Þjóðviljinn - 14.09.1982, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 14. september 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA
íþróttir
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
'Víkingar eru Islandsmeistarar 1. deildar í knatt-
spyrnu 1982 og bikarinn ílendist því í herbúðum þeirra
við Hæðargarð annað árið í röð. Eftir 2-0 sigur ÍBV á
Fram á laugardag var Ijóst að Víkingar máttu tapa með
eins marks mun gegn ÍA á sunnudag og verða meistarar
samt. Álagið var mikið en Víkingar stóðust það og
tryggðu sér meistaratitilinn með 0-0 jafntefli, sann-
gjörnum úrslitum eftir gangi leiksins.
Víkingar byrjuðu betur en
leikurinn jafnaðist fljótlega og
hélst í jafnvægi mest allan tímann.
Víkingar fengu dauðafæri strax á 5.
mín. þegar Gunnar Gunnarsson
skaut í varnarmann á marklínu af
stuttu færi. Tveimur mínútum síðar
skallaði Sigþór Ómarsson í þver-
slána á Víkingsmarkinu. Hann
skaut síðan yfir í ágætu færi
skömmu síðar.
Undir lok fyrri hálfleiksins vildu
Ómar Torfason, fyrirliði
Víkings, lyftir
Islandsbikarnum. Bak við
hann er maðurinn á bak við
velgengni liðsins, sovéski
þjálfarinn Youri Sedov.
Mynd: - eik.
„Æðisgengið
að vinna”
„Það var æðisgengið að vinna
þennan leik. Ég var farinn að sjá 2.
deildina framundan þegar KA
komst yfir en það var alltaf kraftur
í strákunum þrátt fyrir markið og
þetta var cinn albesti lcikur okkar í
sumar. Ég er mjög ánægður með
Sigurð Þorsteinsson sem stýrði li-
ðinu í leiknum. Það var breytt um
leikaðferð, við höfum leikið
„maður-á-mann“ í sumar en nú
breytti Sigurður því í svæðisvörn
og jiað hleypti nýju blóði í liðið“,
sagði Sigurður Grétarsson lands-
liðsmiðherji úr Breiðabliki eftir að
lið hans hafði sigrað KA 2-1 í Kópa-
vogi á laugardag og þar með tryggt
sér áframhaldandi sæti í 1. deild en
jafnframt sent KA niður í 2. deild.
Leikurinn var ágætlega leikinn
af beggja hálfu en það voru Blik-
arnir sem réðu ferðinni lengst af.
KA fékk þó fyrsta færið, Ásbjörn
Björnsson skaut í samskeytin og út
frá vítateig strax á 4. mínútu. Eftir
það fengu Blikar hvert færið á fæt-
ur öðru en Aðalsteinn Jóhannsson
lék vel í marki KA og bægði allri
hættu frá. Á 35. mín. braust síðan
hinn síungi Elmar Geirsson upp að
endamörkum og sendi fyrir mark
Breiðabliks þar sem Ásbjörn var
einn og óvaldaður og skallaði í net-
ið, 0-1 fyrir KA og þannig stóð í
leikhléi.
margir meina að IA hefði átt að fá
vítaspyrnu er Stefán Halldórsson
hálffelldi Sigþór sem við það fór úr
jafnvægi og missti knöttinn aftur
fyrir endalínu.
Jóhann Þorvarðarson fékk tvö
gullin færi til að tryggja Víkingum
sigur með mínútu millibili snemnta
í síðari hálfleiks. Fyrst var hann
einn á móti Bjarna Sigurðssyni
markverði ÍA eftir sendingu
Heimis Karlssonaren Bjarni bjarg-
aði með úthlaupi. Síðan fékk Jó-
hann knöttinn á markteig eftir að
Bjarni hafði misst af knettinum en
skaut í varnarmann.
Fátt markvert gerðist eftir þetta
og líflegur leikur datt niður á lægra
plan. Sigþór skallaði yfir Víkings-
markið úr dauðafæri á 66. mínútu
eftir fyrirgjöf Sveinbjarnar Hákon-
arsonar og hinum megin komst
Heimir í gott færi eftir sendingu
■Sverris Herbertssonar en Bjarni
varði skot hans.Leiktíminn rann út
og leikmenn ÍBV fylgdust von-
sviknir með úr stúkunni á
Laugardalsvellinum en fögnuður
stuðningsmanna Víkings jókst eftir
því sem nær dróg lokum leiksins og
þegar Óli Ólsen dómari flautaði til
leiksloka stigu þeir svart/rauðu
trylltan dans, meistaratitillinn var
loks í höfn.
íslandsmótinu í knattspyrnu 1982 er lokið:
Víkinpar stóðust álag-
ið í lokalelknum
Keflvíkingar sekúndum frá falli í 2. deild, en Fram
og KA SffóruJniðuS.
Aðstæðurnar á Laugardals-
vellinum buðu ekki beint upp á-
góða knattspyrnu, rennblautur
völlur sem breyttist í forarsvað.
Þrátt fyrir það sáust ágæt tilþrif til
beggja liða og lengi vel var áhersl-
an lögð á að láta knöttinn ganga.
Stefán Halldórsson var besti mað-
ur Víkings og góður leikur hans í
stöðu miðvarðar í sumar er ein af
ástæðunum fyrir því að liðið hélt
sæti sínu á toppi 1. deildar. Að
öðru leyti var liðið jafnt eins og svo
oft áður, og sigur þess er sigur
liðsheildarinnar. Skagamenn
sýndu þokkalegan leik og gáfu ekk-
ert eftir þó ekki væri að neinu að
keppa. Bjarni var góður í markinu
og þeir Árni Sveinsson og Sigurður
Jónsson ágætir á miðjunni, svo og
Sigþór í framlínunni.
—vs
Þelr sögðu:
Ögmundur
Kristinsson
GUSf'
Breiðablik sótti nær látlaust fyrri
hluta síðari hálfleiks en ekkert
gekk og menn voru farnir að ókyrr-
ast í stúkunni á Kópavogsleikvell-
inum. En á 68. mín. átti Sigurður
Grétarsson fallega sendingu inn
fyrir vörn KA á Sævar Geir Gunn-
leifsson sem hafði betur í kapp-
hlaupi við Aðalstein markvörð og
sendi knöttinn í netið, 1-1. Nú
sóttu liðin til skiptis og KA-menn
komu meira fram á völlinn. Fjó-
rum mínútum fyrir leikslok kom
svo lokauppgjörið. Hákon Gunn-
arsson skaut í hendina á Haraldi
Haraldssyni innan vítateigs KA og
vítaspyrna dæmd sem Sigurður
Grétarsson skorai úr af öryggi, 2-1,
Breiðablik uppi, KA niðri.
Sigurður Grétarsson, Guð-
mundur markvörður Ásgeirsson
og Ólafur Björnsson voru bestir í
liði Blikanna en Aðalsteinn mark-
vörður og miðverðirnir Haraldur
og Erlingur Kristjánsson stóðu upp
úr hjá KA. Sárt að sjá á eftir Akur-
eyringunum niður í 2. deild og
varla dvelja þeir þar lengi. Það
hefði einnig verið dapurlegt að
horfa á eftir Blikunum þangað en
þeir sjá nú væntanlega að það er
ekki nóg að vera efnilegir, til að
berjast um toppsætin þarf meira.
- VS.
ÍBV sendi
Fram niður
Það var spenna í loftinu í upphafí
leiks í Vestmannaeyjum á laugar-
daginn, enda mikið í húfí fyrir bæði
Eyjamcnn og Fram. Eyjamenn áttu
mögulcika á 1. sæti, en Fram var að
reyna að forða sér frá falli f 2. deild.
Það er skemmst frá að segja að
Eyjapeyjar yfírspiluðu Framara í
fyrri hálfleik og sýndu oft á tíðum
sniildar knattspyrnu, léku vel
saman og voru mjög yfirvegaðir í
leik sínum.
Á fyrstu fjórum mínútunum
kom boltinn ekki yfir á vallarhelm-
ing Eyjamanna. Það voru þó Fram-
arar sem fengu fyrsta færið í
leiknum þegar Bryngeir Torfason
átti þrumuskot að marki á 6. mín.,
en Páll náði að verja. Þetta var eina
umtalsverða marktækifæri þeirra í
leiknum, og á 11. mín. kom eitt
alfallegasta mark sem skorað hefur
verið í Eyjum. Ómar Jóhannesson
tók þá aukaspyrnu útfrá vítat-
eigshornbinu, og af unt 30 metra
færi skaut hann þrumuskoti, og
það söng í netinu þegar boltinn
þandi það út uppi undir slánni.
Á 28. mín. kom svo annað mark-
ið. Þórður skallaði inn fyrir vörn
Fram, og þar kom Sigurlás, og úr
erfiðri aðstöðu náði hann að skora
sitt 10. mark í deildinni í sumar.
Síðari hálfleikurinn var ekki eins
vel leikinn, og meira jafnræði i leik
liðanna. Tækifærin í hálfleiknum
áttu Eyjamenn, og fjórum sinnum
fékk Lási gullin tækifæri til þess að
tryggja sér markakóngstitilinn.
Það vakti furðu hversu litla bar-
áttu Framarar sýndu í þessunt leik.
Bestu menn þeirra voru Sverrir
Einars og Hafþór. Þess ber að geta,
að í lið Fram vantaði þá Trausta og
Halldór Arason.
Eyjaliðið var í heild mjög gott og
ætti að geta sýnt Pólverjunum
mikla mótspyrnu í Kópavogi í
kvöld. Bestir voru þeir Viðar,
Sveinn, Sigurlás og Ómar.
________________________ - gsm.
Bæöi nýju
liðin uppi
ísafjörður og Keflavík, liðin sem
komu upp úr 2. dcild í fyrra, halda
bæði sætum sínum í 1. dcild. Liðin
léku á ísafirði á laugardag og gerðu
markalaust jafntefíi. A síðustu
sekúndunum var knötturinn þó
sendur fyrir mark ÍBK og Örnólfur
Oddsson skallaði í mark en lcikur-
inn hafði verið flautaður af
sekúndubrotum áður og Þorsteinn
markvörður Bjarnason gerði ekki
tilraun til að verja.
Bæði lið fengu ágæt marktæki-
færi, sérstaklega Magnús Garðars-
son Keflvíkingur, en ekkert mark
leit dagsins Ijós. Bæði iið hafa sýnt í
suntar að þau eiga 1. deildarsætið
fyllilega skilið og ísfirðingar standa
uppi sem markakóngar deildar-
innar í ár með 27 mörk, tveimur
fleiri en fslandsmeistarar Víkings.
Þá er aðeins ógetið leiks KR og
Vals en hann var leikinn kl. 16. á
laugardag og þá var Ijóst að
Evrópusætið var utan seilingar
fyrir KR-inga. Þeir tryggðu sér þó
þriðja sætið með 1-0 sigri og
skoraði Birgir Guðjónsson mark-
ið. Góður árangur KR undir stjórn
Hólmberts Friðjónssonar en mörk-
in hefðu mátt vera fleiri.
Staðan:
Lokastaðan í 1. deild:
Víkingur 18 7 9 2 25-17 23
ÍBV 4 5 23-16 22
KR 18 5 11 2 14-12 21
ÍA 18 6 6 6 22-20 18
Valur 18 6 5 7 18-15 17
ÍBÍ 18 6 5 7 27-29 17
18 6 5 7 18-22 17
ÍBK 18 5 6 7 14-19 16
Fram 18 4 7 7 17-23 15
KA 18 4 6 8 17-22 14
Markahæstir urðu:
Heimir K arlsson, V íkingi........... 10
SigurlásÞorleifsson, ÍBV............. 10
Gunnar Pétursson, ÍBÍ..................7
Sigurður Grétarsson, Breiðabliki.......7
- vs.
Ögmundur Kristinsson mark-
vörður gekk til leðs við Víking í
sumar eftir að hafa alið aldur sinn
sem markvörður að mestu leyti í 2.
deild. Hann hefur leikið mjög vel og
oft fleytt Víkingum yfír erfíða kafla
í sumar. Við gripum Ögmund glóð-
volgan á leiðinni inn í búningsklefa
.eftir leikinn við ÍA og spurðum
thann fyrst hvernig það væri að
ikoma úr 2. deildinni og verða strax
íslandsmeistari.
„Það er stórkostlegt", svaraði
hann brosandi, „Þetta er mesta
hamingja sem ég hef orðið að-
njótandi í knattspyrnunni".
- Hverju viltu þakka sigurinn?
„Fyrst og fremst mikilli sam-
heldni innan liðsins. Þá höfum við
mjög góðan þjálfara, Youri Sedov,
og menn hafa æft afar vel.“
- Hvað með Evrópuleikinn gegn
Real Sociedad á miðvikudag?
„Ég hlakka rosalega til. Þetta
verður í fyrsta skiptið í sumar sem
við getum spilað afslappaðir. Við
erum búnir að vera undir stöðugri
pressu allt íslandsmótið, við höfum
leitt deildina lengst af og það er
búið að vera mikið álag á liðinu.
Ómar Torfason
„Það var mikil pressa á okkur í
þessum leik og ekki voru vallarskil-
yrðin til að bæta neitt. Við gátum
gert út um hann á fyrsta hálftíman-
um, fengum tvö dauðafæri, en það
er alltaf erfitt undir pressu", sagði
Ómar Torfason fyrirliði Víkings
eftir leikinn.
- Með hvernig hugarfari mætt-
uð þið til lciks?
„Varkárni númer eitt. Við fór-
um inn á völlinn með annað stigið
og vorum ákveðnir í að halda því,
sjá síðan til hvernig leikurinn spila-
ðist“.
Borrovnat
„Það er erfitt að segja nokkuö
um Víkingsliðið eftir svona leik“,
sagði Borrovnat, aðstoðarþjálfari
spænska félagsins Real Sociedad
sem mætir Víkingi á Laugardals-
vellinum í Evrópukeppni meistara-
liða á miðvikudaginn. „Það lék
undir miklu álagi, enda meistara-
titill í húfi, en það er greinilegt að
knattspyrnan hér er talsvert öðru-
vísi en á Spáni“.
- Hvað með völlinn?
„Við erum vanir að leika við
svipaðar aðstæður í spænsku 1.
deildinni á veturna svo ég hef ekki
sérstakar áhyggjur af honum.
Leikurinn verður án efa erfiður,
það eru þeir allir, en ég tel að við
eigum öllu betri möguleika í þess-
ari Evrópukeppni nú en í fyrra. Þá
vorum við slegnir út í 1. umferð en
nú erum við með óbreytt lið sem
hefur hlotið meiri reynslu".
- vs.