Þjóðviljinn - 14.12.1982, Qupperneq 15
V ♦ I I f
RUV ©
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Gull í
mund. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál.
Endurtekinn þáttur Árna Böðvarssonar
frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgun-
orð: Bjarni Karlsson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Komm-
óðan hennar langömmu“ eftir Birgit
Bergkvist. Helga Harðardóttir les þýð-
ingu sína (16).
9.20 Leikfimi. Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir.
10.30 „Áður fyrr á árunum“. Ágústa
Björnsdóttir sér urn þáttinn. Lítil
samantekt urn Lucíumessu. Flytjendur:
Hjálmar Ólafsson og Ingibjörg Haralds-
dóttir.
11.00 íslenskir einsöngvarar og kórar
syngja.
11.30 Gæðum ellina lífi. Umsjón: Dögg
Pálsdóttir.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Þriðjudagssyrpa - Páll Þor-
steinsson og Þorgeir Ástvaldsson.
14.30 Á bókamarkaðinum. Andrés
Björnsson sér um lestur úr nýjum
bókum. Kynnir: Dóra Ingvadóttir.
15.00 Miðdegistónleikar. Sinfóníuhljóm-
sveitin í Boston leikur Strengjaserenöðu
í C-dúr op. 48 eftir Pjotr Tsjaíkovský;
Charles Munch stj. / Parísarhljóm-
sveitin leikur „Lærisvein galdrameista-
rans“, hljómsveitarverk eftir Paul Duk-
as; Jean-Pierre Jacquillat stj.
15.40 Tilkynninar. Tónleikar.
16.20 Lagið mitt. Helga Þ.Stephensen
kynnir óskalög barna.
17.00 „SPÚTNIK“. Sitthvað úr heimi vís-
indanna. Dr. Þór Jakobsson sér um
þáttinn.
17.20 Sjóndeildarhringurinn. Umsjónar-
maður: Ólafur Torfason (RÚVAK).
18.05 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir.
20.00 Sinfónía nr. 3 í d-moll eftir Gustav
Mahler. Jessye Norman, Vínardreng-
jakórinn og Kvennakór Tónlistarfélags-
ins í Vín syngja með Sinfóníuhljómsveit
Vínar; Gary Bertini stj. - Kynnir: Jón. ,
Örn Marinósson. (Hljóðritun frá tón- 1
listahátíðinni í Vín í sumar).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins
22.35 Flest er til. Þáttur um útivist og fé-
lagsmál. Umsjónarmenn: Benjamín
Axel Árnason, Jón Halldór Jónasson,
Jón K. Arnarson og Erling Jóhann-
esson.
23.15 Oní kjölinn. Bókmenntaþáttur í um-
sjá Kristjáns Jóhanns Jónssonar og
Þorvalds Kristinssonar.
\
RUV -
Þriðjudagur 14. desember 1982
19.45 Fréttaágrip á táknmáli og auglvs-
ingar
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Jólatréssögur Barnamynd frá Tékk-
óslóvakíu. Þýðandi Jón Gunnarsson.
Sögumaður Sigrún Edda Björnsdóttir.
20.50 I forsal vinda Þriðji og síðasti þáttur.
Niður Amazontljót Frá tindum Ándes-
fjalla liggur leiðin niður með mesta fljóti
veraldar og unt regnskógana á bökkunt
þess, þar sem dýralíf er afar fjölbreytt og
hvergi önnur eins fugíaparádís í heiinin-
um. Þýðandi Jón O. Edwald.
22.00 Lífið er lotterí Lokaþáttur. Sænskur
sakamálaflokkur. í síðasta þœtti varð
John Hissing arftaki Súkkulaðisvínsins í
giæpahéiminum og átti ástarævintýri
nteð rússneskri glæpadrottningu. En
velgengnin stígur honum til höfuðs í við-
skiptum hans viö aðra mafíuforingja.
Þýðandi Hallveig Thorlacius.
23.10 Á hraðbergi Viðræðuþáttur í untsjón
Halldórs Halldórssonar og lngva Hrafns
Jónssonar.
00.00 Dagskrárlok
Þriðjudagur 14. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 19 1
r
I forsal vinda
Síðasti þáttur
Niður
Amazon-
fljót
Þriðji og síðasti þátturinn í
myndaflokknum í forsal vinda
er á dagskrá sjónvarpsins í
kvöld og hefst kl. 20.50. Ber
þátturinn heitið Niður Amaz-
onfljót.
í þættinum verður farið nið-
ur eftir mesta fljóti heimsins
og myndavélin látin skjóta á
það markverðasta í þeirri
ferð. Regnskógarnir eru bæði
ægifagrir með allt sitt marg-
slungna dýralíf og ógnvekjandi
í senn. Það sem þeir hafa að
geyma þekkir enginn til fulln-
Páfagaukar í öllum regnbogans litum heimsækja sjónvarpsáhorfendur í síðasta þætti mynda-
flokksins I forsal vinda.
ustu. Við rætur Andesfjalla
eru páfuglar kvakandi á hverri
grein og vatnsföll eru hrika-
legri en þekkist annarsstaðar.
Það borgar sig í raun að hafa
sem fæst orð um það sem Am-
azon fljótið og næsta nágrenni
hafa uppá að bjóða, þetta er
allt saman ókannaður heimur
í henni veröld og einungis ör-
lítið brot af honum er fest á
filmu í þessari rnynd.
Sjónvarp kl. 22
Lffið er lotterí
Skrifstofumaðurinn sem varð
foringi glæpasamtakanna í
Svíþjóð, John Hissing. En
hvað gerist í flugferðinni sem
hann lagði upp ■ í síðasta
þætti?
Síðasti þátturinn í hinum
æsispennandi framhalds-
myndaflokki Lífið er lotterí er
á dagskrá sjónvarpsins í kvöld
og hefst kl. 22.00
Það fór eins og margan
hafði grunað, að þegar síðasti
þáttur hófst, en hann var á
dagskrá á þriðjudegi 7. des-
ember, þá hafði viðskiptum
Hissing og Súkkulaðisvínsins
lokið með því að Súkkulaði-
svínið týndi lífinu þegar hann í
þokumekki hrapaði fram af
klettasnös í Færeyjum. His-
Sögulok
sing heldur til Svíþjóðar,
niðurbrotinn maður á sál og
líkama. Hann er þess albúinn
að gefa sig fram við lögrgluna
þegar grunsamlegir
náungar í svörtum limósín
staðnæmast fyrir framan hann
á götu og draga inní bifreið-
ina, án þess að nokkur
hjálp berist frá sænskum góð-
borgurum sem eiga leið hjá.
Þykist Hissing nú þess fullviss
að endalokin séu skammt
undan.
En viti rnenn. Æðsta ráð
sænskra glæpantanna býður
hann velkominn á sinn fund,
og þakkar honunt fyrir að hafa
ráðið niðurlögum Súkkulaði-
svínsins, með því að bjóða
honum forstjórastöðu í sam-
tökunum. Því fylgir eigi alllít-
ill auður og btátt fer Hissing
að láta mikið á sér bera í
sænsku glæpalífi, dyggilega
studdur af samverkamönnum |
sínum og yfirvaldinu sem
hilmir yfir hann.
Rosmarie, sent þó
hefur lagt líf sitt í hættu fyrir
hann, á ekki lengur huga
hans, því fram á sjónarsvíðið
kemur sovéskt glæpakvendi,
og tekst ineð þeirn náið
samband með aðstoð túlks.
Allt virðist leika í lyndi hjá
Hissing þegar hann einn
góðan veðurdag leggur í flug-
ferð. En sessunautur hans er
sjálfur lögreglustjórinn...
Útgeislun frá reikistjörnunni Júpíter verður til umfjöllunar
í þætti Þórs Jakobssonar veðurfræðings, Spútnik.
__________Útvarp kl. 17________
Yfirborð Venus-
ar og Júpiters
Spútnik, þáttur Þórs Jak-
obssonar veðurfræðings um
vísindi í nútíð og framtíð er á
dagskrá útvarpsins í dag kl.
17. Á þcim 20 mínútum sem
Þór hefur til umráða mun
hann ræða um yfirborð Júpit-
ers, en frá yfirborði þeirrar
ágætu stjörnu kemur, ef
eitthvað er, meiri útgeislun,
heldur en stjarnan tekur frá
sólinni. Á þann hátt hagar
Júpiter sér líkt og smástirni.
„Eg mun í næstu þáttum fá til
mín nokkra eðlisfræðinga úr
Háskóla Islands. Þannig mun
Jón Pétursson tala um ljós-
fræði oglasertækni. Eg vonast
til þess að fá til mín í þáttinn
Þórð Jónsson sem fjallar um
svartholin, segulmagn og fis-
eindir og þeir Hans Guð-
mundson og Þorsteinn Sig-
fússon ntunu svo koma til mín
í þættina eftir áramótin og
ræða unt þau fyrirbæri sem
gerast við mjög lágt hitastig,
þ.e. hitastig sem við þekkjum
ekki af raun. Þá ntun prófess-
or Jóhann Axelsson lífeðlis-
fræðingur koma til mín í þátt-
inn síðar og halda þar erindi,“
sagði Þór.
frá lesendum
Spurt um
friðhelgi
þingmanna
6769-6158 hringdi:
Kvaðst hann vera staddur í
ntiklu þrasi á vinnustað unt
friðhelgi þingmanna. Vildi
hann varpa þeirri spurningu
frarn hvort þingmaður sent
æki ölvaður gæti neitað að
yfirgefa bifreið sína líkt og
diplómatar.
Samkvæmt þeint upplýsingum
sent Þjóðviljinn hefur aflað
sér hafa þingmenn ekki neinn
þann rétt untfram venjulega
borgara sem þarna er getið
unt. Þeir hafa hins vegar nær
ótakmarkað málfrelsi, utan
þess að þingdeild getur svipt
hvern einstakan þingmann
þingheldi ef krafa kenrur fram
um það. Ekki er hægt að
handtaka þingmann í þingsal
á meðan þing stendur yfir.
Vélmenni
Ég var að hlusta á morgun-
fréttir og heyrði þar að í Japan
væru vélmeni farin að starfa í
verksmiðjum. Svo var getið á
forvals þingmanna hja krö-
tum. Varð þá þetta að vísu
svohljóðandi:
'Hafið yfir allan grun
að innan þingsins sala
var - og er - og verða mun
véimenni seni tala
Þegar Bandalag jafnaðar-
manna flutti sitt fyrsta frum-
varp varð þessi vísa til:
Ótrúlegt margt er enn á seyði
undur gerðist í krata sveit.
Fugl sem var enn á fóstur-
skeiði
fyrsta egginu úr sér dreit.
Kolskeggur