Þjóðviljinn - 04.05.1982, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 04.05.1982, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 4. mai 1982 r Hafnarfjórður Hafnarfjörður Mat j urtagarðar Leigjendum matjurtagarða i Hafnarfirði er bent á að siðustu forvöð að greiða leig- una er mánudaginn 10. mai n.k. Eftir þann dag verða garðarnir leigðir öðrum. Bæjarverkfræðingur fStarf tæknifræðings á skrifstofu byggingafulltrúa Akureyrar- bæjar er laust til umsóknar. Upplýsingar um starfið og launakjör eru veittar á skrifstofu byggingafulltrúa. Umsóknir skulu sendar byggingafulltrúa Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, Akureyri fyrir 22. mai n.k. Byggingafulltrúi Akureyrarbæjar Til sölu 7 rúmlesta fiskibátur smiðaður árið 1978. Er með nýrri aðalvél. Allar nánari upplýsingar veittar á skrif- stofu Fiskveiðisjóðs Islands i sima 28055 og hjá Valdimar Einarssyni i sima 33954. Tilboð óskast send Fiskveiðisjóði fyrir 18. mai n.k. Fiskveiðisjóður íslands Lausar stöður Ráðgerter að veita á árinu 1982 eftirfarandi rannsókna- stöður til 1 - 3 ára við Raunvisindastofnun Háskólans: a) tværstöðursérfræðinga við eðlisfræðistofu, b) stöðu sérfræðings við efnafræðistofu, c) stöðu sérfræðings við jarðfræðistofu, d) tvær stööur sérfræöinga við reiknifræðistofu og c) stöðu sérfræðings við stærðfræðistofu. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rfkisins. Umsækjendur skulu hafa lokið meistaraprófi eða tilsvar- andi háskólanámi og starfað minnst eitt ár við rannsóknir. Starfsmennirnir verða ráðnir til rannsóknastarfa, en kennsla þeirra við Háskóla íslands er háð samkomulagi milli deildarráðs verkfræði- og raunvisindadeildar, og stjórnar stofnunarinnar, og skal þá m.a. ákveðið, hvort kennsla skuli teljast hluti af starfsskyldu viðkomandi starfsmanns. Umsóknir ásamtýtarlegri greinargerð og skilrikjum um menntun og visindaleg störf, skulu hafa borist mennta- málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik, fyrir 28. mai n.k. Æskilegt er að umsókn fylgi umsagnír frá 1—3 dómbær- um mönnum á visindasviöi umsækjanda um menntun hans og visindaleg störf. Umsagnir þessar skulu vera 1 lokuðu umslagi sem trúnaðarmál og má senda þær beint til menntamálaráðuneytisins. Menntamálaráðuneytið, 27. apríl 1982. í vörslu óskilamunadeildar lögreglunnar er margt óskilamuna, svo sem: reiðhjól, barnavagnar, fatnaður, lykla- veski, lyklakippur, seðlaveski, handtösk- ur, úr.gleraugu og fl. Er þeim, sem slikum munum hafa glat- að, bent á að spyrjast fyrir um þá á skrif- stofu óskilamuna, Hverfisgötu 113, (geng- ið inn frá Snorrabraut) frá kl. 14.00 -16.00. Þeir óskilamunir sem eru búnir að vera i vörslu lögreglunnar ár eða lengur verða seldir á uppboði i portinu að Borgartúni 7, laugardaginn 8. mai 1982. Uppboðið hefst kl. 13.30. Lögreglustjórinn i Reykjavik, 3. mai 1982. Bann við innflutn- ingi á pizzum Framleiðsluráö landbúnaöar- ins hefur sent viöskiptaráöherra áskorun um að taka út af frilista innflutning á pizzum og takmarka eða loka fyrir leyfisveitingar á slikum innflutningi. Rökstyöur Framleiösluráö áskorun sina meö eftirfarandi. 1. Nóg er af islensku hráefni frá landbúnaðinum, kjöti og ostum i þessa framleiðslu og ekki stendur á að þessi vara sé framleidd i landinu. 2. Islenska framleiðslan er ódýrari fyrir neytendur en erlend framleiðsla. 3. Við framleiðslu þessa er tals- verö vinna, sem eðlilegt er að íslendingar njóti fremur en út- lendingar. 4. Innflutningi þessarar vöru gæti fylgt sjúkdómshætta, þar sem kjötið i henni er steikt en ekki soðið. —mhg Er unnt að sýkja villi- minkinn? Þegar heimskreppan svarf fastast aö íslenskum landbúnaöi, og siöan sauðfjárpestirnar, bundu ýmsir bændur vonir sinar um batnandi hag viö minkarækt. Minni arð bar hún þó með sér en vonir stóðu titog þar kom, að hún var með öllu lögð niður en þá hafði raunar ófátt þessara dýra sloppið úr haldi. Breiddist minka- plágan brátt út um landið og eyddi öllu lifi, sem þessar skepn- ur réðu við. Hafa sumar fuglateg- undir þvinær horfið hér og þar um landið, silungur úr vötnum og ám og æðarvörp veriö eyðilögð. Þótt mikil áhersla sé á það lögð að halda villiminknum i skefjum virðist viða ekki sjá högg á vatni, enda timgunin ör. Nú hefur minkarækt verið leyfð á ný og þykir ekki óálitleg bú- grein. Hinsvegar er kominn upp i stofninum sjúkdómur, plas- macytosis, og ógnar nú minkabú- skapnum. Talið er og, að sýkin hafi fundist i villimink og nú hefur mönnum komið i hug hvort ekki mundi unnt að sýkja villiminkinn með þessari pest, þannig að af henni megi þó hafa einhver not. Málið kom til kasta Búnaðar- þings, sem taldi sjálfsagt að at- hugað yrði hvort beita mætti með árangri þessari hernaðaraðferð. —mhg ■ Arnarflug j j opnar sölu- • j skrifstofu I IArnarflug opnaði siðastlið- I inn föstudag, 30. apríl, sölu- I skrifstofu. Er hún til staðar i * » Lágmúla 7. Þetta er I fyrsta J Isinn sem skrifstofa af þessu I tagi er tekin i notkun hjá I Arnarflugi en á skrifstofunni J • verður einnig bókunarmiö- . Istöð. Þarna verða seldir far- I miðar i áætlunarflug félags- 1 ins til Amsterdam, DQssel- | ■ dorf, og Ztlrich. A söluskrif- . Istofunni starfa Dröfn Hjalta- I lin, Helga Sveinbjörnsdóttir I og Kolbrún Einarsdóttir. J « Þær hafa allar margra ára . Istarfsreynslu i farmiöasölu I og ferðaþjónustu bæði hér á I landi sem erlendis. Reykvíkingar athugið!32^ Kvennaframboðið heldur fund um skipu- lagsmál i Reykjavik á Hótel Vik kl. 20.30 i kvöld. Gestir fundarins: Guðrún Jónsdóttir og fleiri frá Borgarskipulaginu. Kvennaframboðið í Reykjavík |V Sumarstörf - Hafnarfjöröur Eins og undanfarin sumur mun Hafnar- fjarðarbær ráða fólk til sumarvinnu við garðyrkju og hreinsun („blómaflokkur”). Lágmarksaldur er 16 ár. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrif- stofu minni, Strandgötu 6. Umsóknarfrestur er til 10. mai n.k. Bæjarverkfræðingur ORLOFSHUS V.R. Dvalarleyfi Auglýst er eftir umsóknum um dvalar- leyfi i orlofshús V.R. sumarið 1982. Umsóknir þurfa að berast skrifstofu V.R., Hagamel 4, i siðasta lagi mánudaginn 10. mai 1982. Orlofshúsin eru á eftirtöldum stöðum: 2 hús að ölfusborgum i Hveragerði 8 hús að Húsafelli i Borgarfirði. 1 hús að Svignaskarði i Borgarfirði 3 hús að Illugastöðum i Fnjóskadal 1 hús að Laugarvatni 1 hús i i Vatnsfirði, Barðaströnd. Aðeins fullgildir félagar hafa rétt til dvalarleyfis. Þeir sem ekki hafa dvalið sl. 5 ár i orlofs- húsunum, á timabilinu 15. mai til 15. sept- ember, sitja fyrir dvalarleyfum til 28. mai n.k. Leiga verður kr. 700.- á viku og greiðist við úthlutun. Dregið verður milli umsækjenda, ef fleiri umsóknir berast en hægt er að verða við. Verður það gert á skrifstofu félagsins, laugardaginn 15. mai n.k. kl. 14.00 og hafa umsækjendur rétt til að vera viðstaddir. Sérstök athygli er vakin á þvi, að umsókn- ir verða að berast skrifstofu V.R. i siðasta lagi mánudaginn 10. mai n.k. Umsóknareyðublöð eru afhent á skrifstofu V.R., Hagamel 4. Ekki verður tekið á móti umsóknum sim- leiðis. VERZLUNARMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.