasemdir
við sáttmálann. Hin greiða at-
kvæði á móti af ýmsum sérstök-
um og staðbundnum ástæðum.
Ágreiningur Bandarikjanna er
meiriháttar og varðar mjög þýð-
ingarmikinn hluta sáttmálans um
vinnslu verðmæta af úthafsbotn-
inum. Ég tel ekki útilokað að
Bandarikjamenn eigi eftir að
hverfa frá þessari afstöðu áður en
sáttmálinn verður formlega stað-
festur af þjóðþingum vegna þess
að þau eiga mikilvægra hags-
muna að gæta varðandi ýmis atr-
iði sáttmálans. Sú óvissa sem enn
rikir um afstöðu Bandarikjanna
vegna kröfuhörku hinna risastóru
alþjóðlegu auðhringa sem vilja fá
meiri rétt til vinnslu á hafsbotni
er bagaleg. En það verður að
telja óliklegt að andstaða þeirra
geti enst lengi, eða að þeir geti
náð meiri réttindum en þegar er
búið að ákveða auðhringunum til
handa, enda var það svo að rikis-
stjórn Carters var á árinu 1980
þegar búin aö ganga til sam-
komulags um öll þau atriði sátt-
málans sem núverandi stjórn
Bandarikjanna er enn að þrátta
um.
Hjá seta Sovét og
EBE-ríkja
— Afstaða þeirra rikja sem sátu
hjá er af allt öðrum toga spunnin.
I þeim hópi voru Sovétrikin og
þau riki i Austur-Evrópu sem
þeim standa næst. Agreiningur
þeirra var aöeins um þau sér-
stöku réttindi sem ákveðið var að
veita alþjóða auðhringum til
vinnslu verðmæta á úthafsbotni,
og sett voru inn i samninginn á
siðustu stundú til þess að reyna ai
sætta Bandarikin við sáttmálann
i heild. Fulltrúi Sovétrikjanna
sagði við atkvæðagreiðsluna að
hann teldi sáttmálann i öllum
öðrum greinum góðan og að-
gengilegan, og Sovétmenn myndu
nú á næstu mánuðum taka til at-
hugunar hvort þeir teldu sér fært
að skrifa undir sáttmálann.
I hjásetuhópnum voru einnig
flest riki Efnahagsbandalags
Evrópu og telja má nokkurnveg-
inn vist að hjáseta þeirra hafi
stafað af þrýstingi af hálfu
Bandarikjanna. I þeim hópi voru
Vestur-Þýskaland, Holland og
Belgia, Italia, Luxembourg og
Bretland. Frakkar og Danir sam-
þykktu hinsvegar samninginn.
6 meginatriði
Hér er um að ræða griðarlega
yfirgripsmikinn samning.
Hver eru þýðingarmestu atriði
hans?
1 fyrsta lagi er gert ráð fyrir að
öll strandriki geti tekið sér tólf
milna almenna landhelgi, algjör-
lega fullkomna lögsögu.
1 öðru lagi eiga öll strandriki
rétt á 200 milna efnahagslögsögu,
en á þvi svæði geta þau hagnýtt
sér ein öll verðmæti i hafinu og á
hafsbotni innan þeirra marka.
Hinsvegar eru siglingar frjálsar
um efnahagslögsöguna.
t þriðja lagi er um að ræða i
þessum nýja sáttmála ýtarleg
ákvæði um allar siglingar um höf
og sund, og réttindi til frjálsra
siglinga um þröngar siglingaleið-
ir. Talið er t.d. að með þessum
sáttmála sé ákveðið siglingafrelsi
um u.þ.b. eitt hundrað sund.
I fjórða lagi eru ýtarleg ákvæði
er snerta mengunarmál hafsins,
hverju megi fleygja, og hvernig
fara skuli með öll slik mál.
I fimmta lagi eru svo ákvæði
um úthafsbotninn fyrir utan lög-
sögu hinna einstöku strandrikja,
hið svokallað alþjóðlega hafs-
botnssvæði. Þar er ákveðið að
sett skuli á stofn sérstök yfir-
stjórn yfir þetta svæði sem út-
hluta á vinnsluleyfum til þeirra
sem vilja vinna verðmæti úr hafs-
botninum og sem séð getur sjálf
um að annast slika vinnslu.
Nettóhagnaður sem af slikri
vinnslu af úthafsbotninum verður
á að ganga sem framlag til þró-
unarþjóða.
1 sjötta lagi má nefna að varð-
andi 200 milna efnahagslögsög-
una er einnig f jallar ýtarlega um
landgrunnsmálin.
Mikilvæg ákvæöi fyrir Is-
land
Nú hefur þú sjálfur komið mjög
við sögu i þróun hafréttarmála.
Er það ekki stór stund þegar mál-
ið cr komið i höfn?
— Það er alltaf gott að stýra
heilum báti að landi eftir langa
útivist og þessi þriðja hafréttar-
ráðstefna Sameinuðu þjóðanna er
búin að standa yfir óslitið i átta
ár. Fyrsti formlegi fundur ráð-
stefnunnar hófst sumarið 1974 i
Venezuela, en áður hafði reyndar
starfað sérstök nefnd á vegum
Sjálf hefur hafréttarráðstefnan staðið f átta ár, en löngu fyrr var þingað um þessi mál: hér er Lúðvfk
Jósepsson og aðrir islenskir sendinefndarmenn á fundi I Genf þegar um það leyti sem barist var um tólf
milur.
Lúvik Jósepsson: Almennt álitið
að islendingar hafi haft drjúg
áhrif á mótun þeirrar stefnu sem
ofaná varð á hafréttarráðstefn-
unni.
Sameinuðu þjóðanna i nærri fjög-
ur ár til þess að undirbúa þessi
mál. En nú er semsagt þessu
verki lokið og ég tel að við getum
unað vel við okkar hlut.
En hver eru helstu hagsmuna-
mál islands i sambandi við þessa
hafréttarlöggjöf?
— Þau atriði sem að sjálfsögðu
skipta okkur Islendinga mest i
sambandi við þennan nýja sátt-
mála eru ákvæðin um 12 milna
fullkomna landhelgi frá grunnlin-
um, og tvö hundruð milna efna-
hagslögsögu frá sömu viðmiöun.
Einnig má geta þess að við fáum
rétt samkvæmt þessum sáttmála
j Afganistan j
fyrir stríð j
| Myndir og frásögn J
1* Joelle Hamel sýnir myndir I
frá Afganistan eins og landið I
var áður og útskýrir þær i I
, Franska bókasafninu, Lauf- •
Iásvegi 12, i kvöld. Þessi frá- I
sögn i myndum af Afganist- I
an heföarinnar hefst kl. I
, 20.30. Aðgangur er öllum 1
■ heimill.
til vinnslu hugsanlegra verðmæta
af hafsbotni allt út að 350 sjómil-
um frá grunnlinum á vissum
svæðum við landið eins og t.d. á
Reykjaneshryggnum sem gengur
suð-vestur af landinu. Auk þess
eru margvisleg önnur ákvæði
sem varða Island eins og öll önn-
ur strandriki i sambandi við sigl-
ingar og mengunarmál.
Vorum brautryðjendur
Má ekki i raun segja aö hafrétt-
arráðstcfna Samcinuðu þjóðanna
hafi i raun gert sjónarmiö tslend-
inga I hafréttarmálum að al-
þjóðarétti?
— Það er rétt að með formlegri
samþykkt þessa sáttmála erum
við ekki að öðlast þessi réttindi
varðandi 12 milurnar og 200 mil-
urnar. Þau atriði voru raunveru-
lega orðin viðurkennd i fram-
kvæmd löngu fyrr, eða á starfs-
tima þessarar þriðju hafréttar-
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna.
Eins og öllum Islendingum er
kunnugtþá tókum við tslendingar
12 milna fiskveiðilandhelgi 1.
september 1958, og vorum þá
langt á undan velflestum öðrum
rikjum i þeim efnum, enda þurft-
um við að heyja margra ára átök
við Breta og aðrar þjóðir i V-Evr-
ópu i sambandi við þá ákvörðun.
Hið sama var að segja þegar við
tslendingar tókum okkur 50milna
fiskveiði landhelgi 1. september
1972. Þá vorum við lika á undan
flestum öðrum þjóðum. Það er
þvi almennt talið og hefur oft
komið fram i umræðum á þessari
hafréttarráðstefnu að Islendingar
hafi haft drjúg áhrif á mótun
þeirrar stefnu, einkum varðandi
fiskveiðilandhelgi, sem ofan á
varð á þessari ráðstefnu.
Þegar við Islendingar fengum
fullan yfirráöarétt yfir 200 milna
landhelgi 1. desember 1976, eða
einum mánuði áður en Bretar
lýstu sjálfir yfir 200 milna efna-
hagslögsögu hjá sér, var þróun
þessara mála komin það langt á
veg og i tillögugerð á hafréttar-
ráðstefnunni að segja má að við
höfum fengið 200 milna fiskveiði-
landhelgina samkvæmt hinni al-
mennu þróun sem þá var orðin i
hafréttarmálum.
— ckh
Félagsmenn B.S.F.
Vinnunnar
Framhaldsaðalfundur verður haldinn
fimmtudaginn 6. mai kl. 20.30 i Hamra-
görðum.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundastörf.
2. Aðild að nýju byggingasamvinnufélagi.
3. Önnurmál.
Stjórnin.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför
Þórðar Benediktssonar
Sérstakar þakkir færum við sambandsstjórn S.l.B.S.
Anna Bcnediktsson og börn.