Þjóðviljinn - 23.06.1982, Page 16

Þjóðviljinn - 23.06.1982, Page 16
NOÐVIUINN Miövikudagur 23. júni 1982 AbaUhni Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er hægt aö ná I blaöamenn og aðra starfsmenn blaðsins I þessum slmum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt að ná i af greiðslu blaösins I slma 81663. Blaöaprent hefur slma 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663 Selveiðar úr sögunni? Engínn markaður fyrir kópaskínn „Til marks um það hve verð á kópaskinnum hefur hrapað má geta þess að nú þarf 12-15 kópaskinn til að ná sama verði og er á einu kílói af æðardún. Þegar best lét hjá okkur selveiði- mönnum, var svipað verð á einu skinni og kílóinu af æðardún," sagði Eysteinn Gíslason bóndi á Skáleyj- um á Breiðafirði. Selveiði, þá einkum veiði á kópum, taidist til meiriháttar hlunninda jafnt á Breiða- firði sem og á Húnaflóa- svæði, Héraðsflóa á Aust- fjörðum, á Hornafirði og Söndum i Skaftafellssýslu og víðar. „Nú er svo komið,” sagði Eysteinn, ,,að við höfum fengið tilmæli um hafa þessar veiðar i lágmarki. StS hefur séð um sölu á kópaskinnum, en nú er markaðurinn nær enginn og birgðir hlaðast upp. Þvi hafa menn lagt litla vinnu i þetta bér og sumir sem fóru til selveiða ár- A hrif skipulagsbreytinga í Sogamýri: r í hættu Fulltrúi Alþýðubandalags- ins i fræösiuráði, Þorbjörn Broddason, hefur óskað eftir skýrslu frá fræðslustjóra um það, hvaða áhrif sú ákvörðun Sjálfstæðisflokksins að falla frá byggö i Sogamýri, muni hafa á framtið Vogaskólans. borbjörn sagði I samtali við Þjóöviljann i gær að skýrsla fræöslustjóra myndi væntan- lega verða lögð fyrir næsta fund fræðsluráðs. Þötting byggðar i Sogamýri var helsti rökstuðningur þess á siðasta vetri að viöhalda skólahaldi i Vogaskóla, sagöi Þorbjörn og ég óttast að þessi ákvörðun Sjálfstæðisflokksins kippi fót- unum undan þvi. Ibúum Vogahverfis hefur fækkað mjög á undanförnum árum, eða úr 7.500 árið 1965 I rúmlega 4000 árið 1980. Nem- endum i Vogaskóla hefur fækkað að sama skapí. Skóla- árið 1966—1967 voru i skólan- um 1623 nemendur i 59 bekkj- ardeildum en á siðasta kkóia- ári voru þeir aðeins 320 i 18 bekkjardeildum. Þorbjörn sagði aö þessar staðreyndir og þaö að fyrir- sjáanleg hefði verið áfram- haidandi fækkun ibúa i hverf- inu hefði orðið tii þess á sið- asta ári að tillaga kom fram um aö leggja skólahald af i Vogaskóla. Ný byggð með 120 ibúðum i Sogamýri hefði þó gerbreytt þeirri mynd, og óneitanlega væri það ólikt hagkvæmara aö nýta það skólahúsnæði sem fyrir er heldur en að stefna byggðinni út fyrir bæinn og reisa þar nýja skóla. Þess má geta að umhverfis- málaráð borgarinnar hefur samþykkt að fela borgarverk- fræðingi og garðyrkjustjóra að gera tillögur að útivistar- svæði i Sogamýri. Fulltrúi Alþýðubandalagsins i ráðinu óskaði eftir þvi aö byrjað væri á þvi að sýna hvernig komast mætti að þessu svæði, þvert yfir tvær mjög þungar umferðargötur, Miklubraut og Suðurlandsbraut, áður en far- ið yrði að hanna svæðið. Sú til- laga hlaut ekki stuðning. —AI vissteru hættir. Verðið á 1. flokks kópaskinni er nú i kringum 350 kr.”, sagði Eysteinn. Þess má geta að verð á kópa- skinnum tók að hrapa mjög fyrir nokkrum árum, og sagði Eysteinn helst um að kenna gifurlegri áróðursherferð sem skipulögð var viða um heim og var franska leikkonan Brigitte Bardot þar i fararbroddi. Þar var þó helst verið að mótmæla sela- drápi á norðurishafssvæðinu, en Eysteinn sagði að þótt selveiðar hefðu dregist allmikiö saman, frá þvi sem var, sýndist honum stofn- inn ekkert hafa stækkað. Sagði hann að grásleppukarlar fengju talsvert af kópum I net sin, jafn- vel það magn sem næmi veiði- minnkun annarra. Jóhann Steinsson deildarstjóri i búvörudeild SIS sagði það sýnt að búið væri að eyðileggja markað- inn fyrir islenskum bændum. bó væri staðan þannig að selastofn- inn væri' i engri hættu, selurinn tæki til sin of mikið æti, breiddi út hringorm og útlit væri fyrir að stofninn væri að verða of stór. — hól A laugardag veröa kosnar 771 hreppsnefndarmenn Listakosningar í átján hreppum Alþýðubandalagið býður fram flokkslista íLaxárdal og í Vopnafirði Á laugardaginn kemur fara fram hreppsnefndarkosningar i landinu. Alls verður kosið i 165 hreppum um 771, hreppsnefndar- fulltrúa. Vitað er um hreinar listakosningar f 18 hreppum þar af býður Alþýðubandalagið fram flokkslista i tveimur, Vopnafirði og Laxárdalshreppi. Sjálfkjörið er i tveimur hrepp- um, Bessastaðarhreppi og i Stað- arsveit á Snæfellsnesi. 1 Kjalarneshreppi eru 4 listar i kjöri, I Laxárdalshreppi þrir list- ar: B, D, og G listar, fjórir i Barðastrandahreppi og tveir i Mývatnshreppi. I Ytri Torfu- staðahreppi eru tveir listar, einn- ig i Sveinsstaðahreppi, Svina- vatnshreppi, Lýtingsstaðahreppi, Akrahreppi og Skútustaðahreppi. 1 Vopnafirði eru þrir listar i kjöri B, D og G. 1 Eiðahreppi einnig þrir listar. Tveir i Norðfjarðar- hreppi, Fáskrúðskjarðarhreppi, Dyrhólahreppi, Vestur-Landeyj- arhreppi, Rangárvallahreppi, og Hraungerðishreppi. 1 Grimsnes- hreppi eru þrir listar i kjöri. A öðrum stöðum verður óhlut- bundin kosning, eða i 145 hrepp- um. Hreppsnefndarkosningar i júni, fara einungis fram á þeim stöðum þar sem minna en 1/3 ibúa viðkomandi hrepps búa i þéttbýli. Aðeins ein hreppsnefndanna sem kosið verður i er 7 manna, 136 þeirra eru skipaðir 5 mönnum og 28eru þriggja manna. -lg- ! AB í Reykjavík: Hugmyndir bændasamtakanna kynntar rikisstjórn I Jónsmessu- \ Sauðfé fækkað um 50 þúsund í haust Stéttarsamband bænda hefur lagt fram hugmyndir fyrir land- búnaðarráðherra, um verulega fækkun á sauðfjárstofni lands- manna. „Við höfum rætt um að fækka um 50 þús. i haust ef hægt verður að fá sérstaka aðstoð við það, en það er eitthvað nálægt 20% stofnsins. Ennþá hafa ekki veriö gerðar neinar formlegar til- lögur um þetta, menn hafa aðeins rætt þennan möguleika við ráð- herra, að semja við einhverja aö fækka, en við teljum að það sé ekki hægt ncma með einhverri aöstoð frá hinu opinbera”, sagði Gunnar Guðbjartsson framkvæmdastjóri framlciðslu- ráðs landbúnaðarins i samtali við Þjóðviljann i gær. Að sögn Gunnars yrði fyrst og fremst reynt að semja við þá sem eru með sauðfjárrækt en hafa fullar atvinnutekjur af öðrum að hætta f járbúskap, en þó nokkuð er um slik búhérlendis. Þessar hugmyndir stéttarsam- bandsins hafa legið á borði land- búnaðarráðherra i rúman mánuð en hann hyggst kynna þær fyrir rikisstjórninni. „Þessar hugmyndir um fækkun á 50 þús. fjár er áfangi sem hægt er að una við i bili, og gerir að verkum að ekki myndu halda áfram að hlaöast upp birgðir, en þetta yrði ekki varanleg lausn ef verðbólgan verður sú sama hér og illa gengur þarafleiðandi að selja okkar afurðir erlendis. Við höfum viljað gefa stjórn- völdum góðan tima til að hugsa um þessar hugmyndir okkar, en við hefðum talið að það þyrfti að taka ákvarðanir nú um mán- aðarmótin svo hægt sé að nota sumarið til að taka upp viðræður við menn, um fækkun kvikfjár, en eins og málin standa nú þá getum við ekkert frekar aðhafst i þess- um efnum”, sagði Gunnar. -lg Ilagið I Reykjavik til Jóns- messugöngu. Lagt verður upp frá Skiðaskálanum i , Hveradölum kl. 20.30 en Iþangað er ætlunin að þátt- takendur i göngunni komi sér sjálfir á eigin vegum eða , meðöðrum. Gengið verður umhverfis Stóra-Reykjafell, og áð i Hellisskarði hvar snætt verður nesti og notið útsýnis. • Gert er ráð fyrir að Jóns- messunæturgöngunni ljúki • við Skiðaskálann i Hveradöl- I um um kl. 1 um nóttina. IAllir vinstri menn eru hjartanlega velkomnir. ■ Bjóðið vinum ykkar far ef I þið hafið ráð á bil. Fjölmenn- | Stjórn Alþýðubandalaes- 1 ■ ins^ IReykjavfk.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.