Þjóðviljinn - 14.12.1982, Qupperneq 2
2 SIOA — ÞjbÐVÍLJlNN fcriðjudagur Í4. descmbcr 1982
frelsisins
Viö borgarhliðið og við arin-
eldinn hef ég séð ykkur falla fram
og tilbiðja ykkar eigið frelsi. líkt
og þræla, sem beygja sig fyrir
harðstjóranum og lofa böðul
sinn.
Já í helgum lundi musterisins
iOg í skugga virkismúranna hef ég
séð hina frjálsustu ykkar á meðal
bera frelsið utan á sér eins ok og
handjárn.
Og sál mín fylltist hryggð, því
að þið getið aðeins verið frjáls,
þegar jafnvel löngunin til að leita
frelsisins verður ykkur klafi um
háls og þegar þið hættið að tala
um frelsið sem takmark og
leiðarlok.
(Spámaðurinn)
Gætum
tungunnar
Heyrst hefur: Vatnið er geymt í
stórum kerjurn.
Rétt væri: Vatnið er geymt í stór-
um kcrum.
Vökumenn í
vandrœðum:
Frjálsa út-
varpið var í
miklu ólagi ,
Þcssa sögu um brölt Vöku-
manna í Háskólanum lásum við í
nýjasta Stúdcntablaðinu.
„Ekki tókst Vökumönnum að
slá vopnin úr höndum and-
stæðinga sinna á vinstri kantinum
fyrir 1. des. kosningarnar. Þeir
höfðu ætlað sér að „rjúfa ríkis-
einokun'" á útvarpsrekstri og
„grípa til eigin ráða"'. En hlut-
skipti frumherjans er aldrei dans
á rósum. frjáls og óháður. Vöku-
menn höfðu tryggt sér útvarps-
semdi er flytja átti frjálshyggju-
boðskapinn á öldum Ijósvak-
ans en þeir höfðu keypt köttinn í
sekknum. Þegar útsending hófst
kom í ljós að ríkiseinokun hafði
verið rofin á óvæntan hátt: Vöku-
menn höfðu tekið flugumferðar-
stjórn í sínar hendur. Og til að
afvegaleiða ekki Agnar Kofoed
og Omar á frúnni var „útvarpstil-
raunum" hætt hið snarasta. - En
Vökumenn voru ekki af baki
doítnir. Fengin voru að láni ný
tæki sem duga áttu. En hvað
gerðist? Enn sveik tæknin stór-
huga Vökumenn. Hvorki loftum-
ferð íslenskra og amerískra flug-
véla né sigling rússneskra kafbáta.
var nú rofin. f lin nýju tæki voru í
ólagi, - útvarp Vaka úr sögunni.
Þetta var ljóti dagurinn. Ekki
tókst að rjúfa einokun vinstri
manna, ríkiseinokun á útvarps-
rekstri, aðeins flugumferð yfir
Reykjavíkurborg".
„Ekki borða“, eru skilaboð frá útivinnandi húsmóður til barnanna og eiginmannsins. Mynd -gel.
„ Geymdu nú vel þetta bréf... ”
„Við erum mjög ánægðar með
bókina og frágang allan. Það hefur
verið lögð mikil vinna í þetta verk
og meira að segja melstari Þórberg-
ur hefur verið mjög nálægur okkur
við þessa vinnu“, sögðu þær Helga
Jóna Ásbjarnardóttir (Lilla Hegga)
og Birna Torfadóttir (Bidda systir)
á fréttamannafundi í gær þar sem
kynnt var nýútkomin bók scm inni-
heldur bréf Þórbergs Þórðarsonar
til þeirra stallsystra.
Hjörtur Pálsson, dagskrárstjóri
hefur tengt bréfin saman með upp-
lýsingum víðs vegar að og skýring-
um á ýmsu, sem við sögu kemur. í
þessu sambandi hefur hann ekki
síst leitað fanga hjá Helgu Jónu og
Birnu, svo og hjá Margréti Jóns-
dóttur, ekkju Þórbergs, sem hefur
verið mjög áhugasöm um útgáfu
bréfanna.
Reyndar gerði meistari Þórberg-
ur einnig ráð fyrir því að þessi
sendibréf hans yrðu síðar meir gef-
in út, því á einum stað í bréfi stíl-
uðu til „Lillu Heggu" segir Þór-
bergur á þessa leið: „Geymdu nú
vel þetta bréf frá Sobbeggi afa. Þú
getur selt það á meira en hundrað
krónur, þegar hann er dáinn, og
keypt þér fyrir það fín ullabjökk í
búðinni hans Silla og hans Valda".
Dýrmæt þessi bréf
„Meðan við ólumst upp með
Þórbergi þá vissum við að allt það
sem hann skrifaði var einhvers
virði, og því geymdum við þessi
bréf vel, enda lagði Mammagagga
líka mikla áherslu á það, því þau
væru dýrmæt þessi bréf“, sögðu
þær Helga Jóna og Birna í gær.
Þær sögðu að það hefði alltaf
verið mikill spenningur á heimilum
þeirra þegar bréfin hans Þórbergs
komu.
„Öll fjölskyldan beið í ofvæni í
kringum jól og áramót því þá var
alltaf von á bréfi. Þegar það kom
var mikil hátíðarstund og lesið
upphátt fyrir alla fjölskylduna“,
sagði „Bidda systir".
í bókinni „Bréfin hans Þór-
bergs" eru birt á fjórða tug bréfa
frá Þórbergi og Margréti til stall-
systranna. Þau fyrstu eru frá 1952
þegar stúlkurnar voru barnungar
og það síðasta skrifaði Þórbergur
til Birnu árið 1971.
Hælir þeim og
hirtir á víxl
„Bréfin í þessari bók eru í ýms-
um tóntegundum", segir Hjörtur
Pálsson m.a. í bókinni, „því að sál-
arsímaþræðirnir titra svo misjafn-
lega, og stundum var Sobbeggi afi
glaður og stundum dapur, þegar
hann var að tala við vinkonur sínar
á pappírnum. Hann hælir þeim og
hirtir á víxl, af því að þær eru á
dálítið óvissum aldri, og lífið bíður.
Hann þykist hafa lært það á langri
ævi, að holdið sé veikt og innra
hylkið ennþá viðkvæmara og ver-
öldin viðsjálsgripur. Þess vegna
setur hann sig oft í kennarastell-
ingar og talar til þeirra með spá-
mannlegri raust. Stundum er hann
alveg „a bupp“ af vonbrigðum og
kvíða og ætlar að fara að gráta, en
þess á milli ískrar í honum hlátur-
inn og sýður í honum kátínan, svo
að sprellarinn og spaugarinn getur
ekki með nokkru móti setið á strák
sínum".
„Bréfin hans Þórbergs" er prýdd
fjölda mynda, og hafa fæstar þeirra
komið fyrir almenningssjónir áður.
Vaka gefur bókina út. - lg.
Dæmisagan:
„Þau tog-
uöu öll”
Hið stórgóða bæjarblað Al-
þýðubandalagsmanna á Selfossi
hefur tekið upp á því að birta
frægar dæmisögur eftir gagn-
merka höfunda, almenningi til
umhugsunar og nánari útlegginga
eftir því sem hver hefur þroska og
vit til.
Og þannig hljóðar fyrsta dæmi-
saga þeirra Selfyssinga.
Eitt sinn birtist í einhverju
blaði yfirlýsing frá nafngreindum
heiðursmönnum sem ekki voru
sáttir við framkomnar tillögur um
ákveðið efni. En voru þeir þá allir
saupsáttir innbyrðis og allsgáðir?
„Svanurinn, geddan og krabb-
inn bundust einu sinni samtökum
um að draga vagnhlass. Þau tog-
uðu öll eins og þau áttu lífið að
leysa, en samt hreyfðist vagninn
ekki vitund. Hvernig vék því við?
Vagnhlassið var mjög létt.
Það var vegna þess að svanur-
inn reyndi að fljúga upp í loftið,
geddan reyndi að skreiðast í átt-
ina að ánni og krabbinn gekk
afturábak".
Fákur
byggirog
skipuleggur
Hestamannafélagið Fákur hef-
ur heldur betur hug á að taka til
höndunum á athafnasvæði sínu,-
Víðivöllum, næsta vor. Ætlunin
er að reisa myndarlegt hús við
litlu kaffístofuna, scm þar er nú.
í þessari fyrirhuguðu byggingu
verður stór kaffistofa, skrifstofur
vegna móthalds, húsnæði fyrir
veðbanka og snyrtingar. Fimm
manna nefnd vinnur að undir-
búningi og er formaður hennar
Valdimar Jónsson, formaður
Fáks.
Þá hefur stjórn Fáks einnig
skipað fimm manna nefnd til að
gera heildarskipulag af Fáks-
svæðinu. Skal hún m.a. gera til-
lögur um hvar skuli vera reiðgöt-
ur keppnis- og æfingavelli bygg-
ingar o.fl. Formaður nefndar-
innar er Kristján Guðmundsson,
en aðrir nefndarmenn eru:
Reynir Vilhjálmsson, Ólafur Örn
Pétursson, Arni Vigfússon og
Einar E. Sæmundsson. _ mj,g
Sendibréf meistara Þórbergs til „Lillu Heggu”
og „Biddu systur” gefin út á prenti
Lilla Hegga til hægri og Bidda systir til vinstri með Bréfin hans Þórbergs í Ikjöltum sínum.
- Mynd -
eik
! *»