Þjóðviljinn - 01.02.1983, Síða 16

Þjóðviljinn - 01.02.1983, Síða 16
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN ÚTIVIST er holl göngur eru góð íþrótt. Gangið með Útivist. Gangiö í Útivist. ÚTIVIST Lækjargata 6 a Reykjavík, s. 14606. Símsvari utan skrifstofutíma. IVETUR Snjóþotur 7 gerðir frá kr. 171,- Barnaskíðasett 460,- Gönguskór barna 516,- Gönguskór fullorðinna 595,- Bakpokar 3 gerðir 133,- Svefnpokar 3 gerðir 522,- Snjóbuxur á börn 478,- Útigallar á börn 600,- Kuldaúlpur barna 520,-' Kuldaúlpur kvenna 896,- Kuldaúlpur karla 788,- Ennfremur margar gerðir af kanadískum og dönskum kulda- skóm á börn og fullorðna. DOMUS RQN/j KAUPFELAG REYKJAVÍKUR 0G NÁGRENNIS Lapplander eins og hann lítur út án yfirbyggingar. Á meðan allur þorri almenn- ings lætur sér nægja að bregða sér á skíði yfir helgar ellegar fjölskyldur og einstaklingar lúta Krfum líkamans með því að •a í lengri eða skemmri göngu- túra, þá eru þeir til sem leggja á sig fjallaferðir sem taka allt frá nokkrum dögum uppí vikur eða mánuði. Þetta eru í mörgum til- vikum menn og konur sem bundist haf samtökum, göngufé- lög af ýmsum stærðum eða áhugamannahópar án skipu- legrar starfsemi. I slíkar ferðir þarf oft farartæki, sem borgar- búar hafa litla þörf fyrir en reyn- Lapplanderjeppinn ast samt bráðnauösynleg, þegar komið er upp í fjöll og fímindi; brekka, sem að sumarlagi er hreint augnayndi, reynist, þegar á hólminn er komið, óyfirstígan- legur farartálmi, eða því sem næst. I slíkar ferðir þarf jeppa, búinn drifi á öllum hjólum, 100 hestöfl og þar yfir með drátt- artaugum og viðlegubúnaði; m.ö.o. öllu því sem til fjallaferða Á síðasta sumri fóm tveir starfsmenn Veltis hf. í kynning- arferð með farartæki sem að mati sérfróðra kemst nær allt, Lapplander Volvo. Og það er út af fyrir sig dálítið athyglisvert, að á meðan fjölmargir bolsótast yfir bifreiðakaupum lands- manna, sem námu yfir 10 þús. bifreiðum á árinu 1982, þá hefur með innflutningi á Lapplander- jeppunum skapast atvinna og iðnaður, sem verið hefur í mik- illi hættu, yfirbyggingar. Hér á ámm áður skriðu strætisvagnar um götur með íslenskar yfir- byggingar, en slíkt hefur smátt og smatt verið að leggjast af. Sjúkrabifreiðar vom með ís- lenskar yfirbyggin( ar og fleiri tegundir bifreiða, . n æ meira hefur verið um það uppá síð- kastið að menn kaupi bifreiðar með öllum búnaði. Veltismenn buðu okkur á Þjóðviljanum að kynnast hinum nýja Lapplander og dreifðu með nokkrum fróðleikspunktum um bílana. Þeir kváðu vera ódýrari en flestar gerðir jeppa, kosta án firbyggingar í kringum 170 úsund, en með henni hækkar verðið um þetta á bilinu 60-150 þús., allt eftir gerð yfirbygging- arinnar, innréttingu o.s.frv. Farið var að flytja bílana inn 1961 og af fyrstu 26 eintökunum em 15 enn í notkun. Veltir seldi um 100 Lapp- lander-jeppa á síðasta ári. Rarik keypti umtalsvert magn, Póstur og sími og ýmis smærri fyrir- tæki, þ.á m. Saga-film. Ekki er meiningin að fara út í að lýsa kostum og göllum Lapp- landersins af þeirri einföldu ástæðu að undirritaðan skortir til þess þekkingu. Þess í stað er ætlunin að kynna nokkuð þá starfsemi samhangandi inn- flutningi á bifreiðum, þ.e. yfir- byggingu þeirra. Yfirbyggingar Við brunuðum uppí Kópavog Unnið við yfirbyggingu á Lapp- lander í bílayfirbyggingum Ragnars Valssonar í Kópavogi. - Ljósm. Atii. og kynntum okkur bflayfirbygg- ingamar hjá Ragnari Valssyni í Kópavogi, en á verkstæðinu hjá honum var allt yfirfullt af Lapp- landerbílum sem voru í vinnslu. Ragnar sagði, að fyrst í stað hefði verið mikið að gera hjá bflasmiðj- um hér innanlands, bæði var byggt yfir strætisvagna og síðan sjúkra- bfla, en nú væru verkefnin á þessu sviði hverfandi. Ragnar kvaðst vera með 12-15 manns í vinnu hjá sér. Það tæki yfirleitt um einn mánuð að gera fokhelt og mjög væri mismunandi hvemig íyrirtæki og einstaklingar létu innrétta bif- reiðar sínar. Með yfirbyggingu og innréttingu væri algengt að kostn- aður væri í kringum 100 þús. krón- ur. Ekki meira um það, myndir Atla ljósmyndara tala sínu máli um atvinnugrein sem lítið hefur verið hampað hér á landi. Kanaríéyjar á þriðjudogum gegnum heimsborgina Amsterdam Kanaríeyjar með viðkomu í Amsterdam. Sláið tvaer flugur í einu höggi; njótið sólarinnar á Kanaríeyjum og kynnist stórborgarlífi, menningar- og listaborginni Amsterdam. Brottför alla þriðjudaga. Verð: Smáhýsi. 4 pers.: 11 dagar/15.599, 18 dagar/16.352, 25 dagar/17.478. íbúðir. 3 pers.: 11 dagar/15.265, 18 dagar/16.352, 25 dagar/17.478. Hótel m/fæði, tveir í herb.: 11 dagar/16.936, 18 dagar/19.693, 25 dagar/22.492. Sérhæfð þjónusta - vingjarnleg þjónusta. FERÐAMIÐSTÖDIN ADALSTRÆTI 9 SÍM128133 11255

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.