Þjóðviljinn - 24.09.1982, Page 7
Föstudagur 24. september 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7
Vitnisburðir um
fjöldamorðin
í Beirut:
Þótt allir sverji af sér
ábyrgðina á fjöldamorðunum
í Beirut í síðustu viku, halda
vitnisburðirnir áfram að
koma fram í fjölmiðlum. Ljóst
er að þar voru „kristnir“
hægrimenn að verki, og
böndin hafa borist mjög
sterklega að einkaher Saad
Haddads majórs frá
Suður-Líbanon, en hersveitir
hans hafa ávallt notið sérstaks
stuðnings ísraelsstjórnar.
Fréttaritari breska blaðsins
Times upplýsir að fjórir yfirmenn
í líbanska hernum hafi tjáð hon-
um að ísraelsmenn hafi flutt
nokkur hundruð hermenn úr
/
m.a. sagt við sjúkraliðana. Síðan
voru þau flutt til höfuðstöðva ís-
raelsmanna, sem voru í næsta
nágrenni, og létust ísraelsmenn-
. irnir vera hissa á að sjá þau - þótt
þau hefðu verið leidd eftir göt-
unni fram hjá höfuðstöðvunum
tveimur tímum áður. Hjúkrun-
arkonurnar sögðust álíta að
hermennirnir sem handtóku þær
hafi verið úr sveitum Haddads.
Líbanonsher tók yfir flóttamannabúðirnar í Sabra og Shatila í Beirut á sunnudaginn. Ábyggilegar heimildir
bera að ákvörðunin um að hleypa falangistum inn í búðirnar hafi verið tekin af Begin (innfellda myndin) og
ríkisstjórn hans á fimmtudag. ^
Tala myrtra óviss
ísraelski herinn fól líbanska
hernum umsjón með flóttamann-
abúðunum í Sabra og Shatila á
sunnudaginn. Aðkoman varólýs-
anleg, og höfðu falangistar eða
ísraelsmenn víða sett jarðýtur á
líkhaugana til þess að freista þess
að hylja verksummerkin. Ekki er
enn vitað hversu margir voru
teknir af lífi, en tölur þar um eru á
reiki allt frá 1500 upp í 3200. Það
var Yasser Arafat sem sagði að
um 3200 hefðu verið teknir af lífi í
fjöldamorðunum, en hann bætti
því jafnframt við, að endanleg
tala myndi aldrei fást, því ísrael-
skar jarðýtur hefðu grafið hluta
hinna föllnu undir húsarústum.
Akvörðun Israelsstj órnar
að falangistum var
hleypt inn í búðimar
sveitum Haddads til Beirut
seinnipart fimmtudagsins, rétt
áður en fjöldamorðin hófst. Einn
yfirmannanna sagðist hafa séð
hermenn í einkennisbúningi
Haddads flutta frá ísraelskum
herbúðum við flugvöllinn í Beirut
inn í úthverfin þar sem flótta-
mannabúðirnar eru. Fréttaritar-
inn segist einnig hafa fengið það
staðfest að tvær ísraelskar Herc-
ules-vélár með hermenn innan-
borðs hafi lent á flugvellinum í
Beirut á fimmtudag.
Þegar fréttaritari Newsweek,
James Pringle, reyndi að komast
inn í Sabra-búðirnar meðan á af-
tökunum stóð, var hann hindrað-
ur af ísraelskum hermönnum og
liðsmönnum Haddads. Hann
spurði þá einn af liðsmönnum
Haddads hvað væri á seyði. „Við
erum að slátra þeim“, var svarið.
Fréttaritarinn sagði að ísraels-
menn hefðu lokað búðunum þar
sem 80 þúsund Palestínumenn
sátu í gildrunni, og síðan hefðu
þeir opnað þær fyrir liðsmönnum
Haddads. Hann sagði að ísraels-
menn hefðu skotið ljósrakettum
yfir búðirnar um nóttina til þess
að blóðbaðið gæti haldið áfram.
Samþykkt í
ríkisstjórninni
Eytan Haber, virtur ísraelskur
stríðsfréttaritari, sem talinn er
hafa upplýsingar frá fyrstu hendi í
ísrael, skrifar í blaðið Yediot
Ahronot:
„Áætlunin um að hleypa fal-
angistunum inn í flóttamanna-
búðirnar í því skyni að leita uppi
hryðjuverkamenn var samþykkt
af ríkisstjórninni á fimmtudag.
Sama kvöldið gengu morðingj-
arnir til verks. Á föstudag vissu
bæði stjórnmálaleiðtogar og yfir-
menn hersins hvað var að gerast.
Það var hins vegar ekki fyrr en
daginn eftir sem fingri var lyft til
þess að stöðva falangistana."
Sjúkraliðar kallaðir
hryðjuverkamenn
Fréttaritari Dagens Nyheter
hefur það eftir 2 sænskum hjúkr-
unarkonum að þegar á fimmtu-
dagskvöld hafi 2000 skelfingu
lostnir Palestínumenn flúið inn á
Gazasjúkrahúsið í Beirut, þar
sem þær vinna. Þær voru síðan
handteknar á laugardagsmorgun-
inn og reknar út á götuna ásamt
með 20 öðrum erlendum læknum
og sjúkraliðum. Sjúklingar voru
einnig reknir úr rúmum sínum út
úr sjúkrahúsinu. Þetta var kl. 7
að morgni, og þau voru leidd í
gegnum götur þar sem urn það bil
500 manns sátu eins og dauða-
dæmdir á gangstéttunuin með
vopnaða falangistahermenn yfir
sér. Sjúkraliðarnir voru færðir til
yfirheyrslu í yfirgefinni miðstöð
Sameinuðu þjóðanna, byggingu
sem hafði orðið fyrir sprengjuár-
ás. Þar voru þau m.a. spurð
hvernig á því gæti staðið að þau
væru kristin og hjúkruðu samt
Palestínumönnum. „Þið eruð
skítugir hryðjuverkamenn og
verri en Baader Meinhoff", var
Stjórn Begins
riðar tii falls
Begin forsætisráðherra og
flokkur hans hafa fellt tillögu um
að opinberri þingnefnd verði fal-
ið að rannsaka málið, en aðeins
slík nefnd hefur aðgang að nauð-
synlegum gögnum eða umboð til
að krefjast vitnisburðar undir
eiði. Mun stjórn Begins nú
standa höllum fæti, ekki bara
gagnvart almenningsálitinu í
heiminum, lieldur einnig gagn-
vart eigin landsmönnum.
Þess má aö lokum geta að nor-
sku nóbel-nefndinni hefur að
undanförnu borist fjöldi áskor-
ana þess efnis að Menachem Beg-
in verði sviptur þeim friðarverð-
launum sem norska nóbel-nefnd-
in veitti honum 1978. Formaður
nefndarinnar hefur hins vegar
lýst verðlaunin óafturkræf.
ólg. tók saman
er MS-sjúkdómur?
Útbreiðslukort fyrir MS-sjúkdóm
A V'
■ = Yfir 30 tilfelli á 100 þúsund íbúa
| [ = Milli 5 og 29 tilfelli á 100 þús.
| = Minna en 5 tilfelli á 100 þúsund
Claire Nivola—Newsweek
Eins og útbreiðslukortið sýnir telst ísland til áhættusvæða fyrir MS-veiki.
Hvað
4-5
íslendingar
taka veikina
að meðal-
tali á ári
I Þjóðleikhúsinu er um
þessar mundir verið' að sýna
leikrit, sem fjallar um baráttu
konu við hinn dularfulla
sjúkdóm MS, sem kallaður
hefur verið heila- og mænusigg
á íslensku. Nýlega birtist grein
um sjúkdóm þennan í
bandaríska vikuritinu
Newsweek, og þar sem margt er
mönnum hulið um eðli þessa
alvarlega sjúkdóms fer hér á
eftir útdráttur úr grein þessari.
Sjúkdómurinn MS var fyrst skil-
greindur fyrir um hundrað árum af
frönskum taugasérfræðingi, en
hann komst að því að sjúkdómur-
inn hefur með efni að gera sem
heitir myelin, olíukennt efni sem
þekur taugaþræði eins og einang-
runarefni um rafmagnssnúru. Efni
þetta einangrar taugaþræðina og
gerir taugaboðunum kleift að ber-
ast óhindrað um taugar líkamans.
Sjúkdóms-
einkenni
Þegar MS-sjúkdómsins verður
vart er eitthvað sem eyðileggur my-
elin-húðina eða frumurnar sem
framleiða myelin, þannig að það
dettur af taugaþráðunum í flekkj-
um og í staðinn kemur örvetur sem
kallaður hefur verið mænusigg á ís-
lensku. Þetta truflar síðan tauga-
boðin, veldur „samslætti" eða stö-
ðvar þau algjörlega. Einkennin
geta orðið margvísleg: doði, sam-
hæfingartruflanir og hreyfitruflan-
ir, skert sjón eða að menn sjá tvö-
falt, taltruflanir, skjálfti eða trufl-
un á þvagláti svo einhver séu
nefnd. Það er mjög misjafnt hversu
þungt sjúkdómurinn leggst á ein-
staka sjúklinga - sumum hrakar
stöðugt, en oftar er um að ræða að
sjúkdómurinn blossi upp tíma-
bundið, en síðan séu batatímabil á
milli. Sumir sjúklingar fá aðeins fá
áföll af þessu tagi, en ná sér síðan
að fullu aftur eða fá aðeins minni
háttar einkenni. { einstaka tilfell-
um fá menn aðeins eitt kast, en ná
sér síðan að fullu á nýjan leik.
„Helmingur sjúklinga ná bata þótt
ekkert sé aðhafst‘% er haft eftir ein-
um sérfræðingnum.
Auk hinna líkamlegu einkenna
fylgir sjúkdómnum yfirleitt mikið
sálrænt og tilfinningalegt álag, sem
getur orðið fórnarlömbunum ekki
síður erfitt en hin líkamlegu ein-
kenni.
Sjúkdómsins verður oftar vart
meðal kvenna en karla og eru hlut-
föll tíðninnar 3:2. Arfbundinn
móttækileiki virðist hafa áhrif, sem
sést m.a. á því að sjúkdómurinn er
algengur hjá hvíta kynstofninum,
en sjaldgæfur á meðal blökku-
manna eða austurlandabúa. Þá
virðast nánir ættingjar þeirra er
tekið hafa sjúkdóminn vera í meiri
hættu.
Böndin berast
að veirum
Eftir víðtækar rannsóknir, sem
farið hafa fram á MS bendir nú
margt til að veirur sem annars
liggja í dvala í líkamanum hafi áhrif
á sjúkdóminn. Eitt atriði, sem vak-
ið hefur athygli er hin landfræði-
lega útbreiðsla, en áhættusvæðin
(yfir 30 tilfelli á 100 þús. íbúa) eru
norðanverð Evrópa, norðurhluti
Bandaríkjanna og suðurhluti Can-
ada, Nýja Sjáland og Ástralía. Það
hefur einnig sýnt sig, að fólk sem
flytur innan 15 ára aldurs frá áhætt-
usvæði yfir á svæði með lága tíðni
er þar með komið úr áhættuhópn-
um, en flytji það eftir 15 ára aldur
er áhættan áfram sú sama.
Hundafár
í Færeyjum
Bandarískur læknir gerði þá
uppgötvun á þessu ári, að MS hafði
Framhald & bls. 12