Þjóðviljinn - 04.01.1983, Blaðsíða 12
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 4. janúar 1983
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Akranesi -
Bæjarmálaráð
Fundur verður haldinn mánudaginn 10. janúar kl. 20.30 í Rein.
Umræðuefni: Fjárhagsáætlun bæjarins fyrir 1983. - Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
Djúpivogur — Almennur fundur
Almennur fundur með Helga Seljan alþingis-
manni verður í Barnaskólanum á Djúpavogi,
þriðjudaginn 4. janúar kl. 20.30. Allir velkomnir.
Alþýðubandalagið.
Helgi Seljan.
- almennur
Hjörleifur
Vopnafjörður
fundur
Almennur fundur verður með Hjörleifi Guttorms-
syni, iðnaðarráðherra, miðvikudaginn 5. jan. kl.
20.30 í kaffistofu frystihússins á Vopnafirði. - All-
ir velkomnir. - Alþýðubandalagið.
Eskifjörður - Almennur fundur
Almennur fundur verður með Hjörleifi Guttormssyni iðnaðarráð-
herra í Valhöll á Eskifirði fimmtudaginn 6. janúar kl. 20.00. Allir
velkomnir. Alþýðubandalagið.
Framhaldsaðalfundur
Alþýðubandalagið
Suður-Þingeyjarsýslu
verður haldinn laugardaginn 7. janúar. Fundarefni: Kosin ný stjórn,
ræddar reglur og framkvæmd væntanlegs forvals í kjördæminu. - Stefán
Jónsson alþingismaður mætir á fundinn. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið
Húsavík
Ársluiu'ð Alþvðubandalagsins á Húsavík verður haldin i Félagsheimili
Húsavikur laugardaginn 29. janúar n.k. Fjölbreytt dagskrá að venju.
Nánar auglýst síðar.
Undirbúningsnefndin.
ji.-. Eftirlitsmenn
Ö: með fiskveiðum
Sjávarútvegsráöuneytið óskar eftir aö ráöa
eftirlitsmenn meö fiskveiðum og veiöar-
færum. Umsækjendur þurfa aö hafa þekk-
ingu á fiskveiðum og veiðarfærum og vera
búsettir á Suðvesturlandi. Umsóknir skuiu
hafa borist ráöuneytinu fyrir 15. janúar nk. og
skal í þeim greina aldur, menntun og fyrri
störf.
Sjávarútvegsráðuneytiö,
3. janúar 1983.
uppstillingarnefndar og trúnaðarráðs um
stjórn og aöra trúnaðarmenn félagsins fyrir
áriö 1983 liggja frammi í skrifstofu félagsins
frá og með fimmtudeginum 6. jánúar.
Öörum tillögum ber að skila í skrifstofu Dags-
brúnar fyrir kl. 17 föstudaginn 7. janúar 1983.
Kjörstjórn Dagsbrúnar.
Auglýsingasíminn
er 8-13-33
Minningarorð_______
Agnar Kofoed-Hansen
í ágúst fyrir tuttugu og tveimur
árum stóðu tveir menn við Efsta-
skála í Tindfjöllum í kvöldskininu
og iitu yfir hálendið. Tók annar
undir handlegg hins og benti á hvít-
fölvan Hornklofa og Tindinn eina.
Bros þeirra og fas voru merki þess
að þarna voru nánir vinir að ræða
skemmtileg efni.
Þar sem tólf ára drengur stóð
innan við smárúðótta glugga
skálans heyrði hann ekki til mann-
anna nema óminn af röddunum. Ef
til vill voru þeir að minnast fyrstu
uppgöngunnar á Tindinn, skála-
byggingarinnar 1944, fjarlægra
Alparisa eða einhverrar veiði-
ferðarinnar - hver veit.
Þetta voru þeir Agnar Kofoed-
Hansen og Guðmundur Einarsson
frá Miðdal. Aðdáun drengsins á
hnarreistu og víðförlu mönnunum
var ef til vill svolítið öfgakennd, en
fölskvalaus samt. Seinna þegar
drengurinn óx úr grasi og fór sjálf-
ur í bland við fjöllin, breyttist
aðdáunin í virðingu. Þá var Guð-
mundur látinn, en Agnar sú lifandi
fyrirmynd sem gott var að líkjast.
Enn voru kannski öfgar með í huga
unglingsins. Hann horfði á persón-
utöfra heimsmannsins og gleypti í
sig frásögn af ferð um hásléttur
Kenya og Tanzaníu á Kibó-tind
Kílimandjaró eða klifurferð á
Mont Blanc. Svona vildi hann vera
og svona vildi hann gera.
Er unglingurinn varð fullvaxinn
og kynntist Agnari betur, kom vin-
átta í stað virðingar unglings og
Agnar varð jafningi sér yngri
manns, þótt ekki yrðu samveru-
stundirnar margar.
Með fjölskyldu minni og fjöl-
skyldu Ágnars Kofoed-Hansens
var einstök vinátta. Hvort sem
mæst var á Dyngjuveginum, Skóla-
vörðustígnum eða í birkilundum
Lynghóls í Miðdalslandi varð af
góður fagnaður. Þar kom ekki til
Agnar einn, heldur einnig hún
Björg, dæmalaust reffileg og glað-
lynd og krakkarnir sex.
Þegar Guðmundur frá Miðdal
lést 1963 gerðist Agnar einn bak-
hjarla fjölskyldu minnar. Hann
aðstoðaði þegar þörf var á, beðinn
eða óbeðinn og fylgdist með okkur
yngri bræðrunum. Það var dæma-
laust gott að heyra í honum, rögg-
sömum og hvétjandi, - hafandi
lúmskt gaman af tilburðum rót-
tæklingsins til að breyta heiminum
og hafa vit fyrir ráðamönnum.
Agnar varð ekki nema 67 ára
gamall, jafn gamall aldavini sínum
sem lést fyrir tæpum tuttugu árum.
Svo skömm ævi er allt of stutt
hverjunt þeim sem sækir lífið af
jafn miklum þrótti og Agnar gerði.
Á móti kemur þó ein staðreynd:
Inntak hvers lífshlaups skiptir
miklu máli þegar það er metið.
Hver sá sem fullnægir þrám sínum
og sóknarhug, um leið og hann ver
tíma sínum til þess að bæta mannlíf
og þjónusta alþýðu manna, vekur
ánægju flestra. Um leið verður sá
hinn sami fólki rnikill harmdauði.
Með þessum fáu orðum vil ég
kveðja Agnar Kofoed-Hansen
fyrir hönd fjölskyldu minnar. Ég
veit líka að ég get tekið mér bessa-
leyfi til þess að gera það einnig í
nafni íslenskra fjallamanna, sem
munu mirinast hans þegar þeir
leggja til atlögu við stórfjöll í Olp-
um suður.
Ari Trausti Guðmundsson.
Vegna ummæla formanns LÍIJ:
Helgarfríin ekki orsök
lélegra gæða aflans
„Almennur fundur í Vélstjóra-
félagi Suðurnesja mótmælir þeim
ummælum harðlega, að helgarfrí
sjómanna sé orskök lítilla fisk-
gæða í fiskvinnslustöðvum. Telur
fundurinn að með þessum um-
mælum sé verið að hengja bakara
fyrir smið. Aðalorsökin fyrir
slæmu ástandi vinnsluafurða í
fiskvinnslustöðvum sé oftast
skipulagsleysi í vinnslu-
stöðvunum sjálfum“.
Koma verði í veg fyrir að fiskur
liggi dögum saman óunninn við
misjafnar aðstæður og oft mjög
slæntar eftir að hann er kominn í
segja félagar
í Vélstjárafélagi
Suðumesja
hús, eins og nú eru veruleg brögð
að, segja vélstjórar á Suðurnesj-
um.
Þá ályktaði fundurinn að stór-
efla bæri framleiðslueftirlit
sjávarafurða. Það hefði sýnt sig
að fiskverkendum og sölu-
samtökum þeirra væri ekki
treystandi til að annast gæða-
eftirlit og harmaði fundurinn það
siðleysi og þá skemmdarstarf-
semi sem þessir aðilar hafa sýnt
vitandi vits með því að senda ó-
nýta vöru á erlenda markaði.
Að auki ályktuðu vélstjórar
gegn bráðabirgðalögum ríkis-
stjórnarinnar, að sjómenn standi
fast á kröfunni um að lögin um
olíugjald skuli ekki framlengd og
að sannleikurinn verði leiddur í
ljós varðandi umtalað smá-
fiskadráp og aðra rányrkju á ís-
landsmiðum.
- lg-
Fiskverð hækkar um 14%
Verðið var ákveðið
með atkvæðum
oddamanns og
fulltrúa
útgerðarinnar gegn
atkvæði sjómanna
Á gamlárskvöld ákvað yfírnefnd
Verðlagsráðs sjávarútvegsins 14%
hækkun almenns fiskverðs frá 1.
janúar og gildir það til 28. desem-
ber 1983. Nokkrar tilfærslur voru
einnig gerðar á verðmun eftir
stærð og gæðum svo og milli slægðs
og óslægðs físks. Nýja verðið var
samþykkt með atkvæðum odda-
manns nefndarinnar Ólafs Davíðs-
sohar og fulltrúa útgerðarmanna,
Kristjáns Ragnarssonar gegn at-
kvæði fulltrúa sjómanna Öskars
Vigfússonar. Fulltrúar kaupenda
sátu hjá og létu bóka að þeir gætu
ekki samþykkt þessa fiskverðs-
ákvörðun vegna þess að þeir væru
andvígir hækkun útllutnings-
gjalds.
Viö verðákvörðunina var m.a.
gengið útfrá því að olíugjald verði
óbreytt, 7%, og að olía til fiski-
skipa verði greidd niður um 35%
og að tekna til niðurgreiðslunnar
verði aflað með 4% útflutnings-
gjaldi.
.,Ég tel að verðákvörðun þessi
og forsendur hennar hafi verið
tekin með þeim hætti að ekki verði
annað talið, en að fulltrúi ríkis-
valdsins, oddamaður yfirnefndar
hafi með atkvæði sínu svo og full-
trúar kaupenda með hjásetu sinni
haft bein afskipti af hlutaskipta-
kjörum sjómanna og útgerðar-
manna. Mun því fulltrúi sjómanna
með tilvísun til ofangreinds í sam-
ráði við stjórnir sjómannasamtak-
anna meta það, hvort grundvöllur
sé fyrir áframhaldandi setu fulltrúa
sjómanna í Verðlagsráði sjávarút-
vegsins.“
I yfirnefndinni áttu sæti: Ólafur
Davíðsson, forstjóri Þjóðhags-
stofnunar, sem var oddamaður
nefndarinnar, Kristján Ragnars-
son af hálfu útgerðarmanna, Óskar
Vigfússon af hálfu sjómanna og
-S.dór.
Leita að vinnu
viö áhugavert starf, helst hjá félags- eða stéttarsam-
tökum. Hef 10 ára reynslu í banka- og skrifstofustörf-
um, auk ýmissa annarra starfa.
Upplýsingar í síma 43232 í dag og á morgun.