Þjóðviljinn - 14.12.1982, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 14.12.1982, Qupperneq 12
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 14. desember 1982 5000 krórn f vöruúttekt — hátíðainaturinn og fleira— Við minnum á áskrifendagetraun Þjóðviljans, en svör þurfa að berast fyrir 15. desember. Spurninga- seðlarnir birtust í Sunnudagsblaðinu 13.-14., 20 - 21. og 27 - 28. nóvember og 4. - 5. desember. Hægt ér að fá þessi blöð á afgreiðslu Þjóðviljans ef einhver er búinn að týna. Allir sem eru áskrifendur Þjóðviljans þegar dregið verður geta tekið þátt í getrauninni. Verðlaunin eru 5.000 kr. vöruúttekt í heimabyggð þess er þau hlýtur. Áskriftarsíminn er 8-13-33. r a I Ég undirritaður/uð óska eftir að gerast áskrifandi Þjóðvilj- ans: Nafn................................................... 1 ■ Heimili..................Póstnúmer Fóstrur Siglufjarðarkaupstaður óskar eftir að ráða fóstrurtil starfa á Barnadagheimili Siglufjarð- ar. Um er að ræða tvö störf. a. Fullt starf þar sem umsækjandi þarf að geta hafið störf 1. janúar 1983. b. Hálft starf þar sem umsækjandi þarf að geta hafið störf 1. febrúar 1983. Umsóknarfrestur er til 27. desember n.k. Umsóknirsendisttil forstöðukonu Barnadag- heimilis Siglufjarðar, sem veitir allar nánari upplýsingar. Siglufirði, 08.12.82 Bæjarritarinn Siglufirði Reykjavlkurmótið í sveitakeppn! ’83 o.fl. Ólafur Lárusson skrlfar um bridge Fyrirkomulag Reykjavíkurmóts- ins í sveitakeppni 1983 verður með svipuðu sniði og verið hefur: fyrst er opið mót með 16 spila leikjum, og spiia allir við alla. Síðan spila 4 efstu sveitirnar úr þessu móti til úrslita í sérstakri keppni. Sú nýbreytni verður hins vegar núna, að það verður stigaflutning- ur frá opna mótinu yfir í úrslitin. Það er ekki endanlega frá gengið með hvaða hætti hann verður en það verður kynnt síðar. Opna mótið verður allt spilað í janúarmánuði, á tímabilinu 5.-22. Þetta þýðir að skráningu f mótið þarf að vera lokið fyrir áramót. jFyrirliðar sveita eru beðnir að til- ikynna þátttöku til Guðmundar Páls Arnarsonar eða Gests Jóns- jsonar í.stjórn BSR sem fyrst. Reykjanesmót Reykjanesmótið í tvímenning var spilað helgina 4-5 des. í Hafn- arfirði. Mótið fór vel og friðsam- lega fram undir góðri stjórn keppnisstjórans Vigfúsar Páls- sonar. Mótið var allan tímann jafnt og tvísýnt og skiptust pör á um að leiða keppnina. Undir lokin stóð baráttan milli feðganna Vilhjálms Sigurðssonar og Vilhjalms Vil- hjálmssonar annars vegar og Guðna Sigurbjarnarsonar og Óm- ars Jónssonar hins vegar. Fóru leikar svo að Guðni og Omar sigu framúr og urðu þar með Reykja- nesmeistarar 1982-1983. Röðin varð annars þessi: 1. Guðni Sigurbjarnarson - Ómar Jónsson 169. 2. Vilhjálmur Sigurðsson - Vilhjálmur Vilhjálmsson 150 3. Hrólfur Hjaltason - Oddur Hjaltason 128 4. Aðalsteinn Jörgensen - Kristján Blöndal 118 5. Kristófer Magnússon - Guðbrandur Sigurbergsson 114 6. Ármann Lárusson - Ragnar Björnsson 103 Frá Bridgedeild Skagfirðinga Síðastliðinn þriðjudag var spil- aður eins kvölds tvímenningur í 16 para riðli. Hæstu skor hlutu: 1. Sigmar Jónsson - Vilhjálmur Einarsson 241 2. Baldur Ásgeirsson - Magnús Halldórsson 238 3. Gróa Jónatansdóttir - Kristmundur Halldórsson 232 4. Ragnar Björnsson - Sævin Bjarnason 226 5. Högni Torfason - Sveinn Sveinsson 226 6. Sigrún Pétursdóttir - Óli Ándreasson 219 7. Björn Hermannsson - Lárus Hermannsson 213 Þriðjudaginn 14. des. verður síð- asta spilakvöldið fyrir jól, og spil- aður tvímenningur. Hraðsveitakeppni Þá var einnig spilað síðasta þriðjudag, frestuðum leik milli sveita Björns Hermannssonar og Sigmars Jónssonar, sem Björn vann 16-4. Úrslit í hraðsveitakeppninni urðu þá á þann veg að sveit Guð- rúnar Hinriksdóttur sigraði með 145 stig, auk Guðrúnar spiluðu í sveitinni: Bjarni Pétursson, Haukur Hannesson, Ragnar Björnsson og Sævin Bjarnason næstir komu: Sveit Sigmars Jónssonar 143 Sveit Baldurs Ásgeirss. 135 i Svpít Hildnr Helf>adóttnr ia7 Sveit Tómasar Sigurðss. 126 Sveit Sigrúnar Pétursd. 117 Frá Bridgefélagi Hafnarfjarðar Þegar aðeins er.eftir að spila eina umferð í sveitakeppni félagsins er staða efstu sveita þessi: 1. Sævar Magnúss. 202 st. 2. Aðalsteinn Jörgens. 195 st. 3. Kristófer Magnúss. 167 st. 4. Jón Gíslas. 157 st. Eins og sjá má eiga aðeins tvær sveitir möguleika á að hreppa hinn eftirsótta meistaratitil og það skemmtilega við þetta er að í síð- ustu umferð eigast þær innbyrðis við á græna borðinu. Það verður því um hreinan úrslitaleik að ræða og nægja Sævari og félögum sjö stig úr þeirri viðureign til að hljóta meistaratitilinn í ár. Þeim sem áhuga hafa á að fylgj- ast með leikjunum í síðustu umferð er velkomið að mæta og spilað verður í íþróttahúsinu n.k. mánu- dagskvöld 13. des. kl. 19.30. Frá Bridgefélagi Reykjavíkur Þegar einni umferð er ólokið í aðalsveitakeppni félagsins, er staða efstu sveita þessi: Sævar Þorbjörnsson 253 Jón Hjaltason 236 og frestaður leikur Ólafur Lárusson 212 Karl Sigurhjartarson 212 Þórarinn Sigþórsson 211 og freistaður leikur Jón Þorvarðarson 163 Runólfur Pálsson 161 Síðasta umferð verður spiluð nk. miðvikudag og eigast þá við m.a. sveitir Sævars - Jón Þorv., og Ólafs - Jón Hj. Aðeins sveitir Sævars og Jóns eiga raunhæfan möguleika á sigri í mótinu. Frá Bridgedeild Barðstrendingar- félagsins Mánudaginn 6. nóvember var spiluð 4. umferðin í Hraðsveita- keppni félagsins. Staða 6 efstu sveita er nú þannig: Sveit Sigurbjörns Árnasonar 1887 stig. Sveit Ragnars Þorsteinssonar 1886 stig. Sveit Einars Flygering 1832 stig. Sveit Þorsteins Þorsteinssonar 1739 stig. Sveit Viðars Guðmundssonar 1726 stig. Sveit Sigurðar Isakssonar 1715 stig. Frá Bridgefélagi Kópavogs Hæstu skorir í 2. umferð Butler- tvímenningskeppni félagsins fengu: Sigurður - Sturla 47 Sigurður - Runólfur 39 Ásgeir - Jón 39 Og efstu pör að loknum 2. um- ferðum eru: Sigurður Vilhjálmsson - Sturla Geirsson 71 Ásgeir P. Ásbjörnsson - Jón Þorvarðarson 65 Sigurður Sverrisson - Runólfur Pálsson 53 Grímur Thorarensen - Guðmundur Pálsson 37 Frá Breiðfirðingum Eftir 14 umferðir í aðalsveita- keppni deildarinnar er stórskota- liðið hans Hansa Nielsen vel efst: 1. sveit Hans Nielsen 228 2. sveit Kristínar Þórðardóttur 199 3. sveit Óskars Þ. Þráinssonar 182 4. sveit Ingibjargar Halldórsdóttur 178 5. sveit Elís R. Helgasonar 173 6. sveit Steingrfms Jónassonar 169 7. sveit Braga. Bjarnasonar 163 H SVO'.t C 1 f’'"' Opna hótel Akraness mótið Helgina 27.-28. nóv. var haldið bridgemót í tvímenning í samvinnu Hótels Akraness og B.K.A. Hótel Akranes gaf vegleg peningaverð- laun til mótsins að upphæð kr. 20.000.- sem skiptust á milli þriggja efstu para í mótin þannig að 1. sæti gaf 10.000.-, 2. sæti gaf 6.500,- og 3. sæti gaf 3.500.- 28 pör mættu til leiks og spiluðu undir röggsamri stjórn keppnis- stjóranna Vilhjálms Sigurðssonar og Vilhjálms Vilhjálmssonar. Þegar upp var staðið kom í ljós að hinn landskunni bridgesilari, Jón Baldursson hafði unnið mótið með glæsibrag. þriðja árið í röð. Síðan komu, heimamönnum til mikillar ánægju pör frá Akranesi í næstu tveimur sætunum, en annars urðu úrslit sem hér segir: 1. Jón Baldursson og Sævar Þorbjörnsson Rvk. 259 2. Eiríkur Jónsson og Jón Alfreðsson Akran. 137 3. Karl Alfreðsson og Alfreð Viktorsson Akran. 132 4. Þórarinn Sigþórsson og Guðm. P. Arnarson Rvk. 98 5. Sigurður Vilhjálmsson og Runólfur Pálsson Rvk. 91 6. Ásmundur Pálsson og Karl Sigurhjartars. Rvk 85 7. Ómar Jónsson og Guðni Sigurbjarnason Kópav. 77 8. Hannes R. Jónsson og Ágúst Helgason Rvík. 73 9. Guðjón Guðmundsson og Ólafur Gr. Ólafss. Akran. 68 10. Rúnar Magnússon og Ragnar Magnússon Rvk. 46 Að gefnu tilefni Hér á eftir fylgja nokkrar línur frá Þorgeiri Jósefssyni blaðafull- trúa Bridgeklúbbs Akraness, vegna Stórmótsins sem haldið var þar efra á dögunum. Þátturinn tekur heilshugar undir sjónarmið hans. Framkoma manna í svona til- vikum er fyrir neðan allar hellur og ætti að setja straff, svo að slíkt hendi ekki í framtíðinni. Jafnvel að birta nöfn viðkomandi. „Lesendur hafa kannski höggvið eftir því að tekið var fram að aðeins 28 pör hefðu mætt til leiks. Ekki 32 eins og B.K.A. hafði auglýst áður. Þetta stafar ekki af áhugaleysi bridgespilara á mótinu heldur vegna félagslegs vanþroska nokk- urra para. Þessi pör höfðu tilkynnt þátttöku með löngum fyrirvara sem sést best á því að þegar rúmar þrjár vikur voru í mótið þá var það fullsetið með 32 pörum. Síðan skeður það að á föstudeg- inum 26. nóv., daginn fyrir mótið, að menn eru að hringja í forsvars- menn Bridgeklúbbs Akraness til klukkan fimm og afboða sig. Og þar sem tíminn var svona naumur fengust ekki varapör. Eitt paranna umræddu hafði t.d. ákveðið tveimur vikum fyrir mótið að vera ekki með en drógu það fram á síðustu stundu að afboða sig. Annað par var að bræða það með sér í heila viku fyrir mótið hvort þeir ættu að mæta eða ekki. Og þeir hringdu líka daginn fyrir mótið til þess að afboða sig. Svona framkoma er óþolandi vegna þess að fjölda para sem höfðu áhuga á að spila komust ekki að, vegna þess að nokkrir „egóist- ar“ höfðu hugsað sem svo; „það er best að láta skrá sig og sjá svo til hvort maður nennir á staðinn“. Þessir menn sem svona hugsuðu eyðilögðu ómælda vinnu og fyrir- höfn í sambandi við mótið auk þess sem eitthvað af peningum fór í súg- inn því allt var tilbúið og uppsett fyrir 32 para mót. Skammist þeir sin“. „Að lokum vonast Bridgeklúbb- ur Akraness til að sjá seni flesta bridgespilara að ári í svinnöu möti“ 1

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.