Þjóðviljinn - 24.09.1982, Blaðsíða 15
Föstudagur 24. september 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
RUV ©
7.15 Tónleikar. Þulur velur og kynnir.
7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Ólafs
Oddssonar frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Dagskrá. Morgunorð: Skúli
Möller talar.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.). Tónleikar.
9.05 Morguntónlcikar. Sverino Gazzel-
loni og I Musici hljóðfæraflokkurinn
leika Flautukonsert nr. 6 í G-dúr op. 10
eftir Antonio Vivaldi / Pierre Thibaud
og Enska kammersveitin leika Trorn-
petkonsert í Es-dúr eftir Johann Nep-
omuk Hummel; Marius Constant stj.
11.00 „Mér eru fornu minnin kær“ Einar
Kristjánsson frá Hermundarfelli sér um
þáttinn. Steinun S. Sigurðardóttir les
kafla úr ..Húsi skáldsins" eftir Halldór
Laxness.
11.30 Létt morgunlög. John Williams og
Julian Breant leika á gítara / Manuela
Wiesler og Reynir Sigurðsson leika á
flautu og vibraíón.
13.00 Á frívaktinni. Margrét Guðmunds-
dóttir kynnir óskalög sjómanna.
15.10 „Kæri herra Guð, þetta er Anna“
eftir Fynn Sverrir Páll Erlendsson les
þýðingu sína (10).
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.20 Litli barnatíminn. Dómhildur Sig-
urðardóttir stjórnar barnatíma á Akur-
eyri. Linda Mjöll Gunnarsdóttir les tvo
kafla úr bókinni ,.Veru“ eftir Ásrúnu
Matthíasdóttur og stjórnandinn les ljóð
eftir Nínu Björk Árnadóttur.
16.40 Hefurðu hcyrt þetta? Þáttur fyrir
börn og unglinga um tónlist og ýmislegt
fleira í umsjá Sigrúnar Björnsdóttur.
17.00 Síðdegistónleikar. Aaron Rosandog
Sinfóníuhljómsveit útvarpsins í Lux-
emborg leika Fiðlukonsert nr. 3 í g-moll
op. 99 eftir Jenö Hubay; Louis de Fro-
ment stj. / Benjamin Luxon syngur lög
eftir Hugo Wolf. David Willison leikur á
píanó. / Fílharmóníusveitin í Los Ange-
les leikur „Orustuna við Atla Húnakon-
ung", tónaljóð nr. 11 eftir Franz Lizst;
Zubin Mehta stj.
19.40 Á vettvangi
20.00 Lög unga fólksins. Hildur Eiríksdótt-
ir kynnir.
20.40 Sumarvaka. a) Einsöngur: Þuríður
Pálsdóttir syngur lög eftir Jórunni Viðar
og íslensk þjóðlög í útsetningu hennar;
Jórunn leikur á píanó. b) „Þá vildu
menn standa sig jafn vel og stóru Gvend-
arnir“ Þorsteinn Matthíasson flytur fyr
ri hluta frásöguþáttar, sem hann skráöi
eftir Kolbeini Guðmundssyni frá Lóns
eyri við Djúp, bónda á Auðnum a
Vatnsleysuströnd. c) Borgfirskar vísur
Sigurður Jónsson frá llaukagili fer með
stökur eftir sýslunga sína (Áður útv.
síöla vetrar 1969) d) Guðrún Ósvífurs
dóttir Sigríður Schiöth les þátt eftir
Guðmund Friðjónsson á Sandi. e) Kór-
söngur: Karlakór KFUM syngur Söng
stjóri: Jón Halldórsson. Einsöngvari:
Garðar Þorsteinsson. f) „Senn er þessi
stormur ekki stæður“ Baldur Pálmason
les úr kvæðabókum Jóns Magnússonar
og kynnir einnig atriði sumarvökunnar í
heild.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 „Litla Fiðrildi“ smásaga eftir Anders
Bodelsen Jón Óskar Sólncs les fyrri
hluta þýðingar sinnar og Ágústs Borg-
þórs Sverrissonar.
23.00 Svefnpokinn Unrsjón: Páll Þor
steinsson.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
RUV
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Skonrokk. Dægurlagaþáttur í um
sjón Þorgeirs Ástvaldssonar.
21.10 Á döllnni. Þáttur um listir og menn
ingarviðburði í umsjón Karls Sigtryggs
sonar.
21.10 Teiknað með tölvum. Bresk heiinild
armynd urn tölvunotkun við gerð upp
drátta og listaverka. Þýðandi og þulur
Bogi Arnar Finnbogason.
22.10 Þúsund litlir kossar. ísraelsk bíó
mynd frá árinu 1981. Leikstjóri Mira
Recanati. Aðalhlutverk: Dina Do
renne, Rivka Neunran og Gad Roll
Ung stúlka rnissir föður sinn. Hún fær
pata af því að hún sé ekki eina barn hans
og ákveður að grafast nánar fyrir um
það. Þýðandi Jón Gunnarsson.
23.45 Dagskrárlok.
Sjónvarp kl. 21.20
T ölvuteikning
Þótt margir séu haldnir ein-
hverskonar „tölvuhræðslu4*,
óttist þetta tækniundur sem
smám saman virðist vera að
taka við öllu því sem áður var
mannlegt, þá er því ekki að
neita að tölvur eru í raun ekk-
ert annað en hjálpartæki og á
margan hátt nytsamlegt tæki
sem gerir ýmislegt það sem
ógerlegt var að framkvæma
áður, og afkastar á örfáum
mínútum því sem áður tók
óratíma í vinnslu.
í kvöld verður sýnd klukku-
stundarlöng mynd í sjónvarpi
um þá ótrúlegu möguleika
sem svonefnd „tölvuteikning"
getur boðið upp á.
Allir kannast við video-
leiktækin sem hafa upp á lítið
annað að bjóða en byssuleiki
og kappakstur. En þessi tækni
hefur komið öðrum að góðum
notum. Listamönnum, vís-
indamönnum, kvikmynda-
gerðarmönnum, líffræðingum
og sjálfsagt enn fleiri í frain-
tíðinni.
Með tölvuteiknun er m.a.
hægt að teikna alla hugsan-
lega hluti í þrívídd og fá hrey-
fingu í myndina. Þannig er
hægt að teikna ýmsa líkams-
hluta, fætur, hendur, bol og
sýna allar innri breytingar við
hreyfingu.
Áð sama skapi er hægt að
leggja upp ferðir gervihnatta
og tunglflauga á sporbaugum í
himinhvolfinu og sýna innra
form allra hluta eins og teket-
ilsins hér á myndinni fyrir
ofan.
Sjónvarp
kl. 22.10
Þúsund
litlir
kossar
ísraelskar kvikmyndir eru
sjaldséð fyrirbrigði í íslensku
sjónvarpi. Undantekning
verður þó á í kvöld, en þá
verður sýnd ný ísraelsk bíó-
mynd sem ber heitið „Þúsund
litlir kossar**.
Myndin var gerð á síðasta
ári og leikstjóri er Mire Rec-
anati en með aðalhlutverk
fara Dina Doronne, Rivka
Neuman og Gad Roll. Sjálf-
sagt eru þetta óþekkt nöfn
fyrir flesta íslenska sjónvarps-
áhorfendur.
Rivka Neuman í hlutverki Ölmu í ísraelsku kvikmyndinni
„Þúsund litlir kossar**
Alma sem leikin er af Rivku
Neuman er ung stúlka. Hún
missir föður sinn, sem legið
hefur um skeið á sjúkrahúsi.
Hana hefur löngum grunað að
hún sé ekki eina barn hans.
Þegar hún kemur á sjúkrahús-
ið til að sækja föggur föður
síns, er ungur maður ný-
genginn frá afgreiðsluborð-
inu, en hann hafði verið í
sömu erindagjörðum og
Alma.
Alma veröur vör við að
eitthvað er á seyði og hún á-
kveður að kanna málið til
botns, hvort hún eigi ekki
systkini á lífi.
Sumarvakan
kl. 20.40
Um Guðrúnu
Ósvífurs-
dóttur
Sigríður Schiöth les á
sumarvökunni í kvöld þátt um
kvenskörunginn mikla úr
Laxdælu, Guðrúnu Osvífurs-
dóttur, sem skáldið á Sandi,
Guðmundur Friðjónsson
samdi á sínum tíma.
Þess má geta að næsta vor
fruntsýnir Leikfélag Reykja-
víkur nýtt íslenskt leikrit eftir
Þórunni Sigurðardóttur leik-
konu, sem nefnist „Guðrún"
og er byggt á Laxdælusögu.
Aðrir liðir á sumarvökunni
í kvöld eru m.a. kórsöngur
Karlakórs KFUM, einsöngur
Þuríðar Pálsdóttur við undir-
leik Jórunnar Viðar og borg-
firskar vísur sem Sigurður
Jónsson frá Haukagili fer með
eftir sveitunga sína.
Þannig var aðkoman í flóttamannabúðir Palestínumanna eftir að hægri öfgamenn höfðu farið þar um.
Um daginn var ég að hlusta
á fréttirnar í útvarpi um
fjöldamorðin á Palestínuar-
öbum, konum og börnum í
Líbanon, saklausu fólki sem
kristnir hægrimenn voru að
murka lífið úr. Fólki sem
hafði það eitt sér til saka unn-
ið að hafa búið í Palestínu
kynslóð fram af kynslóð frá
örófi alda.
Þessir svokölluðu „kristnu"
hægrimenn eru aðeins verk-
færi í höndum ísraelsmanna
og eru á mála hjá þeim. Sú
nafngift að kalla þessa glæpa-
menn kristna, er móðgun við
alla kristna menn og óþolandi
að þetta glæpahyski kenni sig
við kristna kenningu.
Móðgun að kalla þessa menn kristna
Spádómurinn
reyndist réttur
Atburðir þessir eru nú á
hvers manns vörum og þeir
eru fordæmdir af öllum, j afnt í
Þjóðviljanum sem öðrum
dagblöðum.
Um málefni Palestínuaraba
var skrifað fyrir mánuði síðan
í blað sem heitir Neisti og er
málgagn Fylkingarinnar, en
þetta blað kaupi ég af gömlum
og góðurn vana. Þessa grein
skrifaði maður undir nafninu
Jaki. í greininni lýsir hann at-
burðum og spáir til um þá
skelfilegu atburði sem nú hafa
gerst, heilum mánuði áður en
þeir gerðust.
Það er einmitt þetta atriði
sem mér finnst vanta í okkar
málgagn. Lifandi blaða
mennska sem yngri mönnum
er oft tamara að tileinka sér
en þeim eldri. Ég er ekki að
segja að það eigi að yngja upp
á Þjóðviljanum, en ég vil
benda ykkur á, hvort ekki sé
ráðlegt að ráða til starfa við
blaðið eitthvað af Neista-
mönnum, því þar er greini-
legur efniviður í góða blaða-
menn.
Ekki veitir af að hressa upp
á alþjóðahyggjuna.
f von um nýjan og baráttu-
glaðan Þjóðvilja.
Guðmundur Magnússon
rafvirki.