Þjóðviljinn - 24.09.1982, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 24.09.1982, Qupperneq 1
DJOÐvnnNN Lokun Vatnsenda- vegar var harðlega mótmælt í fjöl- mennum félags- fundiíFákífyrra- kvöld. Sjá 16. september 1982 föstudagur |217. tölublað 47. árgangur Léleg sfldveiði síðustu daga Samið við bankamenn Samningar undirritaðir í dag Tekist hafa kjarasamningar með bankastarfsmönnum og samninganefnd bankanna. Verða þeir undirritaðir í dag með fyrirvörum um samþykki félaga. Vilhelm G. Kristinsson starfsmaður hjá sambandi bankastarfs- manna sagði í viðtali við blaðið í gær að þessir samningar, sem nú væru tilbúnir til undirritunar væru mjög hliðstæðir þeim sem önnur launþegasamtök hefðu samið um að undanförnu. Þó væru ýmsar nýjar útfærslur, svo sem um starfsaldurshækkanir og fleira. -óg Hornafjarðarbátar fengu 1 tunnu „Þetta er ekkert, það fékk einn bátur eina tunnu það er það eina sem veiddist“ sögðu sjómenn á Höfn í Hornafirði í Af hverju stafar aukningin á slysum og óhöppum í um- ferðinni að undan- förnu? Við spyrjum nokkra, sem tengj- ast málinu, álitsá þeirri þróun. Nýlega var stofnuð Verkalýðshreyfing- in í N-Atlantshalí, samtök verkafólks á íslandi, Færeyjum ogGrænlandi. Ás- mundur Stefánsson forseti ASÍ segir frá. Bréfið til menntamálaráðherra: Fagleg sjónarmið ráði, en ekki annarlegur þrýstingur í bréfi því sem Þjóðviljinn skýrði frá í gær og 14 einstaklingar hafa sent menntamálaráðherra vegna skipunar í stöðu fræðslustjóra í Reykjavík er lögð áhersia á að ráðherra láti fagleg sjónarmið ráða á- kvörðun sinni, ekki annarlegan þrýsting. Ráðherra er enn ókominn tii landsins. Með annarlegum þrýstingi mun átt við það, að Sigurjón Fjeldsted safnaði sjálfur undirskriftum undir stuðningsyfirlýsingu við sig sem af- hentar voru ráðuneytinu í síðustu viku. í bréfinu er afgreiðsla fræðsluráðs Reykjavíkur á um- sóknum um embættið vefengd. í því er lögð áhersla á, að ráðherra meti þá einstaklinga sem völ er á í embættið eftir reynslu þeirra og að umsóknir þeirra verði metnar hlut- laust, þe. án tillits til þrýstingsað- gerðanna og afgreiðslu fræðslu ráðs. Meðal þeirra sem rita undir bréfið eru tveir fulltrúar kennara í fræðsluráði, Elín Ólafsdóttir og Karl Kristjánsson, varafulltrúi Sjálfstæðisflokksins í fræðsluráði, Matthías Haraldsson, skólastjórar fjölbrautaskólanna í Breiðhoíti og Armúla, þeir Guðmundur Sveins- son og Hafsteinn Stefánsson, Aðalsteinn Eiríksson skólastjóri Kvennaskólans, Erling Tómasson, skólastjóri Langholtsskóla, Kári Arnórsson, skólastjóri í Fossvogs- skóla, Ingibjörg Þorkelsdóttir, yfirkennari í Breiðagerðisskóla, Ragna Ólafsdóttir, formaður Kennarafélags Reykjavíkur Tóm- as Einarsson, yfirkennari í Hlíða- skóla, að ógleymdri Bessí Jóhanns- dóttir, sem sótti um stöðuna, en 'fékk ekki að koma til álita í fræðsluráði. — ÁI samtali í gær. Þá var allur síld- veiðitlotinn kominn í höfn eftir fyrstu veiðiferðina sem gaf nær ekkert af sér. Sömu sögu var að segja á Siglu- firði. Þar hefur síldveiði lagneta- bátanna hrapað mikið á siðustu dögum. í gær komu aðeins 20 tunn- ur á land, en alls er búið að salta um 300 tunnur af síld hjá Síldarverk- smiðjum ríkisins á Siglufirði. Enn- þá eru engir nóta- eða reknetabát- ar komnir til veiða á Siglufirði. 70 tunnur á Húsavík Einn reknetabátur hélt á veiðar frá Húsavík í fyrradag, Sigurþór ÞH-100, og í gærkvöld var hann kominn með 70 tunnur. Veiðin var hins vegar léleg í lagnet hjá Húsa- víkurbátum í gær; aðeins 40 tunnur bárust að landi. Nú er búið að salta um 200 tonn af síld á Húsavík. -lg Útför Kristjáns Eldjárns Mikill fjöldi var viö útför dr. Kristjáns Eldjárns frá Dómkirkjunni í Reykjavík í gær. Flest fyrirtæki og stofnanir gáfu frí,ogmeiri hluti þjóðarinnar fylgd- ist meö útförinni í útvarpi og sjónvarpi.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.