Þjóðviljinn - 14.09.1982, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 14. september 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
DC-10 farþegaþota fórst á Spáni:
32 lík höfðu fundíst í gær
DC-10 vél spænska flugfélagsins
Spantax, sem er dótturfyrirtæki
flugfélagsins Iberia, hrapaði til
jarðar skömmu eftir misheppnað
flugtak á flugvellinum í Malaga í
gærmorgun. I vélinni var 391 far-
þegi og 14 manna áhöfn og komust
um 300 manns út úr vélinni, margir
hverjir stórslasaðir. Tölur um
dauðsföll iiggja ekki fyrir, en Ijóst
er að a.m.k. 32 létu lifið.
Vélin var á leiðinni til New York í
Bandaríkjunum í áætlunarflugi.
Ekki er enn vitað hvað nákvæm-
lega gerðist, en að sögn sjónarvotta
tókst vélinni aldrei almennilega að
komast á loft. Hún rakst á girðingu
við jaðar flugbrautarinnar og hafn-
aði síðan á tveim bifreiðum á nær-
liggjandi akbraut, flutningabíl og
fólksbifreið, Mercedes-Benz.
Flugvöllurinn í Malaga er vanbú-
inn, og af þeim sökum fór allt
björgunarstarf mjög úr böndum.
Þota eins og sú sem fórst í flugtaki á Malaga í gær.
Varð að flytja slasaða til næstu
borga, s.s. Valensíu. Flugvöllurinn
í Malaga er bæði almenningsflug-
völlur og herflugvöllur. Stuttu eftir
að vélin skall til jarðar braust út
mikið eldhaf og var á tímabili óttast
að kvikna mundi í útfrá vélinni.
Þetta er fyrsta flugslysið á þess-
um velli frá því að ferðamanna-
iðnaðurinn hófst á þessum slóðum,
en geysileg umferð er um völlinn
daglangt.
S.dór/hól
Ráðherra stefnt
fyrir meiðyrði
Margrét Guðnadóttir prófessor hefur höfðað
meiðyrðamál gegn menntamáiaráðherra, Ingvari Gísl-
asyni, þar sem hún fer fram á að umsögn ráðherra um
störf hennar í greinargerð til Jafnréttisráðs verði sönn-
uð eða dæmd ómerk. í greinargerðinni er að finna
ásakanir ráðherra um óheiðarleika og trúnaðarbrot.
Fyrir rösku ári síðan var auglýst
staða prófessors í ónæmisfræðum
við læknadeild HÍ. Umsækjendur
voru tveir, karl og kona, og dóm-
nefnd sem Margrét átti sæti í komst
að þeirri niðurstöðu að konan væri
hæfari. í læknadeild HÍ fékk konan
einnig meirihluta. Ingvar veitti
karlinum síðan stöðuna sem leiddi
af sér kæru Kvenréttindafélags ís-
lands til Jafnréttisráðs.
Málið hefur verið þingfest í
bæjarþingi og verður tekið fyrir
bráðlega. Þjóðviljinn reyndi í gær
að ná tali af Margréti en það
reyndist ekki unnt þar sem hún er
erlendis. Lögmaður hennar, Ragn-
ar Aðalsteinsson, vildi ekki tjá sig
um málið.
Norrænt þing í Reykjavík:
Atvinnuhollusta
og vinnuvernd
Nú stendur yfir 31. þing norrænna
atvinnuhollustufræðinga að Hótel
Loftleiðum, en þetta er í fyrsta sinn
sem það er haldið hér á landi. Þing-
ið sitja um 160 þátttakendur og þar
af eru íslenskir um 25. Fluttir verða
92 fyrirlestrar.
Á þingum þessum er fjallað um
niðurstöður rannsókna á sviði
vinnuverndar, þ.e tíðni og út-
breiðslu atvinnusjúkdóma, um
eituráhrif einstakra efnasam-
banda, um mengunarmælingar og
úrbætur á vinnustöðum, og auk
þess er farið yfirýmis norræn sam-
starfsverkefni á þessu sviði.
Flutt verða erindi um tengsl
vinnuumhverfis og ýmissa tegunda
krabbameins, áhrif leysiefna á
miðtaugakerfi,kynkirtlastarf og
fóstur, og tíðni krabbameins hjá
starfsmönnum, sem hafa unnið í
asbestmenguðu andrúmslofti. Þá
verður einnig fjallað um hin sam-
verkandi áhrif ýmissa áhættuþátta í
vinnuumhverfi manna og daglegu
lífi.
Meðal þeirra efna, sem sérstak-
lega verður fjallað um, má nefna
heymæði, leysiefnamengun í
prentiðnaði og hið erfiða starf, sem
fiskveiðar eru. Þinginu lýkur á
miðvikudag, 15. september.
ast
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur og
Seltjarnarness:
Oddur Rúnar Hjartarson
ráðinn framkvæmdastjóri
Á fyrsta fundi svæðisstjórnar
heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og
Seltjarnarness, sem haldinn var í
gær, var Oddur Rúnar Hjartarson,
heilbrigðisráðunautur ráðinn
framkvæmdastjóri heilbrigðiseftir-
litsins.
Svæðisstjórnin, sem tók til starfa
1. ágúst s.í. í samræmi við ný lög
um hollustuhætti og heilbrigðis-
eftirlit, er skipuð fulltrúum beggja
sveitarfélaganna. Verkefni hennar
er að skipuleggja og samræma heil-
brigðiseftirlit á svæðinu öllu og
ráða heilbrigðisfulltrúa. Eftir sem
áður starfa heilbrigðisnefndir í
báðum sveitarfélögunum.
Þórhallur Halldórsson sem verið
hefur framkvæmdastjóri heil-
brigðiseftirlits í Reykjavík hefur
látið af þeim störfum, en
Seltirningar hafa hingað til keypt
heilbrigðiseftirlit frá höfuðborg-
inni. _ ÁI
Tölvusetning
Starfsfólk óskast til starfa á innskriftarborð.
Unnið er á tvískiptum vöktum. Góð vélritun-
arkunnátta nauðsynleg. Upplýsingar í síma
81333.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
_______uhættir
bætt þjónusta
Viö bjóöum ykkur velkomin í nýtt útibú Landsbankans í
Breiöholti.
í Breiöholtsútibúi kynnum viö ýmsar nýjungar, sem stuöla aö
bœttri þjónustu.
Viðskiptavinir geta tyllt sér niöur hjá starfsmönnum okkar og rœtt
viö þá um íjármál sín og viöskipti. Þeir geta fengið aöstoö viö
gerö íjárhagsáœtlana og upplýsingar um hugsanlegar
lánveitingar, án þess aö bíöa eftir viðtali við útibússtjóra.
Hraökassinn er nýjung, sem sparar viðskiptavinum okkar tíma
og fyrirhöín, Þar er veitt skjót afgreiðsla t.d. þegar innleysa þarí
ávísun eöa greiöa gíróseðil.
í rúmgóöri öryggisgeymslu má koma verðmœtum munum í
geymslu, t.d. meðan á íeröalagi stendur.
Fyrir yngstu borgarana höíum viö TINNA sparibauka og sitthvaö
fleira.
Komiö viö í Breiðholtsútibúi og kynnist breyttum afgreiösluháttum
og betri þjónustu.
LANDSBANKINN
Breióholtsútibú, Áifabakka 10, Mjóddinni, Sími 79222