Þjóðviljinn - 09.06.1982, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 9. júni 1982
á flK '
w
MÍé
LIFANDI
TÓNLIST
SATT
samtök Ait-tmrrótaatÁUiA
OG TÖKU8TAKHAX**.
t tilcfni byggingahappdrættisins hefur SATT látiö útbúa þetta plakat sem tákn fyrir „lifandi tónlist
A innfelldu mvndinni er Jóhann G. aö fremia lifandi tónlist.
viðtalið
Rætt við Jóhann G.
Jóhannesson um
lifandi tónlist,
byggingar-
happdrætti og
fleira:
Gróskan
mikil, en
aðstaðan
engin”
Samband alþýöutónskálda og
tónlistarmanna SATT, hafa
hleypt af stokkunum byggingar-
happdrætti auk þess sem sam-
bandiö hefur ráöiö I fyrsta sinn
framkvæmdastjóra til starfa. I
tilefni þessarar grósku f starf-
semi sambandsins náöi 2. stöan
tali af Jóhanni G. Jóhannssyni
tónskáidi með meiru, en hann
ber m.a. hitann og þungann af
byggingarhappdrættinu. En til
hvers er farið út l happdrætti?
— Viö keyptum húsnæöi viö
Vitatorg sem er fokhelt og þurf-
um nauösynlega aö koma þvi i
stand svo sambandiö eignist
samanstaö, og til þess þarf að
sjálfsögöu peninga. Þess vegna
fórum viö út i happdrætti. Varö-
andi húsnæöiö eru margar hug-
myndir á lofti, en til aö byrja
með verður þar rekin brýnasta
starfsemi, komið upp nauðsyn-
legri miöstöö fyrir okkar starf.
— Þiö réðuð ykkur Ifka fram-
kvæmdastjóra; stendur eitthvaö
stórt til?
— Jú, við höfum ráðið Eggert
V. Kristinsson gamlan poppara
og nýútskrifaöan háskólamann
til starfa. Hann er þaulvanur
félagsstarfi og þaö kemur okkur
til góöa, þvi þeir sem staöiö hafa
i fylkingarbrjósti fyrir sam-
bandinu hafa veriö mjög upp-
teknir af eigin vinnu og þaö
hefur alls ekki veitt af manni i
fullt starf til aö sinna störfum
fyrir SATT.
— Hver eru helstu verkefnin?
— Þaö þarf hikstalaust aö
bæta aöstööu tónlistarmanna
sem flytja lifandi tónlist. Eink-
um varðandi tónleika og dans-
leiki úti á landi. í dag vita
hljómlistarmenn sem slá upp
dansleik úti á landi, alls ekkert
hvort þeir fái nokkuö fyrir sinn
snúö. Þeir eru á engri tekju-
tryggingu, heldur fá þeir i sinn
skammt þaö sem eftir er þegar
allir þar á meöal rikið er búiö aö
taka sitt af brúttó innkomu. Þeir
segja sem þekkja til að þetta sé
eina atvinnustarfsemin i land-
inu sem sé skattlögö brúttó.
— Er mikil gróska f lifandi
tónlist um þessar mundir?
— Gróskan er mikil, en aö-
staöan er engin fyrir menn til aö
koma sér á framfæri .Þaö er til
heilmikið af efnilegu fólki sem
fær aldrei aö sýna getu sýna
opinberlega, og fer þvi algjör-
lega forgörðum. Borgin er eini
staöurinn sem býöur upp á lif-
andi tónlist og þar búa menn viö
afarkosti, auk þess sem yfirvof-
andi er aö sá staöur leggist
niöur.
— Hvaö eru margir félagar i
SATT?
— Nú eru milli 150—60 félagar
i SATT, en gætu sjálfsagt verið
miklu fleiri ef viö heföum getað
sinnt félaginu sem skyldi. Menn
eru margir hverjir, allt of
margir raunar, illa upplýstir
um sinn rétt og þar þurfum við
aö bæta verulega úr.
— Aö lokum, hvar er hægt aö
kaupa happdrættismiöana
ykkar?
— Miöarnir eru dálitiö sér-
stakir þvi þeir eru um leiö bar-
merki sem Haukur Halldórsson
teiknari hefur hannað. Merkin
og þá meö talin happdrættis-
númer, eru seld i öllum plötu-
verslunum hér i borginni.
Dreifingin er I Gallery Lækjar-
torg og einnig munu tónlistar-
menn taka meö sér merki til
sölu á dansleiki og tónleika úti
um land. Við drögum 13. októ-
ber á þriggja ára afmæli SATT
og vinningar eru bæöi margir og
glæsilegir. — ig
Fugl dagsins
Heiðasnipa-Gallinago media,
er eins og nafniö bendir til af
snipuætt likt og hrossagaukur-
inn. Heiðasnipan þekkist ekki
hér á landi nema þá sem ein-
staka flækingur. Sitjandi er
heiöasnípa torgreind frá
hrossagauk, en er litið eitt
stærri, dekkri og þverrákóttari
aö neöan. A flugi er hún mun
auögreindari á miklu hvitari
stélfjöörum. Heiöasnipan flýgur
venjulega beint, ekki i hlykkjum
likt og gaukurinn.
Röddin er iskrandi, stök lág
hljóö. Kjörlendiö er það sama
og hrossagauks, nema hvaö
heiöasnipan hefur ekki fasta
sumarsetu i Evrópu nema i
Noregi og Eystrasaltslöndum.
Rugl dagsins
/
Aður gert án
umhugsunar
Simakonur litt hrifnar af
Steingrimi:
Ráðherra beitir konur misrétti
aö vandlega athuguöu máli.
(Or Dagblaðinu & Visi)
Gætum
tungunnar
Sagt var: í þessari vinnu er
enginn dagur eins.
Rétt væri: 1 þessari vinnu eru
engir tveir dagar eins.
Eöa: I þessari vinnu er enginn
dagur sem annar.
Hefur þú
heyrt...?
— Veist þú hvað þúsundfætlan
sagði þegar henni voru gefnir
nýju skórnir?
— Nei!!
— Hún sagöi, þúsund þakkir.
— Anna, sagöi amma ströng.
Þáö lágu tvær tertusneiðar á
disk i búrinu fyrir skömmu
siðan, en nú er aðeins 1 sneið
eftir. Hefur þú einhverja skýr-
ingu á þessu.
— Já, þaö var svo dimmt aö ég
sá aöeins aðra sneiðina.
— Alltaf þégar maöur spyr þig
um eitthvað, þá svarar þú ætiö
með spurningu.
— Geri ég það???
Svínharður smásál
Eftir Kjartan
Arnórsson
PR.SKfiHt, É& v»Kl ftLLA AoXTtNA,VITSTOLA fíF
SV£FNt-£Y5l i A PAö/NM EtZ B6r BINS OCr DA/P/Ai J
^T'JSKft! f\TTO BlTTHVfíÐ F
O/in ? ------------—----^
(^SOP-DO TOSlRfí!)
2.00/cteT)
----1 TAKK' C-----11
mi
(I
<
Q
1-4
O
b
Hreinasta hörmung...
Maður hlýtur aö spyrja
sjálfan sig hvenær þessi
^Nyósköp enda eiginlega!,