Þjóðviljinn - 01.02.1983, Side 7
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Frá fyrstu formlegu bæjarkeppninni milli Akureyrar og Reykjavíkur í
ísknattleik á Krókseyri árið 1968.
Þannig voru aðstæður á skautasvæðinu þegar byrja átti íslandsmótið.
Krókseyri veturinn 1980.
at> æfa sjálfa iþróttina. Þaö er
alveg ljóst að þegar Reykvik-
ingar verða búnir að hafa vél-
fryst svell iein tvö ár, þá getum
við hætt allri keppni við þá. Við
höfum þá ekkert i þá að segja,
það liggur alveg ljóst fyrir. Þeg-
ar Reykvikingar höfðu sína
skautahöll fyrir nokkrum árum,
þá var árangurinn ekki lengi aö
koma i ljós, þvi fundum við þá
greinilega fyrir. En siðan
hrundi niður hjá þeim eftir að
þeir misstu vélfrysta svellið.
— Hvað kostar aö koma upp
vélfrystu svelli samkvæmt ykk-
ar hugmyndum?
— Það var gerö kostnaðar-
áætlun fyrir einum tveimur ár-
um. Samkvæmt henni kostaöi
þá 180 gamlar miljónir að
byggja upp vélfryst svell 30x60
m. Þar af var vélakostnaðurinn
um helmingur af heildarkostn-
aði. Þetta er vissulega dýr
framkvæmd, en við höfum bara
ekki fengið einn einasta stuðn-
ing til eins né neins.
i þjálfun
til Svíþjóðar
— Þið hafið sent félaga utan
til þjálfunar?
— Já við höfum átt ágætis
samstarf við Svia i þeim efnum.
I fyrra fóru 4 úr Skautafélaginu
utan til Vesterös til þjálfunar og
náðu alveg gifurlegri framför.
Þá kom hingar sænskur þjálfari
og var i 3 mánuði. A þeim tima
komumst við aöeins 6 sinnum á
is. Það segir meira en flest ann-
að um þá aðstöðu sem við búum
við.
— Nú stundið þið ein-
göngu isknattleik. Hvað með að
vekja upp áhuga á skauta-
hlaupi?
— Það höfum við einmitt verið
að ræða um, höfum mikinn hug
á að útbúa hring á tjörninni. Við
keyptum nýlega upp birgðir af
-hlaupaskautum handa ungling-
um, og nú þegar eigum við i röð-
um félagsins tvo mjög efnilega
hlaupara.
— Hafið þið eitthvað getað
keppt i isknattleik i vetur?
- Við fórum suður í fyrravetur og
kepptum á Melavellinum síðan
var haldið sérstakt unglingamót
fyrir 16 ára og yngri hér fyrir
norðan í febrúar. Aðalleikinn
unnum við 13:3. Þar munaði að
mínu mati mestu um, hversu
skautakunnátta strákanna okkar
var miklu meiri en Reykvíking-
anna. Það verður hins vegar ekki
lengi að snúast við þegar þeir
verða búnir að fá vélfryst svell til
æfinga á meðan við eyðum öllum
okkar tíma í að reyna að búa til
svell.
GOODWYEAR
GEFUR 0'RETTA GRIPIÐ
Minni bensín-
eyðsla
Örugg rásfesta í
snjó
Meiri ending
Betra grip í
bleytu og hálku
Goodyear hefur framleitt
hjólbarða síðan árið 1898
og er stærsti fram-
leiðandi og tæknilega
leiðandi á því sviði í
heiminum.
Hjá Goodyear hefur
öryggi ökumanns,
farþega og annarra
vegfarenda ávallt verið í
fyrirrúmi.
Það er því ekkert skrum
þegar sagt er að þú sért
ÖRUGGURÁGOODYEAR.
Tölvustýrð jafnvægisstilling
" í meira en hálfa öld
.
Mikil langdrægni — skýrt tal — sendiorka lOO wött — hristí-
prófuö — varahlufir og fullkomnustu mælitæki til viögeröa og
þjónustu — til afgreiðslu strax.
KRISTINN GUNNARSSON & C0.
Grandagarði 7, Reykjavík
Símar: 26677 og 21811.