Þjóðviljinn - 09.06.1982, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 09.06.1982, Qupperneq 16
NÓÐVIUINN Miövikudagur 9. júni 1982 Abalslmi Þjóöviljans er 81333 ki. »-20 mánudag til föstudags. Utan þess tlma er hægt aö ná I blaðamenn og aöra starfsmenn blaösins I þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt aö ná i af- greiöslu blaösins I slma 81663. Blaöaprent hefur stma 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663 Verkföllin á morgun og föstudag Víðtæk áhrif Allt bendir til þess að þjóðlífið muni að meira eða minna leyti lamast á fimmtudag og föstudag, komi til verkfalla# en fátt bendir til annars þessa stundina. Ljósterað samgöngur munu að mestu leyti falla niður bæði innanlandsflug og strandferða- skip, en að sögn Sveins Sæmunds- sonar hjá Flugleiöum, verður flug til og frá landinu samkvæmt áætlun báða þessa daga. Allar verslanir á Reykjavlkur- svæðinu veröa lokaðar nema þar sem eigendur sjá sjálfir um af- greiðslu, auk þess sem tnjólkur- dreifing mun stöðvast. Uppskip- anir, og allar verklegar fram- kvæmdir leggjast niöur og bensinsölur veröa lokaðar. Óvlst er hvort dagblöðin koma út þessa daga. — lg. Uppselt á Silki- tromm- una Tvær sýningar að lokinni Listahátíð Það er óhætt að segja, að Is- lensku óperunni, Silkitrommunni, hafi verið tekið með eindæmum vel. Þrjár sýningar hafa verið á Listahátið, og hefur verið uppselt á þær allar. Fleiri verða sýning- arnar ekki á hátiðinni, en strax að lokinni Listahátið verða a.m.k. tvær sýningar á Silkitrommunni á vegum Þjóöleikhússins — og viss- ara að tryggja sér miða strax og auglýst verður. Þá voru undirtektir við sýningu fransmannanna, Flugmennirnir, s.l. sunnudagskvöld ekki slðri, og þykir mörgum án efa súrt I broti að einungis reyndist unnt að halda þessa einu sýningu hér I Reykjavik. Frakkarnir sýndu á Akureyri I fyrrakvöld I Samkomuhúsinu, en á þá sýningu mættu ekki nema um 50 manns, að þvl er Þjóðviljinn fregnaði. — jsj. Kosninga- happdrœttið Dregið verður í dag I dag verður dregið I kosn- ingahappdrætti Alþýðu- bandalagsins og verðavinn- ingsnúmerin innsigluð þar til á þriðjudaginn kemur að þau verða birt I Þjóöviljanum. Eru allir þeir, sem ekki eru enn búnir að gera skil á heimsendum miðum hvattir til að gera það fyrir helgi. IIBIIIS ffi ;v -■ v Sjóvarnargarður hefur verið hlaðinn i fjörunni fyrir neöan og i sumar verður bakkinn bundinn og græddur Ljósm.: kv Mannabein og Idstur standa þar út í loftið Þarna sér i beran skallann og | legg á einum. Ljósm.: kv , því er sr. Bragi Friðriks- | son prófastur tjáði Þjóð- • viljanum í gær. Sr. Bragi sagði að undanfarin tvö ár hefði sóknarnefndin staðið fyrir þvl að stöðva þetta landbrot og fengið til þess styrk af fjárlögum. Vegagerðin hlóð sjóvarnargarðinn og land- græðslan hefur lagt á ráöin með . að græða hinn geysiháa og I bratta kamb. Meiningin er að setja fláa á efsta slakkann og J leggja slðan þökulengjur yfir , sem njörvaðar verða niður með I járnfleinum. Siðan verður net lagt yfir og að lokum sáð I. Sr. Bragi sagði að öðru hverju . væri beinum safnað saman og ætlunin væri að jarðsetja þau siðar. Þó mætti búast við að [ töluverðu hefði verið hnuplað af , þeim þrátt fyrir lög um friðhelgi I kirkjugarða en heimafólk I J Saurbæ reynir þó að sporna við i sliku eftir mætti. Þess má aö lokum geta að I kirkjugarðurinn er ævagamall , en þarna hefur verið kirkja frá ■ miðöldum. A Sturlungaöld bjó I Saurbæ Arni óreiða, tengda- I sonur Snorra Sturlusonar og , árið 1703 var þar búandi ■ Sigurður Björnsson lögmaður. I Þá var I Saurbæ eitt fólksflesta heimili á landinu. — GFr Leggir og hauskúpur standa hvarvetna út úr bakkanum og f jær má sjá spýtur úr likkistu. Varnaraðgerðum lýkur þar í sumar, segir sr. Bragi Friðriksson Þegar gengið er niður fyrir sjávarbakkann í Saurbæ á Kjalarnesi blasir við furðuleg og nokkuð ógnvænleg sjón. Leggir, kjúkur og haus- kúpur standa hvarvetna út úr honum og sums staðar má jafnvel sjá spýtur úr gömlum líkkist- um standa út í loftið. Sjórinn hefur í mörg undanfarin ár brotið úr kirk jugarðinum og má búast við að hann hefði allur farið ef ekki hefði verið gripið í taumana. En nú er búið að ryðja upp sjóvarnargarði í f jör- unni fyrir neðan og f sumar verður bakkinn bundinn og græddur að L_ I Krafa BSRB Verkfallsréttur um öll atrfði kjarasanminga I áliti samningsréttar- nefndar 32, þings BSRB er talið brýnt að samnings- réttarmál opinberra starfsmanna verði tekin til gagngerrar endurskoð- unar. Verði tryggt að lögin um kjarasamninga félags- manna í BSRB verði endurskoðuð og að þá endurskoðun annist sam- eiginleg nefnd Bandalags- ins og stjórnvalda. Megin viðfangsefni í þeirri endurskoðun verði eftir- farandi: „Skipulag stéttarfélaga starfs- manna I þjónustu hins opinbera verði samræmt I samráði við heildarsamtök og einstakar starfsstéttir. Miðað verði við félagafrelsi og frjálsa ákvörðun starfsmannahópa. Fullur samningsréttur og þar með verkfallsréttur gildi um öll atriöi kjarasamninga og þar á meðal röðun I launaflokka. Kjaradeilunefnd veröi lögð niður og ákvörðunarvald um undanþágu i verkfalli sé algjör- lega I höndum samtakanna sjálfra. Einstök sveitarfélög og for- stöðuaðilar hálfopinberra stofn- ana og sameignarstofnana sveitarfélaga og rikisins annist hver um sig samninga gagnvart starfsmönnum sinum. Þeim opinberu starfsmönnum, sem ekki eru félagsmenn I bæjar- starfsmannafélögum verði tryggður atkvæðaréttur um aðal- kjarasamning bæjarstarfsmanna eða rlkisstarfsmanna eftir þvi sem við á. Lögin um kjarasamninga gildi fyrir alla opinbera starfsmenn sem eru i' þriðjungi starfs eða meira. Ennfremur nái lögin til af- leysingafólks, þ.á.m. sumaraf- leysingamanna. Félagsdómur dæmi I málum sem risa milli samningsaðila út af brotum á lögum um kjara- samninga svo og ágreiningi um skilning á kjarasamningi og gildi hans og um félagsréttindi opin- berra starfsmanna”. — v.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.