Þjóðviljinn - 04.01.1983, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 04.01.1983, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 4. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA £ Góðan dag, góðir íslendingar. Ég óska öllum landsmönnum gleðilegs árs. Þegar nýtt ár geng- ur nú í garð býr mér engin ósk dýpra í hjarta en að okkur íslend- ingum takist með samstöðu os sameiginlegu átaki að vinna bug á örðugleikum, sem að steðja - að árið færi okkur trú á bjarta daga þar sem friður og samlyndi sitji i öndvegi. Hvert fer tíminn? Það var eitt sinn fyrir allmörg- um árum að eldri maður, sem hafði yndi af því að spjalla við börn og reyna ályktunarhæfni þeirra, spurði ungan sam- ferðarmann sinn: „Hvert fer tím- inn?“ Sveinninn ungi hugsaði sig um dágóða stund, svaraði síðan: „Hann fer í minningarnar". „En hvert fara þá minningarnar?“ spurði maðurinn. Eftir nokkur heilabrot svaraði sveinninn: „Þær fara í mannkynssöguna". Þetta þótti lífsreyndum manni gott svar og sagði börnum sínum, sem síð- an hafa sagt það sínum börnum. Á fyrsta degi nýs árs hugleiðum við venju fremur tímann, hvernig hann hefur liðið og hvað hann kunni að bera í skauti sínu í framtíð: þessi óstöðvandi tími sem er eins og fugl sem aldrei tyllir sér niður eitt andartak held- ur er horfinn út í bláinn fyrr en varir og orðinn að fortið. Hann er sameign okkar allra á jörðunni, óslitin keðja sem tengir alla at- burði lífsins. í mynd reynslu og Ávarp forseta íslands, Vigdísar Finnboga■ dóttur, á ný- ársdag 1983 tímann, láta hann hverfa út í buskann í gleymskunnar dá. En til bóta þarf sjálfsaga og það ekki aðeins æskunnar. Eigi fullorðið fólk að miöla æskunni af ríki- dæmi reynslu sinnar þarf það einnig að temja sér aga og síðast en ekki síst að rækta með sér kær- leika. Ekki skal æðrast Fyrir og um þessi áramót hefur mönnum orðið einkar tíðrætt um mikinn vanda þjóðarbúsins og erfið úrlausnarefni. Þegar litið er til minninganna sem er saga þessa lands og þessarar þjóðar hefur svo ótal oft verið svart á álinn — svartara en nú er. Dr. Kristján Eldjárn, dyggur vinur okkar allra, sem við hugs- um til með miklum söknuði, lét svo um mælt í áramótaræðu sinni árið 1980 er hann skildi við emb- ætti: „Kjörorð Jóns Sigurðssonar var Eigi vt'kja, og getur þýtt margt, meðal annars að aldrei megi láta undan síga í sókn þjóð- „Á erfiðum hvert öðru tímum best að gerum við það standa saman” minninga er hann lærifaðir okkar sem heldur okkur sístarfandi við að móta okkur og gera okkur samtíðina skiljanlega. Þvíer jafn- an vert að spyrja hvernig við fáum best gert tímann að minn- ingum sem eru þess virði að þeim sé haldið til haga. Það er hollt að reyna að átta sig á því hvort þær leiðir sem farnar hafa verið séu hinar einu réttu og hvort ekki sé unnt að velja betri leiðir eða ryðja enn fleiri. Þjóð meðal þjóða Hér á Bessastöðum leita minn- ingar um liðinn tíma einatt á hug- ann. Staðurinn er svo nátengdur sögunni um afkomu íslensku þjóðarinnar. í raun og veru greina minningar Bessastaða skýrast sögustaða okkar frá því hvaða leið kynslóðirnar hafa gengið síðan norrænir menn höfðu valið sér íslenskt þjóðerni og fest rætur í landinu. Rismikið blómaskeið þjóðarinnar á miðöldum tengist Bessastöðum, þegar staðurinn var í eigu Snorra Sturlusonar, því næst daprar aldir örbirgðar, doða og sinnuleysis, þegar þjóðin hafði gefið líf sitt og vinnuþrek erlendu konungsvaldi. Enn eru Bessastaðir sögustaður- inn mikli þegar íslensk þjóð rumskar eftir langan svefn og vaknar til dáða með frelsishug- sjón að leiðarljósi. Með hlýju og stolti hugsum við til þeirra æsku- manna sem hér gengu um dyr í gömlu Bessastaðastofu eins og hún enn stendur, Latínuskólan- um gamla, í byrjum 19. aldar og síðar urðu ritsniílingar, stórskáld og þjóðmálafrömuðir. Þegar þeir stofna Fjölni á Kaupmannahafnarárum sínum og senda heirn til íslands er það meginmarkmið þessa „árs-rits handa íslendingum" „að vekja andann með þjóðinni" eins og þeir komust að orði. Þeirra tímar, tímar Jóns Sigurðssonar og þeirra ótalmörgu sem hver fram af öðrum áratug eftir áratug unnu að því frelsi þjóðarinnar sem við njótum nú hafa vissulega orð- ið að minningum sem aldrei firn- ast. Þegar svo loks að því kom að langþráð lýðveldi fullfrjálsra ís- lendinga var endurreist höfðu Bessastaðir verið færðir þjóðinni að gjöf - til eignar og ábúðar; tíminn og sagan gátu haldið þar áfram að spinna minningar allra þeirra sem að garði ber um þjóð sem með fullri reisn er þjóð með- al þjóða. Skapandi þjóð Þegar sá dagur nálgast á kom- andi sumri að sólargangur verði lengstur kemst íslenska lýðveldið á fertugasta aldursárið. Á þess- um stutta tíma þjóðarævinnar hefur meira áunnist en bjartsýn- ustu menn mun hafa órað fyrir. Líf fólksins í landinu hefúr tekið miklum - nær algjörum stakka- skiptum. Leiðin hefur legið frá fábrotnu líferni, aðhaldi ognýtni, til ótrúlegrar velmegunar þar sern lítt hefur verið til sparað - kann- ski stundum of lítið - til að gera lífið sem þægilegast. Einangrun eylandsins norður við Dumbshaf hefur verið svo rækilega rofin að við liggur að landið sé komið í þjóðbraut þvera. Allar helstu nýjungar heimsins berast okkur með hraði. Sjálfireru íslendingar á ferð og flugi um víða veröld og snúa rnargir hverjir heim ríkir af fróðleik um líf og störf fjarlægra þjóða. Af öllu því góða sem þessi tími hefur gefið okkur til að auðga ntinningarnar ber ekki síst að meta það að hann hefur blásið okkur þann anda í brjóst að fram- lag okkar til vísinda, lista, íþrótta og verkmenningar er orðið þekkt og eftirsótt í mörgum löndurn. í svo ríkum mæli hefur okkur tekist að koma því á framfæri hversu skapandi fámenn þjóð okkar er, að stórþjóðir eru hættar að leiða hugann að því að við séum smáþjóð. Ég tel mig geta trútt um taiað, eftir að hafa verið fulltrúi Islands sem gestur meðal miljónaþjóða með list og menningarauð mér til liðs. Frá liðnu ári er þátttaka ís- lands í menningarkynningu Norðurlanda í Vesturheimi minnsverðust á þessu sviði. Þótt ekki hafi verið hægt að koma á framfæri nú nema broti af þvísem við hefðum viljað og talið verð- ugt var stigið skref sem athygli vakti og vænta má að sé upphaf langrarferðartil vegsauka, efrétt og vel er á málum haldið. Víst er, að listunnendum vestra og miklu víðar er nú fullkunnugt um að við eigum býsna margt og fjölbreyti- legt í fórum okkar til að sýna og kynna og þeir hafa látið þá ósk í ljós að fá nýrra og meira að heyra. Gjöful menningartengsl ættu allar þjóðir að kostgæfa. Ég vík ekki frá þeirri skoðun, að því nánari kynni sem þjóðir hafa hver af annari, þeim mun meira tillit taka þær hver til annarrar. Slík tengsl brýna friðarviljann og skapa skilyrði til að vopnum fækki. Hvenær kemur ár unga fólksins? Þjóð okkar hefur einnig vel- ferðartímumreynstsómarík með- al þjóða fyrir hve einarðlega hún bregst við hvenær sem mannúðar- og mannréttindamál eru á baugi. Sameinuðu þjóðirn- ar hafa um skeið hvatt þjóðir til að sinna sérstaklega ýmsum þeim máluni sem betur inega fara í heiminum; ár aukinna kvenrétt- inda, ár barnsins, ár fatlaðra og ár aldraðra. Öllum þessuin mál- um höfum við veitt brautargengi og einkum lagt okkur fram við að hlúa sem best að og gera sem mest til gleði þeim sem á ein- hvern hátt eru vanmegnugir. Nú hafa Sameinuðu þjóðirnar tekiö þá ákvörðun að nýja áriö skuli helgað bættum íjarskiptum og samgöngum milli þjóða heims og er það vel. Enn búa margir við slíka einangrun að þeir þekkja ekkert til umheimsins. En hvenær skyldunt við mega vænta árs unga íólksins? Á því leikur enginn vafi að það gæti orðið öllum til gagns og gleöi að staldra við oftar en gert er og leggja sérstaka rækt við æskufólk sem er á erfiðu skeiði lífsins á mörkum þess að vera börn og fulltíða menn. Viö mættum koma því betur til skila hve óendanlega hlýtt okkur er til unga fóiksins og hvernig við viljum veg þess sem mestan og bestan án þess að vera sírexandi til að leiða því fyrir sjónir okkar eigin sannleika oft ærið gamaldags. Við mættum reyna að skilja betur unga fólkið, nýstárleg og skemmtileg uppá- tæki þess. Þau eru mörg öðruvísi en við eigum að venjast sem eldri erum, þótt einu sinni höfum veriö ung. Eitt af einkennum tímans, sem svo hratt líður yfir í minning- ar er að með honum breytist lífs- afstaðan frá ári til árs með nýjum uppfinningum og nýjum lífsvenj- um. Löngum hafa eldri kyn- slóðirnar fjargviðrast út af yngri kynslóðum sem ekkert var um að feta nákvæmlega troðnar slóðir. Það mætti einnig spyrja hvort það væri æskilegt. Kynni það ekki að vera merki um stöðnun og aftur- för? Unga fólkið þurfum við af metnaði að virkja með okkur fyrir framtíðina, gleðjast með því og sameiginlega vinna bug á tóm- læti sem víða virðist einkenna bæði unga fólkið og fullorðna. Enn skal á það minnst að ekkert er dapurlegra en að hafa ekki annað fyrir stafni en að drepa arinnar að markmiðum frelsis og menningar í þessu landi, á hvaða vettvangi sem er. Það merkir einnig að ekki skuli æðrast og þaðan af síður örvænta, þó að eitthvað gefi á bátinn." Ég vil gera þessi orð forvera rníns að einkunnarorðuin okkar á nýju ári. Setjum markið hátt Islenska þjóðin er sífellt að velja sér framtíð, tilveru. Sú spurning hlýtur að vera áleitin í hugum okkar um þessar mundir: Hvað viljum við íslendingar? Viljum við komast yfirsem mest, ná öllu sem hugurinn girnist og löngunin blæs okkur í brjóst? Viljum við setja niarkið svo hátt að engin leið sé að ná því? Eða viljum við meta hvað okkur er fært, velja úr þau svið sem við getum náð árangri á og vinna að því að nýta möguleika okkar út í æsar? Við skulum vera hófsöm, en þó setja markið hátt. Á erfiðum tímum gerum við það hvert öðru best að standa sarnan. Treysta hvert öðru; leggj- ast á eitt til sameiginlegrar far- sældar. Við viljum svo margt, og við höfum svo ntikið að gefa hvert öðru að tímabundnir erfið- leikar breyta engu urn hve gott það er að búa í þessu landi. Með- an við eigum okkur þann metnað að gera okkar besta þá mun vel farnast. Sé markið sett svo hátt að við verðum að neyta allra okk ar krafta þá erum við á réttri leið. Þá er andinn í þjóðinni glaðvak- andi í bjartsýnni önn daganna. Því skal ekki gleymt að í tírri anna rás höfum við nokkurt vald yfir hvernig minningarnar um okkur verða. Gleðilegt ár! (Fyrirsagnir eru blaðsins.)

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.