Þjóðviljinn - 09.06.1982, Side 6

Þjóðviljinn - 09.06.1982, Side 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 9. júni 1982 „Það sem gildir er að endur- heimta marglitan sköpunar- kraft, sem ber i sér angan af terpentfnu”... segir Demetrio Paparoni, skipuleggjandi sýn- ingarinnar sem nú stendur yfir i Nýlistasafninu við Vatnsstig. Paparoni nefnir sýninguna „Thinking of the Europe” og ætlar hann sennilega rangri notkun ákveðins greinis við Eu- rope að dýpka merkinguna. Ef merkingin sem leggja á i nafniö er „Hin Evrópska hugsun” þá ber verulega mikið á miili þessa metnaðarfulla titils og sjálfra verkanna á sýningunni. Gefi þessi sýning einhverja heildar- mynd af samtima málaralist i Evrópu þá er Helgi Þorgils Friðjónsson besti málari álf- unnar. Sýningar kosta peninga 1 heildardagskrá Listahátiöar er sýningin i Nýlistasafninu Stór mynd eftir Helga Þorgils Friöjónsson sem hann nefnir „Hættu- Þessi mynd er ágætt dæmi um þýsku linuna I „nýja málverkinu”. legt fyrir fiugvélar”. Myndin er eftir Helmut Middendorf og nefnist „Standandi söngv- ari”. Þessi mynd er i sýningarskrá en ekki á sýningunni. MYNDLIST Svala Sigurleifsdóttir skrif Evrópsk hugsun hvað? kynnt þannig aö sýna eigi verk tiu samtimalistamanna ev- rópskra og er sá þekktasti Mario Merz. A sýningunni ERU sex listamenn og er Merz ekki þeirra á meðal. Það er auðvelt aö geta sér til hvaö það er sem veldur fjarverunni. Nýlista- safnið fær á fjárhagsáætlun Listahátiðar 20 þúsund til að kosta þessa sýningu. Þegar búið er að prenta sýningarskrá, plakat og boðskorL senda boðs- kortin, borga farseðil Paparonis til og frá ttaliu og flutning á myndverkunum er sennilega minna en ekki neitt eftir af 20 þúsundum islenskra króna. Þeir myndlistarmenn sem nú ber hæst i „nýja málverkinu” i Ev- rópu selja orðið verk sin fyrir umtalsverðar fjárhæðir og lána þau ekki nema greidd séu tryggingargjöld. Ég hef ekki trú á að það fé sem Nýlistasafnið fékk til þessarar sýningar hafi nægt til að tryggja verk Mario Merz, auk annars kostnaöar. Hefðbundinn véfréttastíll Þótt sýningin sé pasturslitil þá er sýningarskráin flott. t henni er texti eftir Demetrio Paparoni i véfréttarstil og heil- mikiö af ljósmyndum af verkum sem alls ekki eru á sýningunni. Textinn upphefst svona: „Það má sigrast á vanda- málafræðum vorra tima (modern problematics) með þvi aö sviðsetja sköpunarmátt sam- timans sem sannprófun, tima- bundinn dans sem hneigist til að leysa úr læðingi litadýrð sem hyllir hina „nýju manneskju” sem staöfestir leik frjálsrar hugsunar innan ramma listar sem litur á einangrun sina sem menningarmöguleika og viöur- kenningu á þvi sem er ööru- visi”. Merking „modern proble- matics” er óljós og þvi erfitt að •átta sig á merkingu setningar- innar I heild. Er maðurinn aö tala um vandamál samtima- málaralistar eða heimsvanda- málin? Ef hann á við heims- vandamálin er verulega óljóst hvernig þessi myndverk eiga að sigrast á þeim. Og fleiri efa- semdir: Hver er þessi „nýja manneskja?” t hverju felst þessi „frjálsa hugsun?” Og of- boðslega er... „innan ramma listarsem litur á einangrun sina sem menningarmöguleika” ... eitthvað dularfull setning. Er maðurinn ófær um aö tjá sig á ljósaramáli? Eöa er markmiðið að hylja „nýja málverkiö” þoku og reyk? Dularhjúpur er vernd gegn gagnrýni, — og sjálfs- gagnrýni. Heimur á heljarþröm ...„hefur nútlmamaðurinn sem I listamanninum býr misst sjónar af allri fullvissu og endanleika: framtiöin er ekki lengur fyrirsjáanleg”, segir Paparoni og ýmislegt svipað viðar. Framtiöarleysi okkar hefur flestum verið ljóst sein- ustu þrjátiu árin. Það, að eyði- leggingarmáttur mannsins sé orðinn mælanlegur á plánetu - skala og að vopnabirgðir séu nú til svo hægt sé að drepa okkur öll sextán sinnum, mótar hugsun flestra sem búa i hinum vestræna heimi, — ekki aðeins evrópskra myndlistarmanna. 1 linum sem Paparoni setti á blað fyrir Helgarpóstinn segist hann vinna meö listamönnum sem: „telja sig ekki lengur geta breytt heiminum meö list sinni. Samt sem áður breytist heimur- inn fyrir tilstilli listarinnar, svo og skáldskapar og heimspeki. Margir skilja ekki þessa nýju hugsun og/eða afneita henni. Þeir sem þaö gera, afneita I rauninni manninum”. Er ekki á honum að skilja að i þessari „nýju hugsun” felist uppgjöf sjálfra myndlistarmannanna til að reyna að hafa áhrif á mótun umhverfis sins á meðvitaöan hátt? Og siðan hvenær er sú hugsun ný? Peningalykt af terpentínunni? Eitt af þvi sem einkennir sterklega nýbylgjuna I mál- verkinu er sú markaðshyggja sem henni fylgir. Myndlist sein- asta áratugs einkenndist a: myndlist sem byggðist á hug- myndum, tilraunum með hin ýmsu efni og tilraunum með nýja miðla. Konsept-myndverk eru illseljanleg, enda má setja jafnaðarmerki á milli konsept- listamanna og blankheita. Enn seljast þó, á uppsprengdu verði, oliumálverk frá hinum ýmsu tlmabilum. Þau eru örugg fjár- festing. Afturhvarfið til þess að mála með oliulitum á striga kemur þegar vissrar kreppu gætir I þeim gallerium sem versla með samtimalist. Það var skortur á seljanlegri vöru, splunkunýrri og merkilegri. Og ungir myndlistarmenn voru, og eru, hundleiðir á að vera alltaf blankir. Ég er sko ekki á móti þvi að myndlistarmenn fái laun fyrir sina vinnu, langt frá þvi, enda fyrr mætti nú vera. En ég er á móti þvi aö útsmognir verslunarmenn ráðskist með þaö hvað er list og hvað ekki. Ég er á móti þvi aö þeir taki upp á arma sina slarkfæra málara og auglýsi þá upp i stórstjörnur. Og ég er á móti þvi að hjörð gagn- rýnenda fylgi i kjölfariö um- vefjandi verkin hástemmdu kjaftæði. Dæmi um versl unarmenntunina New York er háborg peninga- maskinu myndlistarheimsins. Þar fcefur Leo nokkur Castelli verið einn helsti vélfræðingur- inn og „nýja málverkiö” fer ekki framhjá honum. Nú i vor var bandariski málarinn David Salle með einkasýningu i Castelli-galleriinu við West Broadway. Samtimis var hann með aðra sýningu á verkum sinum i galleri Mary Boono i sama húsi og þá þriðju i Boono- gallerii handan götunnar. Þessi gallerí eru i hjarta aðal - galleria-hverfis New York. Þetta var engin tilviljun heldur skipulagt áróðursbragð. David Salle var sá umræddasti i bænum það vorið. Og að auki var hann endapunkturinn á stórri mannamyndasýningu I Withney-safninu. Sú sýning upphófst með málurum eins og Roy Lichtenstein og Alex Kat^ siðan kom t.d. David Salle og Julian Schnabel. Schnabel er númerið frá I fyrra. Eins og gefur að skilja liggja verk þess- ara manna ekki á lausu fyrir slikk um þessar mundir. Þeir hafa skothelt sölukerfi á bak við sig sem mun sjá til þess að á næstu árum verði þeir með stórar sýningar i öllum söfnum sem máli skipta i Bandarikj- unum og Evrópu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.