Þjóðviljinn - 14.09.1982, Síða 2
Max
heitir
Karl
Adolf
Max von Sydow, hér á landi lík-
lega þekktastur fyrir hlutverk
Karls Oskars í Vesturförunum
heitir reyndar Karl og meira að
segja Adolf líka. Hins vegar er
nafnið Max miklu yngra.
Hann var kallaður Max í gríni
þegar hann var í skóla og þegar
hann byrjaði að leika á Dramaten
löngu seinna lentu blöðin alltaf í
vandræðum með nafn hans, sem
var sem sagt Karl Adolf Max von
Sydow. Hann var jafnvel kallað-
ur Gustav Adolf og ýmsum öðr-
um nöfnum. Að lokum tók hann
upp nafnið Max og síðan skrifaði
hann kónginum og fékk nafnið
viðurkennt. Karl Adolf Max von
Sydow stendur sem sagt í passan-
um hans. Hann er annars í París
um þessar mundir að troða upp
sem gamanleikari með þekktri
sænskri gamanleikkonu, Evu
Rydberg og koma þau fram í Ol-
ympia. Hann hefur nýlega leikið
landkönnuðinn og Ioftbergsfar-
ann Andrée í nýrri sænskri kvik-
mynd og fengið geysigóða dóma.
Karl Adolf Gustav Max von
Sydow.
Fœrri en
stærri
Veiðitímabilinu í Laxá í
Aðaldal lauk nú um mánaða-
mótin. Alls hafa verið bókaðir í
veiðibækur þar í sumar 934 fisk-
ar, en í fyrra voru þeir 1100 og vel
það.
Veiðin er sem sagt minni en í
fyrra, en fiskarnir í sumar eru
hins vegar stærri, hvað sem veld-
ur. Stærsti laxinn í sumar var 27
pund, en hann veiddi Örn Gúst-
afsson frá Akureyri, eftir því sem
segir í Degi.
Kínverjar
eiga líka
kvikmynda-
stjörnur
Þetta er kínverska kvikmynda-
leikkonan Li Xiuming. Hún er
talin ein fremsta kvikmyndaleik-
konan þar í landi og hefur leikið í
mörgum myndum og verið verð-
launuð. Hún er mjög hógvær
stúlka að sögn og hefur neitað
viðtölum og öðru tilstandi sem
varð í kringum síðustu mynd
hennar. Kínversk ungmenni láta
þó sitt ekki eftir liggja og hafa
skrifað henni aðdáendabréf
löngum bunum.
Notiö alltaf gangbrautir
þar sem þær eru og lítiö
vel til beggja hliða og
hlustiö.
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINNÞriðjudagur 14. seþtember 1982
V ídeó-
stræti í
Keflavík
Ef fer sem horfir verða ekki
færri en 5 myndbandaleigur (vi-
deo) staðsettar á næstunni við
Hafnargötuna, allar á svæðinu
frá nr. 25 til 36 eða næsta ná-
grenni.
1 dag eru þrjár þeirra starfrækt-
ar, þ.e. Videoking, Videoqueen
og stutt er í Videobankann. Þá er
Tommi vídeó-kóngur að opna
ieigu sem nefnist Phoenix-Video,,
og heyrst hefur að Ibsen Angan-
týsson muni á næstunni opna
leigu þar sem verslunin Barnið
var til húsa en sú verslun hefur nú
verið lögð niður.
Verði þetta allt að veruleika
má fara að huga að breytingu á
nafni götunnar, t.d. í iVídeó-
stræti?
segir Sigurlaug Jóhannesdóttir sem
er nýkomin heim eftir 5 mánaða dvöl
i Norrænu listamiðstöðinni í Finnlandi
„Það var stórkostlegt að vera þarna. Hvcrt Norðurlandanna hefur
aðgang að einni íbúð og stórri vinnustofu. Aðstaðan er ótrúlega góð og
maður kynntist þarna myndlistarmönnum frá öllum Norðurlöndun-
um.“ sagði Sigurlaug Jóhannesdóttir, sem er nýkomin heim eftir 5
mánaða dvöl í Norrænu listamiðstöðinni í Sveaborg í Finnlandi.
Hún er annar íslendingurinn sem dvelst þarna. Sá fyrsti var Gylfi
Gíslason, en íslendingar geta sótt um dvöl í 2 - 6 mánuði. f vor var
opnuð sýning á Sveaborg á verkum þeirra sem hafa búið þar.
„Það er mjög hvetjandi að dvelja á svona stað og vinna við aðstæður,
sem eru alger andstæða þess að vinna við þetta heima í kjallaranum"
sagði Sigurlaug. „Mér skilst að norrænir rithöfundar hafi hliðstæðar
íbúðir í Svíþjóð og almennt held ég að það sé mjög gott fyrir listamenn
að komast í nýtt umhverfi til að vinna. En þessu fylgir að taka sig upp
með fjölskyldu og það er auðvitað erfitt fyrir marga. En við höfðum
það ákaflega gott þarna og krakkarnir ekki síst.“
Sigurlaug er ein þeirra sem nú sýna textil í ASÍ salnum, en hún
verður væntanlega komin til Bandaríkjanna þegar þetta birtist. Þar á
hún 6 verk á Scandinavia today.
Frá skátamótinu við Úlfjótsvatn í sumar
Skátar hér og þar um landið fóru á skátamót til útlanda, 18
eru nú að hefja hauststarfið eftir . skátar til Luxemburg og 7 skátar
viðburðaríkt sumar. Tveir hópar til Skotlands. Afmælismót skát-
afélaganna var um verslunar-
mannahelginaaðÚlfljótsvatniog hægt að fá allar upplýsingar á
varþaðmjögfjölsótt. Núerverið skrifstofu Bandalags íslenskra
að innrita nýja félaga í skátafé- skáta í síma 23190
lögin víðs vegar um Iandið og er ^
Sigurlaug með eitt verka sinna sem sýnt er í ASI salnum um þess-
ar mundir, en hún vinnur mikið úr hrosshári eins og sést á mynd-
inni. Ljósm - eik -
Stórkostleg
vinnuaðstaða