Þjóðviljinn - 04.05.1982, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 04.05.1982, Qupperneq 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 4. mal 1982 . Minning Daníel Kristjánsson fyrrverandi skógarvörður Hreðavatni Fæddur 25.8. 1908 - Dáinn 24.4. 1982 Með Daniel á Hreðavatni er horfinn af sjónarsviði litrlkur og minnisstæður persónuleiki. Borg- arfjörður hefur misst mann, sem skildi eftir sig spor I héraðinu, sem langan tíma mun taka að fjúka I. Hann andaðist að morgni 24. april s.l. eftir að hafa átt við van- heilsu að stríða undanfarin ar. Daníel Kristjánsson fæddist í Tungu I Höröudal i Dalasýslu hinn 25. ágúst 1908. Foreldrar hans voru hjónin Kristján E. Gestsson og Sigurlaug Daníels- dóttir, er þá bjuggu þar, en siðar að Hreðavatni i Norðurárdal. Þau hjón eignuðust marga syni, sem reyndust mestu mannkosta- og dugnaðarmenn. Daniel stundaöi nám i Hvitár- bakkaskólanum 1929—1931. Næstu árin stundaði hann ýmis störf til sjós og lands, en hóf bú- skaþ á Gljúfurá í Borgarhreppi árið 1938 og bjó þar til 1944, en fluttist þá að Beigalda I sömu sveit og bjó þar til 1948, er hann fluttist að Hreðavatni, þar sem hann átti heima til dauðadags. Hann stundaði fjárbúskap alla tið með öðrum störfum sinum og fékk orð sem góður fjármaður. Um 1940 fór hann að vinna við skógrækt hjá Hákoni Bjarnasyni, skógræktarstjóra og réðist til fastra starfa þar 1. febrúar 1941 sem skógarvörður á Vesturlandi og gegndi þvi starfi til vors 1978, er hann hætti fyrir aldurs sakir. I heil 37 ár gekk Daniel þannig að störfum við skógrækt I Borgar- firöi og annars staðar á Vestur- landi. En það var ekki bara hjá Skógrækt ríkisins. Hann var löng- um I stjórn Skógræktarfélags Borgfirðinga frá stofnun þess og um leið framkvæmdastjóri þess. Það var þvf maklegt, er Skóg- ræktarfélagið heiðraði hann með þvi að nefna stærsta skógarreit félagsins að Svignaskarði eftir honum I tilefni af sjötugsafmæli hans. Þar reisti Daniel sér sjálfur veglegan minnisvarða, sem um langa framtið mun minna á starf hans. Þessi skógur er nú farinn að vekja verulega athygli rétt hjá Vesturlandsvegi og mun gera það enn rækilegar á næstu áratugum. Arið 1932 kvæntist Daníel Fanneyju Tryggvadóttur. Eign- uðust þau einn son, Ragnar, vél- stjóra, sem nú er búsettur á Seyð- isfirði. Þau slitu samvistum eftir stutta sambúð. Nokkrum árum siðar hóf Dani- el sambúð með Astu Guöbjarna- dóttur frá Jafnaskarði. Þau eign- uðust 3 börn: Guðmund loft- skeytamann i Reykjavik, Hrefnu, sem verið hefir sjúklingur frá bernsku, og Kristján, matreiðslu- mann I Reykjavik. Daniel hefir tekið mikinn þátt i félagsmálum I Borgarfirði og verið sýndur þar mikill trúnaður. Hann var lengi i stjórn Sparisjóðs Mýrasýslu og Kauofélags Borg- firðinga, en þar var hann fcrmað- ur til dauðadags.Hann var ibygg- ingarnefnd Varmalandsskóla og siðan skólanefndarformaöur, þar til I fyrra. Sem slikur hafði hann mestan veg og vanda af uppbygg- ingu þess skóla, sem allir 7 sveitahreppar Mýrasýslu standa að.Lagðihann geysimikla alúð i það starf. Fyrr á árum tók Danfel mikinn þátt i stjórnmálum i Mýrasýslu og ég hefi vissu fyrir þvi, að eitt sinn, er fiokkur hans missti leiö- toga sinn i kjördæminu, kom mjög til greina, að hann yrði i framboði til Alþingis. Þessi upptalning sýnir, að þátt- ur hans i félagsmálum var gildur. 1 starfi sinu fyrir skógræktina i landinu er þáttur Danlels heldur ekki litill. Fyrir áhri f hans og at- beina hafa lönd verið tekin til friðunar á glettilega mörgum stöðum i Borgarfirði og flest þeirra mjög áhugaverð til skóg- ræktar. Þetta eru að vísu ekki stór flæmi, en góð sýnishorn viða, sem geta orðiö góðir stökkpallar til meiri átaka. 1 þessum giröing- um vann Daniel mikið útplöntun- arstarf viðlítil efni. Stundum unnust þessi lönd til skógræktar fyrir snarræði og er þar á meðal perlan i skógargirð- ingum Borgarfjarðar, Jafna- skarðsskógur. Þar eru nú að vaxa upp i einhverju dýrlegasta um- hverfi, sem til er á landi hér, hinn fegursti skógur af ýmsum trjá- tegundum, sem ég trúi eigi eftir að verða fegursti minnisvarði um starf Daniels á þessu byrjunar- skeiði skógræktar i Borgarfirði. Tengslin, sem félagsmálastarf- ið skapaði honum, hafa vissulega komið skógræktarstarfinu til góða á ýmsan hátt, ekki sist við öflun lands fyrir.skógrækt. Þá má ekki gleyma þvi, að Kaupfélag Borgfirðinga varði um árabil, umtalsverðum fjárhæðum til skógplötunar á leigulandi hjá Skógrækt rikisins i Norðtungu- skógi. Þetta framtak má eflaust rekja til veru Daniels i stjórn kaupfélagsins öðru fremur. Þegar Daníel á Hreðavatni er allur, rifjast upp margt í huga gamals samstarfsmanns, þvi að i hinum fámenna hópi starfs- manna Skógræktar rikisins var Daniel löngum hin litrika persóna, sem ýmist gustaði af eða var góðvildin sjálf, allt eftir þvi, hvernig áttir stóðu hverju sinni. Þannig birtust strax þeir eigin- leikar, sem einna rikastir eru i fari hans: óvenjuleg hreinskilni og sterk skapbrigði. Hann var að þessu leyti eins og sú náttúra. sem ól hann, fölskvalaus og óspillt. Hann gat þotið upp I funa, en var fljótar að fyrirgefa og var þá manna ljúfastur. Kynni okkar Daniels voru fyrst og fremst bundin við þau skipti, er við hittumst á fundum starfs- manna Skógræktar rikisins og á aðalfundum Skógræktarfélags tslands eöa þegar við þurftum að hafa samband I síma milli fjar- lægra landshluta um skipti á plöntum. Samt mynduðust milli okkar sterk tengsl, sem hljóta aö hafa átt rót sina að rekja til þeirra eiginleika Daniels, sem ég var aö nefna. Oft fóru skoðanir okkar á málum saman á fundum skógræktarmanna og þá var skemmtilegt að eiga Daniel að baráttufélaga, þvi aö i orðræðum gat hann verið harður af sér og flugmælskur, enda enginn við- vaningur i félagsmálum. Ég skemmti mér oft við að rifja upp tiltekið mál, sem við bárum nokkrum sinnum fram saman á aðalfundum Skógræktarfélags Islands, en fengum aldrei neinn stuðning við að ráði. Þetta lét Daniel aldrei á sig fá, en barðist alltaf jafnvasklega fyrir sannfær- ingu sinni. Eftir að hafa beðið • lægri hlut I bardaganum, lét hann sem ekkert væri, svo sem háttur er margra sannra baráttumanna. Þvi miður átti ég þess sjaldan kosta að heimsækja Dar.Iél i skógana, sem hann starfaði i, en þau fáu skipti, sem það gerðist eru mér afar minnisstæð. Þá kom fram hjá honum enn ný hlið, sem maður hafði ekki kynnst á mannafundum. Nú á kveðjustundu minnist ég kynnanna við Daníel Kristjáns- son, sem ætið voru ánægjuleg. Fyrir hönd Skógræktar rikisins, sem naut krafta hans sem starfs- manns I 37 ár, þakka ég honum ótrautt brautryðjendastarf. Ég sendi öllum aðstandendum hans innilegustu samúðarkveðjur okkar hjóna. Sigurður Biöndal Að morgni laugardagsins 24. april 1982 lést á Borgarspitalan- um i Reykjavlk Daníel Kristjáns- son frá Hreðavatni. Daniel var fæddur að Tungu i Hörðudal i Dalasvslu hinn 25. ágúst árið 1908 en ólst upp á Hreðavatni i Norðurárdal frá fimm ára aldri. Foreldrar hans voru Kristján Gestsson, ættaður úr Dölum, og Sigurlaug Danieisdóttir frá Stóru Gröf i Borgarfirði. Þau Kristján og Sigurlaug voru dugandi fólk og komu upp góðu búi aö Hreðavatni, þar sem þau ólu upp sex syni og einn fósturson. Daniel var i Hvitárbakkaskóla veturna 1929—1931. Næstu árin stundaði hann ýms störf, en átti heimili á Hreðavatni. Hann hóf búskap á Gljúfurá i Borgarhreppi áriö 1938 og bjó þar tii ársins 1944, en þá fiuttist hann að Beigalda i sama hreppi. Þá jörð keypti Daniel og bjó þar til ársins 1948. Siðan hefur hann búið á Hreða- vatni, lengst af ásamt Þórði bróð- ur sinum og fjölskyldu hans. Arið 1932 kvæntist Daniel, Amaliu Fanneyju Tryggvadóttur. Þau eignuðust einn son, Ragnar Gisla, vélvirkja. Þau skildu eftir stutta sambúð. Sambúðarkona Daniels siöar varð Asta Sigriður Guðbjarna- dóttir frá Jafnaskarði i Stafholts- tungum. Þau eignuðust þrjú börn, Guðmund,. loftskeytamann og flugmann i Reykjavik, Hrefnu, sem er sjúklingur á Kópavogs- hæli, og Kristján bryta i Reykja- vik. Það, að þuu Daniel og Asta hættu búskaj á Beigalda árið 1948, mun aó miklu leyti hafa stafað af veikindum Astu þá. En siðan hefur hún að mestu verið búsett i Reykjavik. Strax á unga aldri hóf Daniel afskipti af félagsmálum. Hann hreifst ungur af hugsjónum ung- mennafélaganna og starfaði mik- iö i ungmennafélagi sveitar sinn- ar. Hann endurreisti þar Ung- mennafélagið Baulu og var for- maður þess i mörg ár. Hið mikla og þjóðholla starf ungmennafélaganna hafði sterk á> hrif á hinn unga mann og mótaði lifsviöhorf hans á margan hátt. Var hann alla tið, allt til æviloka, sami ungmennaféiaginn i anda og hann hafði verið sem ungur mað- ur i Noröurárdal. Daniel átti lengi sæti i sveitar- stjórn Norðurárdalshrepps, en gaf ekki kost á sér til endurkjörs voriö 1978, enda þá kominn fast að sjötugu. Hann átti lengi og allt til dauða- dags sæti i stjórn Sparisjóös Mýrasýslu. 1 stjórn sparisjóðsins þótti Daniel góður fulltrúi alþýðu manna, enda gott til hans að leitaog hann vel kunnugur mönn- um og málefnum héraðsins. Eitt af áhugamálum Daníels var Barnaskólinn að Varmalandi. Allt frá stofnun þess skóla og fram á árið 1978 sat hann i skóla- nefnd hans lengst af sem formað- ur. Þegar kjósa skyldi nýja skóla- nefnd árið 1978, gaf Daniel ekki kost á sér lengur til þeirra starfa, taldi rétt að yngri maður tæki við, sem og varð. Fyrir Varmalandsskólann vann Daniel mikið og óeigingjarnt starf. Eyddi frá sjálfum sér ómældum tima og fjármunum i þágu skólans fyrr og siðar og taldi ekki eftir. Daniel var alla tiö mikiil áhugamaður um skógrækt Hann réðist sem skógarvörður fyrir Vesturland upp úr 1940, eftir að hafa áður lært til skógræktar, m.a. með námi um tima i Noregi.Hann lét af skógarvarð- arstarfinu vorið 1978 sakir heilsu- brests. Daniel var kosinn i stjórn Kaupfélags Borgfiröinga árið 1956 og formaður þess áriö 1966. Varhann formaður K.B. frá þeim tima og allt til dauðadags. Ég, sem þessar llnur skrifa, man sem unglingur eftir Daniel frá hans yngri árum og hef þekkt hann alla tið siðan. Siðustu fjórtán árin hef ég haft náið sam- starf við hann um málefni Kaup- félags Borgfirðinga. Ég fagna þvi að hafa i svo langan tima átt sam- leið með Daniel. A okkar sam- starfhefur aldrei borið skugga. Ég veit, að ekki er alltaf vinsælt að vera formaður i stóru kaupfé- lagi. En slika smámuni lét Daniel ekki á sig fá. Hann var einlægur samvinnumaður og taldi ekki eft- ir sporin fyrir samvinnuhreyfing- una. Margan fundinn sat hann og marga ferðina fór hann i þágu kaupfélagsins og þáði næsta litil laun fyrir. En þannig var Daniel. Hann skeytti litt um eigin hag, fé- lagsmálin, mál fjöldans, voru honum miklu ofar i huga. Inni- lega glaður var hann, þegar vel gekk hjá K.B., en áhyggjufullur, þegar honum fannst eitthvað fara úrskeiðis. Hann þoldi illa órök- studda gagnrýni á kaupfélagið eða samvinnuhreyfinguna, en var fús að ræða um úrbætur, þar sem honum fannst úrbóta þörf. Við samvinnumenn i Borgar- firði munum sakna góðs vinar og samherja úr röðum okkar, þegar Daniel á Hreöavatni er ekki leng- ur með okkur, ekki sist nú, þegar árlegir deildafundir standna yfir og aðalfundur er framundan. Við minnumst skörulegrar fram- göngu hans og drengilegt mál- flutnings á fundum. Maður kemur i manns stað og lögmál lifs og dauða gildir nú sem ávallt. En við, sem höfðum mikið saman við Daniel að sælda, finnum til tóm- leika, og I hugskoti okkar verður eyða fyrst I staö, eyða, sem hann fyllti áður. Daniel á Hreðavatni var hár maður vexti og glæsilegur á velli, léttur á fæti og kvikur i hreyfing um fram á efri ár. Hann hafði bjarta og hvella rödd og lá hátt rómur, sérstaklega þegar hið mikla skap hans sagði til sin. En skapheitur var hann, oft fljótur að reiðast, en fljótur til sátta og hafði aldrei nein eftirmál, þó eitt- hvað slettist upp á vinskapinn. Hann var vinfastur, hreinn og beinn I öllum samskiptum og fór ekki dult með skoðanir sinar. Fundum i stjórn K.B. stjórnaði hann með festu og reisn. Þar sem annars staðar fylgdi honum birta og hlýja. Það var alltaf bjart i kringum Daniel, og maður hlakk- aði ósjálfrátt til að hitta hann. Hánn var stundvis og reglusamur I hvivetna, og honum fylgdi jafn- an hressandi blær. Daniel á Hreðavatni var alia tið mikill náttúruunnandi, o'g nátt- úrufegurð og fagurt landslag kunni hann vel að meta. Hin dásamlega og margbreytilega náttúrufegurð heimahaga hans hefur vafalaust nokkuð mótað hug hans og lifsviðhorf. Daniel var skógræktarmaður. En hann lagði rækt viö margt annað. Fegrun og uppgræðsla landsins var i hans huga nátengd fegrun mannlifsins og viðleitni mannsins til betra Hfs, — lifs sem ekki er streita um fjárhags- og viðskiptamál, heldur bjartara og betra lífs i faðmi fagurrar is- lenskrar náttúru. Hið jákvæða viðhorf Daniels til manna og málefna hafði áhrif á umhverfi hans. Það var, sem fyrr segir, bjart i kringum hann. Nokkuð er siðan heilsu Daniels fór að hraka. Atti hann við veik- indi að striöa seinni árin, sem ágerðust eftir þvi sem á leið uns yfir lauk, laugardaginn 24. april s.l. Framundir það siðsta fylgdist hann með málum. Hann tók þátt i hátiðahöldum i Borgarnesi 20. febrúar s.l. i tilefni af 100 ára af- mæli samvinnuhreyfingarinnar og hann mætti sem formaður K.B. á ársfundi Búvörudeildar Sambandsins i Reykjavik hinn 5. mars s.l. Þrátt fyrir sjúkleika sinn sat hann fund daglangt.Slik- ur var áhugi hans fyrir málefnum bænda og samvinnuhreyfingar- innar. Undir fundarlok kvaddi hann mig með hlýju handtaki sem jafnan aður. Nú að leiðarlokum leyfi ég mér fyrir hönd félagsmanna, starfs- manna og stjórnar Kaupfélags Borgfirðinga að þakka Daníel fyrir mikið og gott starf I þágu kaupfélagsins og héraðsins alls um leið og við vottum börnum hans og fjölskyldu dýpstu samúð. Persónulega þökkum við Anna honum margar ánægjustundir á heimili okkar að Skúlagötu 21 i Borgarnesi, og fyrir hönd fjöl- skyldu minnar allrar þakka ég honum góð kynni og vináttu fyrr og siðar. ólafur Sverrisson Kveðja frá Skógræktarfélagi Borgfirðinga Einn af strekustu stofnunum I skóginum er fallinn, stofn, sem lætur eftir sig stærra rjóður en flestir aðrir. Daniel Kristjánsson á Hreöa- vatnierallur. Hann var fæddur i Tungu i Hörðudal i Dalasýslu 25. ágúst 1908. Foreldrar hans voru Sigur- laug Daníelsdóttir og Kristján Gestsson. Þau hjón fluttust með Daniel kornungan að Hreðavatni i Norð- urárdal, þar sem þau bjuggu sið- an. Þar ólst hann upp, elztur 6 bræðra, og við Hreðavatn var hann lengst af kenndur. Annars var nóg hér um slóðir að nefna aðeins Daniel, og vissu þá allir, við hvern var átt. Daniel var við nám i Hvitár- bakkaskóla 1929—1931 og stund- aði eftir það ýmis störf unz hann gerðist bóndi Gljúfurá I Borgar- hreppi árið 1938. Þar bjó hann næstu 6 árin, og siðan 4 ár á Beigalda i sömu sveit. Þá fluttist hann að Hreðavatni og átti þar heima siðan. A Hreðavatni rak Daniel all- stórt fjárbú og hefur eflaust alla tiö haft mesta hneigð til búskapar og þá einkum sauðfjárræktar, enda náði hann ágætum árangri á þvi sviði. En örlögin höguðu þvi þannig, að hann varð alltaf að stunda búskapinn I hjáverkum. Það sem gerði slikt mögulegt var, að Daniel var óvenjulega þrek- mikill og lagði hiklaust nótt við dag, þegar með þurfti. 1942 var hann skipaður skógar- vörður á Vesturlandi og gegndi þvi starfi til ársins 1978, er hann lét af þvi fyrir aldurs sakir. Ahugamál Daniels voru mörg, og hann var fljótlega kallaður til forystu I margvislegum félags- og framfaramálum. Hann var vel til foringja fallinn, góður ræðumað- ur og ómyrkur i máli, úrræðagóö- ur og afar ósérhlifinn og vinnufús. Hann beitti sér af lifi og sál i þvi, sem honum var falið, með þeim einlæga ásetningi að láta gott af sér leiða. A æskuárum Daniels var ung- mennafélagshreyfingin upp á sitt bezta. Ungur gekk hann hugsjón- unum um „ræktun lands og lýðs” og „Islandi allt” á hönd og starf- aði siðan i þeim anda meðan kraftar entust. Hér skulu ekki upptalin hans fjölmörgu trúnaðarstörf fyrir sveit slna og hérað og einnig á viöari grundvelli, aðeins fluttar fátæklegar þakkir frá félagsskap sem á honum meira upp að unna en nokkrum öðrum, Skógræktar- félagi Borgarfjarðar. Daníel átti sæti i undirbúnings- nefnd um stofnun þess félags, en skógræktarfelagið var stofnað ár- ið 1938. Hann var kosinn i fyrstu stjórn þess og sat samfleytt i stjórn þar til á aðalfundi 1977, að hann gaf ekki lengur kost á sér. Hann gegndi framkvæmdar- stjórastörfum fýrir skógræktar- félagið alla tiö meðan hann var skógarvörður, og rækti það starf af afburða dugnaði og útsjónar- semi. Hann var alltaf driffjöðrin i félaginu og sá árangur, sem náðst hefur, er mest honum að þakka. Auk þeirra skóga, sem Danlel stjórnaði gróöursetningu i fyrir Skógrækt rikisins, eru i héraðinu allmörg afgirt svæði með vöxtu- legum trjágróðri, i eigu og umsjá v Framhald .á 18. siðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.