Þjóðviljinn - 18.02.1983, Síða 1
DJÚÐVIUINN
í Búsýslunni í dag er
sagt frá verðkönnun í
26 matvöruverslunum
á Reykjanesi.
Flutningskostnaður
veldur þvi m.a. að
munur milli verslana
Reykjavík.
Sjá 6
febrúar 1983
föstudagur
38. tölublað
48. árgangur
Samningarnir við Alusuisse
500 miljón
þurrkaði út
Alusuisse tryggði sér eignarráð
á „skattinnstæðu”, sem að óbreyttu hefði
numið 526 milj. kr. um síðustu áramót.
— En vaxtagreiðslur ríkisins
af innstæðunni voru meira en tvöfaldaðar!
Það eru rétt um 500 miljónir króna, sem skattgreiðslur álversins
í Straumsvík hafa lækkað á árunum 1975 til 1982 vegna ákvæða,
sem sett voru inn í samningana við endurskoðun þeirra árið 1975.
Þessi upphæð er nánast sú sama og nemur hækkuðum greiðslúm
fyrir raforku á sama tíma vegna ákvæða sem samið var um í sömu
samningum. - Það er því ríkissjóður, og þar með íslenskur almenn-
ingur, sem hefur greitt alla þá málamyndahækkun raforku-
verðsins, sem um var samið í þessum síðustu samningum við
Alusuisse þar sem Steingrímur Hermannsson, formaður Fram-
sóknarflokksins var einn helsti samningamaðurinn.
Pær tölur, senr Hjörleifur Gutt-
ormsson, iðnaðarráðhérra nefndi í
þessum efnum á Alþingi í fyrradag
náðu aðeins yfir árin 1975 til 1980,
en nú hefur ríkisendurskoðun
reiknað þetta út fyrir allt tímabilið
til ársloka 1982. Það eru þær niður-
stöður sem hér er vitnað til og hvað
skattgreiðsluna varðar þá er nú í
báðum tilvikum tekið tillit til þeirra
leiðréttinga, sem endurskoðun Co-
opers & Lybrand leiddi til.
í samningunum 1975 var enn-
fremur samið um það, að hin svo-
kallaða „skattainnistæða" skyldi
viðurkennd sem endanleg eign
Alusuisse, þótt lögfræðilegir
ráðgjafar samninganefndarinnar,
innlendir og erlendir bentu á að
samkvæmt eldri samningum væri
þessi innistæða alls ekki eign Alu-
suisse heldur íslenska ríkisins. Að
óbreyttum fyrri samningum hefði
þessi skattainnistæða numið 526
miljónum króna unt síðustu ára-
mót. - Með samningunum 1975 var
íslenska ríkinu hins vegar gert að
greiða langtum hærri vexti af þess-
ari innistæðu en áður hafði verið.
Sjá viötal við Hjörleif Guttorms-
son, iðnaðarráðherra um samning-
ana við Alusuisse árið 1975.
S já 8
1975 — Áhrif þeirra til ársloka 1982:
kr. skattalækkun
raforkuhækkun
Framtíðin, málfundarfélag Mcnntakólans í Reykjavík er 100 ára um þessar mundir. Þessi mynd
var tekin í fyrradag af einu konunum sem gegnt hafa forsetaembætti í þessuni merka telagsskap.
Helga Johnson núverandi forseti spjallar við Ingibjörgu Ýr Fálmadóttur sem var forscti
Framtíðarinnar 1949-50. Ljósni. eik.
„Sköpun nýrra
atvinnutækifæra
gerist ekki af sjálfu
sér, til þess þarfskipu-
lagningu ug markvissa
stefnu, sagði Svavar
Gestsson á
vinnustaðafundi í
Landssrniðjunni í gær.
Miðstjórn
Alþýðubandalagsins
skoðaði nýju flokks-
miðstöðina um síðustu
helgi. Á morgun,
laugardageróskað
eftir sjálfboðaliðum og
ásunnudagverður
húsnæðiðtilsýnis.
Verð á áli og öðrum
mákniim stórhækkandi
Jafnvel þótt
notkunin
vaxi ekki
Verð á málmum eykst nú
með miklum hraða eftir að hafa
komist langt niður í fyrra-
sumar. Til dæmis kostaði ál-
tonnið á London Metal Exc-
hange í júnt í fyrra sem svarar
rúmum 14 þúsund krónum en
kostar núna tæpar 23 þúsundir
- aukningin er um 61%
Silfur hefur hækkað mest í verði
á sama tíma eða um 250% en gull
um rösklega 100%. Kopar hefur
hækkað í verði um 66% og þar næst
kemur ál.
Þessi hækkun á ekki rætur að
rekja til þess að iðnaðurinn hafi
rétt úr kútnum í helstu kaupenda-
löndum og noti nú meira af málm-
um en í fyrra. Að vísu hefur sala
aukist nokkuð, en enn sem komið
er fer það saman yfirleitt að birgðir
Jarðskjálfti í Grímsey í gærdag
Síðdegis í gær urðu íbúðar í Grímsey varir
við allsnarpan jarðskjálfta. Hús nötruðu í
eynni, en skjálftinn gekk fljótt yfir. Hann
mældist nærri 4'/2 stig á Richter. Upptök
skjálftans eru talin skammt NA af Grímsey
eða um 350 km, frá Reykjavík.
aukast og verö hækkar. Menn
braska í vonum um efnahagslega
viðreisn hér og þar. Auk þess sveif-
last verðiö á ýmsum málmum eftir
aðstæðum á hverjum stað. Verð á
gulli og silfri er nokkuð tengt
tíðindum af gangi stíðsins milli
írans og íraks: þegar horfur eru á
að því ljúki mun framboð aukast á
olíu og verðið falla enn - því hafa
olíufurstar nú upp'á síðkastið keypt
allmikið af gulli til að tryggja sig
fyrir skakkaföllum vegna olíuverð-
falls. Orðrómur um að stjórn Pin-
ochets í Chile standi höilum fæti
getur hækkað verðið á kopar. En
kannski ræður það mestu, að
málmar eru um þessar nrundir tald-
ir skárri fjárfesting en margt
annað. - áb. byggði á DN.
Áltonnið hefurhækkað um sextíu prósent í Málmkauphöllinni í London á
sl. átta mánuðum.