Þjóðviljinn - 04.01.1983, Síða 10
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 4. janúar 1983
Auglýsing frá ríkisskattstjóra um
skilafresti launaskýrslna o.fl.
gagna samkvæmt 92. gr. laga nr.
75/1981 um tekjuskatt og eignar-
skatt.
Samkvæmt lokamálsgrein 93. gr. nefndra
laga hefur skilafrestur eftirtalinna gagna,
sem skila ber á árinu 1983 vegna greiöslna á
árinu 1982, verið ákveðinn sem hér segir:
I. Til og með 24. janúar 1983:
1. Launaframtal ásamt launamiðum.
2. Hlutafjármiðar ásamt samtalnings-
blaði.
3. Stofnsjóðsmiðar ásamt samtaln-
ingsblaði.
4. Bifreiðahlunnindamiðar ásamt
samtalningsblaði.
II. Til og með 21. febrúar 1983:
1. Afurða- og innstæðumiðar á-
samt samtalningsblaði.
2. Sjávarafurðamiðar ásamt
samtalningsblaði.
III. Til og með síðasta skiladegi skatt-
framtala 1983, sbr. 1.-4. mgr. nefndra
laga:
Greiðslumiðar yfir hvers konar greiðslur
fyrir leigu eða afnot af lausafé, fast-
eignum og fasteignaréttindum, sbr. 1.
og 2. tl. C-liðar 7. gr. sömu laga.
(Athygli skal vakin á því að helmingur
greiddrar leigu fyrir íbúðarhúsnæði til
eigin nota vegna tekjuársins er til frá-
dráttar í reit 70 á skattframtali skv. 3. tl.
E-liðar 30. gr. nefndra laga enda séu
upplýsingar gefnar á fullnægjandi hátt á
umræddum greiðslumiðum.)
Reykjavík 1. janúar 1983
Ríkisskattstjóri
Vistheimili
Óskað er eftir vistheimili fyrir 14 ára pilt sem
verður í Hlíðaskóla, deild fyrir hreyfihamlaða
nemendur frá janúar til maí 1983.
Upplýsingar í síma 20970 eða 26260
(Hafdís).
A
Laust starf
Starf skráningarfulltrúa hjá
Kópavogskaupstað er laust
til umsóknar. Starfssvið er m.a.:
Útreikningur fasteignastærða eftir teikning-
um, fasteignaskráning og lóðaskráning
ásamt álagningu fasteignagjalda. Umsókn-
um skal skilað til byggingafulltrúans í Kópa-
vogi Fannborg 2 fyrir 15. janúar n.k. sem
einnig veitir upplýsingar um starfið.
Bróðir okkar
Sakarías Daníelsson
frá Bjargshóli lést 30. desember. Jarðaförin fer fram frá
Fossvogskapellu föstudaginn 7. janúar kl. 10.30.
Systkini hins iátna.
Móðir okkar
Guðríður Sigurbjörnsdóttir
er látin
Baldur og Kjartan Helgasynir
Útför móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu
Guðrúnar Olgu Benediktsdóttur
verður gerð frá Dómkirkjunni, þriðjudaginn 4. janúar
kl. 13:30
Ragnheiður Árnadóttir, Einar Sigurðsson,
Guðrún Olga Einarsdóttir, Sigurður Einarsson,
Ragheiður Svanbjörg Einarsdóttir og
barnabarnabörn.
Goðsögn skrásett
Ingólfur á Hellu,
umhverfi og ævistarf.
Páll Líndal skráði.
Fjölnir 1982.
Æviminningar Ingólfs Jónssonar
á Hellu sverja sig í ætt við fleiri
minningar stjórnmálamanna sem
út hafa komið síðustu áratugi.
Þeim er fyrst og fremst ætlað að
verða óbrotgjarn minnisvarði um
stjórnmálamanninn eða staðfest-
ing á goðsögninni um Ingólf á
Hellu, en ekki nein bersöglismál
eða persónulegt uppgjör. Ævi-
minningar Ingólfs eru því sléttar og
felldar og fremur leiðinlegar af-
lestrar þó að sumt sé fróðlegt
sem í þeim stendur.
Það er einkum tvennt í æviminn-
ingunum sem akkur er að, í fyrsta
lagi eru þær innlegg í héraðssögu
Rangæinga og í öðru lagi gefa þær
skýrari mynd af bændaarmi Sjálf-
stæðisflokksins en við höfum áður
fengið, en Ingólfur var um áratugi
einn helsti leiðtogi hans.
Kaflar bókarinnar um ætt, upp-
runa og uppvöxt Ingólfs í Bjólu-
hverfi eru ekki fyrirferðarmiklir og
er þar vel talað um alla menn.
Fróðlegt er að lesa um hinar miklu
engjar, Safantýrina, og baráttu
bænda við vatnsagann þar.
Svo virðist vera að pólitískar
skoðanir Ingólfs hafi fyrst og
fremst mótast af skrifum Fram-
sóknarmannanna, Tryggva Þór-
hallssonar og Jónasar frá Hriflu, í
Tímann sem hann segist hafa verið
mjög hrifinn af. Seinna fer hann
gagngert norður á Akureyri til að
Grensás-
deild fær
veglega gjöf
Nýlega afhenti Lionsklúbburinn
Njörður Grensásdeild Borgar-
spítalans veglega gjöf sem kemur
til með að bæta starfsaðstöðu
Grensásdeildar all verulega. Hér
er um að ræða viðbótarbúnað við
tækjasamstæðu sem Grensásdeild
fékk að gjöf á liðnu ári, en sú tækja-
samstæða býður uppá tjáningu og
umhverfisstjórnun fyrir mjög
hreyfihamlaða einstaklinga. Við-
bótarbúnaðurinn eykur notagildi
þessarar samstæðu á þann hátt, að
nú er hægt fyrir mjög hreyfihamlað
fólk að stjórna uinhverfi sínu á afar
aðgengilegan hátt. Sérstakur mót-
takari sem er uppistaðan í gjöf
Njarðar. gefur möguleika á að
kveikja samtímis á t.d. eldavél, út-
varpsviðtæki, sjónvarpi og öllunt
þeim búnaði sem knúinn er áfranr
með rafmagni. Ekki þarf meira tii
að koma slíkum hlutum í gang en
blástur í þar tilgerðan hljóðnema
eða fótahreyfing svo eitthvað sé
nefnt. Búnaðurinn er þannig úr
garði gerður að hægt er að stilla
hann á þann hátt að viðkomandi
sjúklingur gegi haft sem best not af
honum.
Þá geta málskertir einstaklingar
haft mikil not af búnaðinum,
myndað orð og setningar sem birt-
ast á sjónvarpsskjá. I gjöf Njarðar
fylgdi einnig stórt leturborð sem
eingöngu er ætlað til notkunar því
tölvukerfi sent fyrir er og umhverf-
isstjórnunartæki nteð 10 stöðvum.
í ávarpi sem Júlíus Sæberg
Ólafsson hélt fyrir hönd Njarðar
við afhendinguna, sagði hann m.a.
að Njörður hefði um árabil staðið
fyrir fjáröflunarleiðum í desemb-
ermánuði og afrakstrinum af þess-
ari fjáröflun hefði verið varið til
kaupa á dýrum tækjum til handa
heilbrigðisþjónustunni í landinu.
Sagði Júiíus að Njörður hefði
styrkt Háls- nef- og eyrnadeild
Borgarspítalans, Blindrafélagið,
Hrafnistu og Grensásdeildina.
Þess má að Iokum geta að nú í
þessum mánuði standa félagar í
Nirði fyrir sölu á jólapappír og sem
fyrr verður hagnaði af þeirri sölu
varið til líknarmála í landinu.
- hól
Ingólfur á Hellu: Leiðtogi bænda-
arms Sjálfstæðisflokksins en
mótaður af Framsóknarmönnum
Guðjón Friðriksson
skrifar um
bækur
kynna sér kaupfélagsrekstur Vil-
hjálms Þórs og verður þar fyrir
miklum áhrifum. Síðar í bókinni
keinur fram að hann hafði ávallt
mætur á þeim Jónasi og Vilhjálmi.
Það er því nánast tilviljun að Ing-
ólfur lendir inn í Sjálfstæðis-
flokknum, en ekki Framsóknar-
flokknum sent hann segist hafa
hallast mjög að á tímabili.
Ingólfur er fulltrúi hinna
þjóðernissinnuðu og íhaldssömu
bændastéttar sem var að brjótast til
sjálfstæðis á fyrri hluta aldarinnar
og varð mikils ráðandi í tveimur
stærstu flokkum landsins og átti
ekki minnstan þátt í samstarfi þess-
ara tvepja flokka, t.d. á árunum
1950-1%6. Bændaflokkurinn, sem
gerði sig gildandi á fjórða áratugn-
um, stóð mitt á milli Sjálfstæðis-
flokksins og Framsóknarflokksins,
og í honum hefði Ingólfur einnig
getað lent. Samvinnumaðurinn
Ingólfur á Hellu var því ekki ónýt-
ur Sjálfstæðisflokknum og á ekki
lítinn þátt í vexti hans um áratuga
skeið.
Verslunarsaga Rangæinga er
rakin í grófum dráttum og ekki
síst uppgangurþorpsins á Hellu, og
er fengur að því. Ingólfur er hinn
harðduglegi og „praktíski" athafn-
amaður, fastur við jörðina og held-
ur fast utan um fylgi sitt. Hann hef-
ur engan áhuga á hugsjónum
verkalýðshreyfingarinnar og
kaupstaðabúa enda er sú barátta
oft í andstöðu við bændur.
Ingólfur trúir á jörðina og fjár-
magnið, og þegar erlent herveldi
tekur landið herskildi á hann ekki
eitt styggðaryrði því til handa. Ef
einhvern tíma hefur hvarflað að
honum efi um réttmæti erlendrar
hersetu á íslandi hefur hann kyrfi-
lega lokað hann niðri í einhverri
sálarskúffunni. Sú skúffa hefur síð-
an frosið föst í kalda stríðinu. Þeg-
ar sjálfstæðismál okkar eftir styrj-
öldina ber á góma á hann ekki ann-
að um þau að segja en gamlar „klisj-
ur.“ Hann segir að Keflavíkur-
samningurinn hafi verið „eðlileg
fyrirgreiðsla við Bandaríkjamenn“
og þá hafi kommúnistar „sýnt sitt
rétta eðli“ og aðrir verið „ginning-
arfífl kommúnista“ o.s.frv.
Marshall-aðstoð Bandaríkja-
manna, sem ruddi m.a. brautina
fyrir komu hersins árið 1951, mærir
hann og prísar. Aftur á móti heldur
hann fast við þá opinberu skýringu
að koma hersins 1951 hafi verið
nauðsynleg vegna Kóreustríðsins
sem þá geisaði hinum megin á
jarðkringlunni.
Sitthvað smálegt fróðlegt er í
bókinni um stjórnarmyndanir.
Það kemur fram að Sveinn Björns-
son forseti bað Vilhjálm Þór, stór-
vin sinn og samfrímúrara, að
mynda meirihlutastjórn árið 1950
sem skipuð væri bæði utanþings-
mönnum og þingmönnum og varð
þetta til þess að herða á viðræðum
milli Sjálfstæðismanna og Fram-
sóknarmanna um stjórnarmyndun
því að þeir vildu ekki utanþings-
stjórn, minnugir reynslunnar frá
1942. Þá eru líka nýjar upplýsingar
um forsetakosningar 1952.
Mikill 1 uti bókarinnar fer í að
rekja framgang þeirra mála sem
Ingólfur beitti sér sérstaklega fyrir,
og eru þeir kaflar heldur þurrir af-
lestrar þó vafalaust séu þeir fróð-
legir og gagnlegir.
Eins og fyrr segir er þessi bók
skrifuð til að staðfesta goðsögnina
um Ingólf á Hellu og eru innskots-
kaflar í henni með •lofsamlegum
ummælum ýmissa samferðar-
manna hans þar sem hann kann
ekki við að lofsyngja sig sjálfur.
Seinna bindið verður svo um
viðreisnarárin. Það er Páll Líndal
sem skrásetur bókina og ferst það
vel úr hendi.
Flensborgarskóli
Öldungadeild
Endanleg innritun í Oldungadeild fer fram í
skólanum 5.-7. janúar kl. 16-18 alla dagana.
Gert er ráö fyrir því aö eftirtaldir námsáfangar
veröi kenndir:
103
103
102
103
103
203
Bókfærsla 203
Danska 203
Efnafræði 103
Enska 203
Jarðfræði 103
Vélritun 202
íslenska 103 og 203
Stærðfræöi 103 og 203
Saga 112 og 122
Athygli skal vakin á því að nemendum er
heimilt að leggja stund á einstakar greinar,
jafnvel aðeins eina grein.
Franska
Hagfræði
Heilbrigðisfræði
Líffræði
Tölvufræði
Þýska
Skólameistari.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORG-
AR DROPLAUGARSTAÐIR HEIMILI ALDRAÐRA
SNORRABRAUT 58.
Oskum að ráða:
Skrifstofumann í 75% starf. Hjúkrunarfræð-
inga á næturvaktir. Sjúkraþjálfa í 70% starf.
Upplýsingar á staðnum eða í síma 25811.