Þjóðviljinn - 17.07.1982, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 17.07.1982, Qupperneq 3
llelgin 17,—18. jlill 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3 Svör viö spuriiingaleik Rétt svör við síðasta spurn- ingaleik fara hér á eftir. Þess skal getið að nafn þess sem verðlaun fær fyrir rétt svör veröur birt i næstu viku. 1. Jónas Kristjánsson og Páll Pétursson eru systkinasynir. Anna móðir Jónasar og Pétur faðir Páls voru börn Péturs Pálmasonar á Akureyri. 2. Konungsgliman er æsku- verk Guðmundar Kamban. Eins og þér sáið er eftir Matthias Jo- hannessen og Syndir annarra eftir Einar H. Kvaran. 3. Churchill var fæddur 1874, Hitler 1889 og Ólafur Thors 1892. 4. tslandsmethafinn i stangar- stökki er Sigurður Sigurðsson. Hann hefur stokkið 5.20 metra. Kristján á næstbesta afrekið 5.00 metra en Valbjörn hefur hæst stokkið 4.50 metra og átti lengi tslandsmetið. 5. Conan Doyle, Che og Sig- valdiáttu það allir sameiginlegt að vera læknar að mennt. 6. Styttan af Leifi heppna er gerð af bandariska myndhöggv- aranum Alexander Calder (1870 - 1945) 7. Upphaflegt eftirnafn Lenins var Uíjanov. Trotsky hét hins vegar Bronstein og Staiin Dzjugasjviii. 8. Berlin er nyrðst en London syðst. 9. Geröur óskarsdóttir er skólameistari Fjölbrautaskól- ans i Neskaupstað. 10. Syngi, syngi svanir minir er eftir Huldu og kom út árið 1916. Kveður I runni er eftir Sig- riði Einars frá Munaðarnesi og kom út 1930 en Dvergliljur eru eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur og kom út árið 1968. t bliðunni I Borgarnesi. Ljósm.: — gel. Útseld vinna hækkar um 4-10% — allmargar hœkkunarbeiðnir liggja fyrir Nokkrar hækkanir voru af- greiddar á siðasta fundi verðlags- ráðs sem haldinn var slðastliðinn miðvikudag. Ráðið afgreiddi hækkun á Utseldri vinnu iðnaðar- manna um 4-10% i samræmi við nýgerða kjarasamninga bygging- armanna. Álagning meistara hækkaði um 4%, taxti leigubila um 11%, niðursoðnar fiskvörur (fiskbollur o.fl.) um 8-12% og oliufarmgjöld innanlands um 12%. Um það var talað eftir að samningar byggingarmanna voru gerðir, að hækkun sveina yrði ekki hleypt út i verðlagið, meistarar yrðu að taka hækkun þeirra á sig. Reyndin hefur nú hins vegar orðið önnur þar sem heimiluð hefur verið 4% hækkun á álagningu. Aðspurður um þetta atriði sagði Georg Ólafsson verðlagsstjóri að fram hefði komið tillaga um enga hækkun á álagningu i ráöinu, en eftir að almennu kjarasamning- arnir voru gerðir hefði veriðsam- þykkt 4% hækkun. Næsti fundur verðtgsráðs er 28. júli og allmargar hækkunar- beiðnir liggja fyrir fundinum. —kjv. EIIEI Verðlagsstofnun birtir verðkönnun á málningu og fúavarnarefnum: MikUi verðmunur eftir tegundun Gífurlegur verðmunur reyndist á fúavarnarefnum og á málningu 1 gær birti Verðlagsstofnun nið- urstöður úr verökönnun á máln- ingu og fúavarnareínum og skv. henni er mikill verðmismunur milli tegunda og munar stundum meira en helmingi á hæsta og lægsta verði innan sama vöru- flokks. Tekið er fram i greinar- gerð með könnuninni að ekki sé raunhæft að bera saman eini'alt litraverð hinna ýmsu tegunda heldur, heldur verð miðað við rúmmálsþurreínisprósentu en hún segir til um hve mikill hluti málningarinnar eða íúavarnar- efnisins situr eftir á þeim íleti sem boriðer á. Mestur verðmunur er á i'úa- varnarefnum eða 130% (Cuprinol opaque 249 kr. og Pinotex extra 180 kr.), en á sendinni plastmáln- ingu (hraunmálningu) munar mest 112% (SandokrylF 125kr og Sandtex 59 kr.) Á heíðbundinni plastmálningu munar mest 97% (Útispred 189 kr. og Thorosheen 96 kr.) og á málningu lyrir málm 84% (Paa járn 162 kr og Rex skipa- og þakmálning 88 kr). Minnstu munar á málningu fyrir tréverk, eða mest 75% (Tréakrýl 226 kr og Texolín akrýlhúð 129). Að meðaltali er mismunurinn á hæsta og lægsta vcrði 98%, eða rétt tæplega helmingsmunur. í öllum tilvikum hér að íraman er átt við þurrelnislltraverð. II ÞAÐ SKIPTIR ÞI.G AUÐVITAÐ MAU að við bjóðum skápa og kistur í miklum fjölda valdra stærða, sem eiga vel við allar gerðir innréttinga, innlendra sem erlendra. Berðu stærðirnar hér að neðan við þína innréttingu, nýja sem gamla, eða veldu þér stærð, sem þú vilt láta gera ráð fyrir í væntanlegri teikningu. Bauknecht hefur örugglega málin sem- hentar þinni innréttingu. TV 18 TV 1601 PC 38 PC 30 PD 2601 SD 31 03auknecht SD 23 SV 2451 SR 27 tegund hæö Dreidd dýpt PC 38 183 60 60 PC 30 153 60 60 PD 2601 141 55 60 SD31 153 60 60 SD23 122 60 60 SV2451 125 55 60 SR27 122 60 60 TV 18 85 60 60 TV 1601 85 55 60 KÆLISKAPAR CK 35 GK29 GK 22 GB 8 I TF15 (Bauknecht tegund hæó breidd dýpt GK 35 183 60 60 GK29 153 60 60 CK22 122 60 60 TF15 85 60 60 GB8 62 55 60 FRYSTISKAPAR GT 23 GT 36 GT 47 GT 57 (Bauknecht tegund hæó breidd dýpt GT57 88 175 71 GT47 88 150 71 GT36 88 120 71 GT29 88 100 71 GT23 88 84 71 FRYSTIKISTUR Komiö, hringiö eða skrifiö, og viö veitum allar nánari upplýsingar fljótt og örugglega. Utsölustaöir DOMUSog kaupfélögin um land allt Véladeild Sambandsins Ármúla 3 Reyk/avik Simi 33900

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.