Þjóðviljinn - 30.11.1982, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 30. nóvember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Jólakort UNICEF
Þessa daga eru jólakort Barna-
hjálparSameinuðuþjóðanna (UN-
ISEF) að koma á markaðinn. Eins
og fyrr hafa listamenn frá mörgum
löndum gefið verk sín til Barna-
hjálparinnar.
Ágóðanum af sölu kortanna er
varið til að skapa mannsæmandi
uppvaxtarskilyrði fyrir börn í þró-
unarlöndunum, og til hjálpar
stríðshrjáðum börnum, eða þeim
sem orðið hafa illa úti vegna nátt-
úruhamfara.
Kvennadeild Rauða krossins:
20 þús. tll bókakaupa
Kvennadeild Reykjavíkur-
deildar Rauða Kross íslands hefur
ákveðið að leggja fram 20 þús. kr.
sem varið verður til að kaupa
bækur í bókasafn Sjúkrahótels
RKÍ.
Peningar þessir eru ágóði af
köku- og föndurbasar, sem
Kvennadeildin efndi til 7. nóvem-
ber sl., ásamt hagnaði af jólakorta-
sölu.
Gjaiir til Giktarfélagsins
Á sl. ári afhentu 5 ónefndar kon- af sölu tómstundavinnu þeirra.
ur Giktarfélagi íslands peninga- Fénu er varið til Giktarlækninga-
gjöf. Nú hafa þær sömu afhent fé- stöðvar Giktarfélags Islands.
laginu kr. 80 þúsund sem er ágóði
Sæmundur tekur við Fjölmiðlabikarnum. Það er framkvæmdastjóri Ferða-
málaráðs Heimir Hannesson sem afhendir verðlaunin. Ljósm.: - eik.
Ferðamálaráð:
Ijölnúðlabikar úthhitað
til Sæmundar
Guðvinssonar
Sæmundur Guðvinsson blaða-
fulltrúi Flugleiða og fyrrum frétta-
stjóri DV hlaut verðlaun þau sem
Ferðamálaráð íslands veitti fyrii
það sem ráðið kallar umfangsmikla
og greinargóða umfjöllun um
ferðamál. Athöfn þessari viður-
kenningu samfara fór fram síðast-
liðinn fimmtudag í Bláa sal Hótel
Sögu. Fékk Sæmundur þá bikar
sem er farandbikar og mun fram-
vegis hlotnast þeim blaðamanni
sem gerir ferðamálaumfjöllun góð
skil. Bikarinn ber heitið Fjölmiðia-
bikar Ferðamálaráðs. Auk bikar-
ins fékk Sæmundur í verðlaun
vandað pennasett til eignar.
Heimir Hannesson fram-
kvæmdastjóri Ferðamálaráðs af-
henti Sæmundi verðlaunin.
- hól.
I ráði hjá Námsflokkunum:
Sænskukennsla fyrir böm
í frétt frá Foreldrafélagi norsku-
og sænskunema segir að í ráði sé að
koma á fót námskeiði í sænsku fyrir
böm á aldrinum 7-10 ára sem dval-
ist hafa í Svíþjóð. Er áhugasömum
foreldrum bent á að hafa samband
við Námsflokka Reykjavíkur þar
sem nánari upplýsingar fást. Þegar
er fyrir hendi kennsla fyrir þessa
aldurshópa í norsku en nú er sumsé
í ráði að bjóð upp á svipaða
kennslu fyrir börn í sænsku. - v.
Jóhann A. Gíslason læknir:
Varði doktorsritgerð
um háan blóðþrýstíng
Þann 19. nóv. sl. varði Jóhann
Ágúst Sigurðsson doktorsritgerð
við Háskólann í Gautaborg um of
háan blóðþrýsting í konum.
Tilgangur verkefnis dr. Jóhanns
var að athuga hve algengur hann
væri og helstu orsakir hans hjá
miðaldra konum. Einnig var fylgst
með einkennum og aukaverkunum
í sambandi við blóðþrýstinginn eða
við langtíma lyfjameðferð og at-
huguð tíðni sjúkdóma og dauðs-
falla hjá konum, sem höfðu haft
háan blóðþrýsting í tugi ára.
Rannsóknir byrjaði 1968-69 og
voru 1500 konur rannsakaðar og
fylgst með heilsu þeirra í 12 ár 18%
þeirra voru talin hafa of háan
blóðþrýsting, en aðeins var hægt að
finna skýringu hjá 4.6% þeirra.
í ljós kom að konur sem tekið
hafa blóðþrýstingslyf í fjölda ára fá
vægar fylgiverkanir í efnasamsetn-
ingu líkamans, sem minnka má
með því að gefa minni lyfja-
skammta. Einnig kom í ljós, að
konur með of háan blóðþrýsting
höfðu 6 sinnum meiri líkur til að fá
sykursýki heldur en konur sem
Dr. Jóhann
Á. Sigurðsson
Fundur í samstarfsnefnd Félags
stúdenta í heimspekideild haldinn
19. nóvember 1982mótmælirharð-
lega þeim niðurskurði á fjár-
veitingum til Háskóla íslands sem
gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi
fyrir árið 1983. Fundurinn lýsir
furðu sinni á þeim vinnubrögðum
sem við eru höfð við samningu
ekki höfðu slík einkenni. Sennileg-
asta skýringin er sú að þessar konur
eru miklu feitari en hinar.
Jóhann dregur þær ályktanir af
niðurstöðum sínum að of hár
blóðþrýstingur sé algengt fyrirbæri
í hinum vestræna heimi og að upp>-
götva þetta og meðhöndla sé
verkefni fyrir heimilislækna, þar eð
yfirleitt borgar sig ekki að gera
kostnaðarsamar rannsóknir á
þessu fólki heldur meðhöndla
blóðþrýstinginn á sem bestan hátt.
Þessum árangri verði best náð með
því að bjóða upp á almenna og
samfellda læknisþjónustu með
heilbrigðiseftirliti, þar sem fólk
eigi auðvelt með að ná til síns
læknis.
Jóhann Á. Sigurðsson er fæddur
á Siglufirði 1948. Kona hans er
Edda Benediktsdóttir, efna-
fræðingur, og eiga þau tvö börn.
Jóhann lauk stúdentaprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1968
og útskrifaðist úr læknadeild Há-
skóla íslands árið 1975. Hann
stundaði framhaldsnám í heimilis-
lækningum í Svíþjóð og lauk því
námi 1980.
Hann starfar nú sem heilsu-
gæslulæknir í Hafnarfirði og er
jafnframt héraðslæknir Reykja-
neshéraðs.
frumvarpsins, þ.e. að reikna ó-
raunhæf fjárlög fram með óraun-
hæfri verðbólguspá án þess að taka
tillit til sívaxandi fjölda stúdenta og
þarfa skólans.
Fundurinn skorar á ríkisstjórn-
ina að bæta úr þessu nú þegar, svo
að Háskólinn geti starfað áfram á
eðlilegan hátt.
Stúdentar 1 heimspekideild HÍ:
Mótmada niðurskurði
RÁÐSTEFNA UM
UmhverjTismál, skipulag
og náttúruvernd
verður haldin í Norræna húsinu 3. og 4. desember á
vegum Alþýðubandalagsins.
Ráðstefnustjórar: Páll Bergþórsson, Birna Bjarna-
dóttir.
DAGSKRA:
Föstudagur kl. 17:
ÍSLENSKAR AUDLINDIR - NYTING OG
VERNDUN
Hjörleifur Guttormsson, iönaöarrá&herra
STAÐARVAL IÐNREKSTRAR - VÆGI UM-
HVERFISSJÓNARMIÐA:
Þorsteinn Vilhjálmsson, formaður Sta&arvals-
nefndar
MAT Á ÁHRIFUM FRAMKVÆMDA:
Gestur Ólafsson, forstöðuma&ur Skipulags-
stofu höfuöborgarsvæðisins
STJÓRNUN UMHVERFISMÁLA:
Ingimar Sigur&sson, deildarstjóri
- Matarhlé -
Kl. 20-22: FYRIRSPURNIR
OG ALMENNAR UMRÆÐUR
Kl. 13-14 laugardag:
Laugardagur kl. 9:
HÁTTÚRUVERNDARRÁÐ - ALMENN FÉ-
LAGASAMTÖK:
Jón Gauti Jónsson, framkvæmdastjóri Náttúru-
verndarrá&s
FRIÐUN LANDS:
Sigrún Helgadóttir, líffræðingur
FERÐAMENNSKA - NÁTTÚRUVERND:
Tryggvi Jakobsson, landfræ&ingur
VEIÐIMENNSKA - ÚTIVIST:
Finnur Torfi Hjörleifsson, kennari
UMHVERFI í ÞÉTTBÝLI:
Auður Sveinsdóttir, landslagsarkitekt
STJÓRN SKIPULAGSMÁLA:
Zophanías Páisson, skipulagsstjóri
AÐALSKIPULAG í FRAMKVÆMD:
Albína Thordarson, arkitekt
- Matarhlé
PALLBORÐ meö þátttöku forsvarsmanna á sviði náttúruverndar og framkvæmda.
ALMENNAR UMRÆÐUR kl. 14.30. Ráðstefnuslit kl. 16.00.
Ráðstefnan er opin öllu áhugafólki.