Þjóðviljinn - 04.01.1983, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 4. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA £
Góðan dag, góðir íslendingar.
Ég óska öllum landsmönnum
gleðilegs árs. Þegar nýtt ár geng-
ur nú í garð býr mér engin ósk
dýpra í hjarta en að okkur íslend-
ingum takist með samstöðu os
sameiginlegu átaki að vinna bug á
örðugleikum, sem að steðja - að
árið færi okkur trú á bjarta daga
þar sem friður og samlyndi sitji i
öndvegi.
Hvert fer
tíminn?
Það var eitt sinn fyrir allmörg-
um árum að eldri maður, sem
hafði yndi af því að spjalla við
börn og reyna ályktunarhæfni
þeirra, spurði ungan sam-
ferðarmann sinn: „Hvert fer tím-
inn?“ Sveinninn ungi hugsaði sig
um dágóða stund, svaraði síðan:
„Hann fer í minningarnar". „En
hvert fara þá minningarnar?“
spurði maðurinn. Eftir nokkur
heilabrot svaraði sveinninn: „Þær
fara í mannkynssöguna". Þetta
þótti lífsreyndum manni gott svar
og sagði börnum sínum, sem síð-
an hafa sagt það sínum börnum.
Á fyrsta degi nýs árs hugleiðum
við venju fremur tímann, hvernig
hann hefur liðið og hvað hann
kunni að bera í skauti sínu í
framtíð: þessi óstöðvandi tími
sem er eins og fugl sem aldrei
tyllir sér niður eitt andartak held-
ur er horfinn út í bláinn fyrr en
varir og orðinn að fortið. Hann er
sameign okkar allra á jörðunni,
óslitin keðja sem tengir alla at-
burði lífsins. í mynd reynslu og
Ávarp
forseta
íslands,
Vigdísar
Finnboga■
dóttur,
á ný-
ársdag
1983
tímann, láta hann hverfa út í
buskann í gleymskunnar dá. En
til bóta þarf sjálfsaga og það ekki
aðeins æskunnar. Eigi fullorðið
fólk að miöla æskunni af ríki-
dæmi reynslu sinnar þarf það
einnig að temja sér aga og síðast
en ekki síst að rækta með sér kær-
leika.
Ekki skal
æðrast
Fyrir og um þessi áramót hefur
mönnum orðið einkar tíðrætt um
mikinn vanda þjóðarbúsins og
erfið úrlausnarefni. Þegar litið er
til minninganna sem er saga þessa
lands og þessarar þjóðar hefur
svo ótal oft verið svart á álinn —
svartara en nú er.
Dr. Kristján Eldjárn, dyggur
vinur okkar allra, sem við hugs-
um til með miklum söknuði, lét
svo um mælt í áramótaræðu sinni
árið 1980 er hann skildi við emb-
ætti: „Kjörorð Jóns Sigurðssonar
var Eigi vt'kja, og getur þýtt
margt, meðal annars að aldrei
megi láta undan síga í sókn þjóð-
„Á erfiðum
hvert öðru
tímum
best að
gerum við það
standa saman”
minninga er hann lærifaðir okkar
sem heldur okkur sístarfandi við
að móta okkur og gera okkur
samtíðina skiljanlega. Þvíer jafn-
an vert að spyrja hvernig við
fáum best gert tímann að minn-
ingum sem eru þess virði að þeim
sé haldið til haga. Það er hollt að
reyna að átta sig á því hvort þær
leiðir sem farnar hafa verið séu
hinar einu réttu og hvort ekki sé
unnt að velja betri leiðir eða
ryðja enn fleiri.
Þjóð meðal
þjóða
Hér á Bessastöðum leita minn-
ingar um liðinn tíma einatt á hug-
ann. Staðurinn er svo nátengdur
sögunni um afkomu íslensku
þjóðarinnar. í raun og veru
greina minningar Bessastaða
skýrast sögustaða okkar frá því
hvaða leið kynslóðirnar hafa
gengið síðan norrænir menn
höfðu valið sér íslenskt þjóðerni
og fest rætur í landinu. Rismikið
blómaskeið þjóðarinnar á
miðöldum tengist Bessastöðum,
þegar staðurinn var í eigu Snorra
Sturlusonar, því næst daprar aldir
örbirgðar, doða og sinnuleysis,
þegar þjóðin hafði gefið líf sitt og
vinnuþrek erlendu konungsvaldi.
Enn eru Bessastaðir sögustaður-
inn mikli þegar íslensk þjóð
rumskar eftir langan svefn og
vaknar til dáða með frelsishug-
sjón að leiðarljósi. Með hlýju og
stolti hugsum við til þeirra æsku-
manna sem hér gengu um dyr í
gömlu Bessastaðastofu eins og
hún enn stendur, Latínuskólan-
um gamla, í byrjum 19. aldar og
síðar urðu ritsniílingar, stórskáld
og þjóðmálafrömuðir.
Þegar þeir stofna Fjölni á
Kaupmannahafnarárum sínum
og senda heirn til íslands er það
meginmarkmið þessa „árs-rits
handa íslendingum" „að vekja
andann með þjóðinni" eins og
þeir komust að orði. Þeirra
tímar, tímar Jóns Sigurðssonar
og þeirra ótalmörgu sem hver
fram af öðrum áratug eftir áratug
unnu að því frelsi þjóðarinnar sem
við njótum nú hafa vissulega orð-
ið að minningum sem aldrei firn-
ast. Þegar svo loks að því kom að
langþráð lýðveldi fullfrjálsra ís-
lendinga var endurreist höfðu
Bessastaðir verið færðir þjóðinni
að gjöf - til eignar og ábúðar;
tíminn og sagan gátu haldið þar
áfram að spinna minningar allra
þeirra sem að garði ber um þjóð
sem með fullri reisn er þjóð með-
al þjóða.
Skapandi þjóð
Þegar sá dagur nálgast á kom-
andi sumri að sólargangur verði
lengstur kemst íslenska lýðveldið
á fertugasta aldursárið. Á þess-
um stutta tíma þjóðarævinnar
hefur meira áunnist en bjartsýn-
ustu menn mun hafa órað fyrir.
Líf fólksins í landinu hefúr tekið
miklum - nær algjörum stakka-
skiptum. Leiðin hefur legið frá
fábrotnu líferni, aðhaldi ognýtni,
til ótrúlegrar velmegunar þar sern
lítt hefur verið til sparað - kann-
ski stundum of lítið - til að gera
lífið sem þægilegast. Einangrun
eylandsins norður við Dumbshaf
hefur verið svo rækilega rofin að
við liggur að landið sé komið í
þjóðbraut þvera. Allar helstu
nýjungar heimsins berast okkur
með hraði. Sjálfireru íslendingar
á ferð og flugi um víða veröld og
snúa rnargir hverjir heim ríkir af
fróðleik um líf og störf fjarlægra
þjóða. Af öllu því góða sem þessi
tími hefur gefið okkur til að
auðga ntinningarnar ber ekki síst
að meta það að hann hefur blásið
okkur þann anda í brjóst að fram-
lag okkar til vísinda, lista, íþrótta
og verkmenningar er orðið þekkt
og eftirsótt í mörgum löndurn. í
svo ríkum mæli hefur okkur tekist
að koma því á framfæri hversu
skapandi fámenn þjóð okkar er,
að stórþjóðir eru hættar að leiða
hugann að því að við séum
smáþjóð.
Ég tel mig geta trútt um taiað,
eftir að hafa verið fulltrúi Islands
sem gestur meðal miljónaþjóða
með list og menningarauð mér til
liðs. Frá liðnu ári er þátttaka ís-
lands í menningarkynningu
Norðurlanda í Vesturheimi
minnsverðust á þessu sviði. Þótt
ekki hafi verið hægt að koma á
framfæri nú nema broti af þvísem
við hefðum viljað og talið verð-
ugt var stigið skref sem athygli
vakti og vænta má að sé upphaf
langrarferðartil vegsauka, efrétt
og vel er á málum haldið. Víst er,
að listunnendum vestra og miklu
víðar er nú fullkunnugt um að við
eigum býsna margt og fjölbreyti-
legt í fórum okkar til að sýna og
kynna og þeir hafa látið þá ósk í
ljós að fá nýrra og meira að
heyra.
Gjöful menningartengsl ættu
allar þjóðir að kostgæfa. Ég vík
ekki frá þeirri skoðun, að því
nánari kynni sem þjóðir hafa
hver af annari, þeim mun meira
tillit taka þær hver til annarrar.
Slík tengsl brýna friðarviljann og
skapa skilyrði til að vopnum
fækki.
Hvenær kemur
ár unga
fólksins?
Þjóð okkar hefur einnig vel-
ferðartímumreynstsómarík með-
al þjóða fyrir hve einarðlega hún
bregst við hvenær sem
mannúðar- og mannréttindamál
eru á baugi. Sameinuðu þjóðirn-
ar hafa um skeið hvatt þjóðir til
að sinna sérstaklega ýmsum þeim
máluni sem betur inega fara í
heiminum; ár aukinna kvenrétt-
inda, ár barnsins, ár fatlaðra og
ár aldraðra. Öllum þessuin mál-
um höfum við veitt brautargengi
og einkum lagt okkur fram við að
hlúa sem best að og gera sem
mest til gleði þeim sem á ein-
hvern hátt eru vanmegnugir. Nú
hafa Sameinuðu þjóðirnar tekiö
þá ákvörðun að nýja áriö skuli
helgað bættum íjarskiptum og
samgöngum milli þjóða heims og
er það vel. Enn búa margir við
slíka einangrun að þeir þekkja
ekkert til umheimsins.
En hvenær skyldunt við mega
vænta árs unga íólksins? Á því
leikur enginn vafi að það gæti
orðið öllum til gagns og gleöi að
staldra við oftar en gert er og
leggja sérstaka rækt við æskufólk
sem er á erfiðu skeiði lífsins á
mörkum þess að vera börn og
fulltíða menn. Viö mættum koma
því betur til skila hve óendanlega
hlýtt okkur er til unga fóiksins og
hvernig við viljum veg þess sem
mestan og bestan án þess að vera
sírexandi til að leiða því fyrir
sjónir okkar eigin sannleika oft
ærið gamaldags. Við mættum
reyna að skilja betur unga fólkið,
nýstárleg og skemmtileg uppá-
tæki þess. Þau eru mörg öðruvísi
en við eigum að venjast sem eldri
erum, þótt einu sinni höfum veriö
ung. Eitt af einkennum tímans,
sem svo hratt líður yfir í minning-
ar er að með honum breytist lífs-
afstaðan frá ári til árs með nýjum
uppfinningum og nýjum lífsvenj-
um. Löngum hafa eldri kyn-
slóðirnar fjargviðrast út af yngri
kynslóðum sem ekkert var um að
feta nákvæmlega troðnar slóðir.
Það mætti einnig spyrja hvort það
væri æskilegt. Kynni það ekki að
vera merki um stöðnun og aftur-
för? Unga fólkið þurfum við af
metnaði að virkja með okkur
fyrir framtíðina, gleðjast með því
og sameiginlega vinna bug á tóm-
læti sem víða virðist einkenna
bæði unga fólkið og fullorðna.
Enn skal á það minnst að ekkert
er dapurlegra en að hafa ekki
annað fyrir stafni en að drepa
arinnar að markmiðum frelsis og
menningar í þessu landi, á hvaða
vettvangi sem er. Það merkir
einnig að ekki skuli æðrast og
þaðan af síður örvænta, þó að
eitthvað gefi á bátinn." Ég vil
gera þessi orð forvera rníns að
einkunnarorðuin okkar á nýju
ári.
Setjum
markið hátt
Islenska þjóðin er sífellt að
velja sér framtíð, tilveru. Sú
spurning hlýtur að vera áleitin í
hugum okkar um þessar mundir:
Hvað viljum við íslendingar?
Viljum við komast yfirsem mest,
ná öllu sem hugurinn girnist og
löngunin blæs okkur í brjóst?
Viljum við setja niarkið svo hátt
að engin leið sé að ná því? Eða
viljum við meta hvað okkur er
fært, velja úr þau svið sem við
getum náð árangri á og vinna að
því að nýta möguleika okkar út í
æsar?
Við skulum vera hófsöm, en þó
setja markið hátt.
Á erfiðum tímum gerum við
það hvert öðru best að standa
sarnan. Treysta hvert öðru; leggj-
ast á eitt til sameiginlegrar far-
sældar. Við viljum svo margt, og
við höfum svo ntikið að gefa
hvert öðru að tímabundnir erfið-
leikar breyta engu urn hve gott
það er að búa í þessu landi. Með-
an við eigum okkur þann metnað
að gera okkar besta þá mun vel
farnast. Sé markið sett svo hátt
að við verðum að neyta allra okk
ar krafta þá erum við á réttri leið.
Þá er andinn í þjóðinni glaðvak-
andi í bjartsýnni önn daganna.
Því skal ekki gleymt að í tírri
anna rás höfum við nokkurt
vald yfir hvernig minningarnar
um okkur verða.
Gleðilegt ár!
(Fyrirsagnir eru blaðsins.)