Þjóðviljinn - 25.01.1983, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 25.01.1983, Blaðsíða 12
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 25. janúar 1983 ALÞÝÐU BAN DALAGIÐ Alþýðubandalagið í Neskaupsstað - þorrablót Hið árlega þorrablót Alþýðu- bandalagsins í Neskaupsstað, verð- ur haldið í Egilsbúð laugardaginn 29. janúar og hefst kl. 20.00. Heiðursgestur verður Stefán Jóns- son alþingismaður. Blótsstjóri verður Stefán Þorleifsson. Að afloknu borðhaldi leikur hljómsveit fyrir dansi. Miðasala verður fimmtudaginn 27. janúar frá kl. 18.00 - 21.00 að Egilsbraut Stefán Jónsson Stefán Þorleifsson 11- Hver skuldlaus félagi á rétt á fjór- um miðum. Stjórnin. Alþýðubandalagið á Vestfjörðum Forval 22. - 30. janúar Síðari umferð forvals vegna skipunar framboðslista Alþýðubandalagsins á Vestfjörðum í komandi alþingiskosningum fer fram dagana 22. - 30. janúar. I síðari umferð forvalsins á að velja í þrjú efstu sæti listans úr hópi þeirra sjö einstaklinga, sem í kjöri eru. Kjósandi merkir með viðeigandi tölustaf við nöfn þeirra þriggja, sem hann vill að skipi 1., 2. og 3. sæti framboðslist- ans. Sé merkt við fleiri eða færri en þrjá telst seðill ógildur. Þeir Alþýðubandalagsmenn á Vestfjörðum sem taka vilja þátt íforvalinu geta snúið sér til eftirtalinna kjörstjóra: Indriði Aðalsteinsson, Skjaldfönn, Nauteyrarhreppi N.-ÍS. Ástþór Ágústsson, Múla Nauteyrarhreppi, N-ÍS. Ari Sigurjónsson, Þúfum Reykjafjarðarhreppi, N.-ÍS. Ingibjörg Björnsdóttir, Súðavík. Þuríður Pétursdóttir, Túngötu 17, ísafirði. Kristinn H. Gunnarsson, Vitastíg 21, Bolungarvík. Sveinbjörn Jónsson, kennari Súgandafirði. Magnús Ingólfsson, Vífilsmýrum önundarfirði. Davíð H. Kristjánsson Aðalstræti 39, Þingeyri. Halidór G. Jónsson, Lönghlíð 22, Bfldudal. Lúðvig Th. Helgason, Miðtúni 4, Tálknafirði. Bolli Olafsson, Sigtúni 4, Patreksfirði. Gisella Halldórsdóttir, Hrfshóli, Reykhólasveit. Sigmundur Sigurðsson, Steinadal, Fellshreppi, Strandasýslu. Jón Ólafsson, kennari, Hólmavík. Jóhanna Thorarensen, Gjögri, Árneshreppi, Strandasýslu. Þeir Alþýðubandalagsmenn á Vestfjörðum sem dvelja í Reykjavík eða grennd geta einnig snúið sér til skrifstofu Alþýðubandalagsins að Grettis- götu 3, Reykjavík, og tekið þar þátt í forvalinu. Alþýðubandalagið á Húsavík Árshátíð Árshátíð Alþýðubandalagsins á Húsavík verður haldin laugardaginn 29. janúar n.k. í Félagsheimili Húsavíkur og hefst með borðhaldi kl. 20. Húsið opnað kl. 19.30 Dagskrá: Ávarp, samkoman sett: Freyr Bjarnason. Kvöldverður. Fjqldasöngur. Blandað efni: Sigurður Hallmarsson Helgi og Villi. Dans, hljómsveit Illuga leikur. Veislustjóri: Freyr Bjarnason, fjöldasöngur: Sigurður Hallmarsson. Miðapantanir í sínum 41761 og 41882 kl. 20-22 alla daga Sala aðgöngu- miða frá kl. 17 laugardaginn 29. í Félagsheimilinu. Miðaverð kr. 350. Undirbúningsnefndin. ________________ Alþýðubandalagið í Reykjavík: Konur í ABR Fundur um forvalið verður haldinn í Sóknarsalnum, Freyjugötu 27 miðvikudagskvöldið 26. janúar kl. 20.30. Kvennamiðstöð Alþýðubandaiagið Fjölmiðlahópur. Fjölmiðlahópurinn er aftur tekinn til starfa. Þeir sem vilja vera með hafi samband við: Einar Karl Haraldsson, Tryggva Þór Aðalsteinsson, Vil- borgu Harðardóttur, Þorbjörn Broddason. Næsti fundur verður haldinn miðvikudagskvöldið 26. jan. kl. 20.30, að Grettisgötu 3. Umræðuefni: Rás nr. 2 hjá Ríkisútvarpinu. - Fjölmiðlahópurinn. Akranes - nærsveitir Árshátíð AB á Akranesi verður haldin í Rein laugardaginn 29. janúar næstkomandi og hefst með borðhaldi kl. 20.30. Húsið verður opnað kl. 20. Helgi Seljan verður gestur okkar. Skemmtiatriði: Fjöldasöngur Dans Miðasala og borðapantanir í Rein fimmtudaginn 27. janúar kl. 19.30 til 21, s. 1630. Mætum öll stundvíslega. Skemmtinefndin Árshátíð og þorrablót hjá ABR „Hopp og hí og trallalla", verður eflaust mörgu fólkinu að orði við að lesa þessa auglýsingu. Alþýðubandalagið í Reykajvík ætlar „nebbnilega" að halda árshátíð og þorrablót alveg á næstunni. Blótið er fyrirhugað að halda föstudgainn 4. febrúar - en hvar, það veit nú bara enginn ennþá, því miður (það er að minnsta kostið ekki gefið upp). Þarna verða að sjálfsögðu fjölbreytt og glæsileg skemmtiatriði. Vegna húsrýmis kemst takmarkaður fjöldi gesta á blótið. Því skal því fólki, sem áhuga hefur,bent á að demba sér oná skrifstofuna hið bráðasta og panta sér miða. Eða hella sér í síma 17500. Þetta verður svo allt auglýst nánar í Blaðinu okkar síðar. 75 ára í dag Gréta Björnsson Gréta Björnsson listmálari er 75 ára í dag. Það er ekki löng bæjar- leið milli Laugarness og Lauga- tungu, en þar bjuggu hjónin Gréta listakona og Jón Björnsson málar- ameistari, þegar ég var að alast upp í Laugarnesi. Ég hafði heyrt mikið talað um þessa sænsku, glæsilegu, ljóshærðu listakonu, sem skreytti kirkjur og ræktaði garðinn sinn af álíka eljusemi og smekkvísi. Samt liðu allmörg ár þar til ég hafði upp- burði til að líta inn í Laugatungu, koma í garðinn, sem líktist útlendri paradís með íslenskum gróðri, og í lága húsið, sem var svo þrungið persónuleika og framandi smekk- vísi, að yfir mann þyrmdi í fyrstu. Eftir þessa fyrstu heimsókn var ísinn brotinn! Ég kynntist dætrun- um og tengdasyninum, og síðan lágu leiðir okkar Grétu ö'ft saman. Gréta Björnsson hefur mest fengist við skreytilist undir sterk- um áhrifum frá átthögum sínum. Ég óska Grétu hjartanlega til hamingju með afmælið og vona að þessi kveðja berist henni þar sem hún dvelur í dag, kát og hress með- al fjölskyldu og vina á Akranesi. Gestur Þorgrímsson frá Laugarnesi. Hún kann verk sitt til hlítar og hef- ur til að bera auðmýkt og sam- viskusemi hins sanna listamanns. Prófkjör Sjálfstæðis- flokksins í Norður- landskjördæmi eystra og Suðurlandskjör- dæmi Semiotik og bókmenntir Keld Jörgensen heldur fyrirlestur í húsnæði Alliance Francaise að Laufásvegi 12,2. hæð, í kvöld kl. 20.30. Fyrir- lesturinn, sem haldinn er á ís- lensku, nefnist: Jacques Lac- an - semiotik og bókmenntir - túlkun hans á Freud. Jacques Lacan, sem lést ár- ið 1981, var einn fremsti sál- greinandi Frakka. Hann er einna þekktastur fyrir að hafa sameinað málvísindi og sál- greiningu. Fyrirlesturinn mun einkum fjalla um hvernig hægt er að hagnýta sér túlkun hans á Freud í bókmennta- greiningu. Keld Jörgensen er danskur bókmenntafræðingur. Hann hefur búið hér á landi í eitt og hálft ár. Keld hefur einkum áhuga á þeirri greín bók- menntafræði sem nefnist semiotik. _ ekj,. Þegar blaðið fór í prentun laust eftir miðnætti voru tölur frá próf- kjöri Sjálfstæðisflokksins í Norður- landskjördæmi eystra og Suður- landskjördæmi sem hér segir: í Norðurlandskjördæmi: 1. sæti Lárus Jónsson með 597 at- kvæði. 2. sæti Halldór Blöndal með 641 atkvæði. 3. sæti Björn Dagbjartsson með 396 atkvæði. 4. sæti Júlíus Sólnes með 441 at- kvæði. Suðurlandskjördæmi: 1. sæti Þorsteinn Pálsson 756 at- kvæði. 2. sæti Árni Johnsen 746 atkvæði. 3. sæti Eggert Haukdal 884 at- kvæði. 4. sæti Siggeir Björnsson 513 at- kvæði. Fundur um breytingar á reisilög- gjöfinni í dag, þriðjudaginn 25. janúar, verður haldinn fræðafundur á veg- um Félags áhugamanna um réttar- sögu í Lögbergi, húsi Lagadeildar Háskólans. Hefst fundurinn kl. 20.15 (stundvíslega) í stofu 103. Davíð Þór Björgvinsson sagn- fræðingur mun þar flytja erindi sem hann nefnir: Um breytingar á refsilöggjöf á upplýsingaöld á ís- landi. Á eftir erindi Davíðs Þórs verða almennar umræður og eru félags- menn og aðrir áhugamenn um sagnfræðileg efni, lögfræði og þjóðleg fræði hvattir til að fjöl- menna. J, Bflbeltin hafa bjargað Ux*"" öllum þeim sem heiðruðu mig með gjöfum, skeytum og símtölum á 70 ára afmæli mínu þann 30. desember 1982. Öllu þessu góða fólki sendi ég hjartanlegar þakkar- kveðjur. Lifið heil. Guömundur V. Sigurösson Þórólfsgötu 8, Borgarnesi Herstöðvaandstæðingar Samtök herstöðvaandstæðinga í kvöld kl. 20.30 er þriðji þriðjudagsfundur samtaka herstöðvaandstæð- inga. Garðar Mýrdal heldur erindi um afleiðingar kjarnorkusprenginga og áhrif geislavirkni á mannslíkamann. Fundir þessir eru haldnir í Hótel Heklu á hverjum þriðjudegi. ALÞYÐUBANDALAGIO Umræðufundur Alþýðubandalagið í Kópavogi heldur umræðufund mánudaginn 31. janúar kl. 20.30 í Þinghóli, Hamraborg 11. Fundarefni: Vinstri stjórn, hægri stjórn - núverandi stjórn. Frummælendur eru Ragnar Arn- alds fjármálaráðherra og Óskar Guðmundsson blaðamaður. Alþýðubandalagið í Kópavogi Ragnar Óskar Alþýðubandalagið Suðurlandskjördæmi Forval 22.-27. janúar Síðari umferð forvals Alþýðubandalagsins í Suðurlandskjördæmi vegna skipunar á framboðslista flokksins við komandi alþingiskosningar fer fram 27. janúar nk. Félagsmenn sem staddir eru utan heimabyggðar geta kosið hjá næsta félagsformanni í kjördæminu. í kjöri eru 22 félagar sem tilnefndir voru í fyrri umferð forvalsins. Kjósa á 6 félaga með því að setja tölustafina 1-6 fyrir framan nafn við komandi. Kosning fer fram á Selfossi að Kirkjuvegi 7. í Vestmannaeyjum í Kreml, Hellu að Geitasandi 3, Hveragerði í gamla leikskólanum. Félagar eru hvattir til að taka þátt í forvalinu. Alþýðubandalagið í Reykjavík Félagsvist - þriggja kvöld keppni Spilin verða tekin upp að nýju þriðjudagskvöldið 25. janúar n.k. í Sóknar- salnum, Freyjugötu 27 (gengið inn frá Njarðargötu) og byrjað kl. 20. Gestur kvöldsins í kaffihléi verður Guðrún Helgadóttir alþingismaður og segir fréttir úr pólitíkinni. Efnt er til þriggja kvölda keppni, annan hvern þriðjudag,25. janúar, 8. febrúar og 22. febrúar, og veitt heildarðverðlaun í lokin. Þeir sem ekki komast öll kvöldin geta þó líka komið eitt og eitt skipti, hitt félagana og keppt um sérstök verðlaun kvöldsins.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.