Þjóðviljinn - 09.06.1982, Page 7

Þjóðviljinn - 09.06.1982, Page 7
Miðvikudagur 9. júni 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7 „Kennarar krefjast þess af þjóðfélaginu að það taki upp breytt mat varðandi menntun og uppeldismál almennt og þar meö hlutverk kennarans i þjóðfélag- inu”, sagði Arthúr Morthens kennari á nýafstöönu þingi Kenn- arasambands tslands i samtali við Þjóðviljann. „Þá fordóma sem hafa verið rikjandi gagnvart hlutverki kenn- arans i samfélaginu verður að brjóta skipulega niður. Menn verða að gera sér grein fyrir þvi að i þvi menningarþjóðfélagi sem viö gerum kröfu um, þar er menntunin hornsteinn. Mér finnst það beinlinis til vansa fyrir is- lenskt þjóðfélag aö kennarar skuli vera láglaunahópur. Kenn- arar munu með aukinni hörku gera tilraun til þess að knýja fram breytingar á viðhorfum fólks og sporna gegn þvi að hæfir starfskraftar hverfi úr stéttinni vegna lágra launa”. Arthúr Morthens: kennarar hljóta að snúa sér til annarra starfa i haust fái þeir ekki leiðréttingu á sinum kjörum. Ljósm. kv. Við njótum engra yfirborgana eins og allir vita og okkur er ekki einu sinni gefið svigrými til að auka við laun okkar með meiri vinnu. Þaö er þvi alveg ljóst að hér verður að koma til myndarleg viðbót i launum”. — Hafa kröfur til kennara i starfi aukist? „Þær hafa stóraukist á siðustu árum samfara bættu skólakerfi. Grunnskólalögin frá 1974 lögðu til dæmis stóraukna ábyrgö og vinnu á kennara en þvi hefur ekki að sama skapi verið mætt meö betri launum. Hin sjálfsagöa krafa um aukið samstarf foreldra og kenn- ara leggur auðvitað aukna vinnu á okkur án þess að til þess sé tekið tillit. Stjórnvöld verða að gera sér grein fyrir þvi að ef þau ætla að hrinda grunnskólalögunum i framkvæmd, án þess að leggja aukið fjármagn i þessi mál, tekst aldrei að framkvæma af nokkru viti þau lög”. — Verða átök i sumar og haust? „Endurmeta verður hlutverk kennarans” — segir Arthúr Morthens kennari ✓ á þingi Kennarasambands Islands — Hver eru kjör kennara i raun? „Kennarar eru með rúmlega 47 stunda vinnuviku og samkvæmt rannsóknum sem gerðar hafa verið, er vinnuálag á vinnumark- aðnum áberandi mest meðal „Þetta hefur að minu mati verið gott þing og auðvitað hafa kjaramálin tekið mestan tima i umræðu manna hér. Það virðist alveg ljóst að kennarar eru harð- ákveðnir i að ná fram beinum kauphækkunum og það svo miklum að kjörin verði mann- sæmandi”, sagði Haukur Viggós- son kennari i Snælandsskóla i Kópavogi á þingi Kennarasam- bandsins sem lauk sl. föstudag. „Okkar megin kröfur eru þær að ná aftur þvi sem opinberir starfsmenn hafa tapað i launum á siðustu þremur árum^ full og óskert visitala verður að koma til og úrbætur i húsnæðismálum tel ég vera afar nauösynlegar og gagnlegar öllu launafólki nú á verðbólgutimum. Hvað okkur kennara varðar sérstaklega vilj- um við leggja áherslu á styttri kennsluskyldu, þ.e. að undirbún- ingstimi fyrir sjálfa kennsluna verði stórlega aukinn frá þvi sem nú er”. kennara og forstjóra fyrirtækja. Viö vinnum 47 stundir til þess að vinna upp i þaö fri sem við fáum á sumrum. Nú, sjálfur hef ég starf- að sem kennari i 9 ár og er nú i 15. launaflokki BSRB sem gerir um það bil 10.300 krónur á mánuði. Haukur Viggósson á Kennara- þingi: allra bragða verður að leita til að tryggja mannsæmandi kjör. „Það er alveg ljóst á þessu þingi Kennarasambandsins að þolinmæði okkar er þrotin. Ef ekki verður orðið við sanngirnis- kröfum okkar um viöurkenningu á okkar starfi i formi stórfelldra launahækkana nú i sumar, tel ég einsýnt að kennarar muni ganga út úr skólastofunum og leita fyrir sér á öðrum vettvangi”, sagði Arthúr Morthens á Kennaraþingi að lokum. þeirri samningalotu sem fram- undan er, splundrist BSRB i frumeindir sinar. Heildarsamtök- in verða aö sýna okkur fram á að þau séu fær um aö tryggja okkurstórbætt laun. Ég er sjálfur þeirrar skoðunar að það væri stórt skref aftur á bak ef BSRB yröi veikt meö þeim hætti en ég óttast hins vegar að Kennara- samband Islands muni segja sig úr heildarsamtökunum, nái þau ekki fram bættum launum okkur til handa”. — En hvað er til ráða? „Vilji okkar viösemjendur ekki koma til móts við okkur sé ég enga aðra lausn en þá aö ganga hart fram og boða til vinnustööv- unar með einum eða öðrum hætti. Slikt er vissulega örþrifaráð en ráð sem hlýtur að koma á dag- skrá, ef viö sjáum fram á að ná engu fram við samningaborðið. Hvort slikt verkfall er ólöglegt eöa ekki skiptir aö sjálfsögöu engu máli, við þurfum að lifa eins „BSRB gætí splundrast í frumeindir sínar” — segir Haukur Viggósson kennari í Snælandsskóla — Nú varst þú i hópi kennara sem gekkst út af þinginu þegar framboð til stjórnar voru ákveðin. Hvcrs vegna? „Já, við vorum að andmæla vissum vinnubrögðum uppstill- inganefndar fyrir stjórnarkjörið. Tóku þátt i þessari mótmælaaö- gerð allir fulltrúar úr Kjalarnesi Kópavogi og Seltjarnarnesi. Þannig var að menn lögðu fram tillögur sinar um menn i stjórn og trúnaðarstöðu fyrir kjörnefnd Sambandsins og i stað þess aö bera fram þær tillögur, gengu menn þar fram og stungu þeim undir stól þannig að þingheimi gafst aldrei kostur á að greiða at- kvæði um þá fulltrúa sem við höfðum lagt áherslu á að yröu i kjöri. Þessum einræöislegu vinnubrögðum vorum við að mót- mæla”. — Nú hcfur verið rætt um að BSRB sé jafnvel að liðast i sundur. Hvað er þitt álit á þvi? og annaö fólk og tryggjum okkar „Ég er þess fullviss að ef kjör með þeim aðferðum sem grunnlaun opinberra starfs- duga best”, sagði Haukur Viggós- manna hækka ekki stórlega nú i son kennari i Kópavogi að lokum. • Blikkiðjan Ásgaröi 7, Garðabæ Önnumst þakrennusmíöi og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíöi. . Gerum föst verðtilboö SIMI 53468 Súrrealistar opna sýningu Hinn 5. júni opnaði súrrealista- hópurinn Medúsa sýningarsal sinn að Suðurgötu 3 A i Reykja- vik, en nafn salarins er Skruggu- búð. Þarna sýna verk sin: Tony Pusey, Þór Eldon, Sjón, ólafur Engilbertsson, Matthias Magnús- son, Jóhamar og Einar Melax, og gestir þeirra Ragna Björg og Al- freð Flóki. Hópurinn Medúsa segir, að i framtiðinni verði i Skruggubúð sýningar á verkum hinna ýmsu súrrealista héöan af landi og annars staöar. Opnunartimi safnsins er frá kl. 5 til 10 virka daga en frá 2 til 10 um helgar. Sýingunni lýkur 25. júni. bridge Akureyringar sigruðu Heyrst hefur að Akurevringar hafi sigraö „Stórfélags” keppn- ina á Hallormsstaö fyrir skemmstu. Skutu þeir ekki ómerkari mönnum en TBK og heimamönnum ref fyrir r... Annars hefur litið bitastætt bor- „Draumur nábúans” heitir þetta verk eftir Matthias Magnússon. istfrá þessu móti og gegnir furöu. Austanmenn hafa veriö ansi latir við fréttaflutning • vetur af móts- haldi, hverju sem það sætir. Akureyringar munu hafa átt um 60 stig á TBK er upp var staöiö, Héraðsbúar I 3. sæti og Hornfirðingar svo I 4. sæti. Alls spiluðu 24 sveitir á mótinu, 4 frá hverjum staö (félagi) Vonandi nánar slðar. Magnús sigraði í Eyjum Magnús Jónsson, GS, varð sig- urvegari I meistaraflokki karla I Faxakeppninni I golfi sem fram fór I Vestmannaeyjum um helg- ina. Magnús lék 36 holur á 142 höggum. Annar varð Haraldur Júliusson, GV, á 152 höggum og Sveinn Sigurbergsson, Keili, þriðji á 154 höggum. Sigurbjörg Guönadóttir, GV, sigraöi i kvennaflokki á 143 höggum. Handbók fyrir húsby ggj endur (Jt er komið ársritið Húsbyggj- andinn ’82 en útgefandi er Blaða- og fréttaþjónustan i Reykjavik. Ritið er gefið út sem fræðslurit fyrir þá sem á næstunni huga að húsbyggingum hér á landi, auk þess sem i ritinu er viðamikil viö- skiptaskrá til að létta byggj- endum að komast i samband við rétta aðila á hinum ýmsu sviðum húsbyggingarinnar. Húsbyggjandinn ’82er gefinn út i samvinnu við Teiknistofuna Kvarða, og eru leikningar að húsum Kvarða i ritinu. Húsbyggj- andinn er 136 bls. Forsiðu ritsins prýðir teikning eftir hinn góð- kunna teiknara, Brian Pilkington. Greinar ritsins fjalla m.a. um Skipulag lóðar og undirbúning, - Að „komast upp úr jörðinni”, báðar eftir Einar Matthiasson, byggingafræðing. Guðni Þórðar- son by ggingatæknifræðingur skrifar um einangrun húsa og val á ofnum og stýritækjum. Eyjólfur Jóhannsson framkvæmdastjóri Ljóstæknifélagsins skrifar um lýsingu á heimilum, Gisli Gunnarsson um Gluggana, augu hússins, Helgi Pálsson, innan- hússfræöingur um möguleika á gólfefnum. Þá er grein Gisla Gunnarssonar um hvernig ganga skal frá herbergjum eins og baði og þvottahúsi I timburhúsum, grein Jóns Jakobssonar um Hurðina sem höfuðdjásn hússins og grein Auðar Sveinsdóttur, landslagsarkitekts um skipulag lóðar og frágang hennar. Húsbyggjandinn ’82 er sendur húsbyggjendum ókeypis, en blaðið má fá hjá Kvarða og Blaða og fréttaþjónustunni, Bolholti 6 i Reykjavik. Þökkum auðsýnda samúð oghlýhug viðandlátog útför Guðbjargar Guðbrandsdóttur, Langholtsvegi 24, Börn, tengdabörn og barnabörn Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför mannsins mins, föður okkar, tengdaföður og afa Magnúsár Kristjánssonar, húsasiniöameistara, Stóragerði 30 Ilansina Sigurðardóttir Alfhciður Magnúsdóttir Jón Haukur Edwald • Sigrún Þóra Magnúsdóttir Elsa Guðbjörg Björnsdóttir Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Jóhanna Bjarnadóttir, Grænukinn 18, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjárðarkirkju fimmtudaginn 10. júni kl. 15. ólafur Helgason Jósep Helgason Hulda Iielgadóttir Simonia Hclgadóttir Maria Helgadóttir Sigriöur Hclgadóttir Jóna Björg Jósepsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Vera Pétursdóttir Þuriður Biaka Gisladóttir Björn Björnsson Guðjón Sveinbjörnsson Hörður Þórarinsson Baidvin Kristjánsson Úlfar Sigmarsson

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.