Þjóðviljinn - 24.09.1982, Page 4

Þjóðviljinn - 24.09.1982, Page 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fðstudagur 24. september 1982 DJOÐVHHNN Málgagn sósíalisma, verkalýös- hreyfingar og þjóðfrelsis. Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann. Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson. Fréttastjóri: Álfheiður Ingadóttir. Umsjónarmaöur Sunnudagsblaös: Guöjón Friðriksson. Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir. Afgreiöslustjóri: Baldur Jónasson. Blaöamenn: Auöur Styrkársdóttir, Helgi Ólafsson, Lúövik Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason, Óskar Guömundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Þórunn Sigurðardóttir, Valþór Hlöðversson. íþróttafréttaritari: Víöir Sigurösson. Útlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir, Guðjón Sveinbjörnsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Elísson. Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar, Gísli Sigurösson, Guömundur Andri Thorsson. Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir. Skrifstofa: Guörún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Afgreiðsla: Bára Siguröardóttir, Kristín Pétursdóttir. Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Sæunn Óladóttir. Húsmóöir: Bergljót Guðjónsdóttir. Bi'lstjóri: Sigrún Bárðardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmundsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Útkeyrsla, afgreiösla og auglýsingar: Siöumúla 6 Reykjavík, sími 8 13 33 Umbrot og setning: Prent. Prentun: Blaöaprent h.f. NA TO-stefnan • Sjónvarpið sýndi í vikunni nokkurra vikna gamalt viðtal við Robert McNamara og Lord Zuckerman. Orðræður þessara manna, sem hafa lagt á ráðin fyrr á tímum um kjarnorkuvopna- stefnu Bandaríkjanna og Bretlands, sýndu þann djúpstæða ágreining sem nú er uppi um stefnu Atlantshafsbandalagsins. Þeir telja báðir, ásamt fjölmörgum öðrum sérfræðingum í vígbúnaðar- málum, að sú opinbera stefna NATO að bandalagið muni verða fyrri til að beita kjarnorkuvopnum í hugsanlegri stórsókn Sovét - ríkjanna vestur á bóginn sé röng og hættuleg. í sömu veru hafa flestir æðstu hershöfðingjar NATO talað, eftir að þeir hafa látið af störfum og losnað við múlband opinberrar NATÓ-stefnu. • Það vakti verulega athygli í sumar þegar Robert McNamara, Gerald Smith, George Kennedy og Georges Bundy, allt saman þekktir áhrifamenn í utanríkis- og öryggismálum Bandaríkjanna, lögðu til í tímaritsgrein að NATO lýsti því yfir að bandalagið myndi ekki beita kjarnorkuvopnum að fyrrabragði. Fjórmenning- arnir bentu á að hversu mikilvæg sem fækkun atómvopna væri til þess að slaka á spennu milli þjóða, væru kenningar um notkun þeirra og skuldbindingar stórveldanna í því sambandi þó enn mikilvægari. Jafnvel þótt takast mætti að fækka kjarnaoddum úr 40-50 þúsund niður í 20-25 þúsund, væri sprengikrafturinn í vopn- abúrum kjarnorkuveldanna samt sem áður á við 750 þúsund Hiro- shima-sprengjur. • Þeir McNamara og Zuckerman ítrekuðu þessa skoðun í sjón- varpsviðtalinu og kváðust ekki geta ímyndað sér stríð í Evrópu án þess að það þróaðist upp í gereyðingarstyrjöld, þar sem menning álfunnar og ef til vill alls heimsins myndi þurrkast út. Hugmyndir þeirra ganga út á það að þjóðir heimsins komi sér saman um að margfalda þá öryggishlíf sem nú er lögð yfir notkun kjarnorku- vopna. Það á m.a. að gera með skuldbindingum um að beita þeim ekki að fyrrabragði; svara ekki árás fyrr en samband hafi verið haft við mótaðila og gengið úr skugga um fyrirætlan hans og hvort um mistök hafi verið að ræða; og koma í veg fyrir að ákvarðanir um notkun kjarnorkuvopna séu í höndum hermanna á vígvelli. • Staðreyndin er sú að æ meiri áhersla er nú lögð á það í áætlana- gerð fyrir kjarnorkuherafla stórveldanna aö búa sig undir að verða fyrri til að beita kjarnorkuvopnum. Stórveldin skipta yfir úr varn- arstöðu í árásarstöðu með kjarnorkuherafla sinn. Ný vopn sem sífellt verða hraðfleygari gefa lítinn sem engan tíma til yfirvegunar og skynsamlegra viðbragða. Það er því ekki nema von að menn eins og McNamara og Zuckerman mæli gegn áætlunum sem gera ráð fyrir að hættandi sé á að gera tilraun til að stöðva kjarnorku - ■tríð á þeim punkti að einhver hluti mannkyns eigi sér lífsvon á jörðinni. Sú tilraun verður ekki endurtekin ef hún mistekst. • Gamli Víetnam-haukurinn Robert McNamara er að sjálfsögðu enginn afvopnunarsinni, þó að hann hafi nú snúist gegn opinberri kjarnorkuvopnastefnu NATO og Bandaríkjanna. En það var at- hyglisvert að heyra hann segja það í sjónvarpinu að friðarhreyfing- arnar hefðu í raun komið stórveldunum að samningaborði um afvopnunarmálin. En auðvitað er það rétt hjá honum að lítil von er um árangur fyrr en farið verður að ræða um kjarnorkuheraflann sem heild, en ekki aðeins hluta hans eins og nú er verið að gera í Genf. Og hugmyndir eins og kjarnorkuvopnalaust svæði á Norð- urlöndum, atómvopnálaust belti milli áhrifasvæða stórveidanna í Evrópu, og frystingu kjarnorkuvopna á núverandi stigi, styður McNamara ef þær ná fram að ganga innan ramma hernaðarband- alaganna í austri og vestri. • Þessar orðræður í sjónvarpinu sýndu að það getur skipt miklu að ná fram stefnubreytingu á vettvangi NATO, og hér á íslandi er brýnt að krefja íslenska NATÓ þingmenn sagna um það á sveif með hverjum þeir leggjast í kokkteilboðunum í Brussel. — ekh Líkingar í pólitískri umræðu eru býsria sjaldgæfar og einhæfar það sem þær eru. Algengasta lík- ingin er um „þjóðarskútuna“ og er sú orðin jafn leiðigjörn og hún er mönnum munntöm. Þó eru til undantekningar á því einsog Jón Rafnsson sannaði svo knálega: Ófremdarástand er alþýðan barmar sér stjórnin stefnir á sker Stalín er ekki hér. Þjóðin er eins og branda I gær birtist svo grein í Alþýðu- blaðinu eftir Skúla Magnússon uppfull af skemmtilegum líking- um í pólitíkinni. „Þjóðin er eins- og branda í neti heimskommún- ismans", segir Skúli. Enn fremur: „Steinaldarmaður hefur ekkert „kapital“, þarf ekkert kapital og kann ekkert með kapital að fara.“ Hengiflug hrunsins Skúli spjallar skáldlega áfram um hagræn efni, en pólitíska hag- fræði segist hann hafa lært eftir kennslubók við Moskvuháskóla sumarið 1956. Sakar hann Svavar Gestsson og framsóknarmenn um að tæma alla sjóði: „Með því unnu þeir tvennt: allar atvinnu- greinar og allir landshlutar eru uppá þeirra náð og miskunn komnar, og þjóðin gengur á loft- línu yfir hengiflugi hrunsins“. Rússar vaða upp „Andvaraleysi er. mikið og vax- andi. Rússar vaða upp klyfjaðir njósnatækjum í bak og fyrir. Ráðuneytið þorir ekkert að gera í málinu. Þeir kaupa hverja fast- eignina á fætur annarri. Láta dólgslega og brjóta íslensk lög og útgáfurétt. Hvernig yrði þeim við ef Hannes Gizzurarson færi að gefa út fríhyggjurit í Moskvu?" Ennfremur: „Utanríkisráðherra hefur nú verið neyddur tilað undirrita samning við Rússa um utanstefn- ur. Fjölmargir forráðamenn „Al- þýðubandalagsins" (einsog mig minnir að það heiti núna) fara reglulega í rússneska sendiráðið (til að skrifta eða hvað?).“ Þjóðin er eins og silungs- branda • Síðan þusar greinarhöfundur áfram um þjóðfélagsástandið en ekki verður bragð að fyrr en lík- ingar ná yfirhöndinni: „Enginn reynir lengur að leysa mál lengra en til fyrramáls. Bara bjarga sér fyrir horn í bili; eða sparka útaf, ef menn vilja endi- lega hugsa með fótunum. Þjóðin er einsog silungsbranda í neti. Hreyfi hún sig ekki, verður hún veidd. Hreyfi hún sig, vefjast möskvar verðbólgunnar enn þéttar um kverk og sporð. Allt fer nú eftir því hver verður í hlut- verki veiðimannsins. Til mun vera sú skepna — ein- hverskonar ormur — sem étur sjálfan sig og meltir. Þar er nú komið högum hinnar íslenzku þjóðar. Nú þarf bæði reku og ár- arblað.“ — óg Hugstöðvabyggingar fyrir erlent lánsfjármagn eru dæmigerðar fyrir þróunarríki sem riða á barmi gjald- þrots. Gegn kjarnorku- vopnum og Nató Enn einn hátt settur maður úr utanríkisþjónustu Banda- ríkjanna hefur bæst í þann hóp sérfræðinga sem sætta sig ekki lengur þegjandi við hina herskáu pólitík Bandaríkjastjórnar og Nató. Jonathan Dean sendiherra hefur meira að segja verið for- maður sendinefnda Banda- ríkjanna í afvopnunarviðræðum í Vín 1978 og 1981. Hann skrifar nýverið grein í tímaritið Foreign Policy þarsem hann snýst á sveif með Robert McNamara og fleirum sem gagnrýna hernaðar- pólitík Reagansstjórnarinnar og Nató. Hann kemst að þeirri nið- urstöðu í greininni, að Nató bæði geti og eigi að breyta um stjórn- list. Segir hann að Sovétríkin og Varsjárbandalagið séu miklu verr í stakk búin til átaka en hald- ið sé fram og Nató hafi algera yfirburði, án þess að kjarnorku- vopn þurfi til. Alltof stórar flugstöðvar - gjaldþrot ríkisins I nýlegu hefti vestur-þýska tímaritsins Der Spiegel er fjallað um skuldasöfnun ýmissa ríkja. Lýst er því hvernig mörg ríki ramba á barmi gjaldþrots vegna skuldasöfnunar einsog t.d. Mex- ico, Pólland, Argentína, Brasilía og fl. í greininni er sagt sem svo, að ef erlendar skuldir eru notaðar til framleiðslu, sem líkleg er til að gefa af sér arð, sé lítið athugavert við þær. Öðru máli gegni þegar ríki taki „erlend lán til að fjár- magna t.d. íburðarmiklar stjórnarbyggingar, ofur stórar flugstöðvar vopnakaup eða lúxusvörur." Þá sé það segin saga að ekki verði til fyrir afborgunum og vaxtagreiðslum. Gott umhugsunarefni fyrir þá sem vilja stóra flugstöð. -óg

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.