Þjóðviljinn - 17.07.1982, Qupperneq 5
Helgin 17.—18. júli 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
BKSnMSMBMMRBHS
Fjallið stendur eitt í þögninni
langt í fjarskanum
eins og fíngert postulin
i nðtt liggur fjöregg þitt
í dögginni
bak við ósk þina
situr svartur fugl
með morð i augum.
(1982)
veturinn eys myrkrinu
á föla skammdegisbirtuna
sem flæðir niður hjarnið
og myrkrið er hinn ótviræði
sigurvegari
en daufar stjörnur
og skarður máni
uns*
sólin fer að mála
eggjar f}alianna
og allt í einu
kemur nýtt hljóð í vindinn
ný angan
sunnanþeyr
syfjuð vötn rumska
vatnaniður úr giljum
og fjallaskörðum
ár og lækir belja fram
með vaxandi þunga
það er barist af logandi heipt
og
birtan sprengir myrkrið í tætlur
og Ijósið flæðir inn í nýtt vor
Þaö kostar aðeins 3.146,- krónur
fvrir 5 manna fjölskvldu*að fljúga
frá Revkjavík til ísafjarðarogtii baka
Aukinn afsláttur og rýmkaðar reglur um fjölskyldufargjöld Flugleiða gera það
að verkum að nú er síst dýrara fyrir fjölskyldur að ferðast innanlands
með flugi en í rútu eða einkabíl. Forsvarsmaður fjölskyldunnar greiðir alltaf
fullt gjald, maki og börn 12-20 ára 50% og börn 11 ára og yngri 25%.
Afslátturinn er óháður því hve margir ferðast saman.
Hver kýs ekki frekar þægilegt flug en þreytandi vegi.
Leitið nánari upplýsinga hjá næsta umboðsmanni.
•Vt
Hjón, tvö börn á aldrinum 12-20 ára, og eitt barn yngra en 12 ára,
flugvallarskattur er innifalinn.
Verð með rútu 4.140. - krónur.
FLUGLEIDIR
Gott fólk hjá traustu félagi
r
Syrpuskáparnir eru að sönnu ekkert sérstaklega flókið fyrirbæri - heldur
móti. En í þeim sannar einfaldleikinn einmittyfirburði sína:
Staðlaðar einingar
lækka verð og stytta afgreiðslutíma.
Mismunandi breiddir
auðvelda þérað leggja skápana "vegg ívegg."
Færanlegar innréttingar
bjóða upp á endalausa möguleika á breytingum
eftir þörfum hverju sinni.
Einn, tveir eða tíu
syrpuskápar eru ávallt fáanlegir og þú getur bætt
við skápum hvenærsem það hentar.
Greiðsluskilmálar
eru auðveldari viðfangs fyrir okkur vegna staðlaðrar
framleiðslu. Við bjóðum 1/3 út og eftirstöðvar á 6
mánuðum. Spyrjiö um bæklinginn
(y AXELEYJÓLFSSON