Þjóðviljinn - 24.09.1982, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 24. september 1982
Millisvæða-
mótið
í Moskvu
1. 2. 3. 1. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14.
1. Murej 'U 0 1 'I2 0 0 1 'I2 0
2. Geller ’/2 'I2 0 1 '/2 1 1 '/2 'I2 'I2 'I2
3. Kasparov 1 V2 \ '/2 1 'I2 '/2 1 1 1 'I2 'I2
4. Beljavskí 0 1 '/2 \ 1 1 1 0 1 1
5. Christiansen 'U 0 0 0 ■\ 1 'I2 1 'I2 0 — 'U 1 '/2
6. Carcia 1 'I2 V2 0 0 'I2 1 'I2 1 1 1 '/2
7. Anderson 1 0 'I2 ' V* '/2 \ '/2 1 1 '12 '/2 1
8. Rodriquez 0 0 0 V2 1 0 0 V2 1 0
9. Van der Wiel 'U 'I2 0 0 0 0 'U 'I2 1 'I2 0
10. Gheorghiu '/2 0 'I2 '/2 0 1 'I2 0 '/2 'U 'I2
11. Velimirovic 0 1 0 'I2 1 'I2 1 'I2 0
12. Sax 0 1 'I2 0 'I2 'I2 0 'I2 'I2 1 '/2
13. Quinteros 'I2 'I2 0 0 0 0 0 'Í2 'I2 0 'I2
14. Tal 1 '/2 '/2 0 '/2 'I2 1 1 '/2 1 '/2 '/2
Kasparov og Beljavskí
eiga mesta möguleika
Þegar þetta er ritað hafa linur
skýrst nokkuð á millisvæðamót-
inu i Moskvu. 11 umferðir hafa
verið tefldar og þó sex efstu menn
eigi allir möguleika á að komast
áfram i Askorendakeppnina, þá
er ljóst að Geller, Anderson og
Garcia hafa allir misst móðinn að
einhverju leyti og þeir Kasparov,
Beljavski og Tal eigi langbestu
möguleikana á að komast áfram.
Guillermo Garcia byrjaði glæsi-
lega á mótinu, en hefur nú heldur
betur daprast flugið, tapaði fyrir
Christiansen og á tapaða biðskák
gegn Beljavski. Staðan i skák
þeirra er þessi:
Rodriquez 3v. + 2 biðskákir. 13.
Vdn der Wiel 3v. + 1 biðskák 14.
Quinteros 2v.
Kasparov hefur sótt mjög I sig
veðrið í síðustu umferðunum og
virðist eiga alla möguleika að
komast áfram. Er það vel, þvi
hann er taiinn geta veitt Karpov
heimsmeistara verðuga keppni ef
til einvigis þeirra á milli kæmi.
Tal og Beljavski eiga báðir
góða möguleika og Beljavski
sýnu betri. Anderson virðist
skorta metnað til að komast
áfram. Hann hefur gefið út þá
Minningarorö
yfirlýsingu að heimsmeistara-
keppnin i skák höfði ekki svo
mikið til sin, þar eð hann telji það
fyrirfram vonlaust verkefni að
velta Karpov úr stalli.
Aödáendur Harry Kasparovs fá
hér eina af sigurskákum hans úr
mótinu. Það er einn sterkasti
skákmaður Bandarik janna,
Larry Christiansen, sem fær
heldur óbliðar móttökur.
Hvitt: Christiansen (Bandarikin)
Svart: Kasparov (Sovétrikin)
Kóngindversk vörn
Harry Kasparov: Þrátt fyrir and-
streymi um mitt mót hefur hann
sótt i sig veðrið i undanförnum
umferðum.
1. d4-Rf6
2. c4-g6
3. Rc3-Bg7
4. e4-d6
5. f4-0-0
6. Rf3-C5
7. d5-e6
8. dxe6-fxe6
9. Bd3-Rc6
10. 0-0-Rd4
11. Rg5-e5
12. f5-h6
8
7
6
5
4
3
2
1
Garcia — Beljavski
Allar likur eru á þvi að upp
komi endatafl þar sem svartur er
með hrók, kóng og þrjú peð gegn
riddara, kóng og þrem peöum og
er sú staða fræðilega unnin á
svart.
Eftir hinar 11 umferðir er
staðan þessi: 1.—2. Kasparov og
Garcia7v + 1 biðskák hvor. 3. Tal
7v. 4 Anderson 6 1/2 v + 1 bið-
skák. 5. Geller6 1/2 v. 6. Beljav-
ski 5 l/2v. + 3 biðskákir. 7.-8.
Gheorghiu og Sax 4 l/2v + 1 bið-
skák hvor. 9. Christiansen 4 l/2v.
10. Velimirovic4v. + 3 biðskákir.
11. Murej 3v. + 3 biðskákir. 12.
Hver
er þín
afsökun
9
y^ERiWl
Þorvarðarson
Óskar
Fæddur 19. janúar 1929
Dáinn 17. september 1982
1 dag er til moldar borinn
Óskar Þorvarðarson, hús-
gagnasmiðameistari, er lést
föstudaginn 17. þ.m. i Land-
spitalanum.
Óskar var fæddur að Neðra-
Hálsi i Kjós. hinn 19 janúar 1929,
sonur hjónanna Þorvarðar Guö-
brandssonar frá Hækingsdal i
Kjós, sem nú er látinn, og
Agústu Andrésdóttur frá
Neðra-Hálsi i sömu sveit. Óskar
fellur þvi frá á miðjum starfs-
aldri eða 53 ára gamall.
Skömmu eftir að Óskar fædd-
ist fluttu foreldrar hans til
Reykjavikur og þar ólst hann
upp. óskar nam húsgagnasmiði
hjá Trésmiðjunni hf. i Reykja-
vik og var Björn Þorsteinsson,
annar eigandi hennar, meistari
hans og lærifaðir i iðninni. Lauk
hann þaðan námi og prófi frá
Iðnskólanum i Reykjavik, en
sveinsprófi lauk hann 25. nóv.
1949. Eftir þaö fór hann að vinna
hjá Húsameistara rikisins.
Hinn 13. ágúst 1953 fékk hann
meistararéttindi i húsgagna-
gerð og stofnsetti þá Trésmiðj-
una Kvist ásamt Halldóri
Magnússyni og fleirum, en þeir
ráku fyrirtækið saman i nokkur
ár.
Fljótlega fóru ýmsir verk-
takar og framkvæmdaaðilar að
leita til óskars meö beiöni um
að meta til kostnaöarverðs
framkvæmdir, er þeir hugðust
hefja, og i framhaldi af þeim
störfum hans var hann siðar
fenginn til tjónavirðinga fyrir
Samvinnutryggingar og önnur
tryggingarfélög. Frá árinu 1968
starfaði hann sjálfstætt að
tjónavirðingum fyrir Bruna-
bótafélag tslands og var það
hans aðalstarf upp frá þvi.
Óskari voru þvi snemma falin
mörg trúnaðarstörf, enda var
hann hlutlægur i mati sinu, var
bæði vandvirkur og laghentur
og hafði góða og trausta skap-
höfn, er naut sin vel i öllum hans
störfum. Hann var tiðum feng-
inn til að taka sæti i Sjó- og
verslunardómi, starfaði við
endurmöt Fasteignamats rikis-
ins, fyrir Viðlagasjóð i Vest-
mannaeyjum og Viðlagatrygg-
ingu íslands á Kópaskeri og
viðar.
Arið 1951 gekk hann að eiga
eftirlifandi konu sina, Jórunni
Erlu Þorvarðardóttur frá Vest-
mannaeyjum mikilhæfa dugn-
aðarkonu.
Börn þeirra eru:
Elin, sendiráðsritari i Stokk-
hólmi, f. 14. ágúst 1951, gift Ein-
ari Kristjánssyni lækni og eiga
þau einn son.
Þorvarður, matsveinn i
Naustinu, f. 19. mars 1953,
kvæntur Hildi Mariasdóttur
fóstru. Þau eiga tvær dætur.
Andrés, fulltrúi hjá Kaup-
íélagi Stöðvarfjarðar, f. 26. júni
1957, kvæntur Ingunni Björns-
dóttur, Þau eiga einn son.
Agústa, husmóðir, f. 14. ágúst
1958, gift Pétri H. Pálssyni,
skipstjóra i Grindavik. Þau eiga
þrjár dætur.
Ólöf Dagný, Verslunarskóla-
nemi, f. 4. april 1966 dvelur i
heimahúsum.
Óskar var mikill og góður
heimilisfaðir, sem bar hag fjöl-
skyldunnar sinnar fyrir brjósti.
Þótt frlstundir væru stopular,
sat það i fyrirrúmi að njóta
þeirra i faðmi fjölskyldunnar.
Var þá stundum farið i Kjósina i
sumarbústaöinn, er þau höfðu
byggt sér þar i landi Háls, til að
njóta hvíldar og friðar frá dags-
ins önn.
Arið 1975 tók óskar einkaflug-
mannspróf og eignaðist þá hlut i
flugvél ásamt nokkrum félaga
sinna. Hafði Óskar mikla
ánægju af að iðka flug i fri-
stundum, enda farsæll i þvi sem
öðru og kom það sér lika oft vel i
starfi, er hann þurfti að ferðast
út á land.
Hinn 6. júni sl. veiktist óskar
skyndilega og var þá fluttur i
sjúkrahús, þar sem hann gekkst
undir aögerð skömmu siðar.
Komst hann um stundarsakir af
sjúkrahúsi, en maöurinn með
ljáinn var skammt undan og
kallið kom fyrr en varði og and-
aðist óskar sem fyrr segir hinn
17. þ.m. I Landspftalanum.
Með aðdáunarverðum hætti
gaf eiginkona hans Erla, honum
mikinn styrk i veikindunum og
stóð við hliö hans uns yfir lauk.
13. Rh3-gxf5 16. Bxc4+-Kh8
14. exf5-b5 17. Bxd4-cxd4
15. Be3-bxc4 18. Rd5-Ba6
abcdefgh
(Hraðinn og krafturinn er með
ólikindum. Svartur setur erfiða
völ fyrir hvitan. Hann'getur leikið
19. Bxa6 en eftir 19. -Rxd5 er
hótunin 20. -Re3 afar óþægileg
hvitum. 19. Da4 er annar mögu-
leiki en svartur stendur mun
betur að vigi eftir 19. -Bxc4 20.
Dxc4 Rxd5 21. Dxd5 Hc5 o.s.frv. 1
flókinni stöðu velur hvitur besta
kostinn. Hann fórnar skiptamun
fyrir sóknarmöguleika).
19. Rxf6-Bxc4 21. Dg4-Dd7
20. Rh5-Bxfl 22. Hxfl-d3!
(Mótspil svarts liggur i frípeð-
unum á d-linunni).
23. Df3-d2 25. Dd3-Da4!
24. g4-Hc8
(Hótar 26. -Dxg4+ o.s.frv. Að
auki kemst drottningin i spil á
miðborðinu).
26. Rf2-Dd4 27- Dxd4-exd4
(Þrátt fyrir þripeð á d-linunni,
sannarlega óvenjuleg sjón, er
staðan unnin hjá svörtum. En úr-
vinnslan krefst nákvæmni og að-
gæslu. Hana skortir ekki á hjá
Kasparov)
28. Rf4-Hfe8
29. Re6-Hcl
30. Rdl-Bf6
31. Kf2-Bg5
32. Ke2-Hc5!
33. Kd3-He5
34. Rxg5-hxg5
35. Hf2-
(Skárra var 35. Kxd3 en svartur
vinnur eftir 35. -He2- o.s.frv.)
35. ..-He4 38. Kd5-He2
36. h3-He3+! 39. Hf3-Hel
37. Kxd4-H8e4+ 40. f6-Hf4!
— Hvitur gafst upp.
Aöur en ég kom að Bruna-
bótafélagi Islands þekkti ég
Óskar aðeins af góðu orðspori.
Siðar átti ég eftir að kynnast
honum nánar og eiga með
honum mikið og gott samstarf.
Starf Oskars fyrir Brunabót var
mjög mikilvægt en jafnframt
vandasamt. Þegar hinn tryggöi
varð fyrir tjóni átti Óskar að
meta tjónsbætur á þann veg að
séð væri fyrir hagsmunum
beggja, tjónþola og félagsins.
Þetta starf rækti óskar af stakri
alúð og samviskusemi og man
ég ekki eftir að deilur hafi af
hlotist meðan við störfuðum hér
saman. A þessari slundu ber aö
þakka það.
Ég tala fyrir munn allra i
Brunabót, sem starfaðhafa með
Óskari, þegar ég segi, að við
söknum góðs vinnufélaga og
vinar. óskar átti gott með að
eignast hug og vináttu allra, er
honum kynntust, og ávinna sér
traust með sinu góða og hlýja
viðmóti.
Astvinum hans öllum votta ég
mina dýpstu samúö.
Ingi R. Helgason