Þjóðviljinn - 05.10.1982, Qupperneq 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 5. október 1982
ALOÝÐUBANDALAGIO
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Aðalfundur _
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í
Hafnarfirði verður haldinn n.k.
' þriðjudagskvöld, 5. október.
Fundurinn verður haldinn að
Strandgötu 41 (Skálanum) og hefst
kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. Geir Gunnarsson og Svavar
Gestsson mæta á fundinn og
ræða stjórnmálaástandið.
4. Önnur mál.
Geir Svavar
Kaffi á könnunni. Félagar fjöl-
mennið.
Alþýðubandalagið í Kópavogi - Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Kópa-
vogi, verður haldinn miðvikudaginn 6.
október nk. í Þinghóli og hefst hann kl.
20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf: a) skýrsla
fráf. stjórnar, b) reikningar starfsársins,
c) kosning blaðnefndar „Kópavogs", d)
kosning fulltrúa í bæjarmálaráð, e) kosn-
ing blaðnefndar „Kópavogs“, f) kosning Björn Heiðrún
fulltrúa í kjördæmisráð, g) kosning full-
trúa á flokksráðsfund, h) tekin ákvörðun um félagsgjald næsta starfsár.
2. Bæjarmál! Bæjarfulltrúarnir Björn Ólafsson og Heiðrún Sverrisdóttir
segja frá því markverðasta á sviði bæjarmálanna á hinu nýbyrjaða kjör-
t ímabili.
3. Önnur mál.
Félagar, sem enn eiga ógreidd félagsgjöld, eru vinsamlegast beðnir um að
gera skil á þeim á skrifstofu félagsins en hún verður sérstaklega opin í því
skyni laugard. 2. okt. kl. 14 - 16 og sunnud. 3- okt. kl. 13 - 17. ,
Félagar, vetrarstarfið er þegar hafið. Það hófst með ágætum fundi 20.
sept. sl. um stjórnmálaviðhorfið og þá gengu inn nokkrir nýir félagar. -
Fjölmennum á aðalfundinn - Kaffiveitingar - Stjórnin.
AlþýðubandalagiÖ í Borgarnesi og
nærsveitum - Félagsfundur
Alþýðubandalagið í Borgarnesi og
nærsveitum heldur almennan fé-
lagsfund fimmtudaginn 7. október
n.k. í Hótel Borgarnesi.
Fundarefni:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Starfið framundan.
3. Stjórnmálaviðhorfið, fram-
sögumenn Svavar Gestsson og
Skúli Alexandersson. -
Stjórnin.
Skúli Svavar
Kjördæmisráðstefna á
Norðurlandi vestra
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á Norðurlandi vestra
verður haldinn 9.-10. október n.k. í Suðurgötu 10 Siglufirði og hefst kl.
14:00 laugardaginn 9. október. Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf. 2. Stjórn-
málaástandið. 3. Undirbúningur næstu kostninga. 4. Önnur mál. -Stjórn
kjördæmisráðsins
Alþýðubandalagið Akranesi - Bæjarmálaráð
Bæjarmálaráðsfundur verður n.k. mánudag 11. október kl. 20.30 í Rein.
Fundarefni: Greint frá störfum atvinnumálanefndar, félagsmálaráðs og
náttúruverndarnefndar. Umræður. - Stjórnin.
Landráðstefna ÆNAB 1982
Undirbúningsstarf er hafið. Starfshópur um stöðu ungs fólks í verkalýðs-
hreyfingunni heldur fund miðvikudag 6. okt kl. 18.00 að Grettisgötu 3.
Fjölmennið. ÆNAB
Kosið til
Kirkjuþings
Yfir standa nú kosningar til
Kirkjuþings samkv. lögum nr. 48.
frá 11. mai 1982 um kirkjuþing og
kirkjuráö islensku þjóökirkj-
unnar.
Kjörstjórn hefur nú sent út
kjörgögn til þeirra, sem kosn-
ingarétt eiga. Eru þaö yfir 1.100
leikmenn, sem kjósa 9 þingfull-
trúa í 8 kjördæmum og yfir 120
prestlæröir menn sem einnig
kjósa 9 þingfulltrúa i sömu 8 kjör-
dæmum. Þess utan kjósa svo
kennarar guöfræöideildar Há-
skólans einn fulltrúa og guöfræö-
ingar i föstum störfum á vegum
þjóökirkjunnar annan.
Atkvæöi eiga aö vera komin i
hendur kjörstjórnar fyrir 6. okt.
1982. — mhg
Rómanska
Framhald af 6. siöu.
Bólivíu, sem þrátt fyrir hið ömur-
lega efnahagsástand í landinu
virðist vel skipulagt, er víst með að
standa fast gegn skilmálum Al-
þjóða gjaldeyrissjóðsins og sama
gildir um fleiri lönd. Stjórnir Mex-
íkó og Brasilíu hafa báðar varpað
ábyrgðinni á hina slæmu greiðslu-
stöðu ríkja álfunnar að hluta til á
hin óréttlátu skipti, sem nú við-
gangast í heiminum á milli norðurs-
ins og suðursins.
Egypski hagfræðiprófessorinn
Samir Amin sagði nýverið í Stokk-
hólmi, að það væri stefna Aljóða-
bankans og Alþjóða gjaldeyris-
sjóðsins að veita þróunarlöndun-
um aðstoð til þess að halda nefinu
upp úr vatninu þannig að þær gætu
haldið áfram að brjóta ódýran
málm fyrir fjölþjóðafyrirtækin.
Vandamál þessara ríkja má hins
vegar rekja til þess, hversu einhliða
þau eru háð heimsmarkaðnum sem
hráefnisframleiðendur þar sem
misrétti ríkir bæði í verðlagningu
og verkaskiptingu, sagði Amin.
Spurningin, sem Alþjóða gjald-
eyrissjóðurinn og hinir alþjóðlegu
lánardrottnar og fjölþjóðahringir
standa frammi fyrir í Rómönsku
Ameríku er í rauninni sú, hversu
lengi sé hægt að blóðmjólka kúna
án þess að hið efnahagslega tangar-
hald, sem þeir hafa á álfunni gangi
þeim úr greipum.
(ólg. tók saman).
—
HVAÐ
MEÐ
ÞIG
Hvenær "/J
byrjaðir þú
llX™ •—
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Efnahagskerfið á íslandi
Er umfjöllunarefni annars fundarins í fundaröð
ABR um efnahagsmál. Fundujinn er haldinn fimm-
tudaginn 7. október í Sóknarsalnum að Freyjugötu
27. Hefst hann kl. 20:30.
Frummælandi á fundinum er:
Þröstur Ólafsson
Stjórn ABR
Félagar og stuðningsmenn fjölmennið
Þröstur
ALÞÝDUBANDALAGIÐ
Skúli
Engilbert
Kristjón
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Vestur-
landi - Ráðstefna um dreifbýlismál
Ráðstefna um dreifbýlismál verður haldin laugardag og sunnudag, 9.-10.
október, í Samkomuhúsinu Grundarfirði.
Dagskrá ráðstefnunnar verður þessi:
Laugardagur kl. 14.00-19:
Samgöngumál: Málshefjandi Skúli Alexandersson.
Orkumál: Málshefjandi Kristjón Sigurðsson.
Laugardag kl. 21.00 -kvöldvaka
Sunnudagur kl. 13.00-18.00
Skólamál: Málshefjandi Epgilbert Guðmundsson.
Atvinnumál: Málshefjandi Halldór Brynjúlfsson.
Fólki skal bent á að taka með sér svefnpoka.
Stjórn Kjördæmisráðs hvetur allt Alþýðubandalagsfólk til að fjölmenna
til ráðstefnunnar. Allar frekari upplýsingar í síma 8811 - Stjórn kjördæm-
isráðs
Styrkir til náms í
Sambandslýðveldinu Þýskalandi
Þýska sendiráðið í Reykjavík hefur tilkynnt íslenskum stjórn-
völdum að boðnir eru fram eftirtaldir styrkir handa íslending-
um til náms og rannsóknarstarfa í Sambandslýðveldinu
Þýskalandi á námsárinu 1983-84:
1. Fjórir styrkir til háskólanáms. Umsækjendur skulu hafa
lokið a.m.k. tveggja ára háskólanámi.
2. Nokkrir styrkir til að sækja þýskunámskeið sumarið 1983.
Umsækjendur skulu hafa lokið eins árs háskólanámi og
hafa góða undirstöðukunnáttu í þýskri tungu.
3. Nokkrir styrkir til vísindamanna til námsdvalar og rann-
sóknastarfa um allt að fjögurra mánaða skeið.
Umsóknir um styrki þessa skulu sendar menntamálaráðu-
neytinu, Hverfisgötu 6,101 Reykjavík, fyrir 30. október n.k.
Sérstök umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást í
ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
30. september 1982.
Atvinna
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir að ráða
ritara. Starfið erfólgið í vélritun og almennum
skrifstofustörfum. Umsóknir ásamt upplýs-
ingum um menntun, aldur og fyrri störf send-
ist starfsmannastjóra.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 118,
105 Reykjavík
Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð
og hlýju viö andlát og útför eiginmanns míris, föður okkar,
tengdaföður, sonar og afa
Harðar Hafliðasonar
Grundargerði 22
og heiðruðu minningu hans.
Ingibjörg Árnadóttir
Auður Harðardóttir Þorvaldur Árnason
Guðrún Harðardóttir Hafliði Bárður Hafliðason
Björk Harðardóttir Kristjana Guðfinnsdóttir
og barnabörn
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
María Bára Frímannsdóttir,
til heimilis að Holtsgötu 19, Njarðvík,
lést sunnudaginn 3. okt. 1982.
Alfred Georg Alfredsson
Hervör Lúðvíksdóttir Óskar Guðjónsson
Erna Lína Alfredsdóttir Bjarni Kristjánsson
Kristín Bára Alfredsdóttir Þórður Ólafsson
Alfred G. Alfredsson jr.
og barnabörn
Móðursystir okkar
Sigrún Friðriksdóttir
er andaðist 30. september, verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju fimmtudaginn 7. október kl. 15.
Sigurlaug Þ. Ottesen
og systur.