Þjóðviljinn - 04.01.1983, Blaðsíða 1
UOBVIUINN
Margterlíkt með
Sandinistum í
Nicaragua og
Póllandi segir þýski
rithöfundurinn
Giinter Grass í
grein um Nicar-
agua.
Sjá 6—7
janúar 1983
þriðjudagur
48. árgangur
1. tölublað
„Við teljum allt, hvaða smásnifsi
sem er. Þó leyfum við okkur að
kasta tölu á skrúfur og annað þess
háttar“, sagði Heimir Tryggvason
hjá Glóey hf. og velti nokkrum
skrúfum í hendi sér...
Vörur
taldar
Viðskiptavinir verslana komu
víðast hvar að tómum kofanum í
gær því rétt eins og undanfarin ár
var fyrsti virki dagur ársins not-
aður til vörutalningar. Þannig vilja
verslunareigendur átta sig á vöru-
birgðum. Þjóðviljinn kom við á
nokkruin stöðum í gær og alls stað-
ar var það sama uppá tengingnum,
starfsfólkið tíndi alit lauslegt til og
Nýr Þjóðleikhús-
stjóri
Gísli Alfreðsson
skipaður í gær
Menntamálaráðherra skipaði í
gær Gísla Ajfreðsson, formann
Lcikarafélags íslands í stöðu Þjóð-
leikhússtjóra til 4ra ára frá og með
1. janúar s.l.. Sveinn Einarsson
gcgnir engu að síður störfum til
loka þessa leikárs.
Umsækjendur um stöðu Þjóð-
leikhússtjóra voru auk Gísla þau
Erlingur Gíslason, Kristín Magnús
og Þórhallur Sigurðsson.
Þjóðleikhúsráð fjallaði um um-
sóknirnar á fundi í gær og hlaut
Gísli þar fjögur atkvæði og Þórhall-
ur eitt. _ ÁI
Vinnuverndarár
Alþýðusambands-
ins rann út með því
herransári 1982..
Hvað hefur verið
gert? Hvað er
framundan?
Hvernig hefurtil
tekist?
Gjaldeyr-
isdeíldir
bankanna
verða
lokaðar
í dag
Gjaldeyrisdeildir bankanna
verða lokaðar i dag 4. janúarvegna
óvissu í gengismálumog því verður
ekki um neina gengisskráningu að
ræða í dag.
í dag, fjallar ríkisstjórnin unr
gengismálin á fundi sínum og verð-
ur þar væntanlega ákveðið í sant-
ráði við Seðlabankann hvort um
beina gengisfellingu verður að
ræða eður hvort gengið verður
látiö síga á næstu dögum og þá hve
hratt.
- S.dór.
Svavar Gestsson
um kjördæmamálið
Allar
leiðir
eru enn
í skoðun
„bað er alrangt að Al-
þýðubandalagið eða aðrir
flokkar hafi hafnað
Lagiie-aðferðinni eða
nokkurri annarri leið í
kjördæmamálinu“, sagði
Svavar Gestsson, formað-
ur Alþýðubandalagsins í
gær. „Enn eru allar leiðir í
skoðun og fréttaflutningur
Tímans frá því á gamlárs-
dag um annað, gefur því
alranga mynd af því sem
um er að ræða“.
„Staðreyndin er sú“, sagði Svav-
ar, „að allar leiðir í þessu máli eru í
athugun, - engin pin leið hefur ver-
ið endanlega samþykkt og heldur
engri leið hafnað af nokkrum
flokki. Menn eru að reyna að
semja sig niður á niðurstöðu sem
helst nær til allra flokka í þinginu ef
það er nrögulegt og við leggjum
áherslu á að ljúka þessu hið allra
fyrsta“.
og í Pennanum, Hallarmúla 2, taldi hún bækur þessi unga stúlka. Þórdís Thorlacius heitir hún.
skráði. Hjá Glóey hf., raftækja-
verslun kváðust þeir Hermannn Jó-
hannesson og Heimir Tryggvason
hafa talið bókstaflcga allt, ótrúleg-
ustu smáhluti þ.á.m. skrúfur og
bolta og verkið hel'ði tekið viku. Sá
háttur er hafður á í flcstum versl-
unum, að cinn dagur er notaður
undir þcssa iðju, en frávik þekkj-
ast.
Þá lá lciðin niðrí Penna, Hailar-
inúla 2, og þar hafði vcrslunar-
stjórinn Inga Kristjánsdóttir um 20
manns á sínum snærum og þar var
allt talið og skráð, póstkort,
blýantar og annað. Dagurinn átti
að duga fyrir talninguna.
Allmargar verslanir opnuðu
scinni part dags í gær og flestar
munu [jær svo opna í dag.
- hól.
Áramötaboðskapur Framsóknarflokksins:
Kjaraskerðingar!
„Ekki get ég heldur sagt
að það beri vott um mikla
skynsemi að nú 1. janúar
hækka grunnlaun um 2 af
hundraði“, segir
Steingrímur Hermanns-
son formaður Framsókn-
arflokksins í áramótaboð-
skap sínum í Tímanum á
gamlárdags.
Steingrímur segir enn fremur að
Framsóknarflokkurinn hafi mótað
„Dregið verði úr
verðbótum á
laun”, segir
formaður Fram-
sóknarflokksins
skýra stefnu í efnahagsmálum:
„Vísitölukerfinu verði breytt þann-
ig að dragi úr víxlverkun verðlags
og launa. Dregið verði úr verðbót-
um á laun og tekjur, bæði launa-
manna, bænda og sjómanna."
Formaður Framsóknarflokksins
segir einnig í greininni að heppi-
legast væri að efnahagsaðgeröir
gegn verðbólgu séu unnar í „góðri
samvinnu við launþega, bændur,
sjómenn og atvinnurekendur".
Segir Steingrímur að ef náist ekki
samstaða um slíkt samstarf „er
ekki um annaö að ræða en ráðast
gegn efnahagsvandanum eftir
harðskeyttari og eflaust þungbær-
ari leiðum".
— óg.
r r
Oskar Vigfússon, formaður Sjómannasambands Islands:
Erum andvígir endur-
reisn sjóðakerfisins
Við þessa fiskverðshækkun,
er ríkisvaldið enn einu sinni að
hafa afskipti af hlutaskipta-
kjörum sjómanna og útgerðar-
manna og nú er verið að cndur-
reisa sjóðakerllð alræmda sem
tókst að afnema 1976. Það kost-
aði sjómenn 3% til 5% lækkun
á skiptaprósentu að fá sjóða-
kerfið afnumið en við töldum það
samt þess virði. Nú er verið að
endurreisa þetta kerfi og því
erum við andvígir því það leiðir
til skerðingar á kjöruin okkar
og við töldum okkur greiða
fyrir afnám þess í eitt skipti
fyrir öll 1976, sagði Óskar Vig-
fússon formaður Sjómanna-
sambandsins í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Sjómannasambandið
boðar til fundar
um stöðuna eftir
fiskverðshœkkunina
hann sagði sjómenn ekki geta
unað. Þegar sjóðakerfið var
Gskar Vigfússon var fulltrúi
sjómanna í yfirnefnd Verðlags-
ráðs og greiddi atkvæði gcgn
verðákvörðuninni. Hann
sagðist í sjálfu sér vera ánægður
með þá leiðréttingu á kaupi sjó-
manna sem felst í hækkun fisk-
verðs, en það er sjóðafarganið
sem nú er að konia á aftur sem
afnumið 1976 var tekið 16%
framhjá skiptum og nú er það
komið uppí 9,5%, sem tekið er í
sjóði fram hjá skiptum og eng-
inn veit hve hátt þaö fer ef ekki
veröur spyrnt við fótum sagði
Óskar.
Urn næstu helgi hefur verið
boðað til fundar allra formanna
sambandsfélaga Sjómanna-
sambandsins svo og sambands-
stjórnar þess. Fundarefnið sagði
Óskar að væri sú spurning sem
nú er uppi, hvort sjómenn eigi
áfram að eiga fulltrúa í Verðlags-
ráöi sjávarútvegsins, eða hvort
leita eigi leiða til að ákveða laun
sjómanna með öðrum hætti en
nú er.
- S.dór.