Þjóðviljinn - 01.02.1983, Síða 10
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
Rœtt við Stefán Kristjánsson framkvœmdastjóra Bláfjallanefndar og fyrrum skíðakappa
veg ljóst að bæta verður úr brýnni
þörf fyrir nýjar göngubrautir og
koma upp fleiri flóðlýstum braut-
um, en á síðustu árum hefur hlut-
fallsleg fjölgun skíðamanna verið
mest meðal göngufólks.
- En hvað er Bláfjallasvæðið
eiginlega stórt og hvaða möguleika
býður það uppá?
- Eins og málum er fyrir komið í
dag þá er Kóngsgilið fullnýtt. Þar
fyrir sunnan er Suðurgil ónumið að
mestu, en ef stólalyfta verður sett
þar upp eins og við áætlum þá er
það svæði fullnýtt. Að vísu er hægt
að koma þar fyrir minni lyftu fyrir
kennslu.
Fyrir norðan Kóngsgil er Drottn-
ingargil sem Breiðablik fullnýtir nú
með sinni nýju lyftu. Þar fyrir
norðan er Eldborgargil, geysigott
skíðasvæði, þar sem Framarar hafa
komið upp ágætri aðstöðu. Þeir
hafa uppi hugmyndir um að reisa
þar mikla lyftu og fullnýta þá
aðstöðu sem þar er fyrir hendi.
Svæðið þar fyrir norðan er ekki
fullkannað, en það er alveg ljóst að
þar er ágætis skíðaland, sem þyrfti
þá að leggja vegi upp að. Eins og ég
sagði áðan, þá er mikill áhugi fyrir
því að koma upp stökkpalli eða
reyndar tveimur pöllum misstórum
og reyna að vekja upp áhuga á
skíðastökki. Það hafa verið uppi
tvær hugmyndir um staðsetningu
þessara palla, en ekkert verið á-
kveðið í þeim efnum.
Opnunartími
og kostnaður
- Hvenær eru skíðalöndin opin í
Bláfjöllum?
- Svo framarlega að fært sé upp-
eftir, eru lyfturnar í Bláfjöllum
opnar á laugardögum, sunnudög-
um og aðra helgidaga frá kl. 10-18.
Á mánudögum og föstudögum frá
kl. 10.30 til 18 og á þriðjudögum,
miðvikudögum og fimmtudögum
frá kl. 10.30 til 22.00.
Þá er rétt að minna á símsvara
Bláfjallasvæðisins sem gefur allar
upplýsingar um opnunartíma og
færð uppeftir, en símanúmerið er
80111.
- Hvað kostar að fara í lyfturnar?
- Það eru seld kort með 8 miðum
hvert sem kosta 40 krónur og 20
krónur fyrir börn. Ein ferð í hverja
lyftu kostar 1 miða nema tvo miða í
stólalyftu. Á virkum dögum er
einnig hægt að kaupa dagskort sem
kostar 100 kr. og 50 kr. fyrir börn.
Þeir sem skíða á kvöldin geta keypt
sérstakt kvöldkort fyrir hvert
skipti, en það kostar 75 kr. og 35
kr. fyrir börn. Einnig er hægt að
kaupa árskort sem kosta 1500 kr.
og 750 kr. fyrir börn.
Það er rétt að taka það fram, að
miðarnir og kortin gilda í allar lyft-
ur á svæðinu, hvort sem Bláfjalla-
nefndin rekur þær eða eitthvert í-
þróttafélag.
Aðsóknin
margfaldast
- Hver heldur þú að aðsóknin
LYFTA
FRAM
LYFTA4
LYFTA
BREIÐABLIKS
SIOLALYFIA
I Æ
BLÁFJÖLLIN
Það er ekki amalegt útsýnið ofan af hæstu leitum í Bláfjöllunum. Stólalyftan liðast upp hlíðum Kóngsgilsins, og beint framundan sér á
Stóra-Kóngsfell.
Skíðamiðstöðin í Bláfjöllum er hið veglegasta hús, og til mikils öryggis ef veður versnar skyndilega.
hafí verið að Bláfjöllum á síðustu
árum?
- Það er erfitt að geta sér til um
það og finna út nákvæmar tölur.
Það eina sem við höfum í höndun-
um eru seldar lyftuferðir, sem gefa
kannski nokkra mynd af aðsókn-
inni. Árið 1974 voru seldar 117.820
lyftuferðir. 1977 hafði þeim fjölgað
í 314,779 og tveimur árum síðar,
1979 voru seldar lyftuferðir alls
1.197,259 eða rúmlega tífalt fleiri
en fimm árum áður.
Á síðustu árum hefur aðsóknin
aukist enn frekar.
Það segir meira en lítið um
Ný stóla
lyfta
bráðlega
sett upp
í Suðurgili
hversu áhuginn á íþróttinni hefur
stóraukist. Þar fyrir utan eru allir
þeir sem koma í Bláfjöll til að
ganga sér til heilsubótar annað-
hvort á skíðum eða bara á tveimur
jafnfljótum, og það er alveg ljóst
að á síðustu árum hefur orðið stór-
aukning í skíðagöngunni.
Fólk skilur að það
þarf að...
- Hvað með þig sjálfan, ferð þú
ennþá á skíðin?
- Já, ég fer mikið á skíði og öll
mín fjölskylda. Starfs míns vegna
sæki ég bæði í Bláfjöllin og í Hvera-
dali. Það er ekkert efamál að áhugi
á íþróttinni hefur alveg stóraukist.
Ég gæti best trúað að nú væri þeir
færri sem ekki fara á skíði en hinir.
Skýringin? Ég held að hún sé
trimmherferð sem landsmenn hafa
tekið almennt mjög mikinn þátt í.
Fólk skilur, að það þarf nauðsyn-
lega að hreyfa sig, og þá helst úti
við. Hitt held ég að sé ekki síður
skýring á auknum áhuga fyrir
skíðaíþróttinni, að hún er ein
þeirra íþróttagreina, sem allir geta
stundað saman, jafnt ungir sem
aldnir. Þetta er líkt og með sundið,
öll fjölskyldan getur tekið þátt í
þessu.
- Þú ert fyrrum íslandsmeistari í
bruni. Hvað kom til að sú keppnis-
grein lagðist af hérlendis?
- Það er alveg óskaplegt fyrir-
tæki og um leið dýrt að halda út
keppni í bruni. Nú orðið er skylda
að brunbraut sé opin í fjóra daga
fyrir keppni, til æfinga. Þá er einnig
búið að setja mjög ákveðnar örygg-
isreglur um aðbúnað brautarinnar
og um varnargarða umhverfis
hana. Brautir sem uppfylla þessi
skilyrði eru ekki til nema á örfáum
stöðum í heiminum í dag.
Brun var
œvintýramennska
í gamla daga þegar við stóðum í
Hugmyndir
um tvo
stökkpallaá
teikiborðinu
þessu, var þetta meira og minna
hrein ævintýramennska. Það var
ekkert vit í þessu. Við tróðum
brautina þegar við gengum upp
fjallið og brunuðum síðan beinustu
leið niður.
Jú, þetta voru nokkuð misjafn-
lega langar brautir, en ég man þó
eftir að einhverju sinni var ég 2
mín. og 30 sek. niður eina
brautina.
Við leituðum að brautum uppi
um öll fjöll, langt úr alfaraleið. Það
var ekkert verið að hugsa út í hvað
skyldi til bragðs taka, ef eitthvað
brygði útaf keppninni. Nei, þetta
var hrein ævintýramennska, enda
lagðist brunið af. Menn eru heldur
ekkert of spenntir fyrir þessu í dag.
Ingemar Stenmark tók þátt í einni
keppni og ákvað að koma ekki ná-
lægt þessu aftur.
- Þú kepptir í bruni á olympíu-
leikum?
- Jú, það er rétt, í Osló 1952,
það gekk stórslysalaust, ætli ég hafi
ekki verið í miðri röð.
- Nú læturðu þér duga að fara
hægar yfir á gönguskíðunum?
- Já, þegar ég sé að langar
biðraðir eru við lyfturnar þá set ég
gjarnan upp gönguskíðin og tek
einhvern góðan hring.
-lg-
fjölsóttasti útivistarstaður landsins
an veg í Bláfjöll. Um haustið sama
ár var síðan komið fyrir bráða-
birgðaskála fyrir neðan Kóngsgil
og hann stendur þar enn. 1973 var
Iögð raflína þarna uppeftir og reist
spennistöð og árið eftir voru settar
upp tvær 300 m. langar diskalyftur.
1976 var keyptur snjótroðari og
komið fyrir flóðlýsingu en árið eftir
var farið út í meiriháttar fram-
kvæmdir við að bæta veginn og út-
búa bílastæði. 1978 var síðan stóla-
lyftan sett upp sem er um 700 metra
löng og getur flutt 1200 manns á
klukkustund, en lyftan var ekki
fullfrágengin fyrr en árið 1979. Það
ár var byrjað að undirbúa byggingu
skíðamiðstöðvar, aukið við bíla-
stæðum og tvær brekkur til viðbót-
ar flóðlýstar. Þá var einnig útbúin 3
km. löng göngubraut og hún flóð-
Iýst. Á síðustu tveimur árum hefur
aðalkrafturinn verið lagður í gerð
skíðamiðstöðvarinnar sem hefur
miðað mjög vel og verður væntan-
lega fullbúin og tekin í notkun nú í
mars á þessu ári.
Hringvegurinn
Önnur aðalframkvæmdin er í
sambandi við vegamálin en vorið
1981 hófst Vegagerðin handa við
að leggja veg frá Óbrynnishólum
við Krísuvíkurveg í Bláfjöll og
opna þar með hringveg um Blá-
fjallasvæðið. Það sumar var lokið
við '/} vegarins, en í fyrrasumar var
ekkert hreyft við þessum vegi, en
þess í stað farið út í miklar endur-
bætur á veginum frá Sandskeiði.
Hann var hækkaður á mörgum
stöðum og versti farartálminn á
leiðinni, brekkan við Rauðu-
hnjúka, var tekinn af. Þessar fram-
kvæmdir hafa stórbætt aðkomuna
inn á skíðasvæðið. Ég veit ekki
1000fm,
glæsileg
skíðamiðstöð
fullkláruð
ir um skíðasvæðið í Bláfjöllum?
- Bláfjallanefnd hefur látið
vinna áætlun um framtíðarnýtingu
á svæðinu. Búið er að merkja út
lyftustæði fyrir næstu framtíð, en
það er einlægur vilji nefndarinnar
að koma upp annarri stólalyftu í
svonefndu Suðurgili. Sveitarfé-
lögin hafa nú samþykkt að ráðast í
þessar framkvæmdir og það má
telja fullvíst að lyftan verði komin í
gagnið fyrir næstu vertíð. Hún
verður jafnlöng stólalyftunni í
Kóngsgili en líklega eitthvað af-
kastameiri. Skíðasvæðið í Suður-
gili er ekki eins bratt og í Kóngsgili
og því kjörið fyrir þá sem ekki hafa
náð fyllstu leikni í skíðaíþróttinni.
Með því að koma upp stólalyftu í
Suðurgili verður komið á ágætri
tengingu milli skíðasvæðanna, en
þegar er ágætis tenging við svæðið
norðan megin við Kóngsgil, en
Kóngsgil er hugsað sem miðpunkt-
ur svæðisins, og skíðamiðstöðin því
reist þar.
Þá er einnig ljóst, að byggja
verður betur upp Bláfjallaveginn,
og fjölga við bílastæðum. Einnig er
stefnt að því að flóðlýsa fleiri
brekkur og laga þær til. Hins vegar
verður Bláfjallasvæðið aldrei full-
komið skíðasvæði fyrr en búið er
að koma þar upp stökkpöllum, en
þeir eru ofarlega á blaði hjá nefnd-
inni. Brýnast er þó að bæta sem
fyrst við nýjum lyftum og létta á
biðröðum.
Göngubrautir
Þegar rætt er um skíðaaðstöðu í
Bláfjöllum, þá megum við alls ekki
gleyma göngufólkinu, en sjálfsagt
er hvergi að finna eins ákjósan-
legar og fallegar göngubrautir eins
og einmitt í Bláfjöllum. Það er al-
Hringvegur
opnaður
á næstu
árum
Óumdeilanlegaeru Bláfjöllin
orðineittstærsta
útivistarsvæði landsins. Talið
er að um hverja góðviðrishelgi í
góðu skíðafæri komi jafnvel yfir
10þús. íbúar
höfuðborgarsvæðisins í
Bláfjöllin til hollrar útivistar og
skíðaiðkana.
Þrátt fyrir þann sess sem
Bláfjöllin hafa skipað í hugum
skíðamanna á undanförnum
árum, þá er ekki nema rúmur
áratugur frá því að menn fóru
fyrstaðhugaað
landnámií
þessari skíðaparadís
sunnlendinga.
Það var árið 1970, sem
borgarstjórn Reykjavíkur
samþykkti að stefnt skyldi að
því að byggja upp
skíðaaðstöðu í Bláfjöllum.
Víðtækt samstarf tókst fljótlega
við næstu
nágrannasveitarfélög um að
hrinda þessari hugmynd í
framkvæmd.
Stofnaö var til fólksvangs á Bláfj-
allasvæðinu, sem heyrir undir
Náttúruverndarráð, sem síðan setti
á fót sérstaka stjórn yfir fólkvang-
inn, svokallaða Bláfjallanefnd. í
henni eiga sæti 1 fulltrúi hvers
sveitarfélags sem að fólkvanginum
stendur, en þáð eru auk Reykja-
víkurborgar, Kópavogur, Hafnar-
fjörður, Seltjarnarnes, Keflavík og
Selvogshreppur.
Öllum kostnaði við
// framkvæmd-
/// ir í Bláfjöllum
/// er skipt á þessi
/// sveitarfélög í hlutfalli
/// við íbúafjölda þeirra. Fólks
'// vangsstjóri í Bláfjöllum er
/Þorsteinn Hjaltason, sem skíða-
menn þekkja að góðu, en fram-
kvæmdastjóri Bláfjallanefndar er
Stefán Kristjánsson, íþróttafulltrúi
Reykjavíkurborgar, gamalþekktur
skíðakappi og margfaldur fslands-
meistari og olympíuþátttakandi
Til að forvitnast nánar um þró-
unarsögu Bláfjallasvæðisins og
hugmyndir Bláfjallanefndar, um
framtíðarskipulag svæðisins, var
Stefán tekinn tali.
- Ævintýrið hófst ekki fyrir al-
vöru, fyrr en um páskana 1972,
þegar Vegagerðin lagði skröltfær-
hvernig hefði farið í ölíum þessum
snjó í vetur ef ekki hefði verið búið
að laga þennan vegspotta.
- En hvað um framkvæmdir
Stefán Kristjánsson var einn
fremsti skíðamaður landsins
fyrr á tíð. Þessi mynd var tekin
árið 1957, skömmu eftir að hann
hafði tryggt sér sigur í stórsvigi
áíslandsmótinu.
annarra aðila en Bláfjallanefndar á
þessu svæði?
- Það eru þrjú íþróttafélög sem
hafa aðstöðu í Bláfjöllum. Ár-
menningar fluttu þangað bæki-
stöðvar sínar úr Jósepsdal og eru
nú að ljúka við að reisa aðra skíða-
lyftu sína á svæðinu. Skíðadeild
knattspyrnufélagsins Fram hefur
aðstöðu í Eldborgargili norðan
megin við Kóngsgil, og hefur reist
þar ágætis lyftu í skernmtilegu
skíðalandi. Þá hafa Breiðabliks-
menn úr Kópavogi alveg nýverið
tekið í notkun glæsilega lyftu. Að
meðtöldum lyftum Bláfjallanefnd-
ar eru nú í Bláfjöllum 7 vandaðar
lyftur, þar af er stólalyftan lang-
stærst. Einn snjótroðari er til og
annar væntanlegur innan skamms.
Framtíðarskíðamiðstöð fyrir
svæðið sem unnið hefur verið að
undanfarin ár, er nú tilbúin, glæsi-
legt 1000 fermetra húsnæði.
Það er alveg óhætt að segja, að
Bláfjöllin eru nú langfjölsóttasti
útivistarstaður í landinu. Efitt er að
segja til um þann fjölda sem sækir í
fjöllin, en það er einhvers staðar á
bilinu 5—10 þús. manns sem sækja
þangað um hverja helgi sem svæðið
er opið til skíðaíþrótta.
Frekara landnám
- Hvað með framtíðarhugmynd-