Þjóðviljinn - 09.06.1982, Síða 9
Miövikudagur 9. júni 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
uppstokkun, baráttuvflji?
mál til hlýtar”, sagöi Haraldur
Hannesson formaöur Starfs-
mannafélags Reykjavikurborgar
þegar við ræddum viö hann á
þingi BSRB á mánudag. Haraldur
er vélstjóri hjá Hitaveitu Reykja-
víkur og var kjörinn formaöur
Starfsmannafélagsins á siöasta
ári.
Hvaöa álit hefur þú á upp-
sögnum einstakra starfshópa tii
aö ná fram betri kjörum sér til
handa?
„Ég er afar ósáttur við þannig
baráttuaðferöir. Fólk er vissu-
lega ekki ofsælt af þeim launum
sem það hefur og kjörin veröur að
bæta, um það er enginn ágrein-
ingur. En mér finnst aðferðin
ekki rétt, hún skapar óróa á
vinnumarkaðnum auk þess sem
svona baráttuaðferðir eru ekki i
anda þeirra félagshyggju sem
verkalýðshreyfingin á að starfa
eftir”.
Hér hefur mikiö veriö rætt um
kjör opinberra starfsmanna?
,,Já og þaö að vonum. Það er að
minu viti ekki nóg að krefjast
stöðugt grunnkaupshækkana
heldur verður að fara fram nýtt
starfsmat meðal opinberra
starfsmanna. Svoleiöis mat hefur
aðeins farið einu sinni fram og
það er alveg ljóst að störf okkar
og menntunarskilyrði hafa gjör-
breyst siðan þá. Aölaga verður
röðun okkar i launaflokkana
þessum nýju viðhorfum og leið-
rétta margvislega hnökra sem á
þvi eru. Um þetta eru þingfull-
trúar áreiðanlega sammála”.
Aö lokum Haraldur?
„Það veröur að itreka enn og
aftur að kjör opinberra starfs-
manna eru langtum lakari en
annarra viðmiðunarstétta i land-
inu. Við njótum litilla sem engra
yfirborgana af nokkru tagi og þær
leiöir sem aðrar stéttir hafa til að
auka við laun sin, eru okkur i
flestum tilfellum með öllu lok-
aðar”, sagði Haraldur Hannesson
formaður Starfsmannafélags
Reykjavikurborgar að lokum.
— v.
/
Guðrún Arna-
dóttir meinatæknir
„Brölt ein-
stakra hópa
mjög hvim-
leitt”
„Ég verö aö segja eihs og er aö
mér finnst þetta hafa veriö frem-
sýna það svart á hvitu. Samning-
ar eru lika framundan og ef ekki
nást fram umtalsverðar kjara-
bætur i þeim höldum við áfram að
missa hæfa starfsmenn út i einka-
geirann i þjóðfélaginu, þar sem
yfirborgarnir og aukasposlur eru •
mjög tiðar”, sagði Guðrún Arna-
dóttir, einn fulltrúa á 32. þingi
BSRB sem lauk i gær.
—v.
Kristin Guðbjörns-
dóttir starfsmaður
rikisspítalanna
„Tóm inn-
byrðis bar-
átta vantar
alla sam-
stöðu”
— 1 raun þá er Starfsmannafé-
lag rikisstofnana jafn erfitt félag
og BSRB ef oröa má hlutina
þannig. Þaö eru margir og ólikir
starfshópar sem eru þar saman,
og uppbygging öll mjög lik. Enda
hefur ýmislegt gengiö á eins og
hópuppsagnir meinatækna og
sjúkraliöa og einnig Kleppsdeiian
eru talandi dæmi um, sagöi Krist-
ín Guöbjörnsdóttir starfsmaöur á
skrifstofu rikisspitalanna.
— Það sem mér finnst þó alvar-
legast i okkar kjaramálum, er að
ennþá er veriö að ráða fólk á 2.,
3., 4., og 5. launaflokk þegar fyrir
liggur i samningum að lágmarks-
laun skuli greiða samkvæmt 6.
launaflokk.
Hver veröa aöaláherslumálin i
komandi samningum?
— Leiðréttingar á launamálum
hljóta að veröa aðaláhersluatrið-
iö. Rannsóknir hafa sýnt fram á
stórfelldan launamismun miðaö
viö sambærilega starfshópa i
landinu. Einnig hitt að rikið
greiðir mönnum mismunandi
laun, eftir þvi hvert þeir eru ráðn-
ir þrátt fyrir sömu vinnu.
Þessar nýju leiöir I kjarabar-
áttunni, hópuppsagnir og annaö i
þeim dúr, er þetta rétta leiöin?
— Mér finnst einkenna þetta
dálitið mikið, að launþegar eru i
raun að berjast innbyrðis, hver
við annan en standa alls ekki
saman gegn atvinnuveitandanum
sem i okkar tilfelli er rikið. Mér
finnast þessar aðferöir óþolandi,
og get ekki séö neitt félagslegt við
þær, þetta er eintóm sérhyggja.
—lg-
ur dauft þing framan af en i lokin
hafi heldur ræst úr þegar hin
stærri málin eins og kjaramál,
samningsréttarmál og verkfalls-
sjóðirnir komust á dagskrá”,
sagöi Guörún Arnadóttir meina-
tæknir á Rannsóknarstofu Há-
skólans þegar blaöamaöur ræddi
viö hana á nýafstöönu þingi
BSItB.
Hvaöa laun hafa meinatæknar
nú?
„Byrjunarlaun okkar eru 12.
launaflokkur en svo hækkum við i
14. flokk eftir eitt ár. Að ööru leyti
hefur ekki átt sér stað nein breyt-
ing á okkar röðun siöan 1978 enda
þótt kröfur til okkar hafi aukist.
Nám meinatækna tekur tvö ár i
Tækniskóla Islands og er inntöku-
Haraldur Hannesson: viö opin-
berir starfsmenn njótum lltilla
sem engra yfirborgana af nokkru
tagi. Ljósin. -eik.
skilyröiö nú stúdentspróf. Og það
er auðvitað ekki að sökum að
spyrja að við meinatæknar erum
langflestir kvenkyns vegna
þeirra kjara sem við búum viö”.
Hafiö þiö meinatæknar sagt
upp störfum?
„Við sögöum upp 1. júni og
stööur okkar verða lausar 1. sept-
ember en svo getur rikið notfært
sér lagaheimild og framlengt
störf okkar i 3 mánuði.”
Finnst ykkur uppsagnir rétta
leiöin til aö ná fram kjarabótum?
„Aðdragandinn aö okkar upp-
sögnum var sá að úrskurður
Kjaranefndar um okkar sérkjör
fyllti endanlega mælinn þar sem
ekki var hlustað á okkar kröfur né
Guörún Arnadóttir: gripum til
uppsagna þegar aörar leiöir þóttu
fullreyndar. Ljósm. -eik
Kristin Guöbjörnsdóttir: Leiö-
réttingar i launamálum hljóta aö
veröa aöaláherslu atriöiö.
tekið hiö minnsta tillit til þeirra.
Við reyndum samningaleiðina og
létum málin ganga til Kjaradóms
en þegar þessar leiðir báðar voru
fullreyndar var þvi miöur ekki
annað að gera en að segja upp.
Ég dreg enga dul á að mér
finnst svona brölt einstakra hópa
ákaflega hvimleitt. Akveðnar
stéttir, sérstaklega i heilbrigöis-
kerfinu beita þar ákveönu valdi
sem þær hafa og þaö er augljóst
að þær hafa í þessum efnum meiri
þrýstikraft en aörar. Hins vegar
þykir engum þetta stórmannleg-
ar aðgerðir, held ég.”
Hafa opinberir starfsmenn
dregist aftur úr i launum?
„Um þaö þarf auðvitaö ekkert
aö deila. Allar opinberar tölur
Gengiö um verksmiöjusvæöiö viö tteyöarfjörö. Ljósm. ÓÞ
málmverksmiðju i marsbyrjun
1982, og sú áætlun stóöst fyllilega.
Viku af april 1982 var lagt fram
stjórnarfrumvarp á Alþingi um
verksmiöjuna og réttum mánuði
siöar var þaö samþykkt sem lög
með nokkrum breytingum. Fela
þær m.a. i sér að hlutafélag um
verksmiðjuna er stofnað meö 25
miljón króna framlagi rikisins, en
áður en ráöist verður i fram-
kvæmdir við byggingu verk-
smiöjunnar og hlutafé verður
aukið i allt aö 225 miljónir króna
þarf Alþingi aö samþykkja niður-
stöður af þeim undirbúningi, sem
fram fer á vegum stjórnar félags-
ins i sumar. Er gert ráð fyrir aö
hægt verði aö leggja málið fyrir I
haust þannig að afstaða Alþingis
liggi fyrir ekki siðar en i lok þessa
árs.
Þegar ákvörðun um að leggja
fram viðbótarhlutafé hefur verið
tekin er heimilt aö kveðja aðra
aöila til samstarfs með rikinu
sem meirihlutaeiganda i hlutafé-
laginu.
Heimamenn
fögnuðu
Iðnaðarráöherra, Hjörleifur
Guttormsson boðaði til fundarins
á Reyðarfirði á föstudag, f.h. rik-
isins. I ávarpi sinu gerði hann
grein fyrir aðdraganda og for-
sendum stofnunar kisilmálm-
vinnslunnar og þýöingu hennar
fyrir landshlutann og þjóðarbúið.
A fundinum voru auk iðnaðar-
ráðherra fulltrúar iönaöarráðu-
neytis, verkefnisstjórn, stjórn
Kisilmálmvinnslunnar hf., sveit-
arstjórnarmenn af Austurlandi
og ýmsir aðrir gestir.
Að fundi loknum var fundar-
gestum boöið i kynnisferð um
væntanlegt verksmiöjusvæði og
nágrenni og siðan til kvöldverðar
i Félagslundi, félagsheimili
Reyðfirðinga. Þar var fluttur
fjöldi ávarpa. Voru menn á einu
máli um að einstaklega vel hafi
verið staöið að öllum undirbún-
ingi þessa máls og nefndu einkum
þrennt: Framlag iðnaðarráð-
herra, störf verkefnisstjórnar og
samstöðu heimamanna. Heima-
menn fögnuðu stofnun og staö-
setningu Kisilmálmvinnslunnar
hf. á Reyðarfirði en tóku undir
þau orö iðnaðarráðherra, að gæta
þyrfti þess að röskun yrði sem
minnst i þvi atvinnulifi sem fyrir
er á svæöinu.