Þjóðviljinn - 14.09.1982, Blaðsíða 6
6 SiÐA — ÞJÓDVILJINN Þriðjudagur 14. september 1982
Millisvœðamótið í Moskvu:
Snilldartaktar Kasparovs
Nú stendur yfir austur í Moskvu
það millisvæðamót í hópi þriggja
sem hvað athyglisverðast er í
augum skákunnenda. Kemur það
helst til af því, að þar situr að tafli
ungstirnið Harry Kasparov, sem
margir spá að verði arftaki Anato-
lys Karpovs í hásæti skákarinnar.
Hann er þrátt fyrir ungan aldur, en
hann er 19 ára gamall, orðinn næst-
stigahæsti skákmaður heims, og
það sem meira er: hann er langt á
undan þriðja manni. Heimsmeist-
arinn er með 2705 stig og hefur ver-
ið a því bili um 8 ára skeið, en
Kasparov er með 2675 stig.
Aðrir sigurstranglegir keppend-
ur í Moskvu eru Tal, sem er með
2610, Ulf Anderson með sama
stigafjölda, síðan Alexander Belj-
avskí með 2620 stig. Staðan á mót-
inu eftir 5 umferðir sýnir ljóslega
að það er, þrátt fyrir vissar efa-
semdir manna, talsvert að marka
þetta viðmiðunarkeríi: allir eru
fjórmenningarnir með í baráttunni
um sætin tvö í Askorendakeppn-
inni.
Övænt hefur u.þ.b. þrítugur
Kúbumaður Guillermo Garcia
blandað sér í baráttuna svo um
munar og hafa reyndar ekki haldið
honum nein bönd í upphafsum-
ferðunum. Hann á eftir að tefla við
Sovétminnina fjóra og takist hon-
um að komast óskaddaður úr þeim
hreinsunareldi er aldrei að vita
nema Kúbanir eignist nýjan Capa-
blanca.
Kasparov er m.ö.o. langtí frá
neitt öruggur með sæti í
Áskorendakeppninni og satt að
segja finnst mér flest benda til þess
að afar erfið barátta bíði hans. Það
er miklurn skákmeisturum sam-
merkt að þeir hafa komist í
Áskorendakeppnina í fyrstu at-
rennu og sumir jafnvel orðið
heimsmeistarar í fyrstu atrennu
sbr. Tal og Karpov. Spasskí og
Fischer komust í keppni þessa
kornungir, og það væri synd ef
Kasparov dytti nú út. Hann hefur
nefnilega alla burði til að veita
Karpov harðvítugt viðnám í einvígi
um heimsmeistaratitilinn.
Kasparov hefur þegar þetta er rit-
að hlotið 372 vinning úr 5 skákum
ogervel inní myndinni. Hann vann
Ungverjann Guyla Sax í fyrstu um-
ferð með slíkum snilldartilþrifum,
að undir tók í skáksalnum í Mos-
kvu. Lófatakinu ætlaði aldrei að
linna, keppendum og öðrum (þar
með töldum skákdómaranum og
forsetaframbjóðandanum Kazic)
til mikillar armæðu. Skákin rak á
fjörur heimildarmanns skákþátta
Þjv. og birtist hún hér:
Hvítt: Harry Kasparov (Sovétr-
íkin)
Svart: Guyla Sax (Ungvcrjaland)
Grúnfelds - vörn
1. d4-Rf6
2. c4-g6 3. Rc3-d5
(Grúnfelds-vörnin er í miklu uppá-
haldi hjá ungversku stórmeisturun-
um. En þegar það er Kasparov sem
stjórnar hvítu mönnunum, getur
hún varla talist heppileg byrjum
Mig rekur vart minni til þess að
hann hafi misst niður meira en 1/2
vinning gegn þessari ágætu byrj-
un. ).
4. cxtí5-Rxd5 6. bxc3-Bg7
5. e4-Rxc3 7. Bc4!
(Sax er vel undirbúinn fyrir 7. Rf3.
en það er langvinsælasti leikurinn.
Kasparov hefur beitt þeim leik
mikið, en hér breytir hann út af.
Hárrétt sálfræðileg ákvörðun.)
4 ^ÁVcWWarKeyí-
jn^L
Nemendur sem vilja læra NORSKU og
SÆNSKU til prófs í stað dönsku komi til við-
talssem hérsegirog hafi með sér stundaskrár
sinar:
NORSKA
5 bekkur mánud.
6 bekkur mánud.
7 bekkur þriðjud.
8 bekkur miðv.d
9 bekkur miðv.d.
13/9 kl. 17.00
13/9 kl. 18.00
14/9 kl. 17.00
15/9 kl. 17.00
15/9 kl. 18.00
1. og 2. ár framhaldsskóla mæti þriðjud. 14/9
kl. 18.00
SÆNSKA
5 bekkur miðv.d.
6 bekkur miðv.d.
7 bekkur þriðjud.
8 bekkur þriðjud.
9 bekkur mánud.
15/9 kl. 18.30
15/9 kl. 17.00
14/9 kl. 18.30
14/9 kl. 17.00
13/9 kl. 17.00
1. ár framhaldssk. mæti til kennslu í Lauga-
lækjarskóla miðv.d. 6/10 kl. 19.30
2 ár framhaldssk. mæti í Laugalækjarsk. 13/9
kl. 18.30
7—10 ára
Ekki er boðiðað kenna sænsku og norsku fyrir
4. bekk, en foreldrar sem vilja láta kenna
7—10 ára börnum sínum þessi mál til þess að
viðhalda kunnáttu þeirra ættu að hafa sam-
band við Námsfl. Rvk. í símum 12992 / 14106
því að í ráði er að setja upp frjálst nám fyrir
þau. Reynt verður að hafa kennslu yngstu
barnanna víðar en á einum stað í bænum.
Námsflokkar Reykjavikur
Símar 12992/14106
7. ..o-o
8. Be3-b6
13. Rf4
(Algengara er 8.-c5. Textaleikur-
inn gefur hvítum kost á skjótri
framrás h- peðsins).
9. h4!-Bb7 10. Df3-Dd7
(Mikilvægur leikur sem hindrar
áætlunina, h4-h5, h5xg6 og Df3-
h3.)
11. Re2-h5
12. Bg5-Rc6
(Algengara er 8.-c5. Textleikurinn
gefur hvítum kost á skjótri framrás
h-peðsins.)
9. h4!-Bb7 10. Df3-Dd7
(Mikilvægur leikur sem hindrar
áætlunina, h4-h5, h5xg6 og Df3-
h3.)
11. Re2-h5
12. Bg5-Rc6 13. Rf4
(Hótar 14. Rxg6.)
13. ..e6
14. Hdl-Ra5
15. Bd3-e5
16. dxe5-Bxe5
17. 0-0
17. ..Dg4
(Drottningarkaup eru svörtum
kærkomin, svo hvítur víkur drottn-
ingunni undan.)
18. De3-Hfe8
19. Be2!-Bxf4?
(Upphafið af erfiðleikum svarts.
Hann varð að leika 19.-Dc8. Hvít-
ur stendur þá betur að vígi, en
svartur er ekki án gagnfæra. Það er
hreinlega óðs manns æði að gefa
svartreita biskupinn eftir.)
20. Bsf4-Rc4!?
(Án efa leikurinn sem Sax hafði í
huga þegar hann lék 19. -Bxf4.
E.t.v. hefur honum yfirsést 23.
leikur hvíts. 20. - Dxh4 var annar
möguleiki, en hinir yfirþyrmandi
veikleikar í kóngsstöðu svarts gefa
hvítum yfirburðastöðu á kostnað
eins lítils peðs.)
21. Bsc4-Hxe4 22. f3! Dxf4
23. Bxf7+!!
(Einkennandi fyrir Kasparov.
Hann hefur reiknað flækjurnar allt
til enda. )
Norræna húsið:
Tónverk
Phllips
Corner
í kvöld, þriðjudaginn 14.
september kl. 20.30 verða haldnir
tónleikar í Norræna húsinu.
Bandaríska tónskáldið Philip
Corner mun kynna þar verk sín.
Leikin verðurtónlist m.a. frásjötta
og sjöunda áratugnum. Hér á landi
er Philip staddur á leið sinni til
Þýskalands, þar sem hann mun
taka þátt í hátíð Fluxushreyf-
ingarinnar. Hann ætti að vera
mörgum kunnur hér því að nokkr-
um sinnum áður hefur hann kynnt
tónlist sína hér á landi, m.a. í
sumar og vor í Norræna húsinu og
| Nýlistasafninu.
23. .. Kg7
(Auðvitað ekki 23. -Kxf7 24. fxe4
og drottningin er leppur.)
24. Dd3!
(Víki hrókurinn, kemur 25.
Dxg6+.)
24. ..De3+
(Þvingað)
25. Dxe3-Hxe3
26. Hd7!-Kh6 28. Hdl-Bd3
27. Hxc7-Ba6 29. Hd2
(Hótar 30. Kf2.)
29. ..Bf5
30. Kf2-He5
31. Hd5!-Hsd5
32. Bxd5-Hd8
33. c4-b5
34. Ke3-a5
35. Kf4
Kasparov
(Hugmyndin er einföld: 36, g4 og
síðan - g5+. Svartur er algerlega
varnarlaus.)
35. ..Bbl
36. g4-hxg4 37. fxg4
- Svartur gafst upp. Hann getur
reynt 37. -Hf8- 38. Kg3 g5, en þá
fellur b5 -peðið og staðan verður
gjörsamlega vonlaus. Stórglæsileg
skák hjá Kasparov sem sýnir alla
hans bestu hæfileika við skák-
borðið.
Tími: Hv.: 1.33 sv.: 2.20
Spennandi
Kasparovs
Kúbanski stórmeistarinn Guill-
ermo Garcia blandaði sér öllum á
óvart í baráttu cfstu manna á milli-
svæðamótinu sem nú stendur yfir í
Moskvu. Garcia átti þrjár bið-
skákir fyrir biðskákadaginn síð-
asta föstudag og úr þeim hlaut hann
2‘A vinning. Hann bætti svo um bet-
ur þegar 4. umferð var tefld síðast-
liðinn laugardag og vann Ungverj-
ann Sax. Kúbumaðurinn hefur um
alllangt skeið verið sterkasti skák-
maður síns heimalands, en enginn
átti þó von á slíkri frammistöðu.
Úrslit í 4. umferð sem tefld var á
laugardaginn urðu sem hér segir:
Murej vann Beljavskí, Tal vann
Van der Wiel, Christiansen vann
Quinteros og Garcia vann Sax.
Jafntefli gerðu Geller og Kasparov
og Velimirovic og Anderson. Skák
Gheorghiu og Rodriquez var frest-
að vegna veikinda Rúmenans.
í 5. umferð sem tefld var á sunn-
udagir.n urðu úrslit þessi: Beljavskí
vann Geller (Geller féll á tíma í 33.
leik). Jafntefli gerðu Tal og Kasp-
arov, og var sú skák æsispennandi.
Kasparov fórnaði manni fyrir peð,
en í æðisgengnu tímahraki beggja
viðureign
og Tals
keppenda bauð heimsmeistarinn
fyrrverandi jafntefli, sem Kaspar-
ov tók. Þá gerðu Anderson og Sax
einnig jafntefli. Aðrar skákir fóru í
bið.
Staðan eftir 5 umferðir er dálítið
óljós vegna fjölda biðskáka: 1. Tal
(Sovét) 4 v. 2. Garcia (Kúbu) 37: v.
+ 1 biðskák. 3. Kasparov (Sovét)
372 4. Beljavskí (Sovét) 3 v. 5.
Anderson (Svíþjóð) 27j v. + bið-
skák. 6. Christiansen (Bandaríkj-
unum) 2 v. + 1 biðskák. 7.-8. Gell-
er (Sovét) og Sax (Ungverjalandi)
2 v. 9.-10. Murej (ísrael) og Velim-
irovic (Júgóslavíu) r/2 + 1 biðskák.
11. Gheorghiu (Rúmeníu) 1 v. + 2
biðskákir. 12. Quinteros (Argent-
ínu) 1 v. + 1 biðskák. 13. Rodriqu-
ez (Filippseyjum) 'h v. + 3 bið-
skákir). 14. Van der Wiel (Hol-
landi) 0 v. + 3 biðskákir.
6. umferð var tefld seint í gær-
kvöldi, og tefldu þá saman: Murej
og Garcia, Geller og Christiansen,
Kasparov og Beljavskí, Quintelos
og Ánderson, Sax og Rodriquez,
Velimirovic og Van der Wiel og
Tal og Georghiu.
— hól.
Hádegi á Hötel Holti.
Líttu inn, það er auðvelt aö gera hádegið þægilegt og
afsiappað, alla daga vikunnar og mun ódýrara en þú
heldur.
Hótel Holt býður Ijúffengan mat á góöu verði.
Sem dæmi: Hádegisverður frá kr. 95.-
Einnig þykir okkur rétt að minna á nýja
forréttamatseðilinn.
HAFÐU ÞAÐ EYRSTA FLORKS - ÞAÐ KOSTAR EKKERT MEIRA
Verið velkomin.
B
Bergstaöastræti 37
Boröapantanir í síma 25700