Þjóðviljinn - 14.12.1982, Page 4

Þjóðviljinn - 14.12.1982, Page 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 14. desember 1982 UOOVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis Utgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjórl: Eiöur Bergmann. Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson. Umsjónarmaöur Sunnudagsblaös: Guðjón Friðriksson. Augiýsingastjóri: Sigríöur H. Sigurbjörnsdóttir | Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Biaðamenn: Álfheiður Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Glslason, Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Þórunn Sigurðardóttir, Valþór Hlöðversson. íþróttafréttaritari: Víðir Sigurðsson. Útlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir, Guðjón Sveinbjörnsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Atli Arason Handrita-og prófarkalestur: Elías Mar, Gísli Sigurðsson, Guðmundur Andri Thorsson. Áugíýsingar': Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Simavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Sæunn Óladóttir Kristín Pétursdóttir. Húsmóöir: Bergljót Guðjónsdóttir. Bilstjóri: Sigrún Bárðardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigmundsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Otkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síöumúla 6 Reykjavik, sími 8 13 33 Umbrot og setning: Prent. Frentun: Blaðaprent h.f. Stöndum á réttinum! • P»eir eru væntanlega ekki margir, sem trúa því, að Hjðr- leifur Guttormsson, iðnaðarráðherra hafi ekki viljað ná samningum við Alusuisse, væru viðunandi kostir í boði, og dylgjur í þá átt tæpast svaraverðar. • En til samninga þarf sem kunnugt er tvo til. Og hvað veldur því þá, að fulltrúar auðhringsins hafa til þessa neitað öllum lagfæringum okkur í hag á gildandi samningum um álverið? • í fyrsta lagi hafa þeir í höndum samning, sem gildir til ársins 2014 um nær óbreytt orkuverð. Frá þessum samningi, svo hagstæður þeim sem hann er, vilja þeir ekki hvika, nema fá í staðinn a.m.k. jafn mikið og þeir kynnu að láta af hendi. Þetta viðhorf hafa fulltrúar Alusuisse lagt ríka áherslu á í öllum viðræðum. • I öðru lagi er ljóst, að ráðamenn Alusuisse hafa viljað bíða átekta í þeirri von, að upp kæmi sundrung um málið hér innanlands, og í stól iðnaðarráðherra settist e.t.v. annar maður, talhlýðnari og lítilþægari en Hjörleifur Guttorms- son. Ekki fer milli mála, að fulltrúár Alusuisse hafa jafnan þóst geta treyst á góða vini hér irinanlands, og atburðir síðustu daga sanna með átakanlegum hætti að ekki var tih einskis beðið af þeirra hálfu. • Menn tala nú sumir hverjir, eins og auðvelt hefði verið að ná samningum við Alusuisse um meiriháttar hækkun rafork- uverðs, ef eingöngu hefði verið farið að auðhringnum með blíðmælum ogkjassi. Þvílíkeinfeldni, þvílíkur barnaskapur! • Guðmundur G. Þórarinsson segir í sjónvarpsþætti, að með tilboði sínu um meiriháttar tilhliðranir fyrir Alusuisse gegn örlítilli hækkun orkuverðs, þá hafi hann viljað „negla“ auðhringinn. Sér er nú hver neglingin. Og menn ættu að taka vel eftir því, að svo lítilþæg og smátæk sem tveggja aura tillaga Guðmundar G. Pórarinssonar var, þá fór því fjarri, að hann vildi setja hana fram sem úrslitakosti til Alusuisse, heldur átti að bjóða þetta, aðeins til þess að koma af stað viðræðum!! - Og svo þá væntanlega að mætast á miðri leið? • Alusuisse hefur sóst eftir stækkun álversins. Alusuisse hefur lagt mikið kapp á, að fá að taka inn í reksturinn hér nýjan aðila með a.m.k. 50% eignarhlut í verksmiðjunni. Pessar kröfur vildi Guðmundur láta okkur samþykkja fyrir- fram gegn aðeins örlítilli hækkun á orkuverðinu. Hvernig halda menn, að samningsstaðan hefði þá reynst síðar, þegar takast átti á um frekari hækkun orkuverðs? • Sú var tíð, að við börðumst hér fyrir 50 mílna landhelgi við erlent vald. Hvernig hefði mönnum litist á, ef þá hefðu risið upp spámenn sem sögðu: Við skulum hætta þessu þófi. Við skulum láta duga að semja um 15 mílna landhelgi í stað 50, og semja svo við Breta og Þjóðverja um veiðiheimildir innan 15 mílnanna? Eða áttum við máske, að láta okkur duga 60 mílna auðlindalögsögu, þegar sýnt var orðið, að 200 mílna reglan myndi sigra á alþjóðavettvangi? • Orkuverð til álvera í Vestur-Evrópu og Bandaríkjunum er yfirleitt um og yfir 30 aurar á kílówattstund. Guðmundur G. Þórarinsson vildi að við færum fram á 12 aura í stað 10, og gengjum að flestum kröfum Alusuisse um leið. Svo átti að halda samningum áfram síðar! • Hvert barn ætti að geta sagt sér til hvers vinnubrögð af þessu tagi hlytu að leiða. En þingflokkur Framsóknarflokks- ins lætur sig hafa það, að Iýsa yfir eindregnum stuðningi við gerðir Guðmundar! • Hjörleifur Guttormsson, iðnaðarráðherra hefur reynt flest sem í mannlegu valdi stendur til að ná frambærilegum samningum við Alusuisse, - en hann hefur ekki viljað selja auðhringnum sjálfdæmi. • Hjörleifur hefur hvað eftir annað boðið upp á, að hækkun raforkuverðsins ætti sér stað í áföngum og hann hefur boðið upp á gerðardóm um hin stóru deilumál vegna vangoldinna skatta af 600 miljón króna duldum hagnaði Alusuisse á liðnum árum af rekstri sínum hér. - • En þegar ekkert af þessu dugir, hvað á þá að gera? Þar er aðeins tvennt til: Annað að gefast upp fyrir auðhringnum, hitt að beita þeim rétti sem við þó eigum sem fullvalda ríki. k. klippt Svíður undan orðum Það er í senn kostur og löstur á dagblgðum að það sem í þeim stendur á sér yfirleitt ekki lengra líf en sem nemur sólarhring eða svo. Blöðin eru skrifuð í erli hvunndagsins með þeirri fljóta- skrift sem einkennir færibanda- vinnubrögð blaðamanna. Og fyrr en varir eru skrifin gleymd, nema stemmningar sem klifað er á dag eftir dag lifa máske einhvurn tíma í daufu endurskini minninga. Þó er nú svo, að sumum tekst að láta þannig til sín taka á dag- blaðspappírnum að lengi lifir. Og það er að sannast þessa dagana að sviðið getur undan orðum dálkahöfunda í mörg ár og ára- tugi. Og þarf ekki „stóru bomb- una“ til. Og hver veit nema hin sársaukafullu orð hafi verið sett á blað til að særa fram viðbrögð frá hjarta þess sem skrifað er um? Af illri nauðsyn“ Matthís Morgunblaðsritstjóri Johannessen skrifar á sinn hátt hlýlega grein í tilefni af útkomu bókar með Austrapistlum Magn- úsar Kjartanssonar, í laugardags- hefti Moggans. Þennan dag er Morgunblaðið 72 síður og er ekk- ert tiltökumál í sjálfu sér. En séð í ljósi þessara orða Matthíasar: „Stundum hef ég ekki verið sam- mála neinni skoðun, sem birzt hefur í Morgunblaðinu - nema forystugreininni(!)“- þá sannast hið fornkveðna: sitthvað er magn og gæði. Þetta sagði líka kaupmaðurinn sem seldi rúsínur í stykkjatali. Annars gerir Matthías í þess- um skrifum grein fyrir afstöðu sinni til hernámsins og Nató- aðildar. Þar kveður við eldri tón heldur en í herpostulum síðíhalds- ins sem vilja herinn sem stærstan og herflugvelli í hverju lands- horni. Hann segist nefnilega vilja „tryggja öryggi landsins" með Natóaðild og með „dvöl varnar- liðs í landinu“ 7 af illri nauðsyn. ✓ I sporum Adams og Evu „Fátt skil ég betur en andstöðu við herstöðvar í landi fámennrar og vopnlausrar þjóðar. Og helst vildi ég geta trúað því, að við lifðum í höggormslausum heimi. En því miður stöndum við enn í sporum Adams og Evu. Á voveif- legum tímum er það öðru fremur nauðsynlegt að láta raunhyggju ráða ferðinni". Svona kveður Matthías um helgina. Og það er ýmislegt sem gefur til kynna að einhverjar efasemdir séu að naga skáldið. „Drengur upplifði ég hernumið Island í landi sem hafði lýst yfir „ævarandi hlutleysi.“ Það var ekki uppörvandi." Hœtta að svara í austur Matthías segist því miður ekki hafa á því trú að róttæklingar láti í bráð „af skotgrafahernaði og fari að skiptast á skoðunum við okkur landvarnarmenn um öryggismál fslands án brigzlyrða.“ „En von- andi kemur þó að því fyrr en síðar. Þá munu áhrif þeirra aukast. Það er kominn tími til að menn hætti að svara í austur.“ Það er hægt að taka hjartanlega undir með Matthíasi um að það er kominn tími til að áhrif róttæk- linga aukist í íslensku þjóðfélagi. Svarað í vestur Það er eins með kjarnorku- vopnin og setuliðið á Miðnes- heiði, það er hvorttveggja sam- kvæmt Matthíasi bannsettum rússanum að kenna: „Ég á ekki heitari ósk en þá, að þróun heimsmála verði með þeim hætti, að við þurfum ekki að hafa varnarlið í landinu. En hver á ekki þá ósk? Það er undir Sovét- ríkjunum komið hvenær hún ræt- ist, en hvorki okkur né Banda- ríkjamönnum eða öðrum NÁTO-þjóðum.“ Meira frá hjartanu Þessi nauðhyggja höfundarins, að allt illt sé ættað að austan, skyggir óneitanlega á þær leiðir sem liggja að hjartanu. Her- stöðvar, Natoaðild og allt það húmbúkk tilheyrir að hans mati raunsæislegum viðhorfum, kaldri skynsemi en tilfinningarnar og hjartað hrópa á herstöðvalaust land og hlutlaust. „Starf mitt og' reynsla hafa eflt með mér nægi- legt raunsæi til að horfast í augu við hætturnar, enda þótt skáldi sé eiginlegt að hugsa með hjart- anu.“ Nú er það svo að köld skyn- semisrök þykja einnig vera fyrir þvf að herinn hverfi úr landi, Nató verði lagt niður, kjarnorku- vopn verði eyðilögð, o.s.frv. Og hvað sem líður stærðfræðilegum útreikningum, þá verður víst þankagangur hjartans aldrei of miklu ráðandi í pólitíkinni. Með það í huga hljótum við að meta mikilvægi skáldsins á meðal vor. Og með það í huga hljótum við að biðja um meira af skáldinu Matt- híasi heldur en þeim pragmatista sern Magnús Kjartansson kvart- jaði undan. í tilvitnuðum skrifumj hefur Matthías eftir Shaw, að þó: að menn gætu stokkið eins ogj kengúra gætu þeir ekki hlaupið frá hjarta sínu. - óg B Drengilegur málflutningur Drengskapur, heilindi og fleiri orð af þeim aragrúa í bræðralagi og systurþeli úr orðabók próf- kjörs Sjálfstæðisflokksins, koma upp í hugann þegar leiðara Morg- unblaðsins ber fyrir augun. Þar sést hver sú endurreisn og mál- efnalega barátta er, sem Sjálf- stæðisstefnan hefir í stefni. Á sunnudaginn er klifað á því að Hjörleifur Guttormsson sé nán- ast ekki annað en austur- evrópskur agent og Alþýðu- bandalagið sérlegur boðberi austur-evrópskrarhernaðarvélar. Dæmi úr sunnudagsleiðara er svoddan: „Til dæmis hefur margsinnis verið bent á það hér, að grund- vallarstefna Alþýðubandalagsins í efnahagsmálum minnir aðeins á stjórnkerfið í Póllandi, sem fólk- ið þar hefur andmælt og herinn neyðir það nú til að þola. Við þurfum því að líta í eigin barm, þegar við metum hvað við getum best gert til að hjálpa Pólverjum í neyð þeirra - við þurfum að koma í veg fyrir þá íslensku neyð sem Alþýðubandalagið vill leiða yfir þjóðina og er nú tekið til við að boða vafningalaust." Eins og Neró líka Ekki nægir að gera Hjörleif Guttormsson ábyrgan fyrir stefnu Sovétríkjanna, austur- evrópuríkja og ýmislegs sögulegs óhugnaðar síðustu áratugi, held- ur þarf að seilast alla leið til Róm- aríkis hins forna líka. í Mogga- leiðara segir að firringín og virðingarleysið í umræðunum um álmálið í Kastljósi á föstudag minni á það, þegar Neró lék á fiðlu á meðan að Róm brann. -óg

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.