Þjóðviljinn - 14.09.1982, Blaðsíða 1
DJÚÐVIUINN
Aðalfundur Stétt-
arsambands bænda
tjallaði um mörg
mál og mikilvæg
fyrir bændastéttina.
Að nokkrum þeirra
ervikiðhéríblað-
inu.
Sjá“8
september 1982
Þriðjudagur
209. tölublað
47. árgangur
Tímabært að kona
verði æðsti maður
skólamála í Reykja-
víksegirÞorbjörn
Broddason en
meirihluti Fræðslu-
ráðs mæltismeð
Sigurjóni Fjeldsted í
stöðu fræðslustjóra
á stormasömum
fundi í gær.
Áróðurinn gegn
ríkisstarfsemi og
nauðsyn á gagn-
gerri endurskoðun
á hlutverki þess fyrir
alþýðu manna er
efni greinar Birgis
Björns Sigurjóns-
sonar, hagfræðings.
Þegar er búið að
eyðileggja 'U hluta
leiranna á höfuð-
borgarsvæðinu en
þær eru mikilvægar
ætistöðvar fyrir
margs konar fugla.
Komin
heim
á
höfuð-
bólið
Setning og
umbrot
Þjóðviljans fá
nýjan samastað
Hér áður fyrr var Þjóðviljinn
skrifaður, unninn og prentaður
undir sama þaki. En þegar sam-
vinna blaðanna um rekstur Blaða-
prents hófst, fluttist setning, um-
brot og prentun í það hús. Einsog
kunnugt er lét kaldhæðni örlag-
Velkominn í Þjóðviljahúsið! Ölafur Björnsson, verkstjóri í nýju prentsmiðjunni tekur við blómum og
loforðum ritstjórans, Einars Karls Haraldssonar, um að starfsmenn ritstjórnar muni hér eftir láta betur að
stjórn! Ljósm.—eik.
anna þannig spilast úr málum, að
borgarahlöð nokkur gengu úr
skaftinu og samvinnan varð óveru-
leg í Blaðaprenti. Þetta er forsagan
að því að nú er setning og umbrot
Þjóðviljans aftur komin heim á höf-
uðbólið.
Nýir tímar eru að renna upp í
sögu Þjóðviljans. Þarsem ritstjórn-
in púlar í sveita síns andlits bætist
nú iðandi setning og umbrot blaðs-
ins við. Starfsfólkið sem nú er að
koma heim aftur býr við betri
vinnuskilyrði en í gamla Blaða-
prenti. Og allir kunna breytingun-
um vel. Einar Karl ávarpaði týndu
sauðina í gær og bauð þá velkomna
heim fyrir hönd ritstjórnar. Færði
hann þeimi ræðustúf og blómvönd
frá starfsmönnum blaðsins í Síðu-
múla 6, og lýsti vonum þeirra um
enn meiri samvinnu og sósíalisma í
samskiptunum. Hlutu þau orð góð-
ar undirtektir.
Borgin skipuleggur land í eigu ríkisins!
Ekki einu sinni búið
að sldpa viðræðunefnd
segir Guðmundur Pétursson
forstöðumaður á Keldum
„Ég veit ekki til þess að
menntamálaráðuneytið sé einu
sinni búið að skipa viðræðu-
nefnd til að semja um afsal ein-
hvers hluta af landi Keldna til
Reykjavíkurborgar og ég verð
að segja að mér fínnst nokkuð
einkennileg staða komin upp
þegar búið er að skipuleggja
íbúðabyggð í þessu landi ríkis-
ins áður en viðræður um slíkt
fara af stað”, sagði Guðmund-
ur Pétursson forstöðumaður til-
raunastöðvar háskólans í
meinafræði á Keldum þegar
Þjóðviljinn ræddi við hann í
gær.
„Við erum.ákaflega landsárir og
munum leggja á það mikla áherslu
að eðlilegum vaxtarmöguleikum
okkar verði ekki sniðinn of þröng-
ur stakkur. Jörðin Keldur, sem við
höfum fyrir okkar starfsemi, er um
150 hektarar en auk þess höfum við
og til ráðstöfunar 16—17 hektara úr
landi Grafarholts. Auðvitað nýtum
við ekki allt þetta land í dag en ég
nef alltaf verið þeirrar skoðunar að
betra sé að hafa of mikið land fyrir
starfsemi tilraunastöðvarinnar en
of lítið”, sagði Guðmundur enn-
fremur.
Guðmundur Pétursson forstöðu-
maður á Keldum: Skipulagning
landsins greiðir sjálfsagt ekki fyrir
lausn málsins.
Hvað er langt síðan borgin fór að
bera víurnar í land Keldna?
Það eru ein 10 ár síðan borgin
fékk augastað á þessu landi sem er
ofur eðlilegt þar sem það liggur í
nágrenni byggðarinnar. Við vorum
strax tilbúnir að láta borgina hafa
allnokkuð land gegn einhvers kon-
ar makaskiptum, sem enn hefur
ekki náðst neitt samkomulag um.
Er aðalskipulagið kom af svæð
inu 1977 lýstum við því strax yfir
að þar væri okkur settir afarkostir
sem við gætum aldrei fallist á og var
ekki rætt neitt um þessi landa-
kaupamál fyrr en viðræður okkar
og fyrrverandi meirihluta í borgar-
stjórn fóru af stað. Þær viðræður
voru hinar gagnlegustu og voru á
góðum vegi en upp úr þeim slitnaði
af ýmsum ástæðum. Trúlega m.a.
vegna þess að þáverandi meirihluti
sneri sér að Rauðavatnssvæðinu og
land Keldna varð ekki eins aðkall-
andi undir íbúðabyggð”.
Hvernig líst þér á drögiK að
skipulagi ofan við Grafarvog þar
isem m.a. er ráðstafað stórum
íhluta af landi Keldrni?
LÍÚ leggur sölubeiðnir yfir 20 skipa fyrir viðskiptaráðuneytið í dag
Verða sölur stöðvaðar?
Þrjú íslensk fískiskip seldu
afla erlendis í gær og önnur þrjú
hafa fengið leyfi til sölu síðar í
þessari viku. Aðrar sölur hafa
enn ekki verið heimilaðar.
Að sögn Jóhönnu Hauksdóttur
hjá Landssambandi íslenskra út-
vegsmanna leggur LÍÚ í dag fyrir
viðskiptaráðuneytið beiðnir um-
bjóðenda sinna fyrir sölur í er-
lendum höfnum í næstu viku. Óvíst
er hvernig þessar beiðnir verða af-
greiddar, í viðskiptaráðuneytinu,
en sjávarútvegsr; ðherra lýsti því
yfir fyrir síðustu helgi, að allar söl-
ur íslenskra skipa erlendis yrðu
stöðvaðar meðan ákvörðun LÍÚ
um stöðvun flotans stæði óbreytt.
Lítið hefur aflast síðustu daga
vegna ótíðar og hafa fjölmörg skip
af þeim ástæðum hætt við fyrirhug-
aðar söluferðir á erlendar hafnir.
Þó eru ennþá yfir 20 skip á skrá hjá
LÍÚ sem hyggjast sigla fái þau til
þess tilskilin leyfi.
-Ig.
„Ég hef ekki séð það skipulag
nema í dagblöðunum og get því
ekki dæmt um það sem slíkt. Form-
legt samband hefur ekki verið haft
við okkur um þau mál og sama var
raunar uppi þegar aðalskipulagið
frá 1977 var ákveðið. Það var gert
án alls samráðs við forsvarsmenn
meinafræðistöðvarinnar og má
raunar segja að það vinnulag hafi á
sínum tíma hleypt í hnút öllum
frekari þreifingum um lausn máls-
ins”, sagði Guðmundur Pétursson
að lokum.
- v