Þjóðviljinn - 18.02.1983, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 18.02.1983, Blaðsíða 16
DWÐVIUINN Föstudagur 18. febrúar 1983 Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Ulan þcss tíma er hægt að ná í blaðamenn og aöra starfsmenn blaðsins í þessum sínum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527. umbrot 81285. ljósmyndir 81257. Aðalsími Kvöldsími Helgarsíml afgreiðslu 81663 Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakl öll kvöld. 81333 81348 Stríð Sjálfstæðisflokksins við verðlagsyfirvöld: Herkostnaðurinn lagður á farþega Tillögu um sölu afsláttarfargjalda vísað frá „Fastafarþegar SVR borga nú hærra gjald en þeir heföu gert ef Sjálfstæðisflokkurinn heföi náð sínu fram og hækkað fargjöldin um 50% án þess að fella niður sölu af- sláttarfargjalda“, sagði Sigurjón Pétursson m.a. í borgarstjórn í gær, þar sem tillögu Alþýðubanda- lagsins um að taka upp sölu afslátt- arfargjalda nú þegar 25% hækkun á fargjöldum er komin til fram- kvæmda var vísað frá. Sigurjón sagði að nú væri Sjálfstæðistlokk- urinn að hefna þess í héraði sem hallaðist á alþingi og lýsti hann því yfir að héðan í frá myndi hann grciða atkvæði gegn öllum hækk- unarbciðnum í horgarráði uns sala afsláttarfargjalda yrði tekin upp að nýju. Allir fulltrúar minnihlutans greiddu atkvæöi gegn frávísunartil- lögu Sjálfstæöisflokksins, en í henni segir m.a. að með 25% hækkun fargjalda nú sé ekki náð því markmiði sem sett var í fjár- hagsáætlun, en það var aö hækkun- in 1983 yrði 46,5%. Markús Örn Samkomulag í kjördæma- málinu Fullt samkomulag mun hafa náðst milli formanna stjórnmála- fiokkanna um kjördæmamálið að því er hcimildir Þjóðviljans herma. Samkvæmt þessu mun von á frumvörpum um þaö mál í byrjun næstu viku. Full samstaða mun og innan Al- þýðubandalagsins um þær niður- stöður sem fengist hafa. Antonsson sagði að 25% hækkun þýddi „aðeins" 45% hækkun á heilu ári og þarna munaði því miklu! I iann upplýsti einnig að ef sala afsláttarfargjalda yrði tekin upp að nýju myndi það spara far- þegumlt) miljónir króna í ár.Hall- inn af rekstri SVR yrði þá 45 milj- ónir í stað 35 án sölu afsláttarkorta, en Sjálfstæðisflokkurinn hefði allt- af stefnt að 30 miljón króna halla. Guðrún Agústsdóttir benti á að 25% hækkun væri meiri hækkun en menn hefðu átt að venjast í einu stökki. Hún benti á að 12 krónu fargjaldið hefði gilt í 13daga í janú- armánuði og frá 11. febrúar hefði gjaldið verið 10 krónur. SVR hefði því fengið verulega hækkun og það væri sjálfsögð þjónusta að taka nú upp að nýju sölu afsláttarkortanna. „Eftir25% hækkun standa fargjöld undir 68% af rekstri SVR“, sagði Guðrún. „í fyrra stóðu þau undir 61% en nú, þegar staðan er mun betri, er ekki rætt um annað en að skera niður og skerða þjónustu." Guðrún spurðist fyrir um þær yfirlýsingar borgarstjóra að ferð- um á einstaka leiðum SVR yrði fækkað og upplýsti að stjórn SVR hefur ekki komið sanran frá í des- enrber. Borgarstjóri er erlendis og gat Markús Örn Antonsson ekki Svarað öðru til en því að embættis- menn væru að athuga þessi mál. Sigurjón Pétursson sagðist ekki undrast þessa afstöðu Sjálfstæðis- flokksins, - hans stefna væri að níðast á þeim senr minna mættu sín í þjóðfélaginu. „Pað er liins vegar lítilmannlegt af Sjálfstæðisflokkn- um, þó hann sé í stríði við verðlags- yfirvöld, að láta herkostnaðinn bitna á farþegum SVR“, sagði Sig- urjón. - Á1 Hver þyrla tekur allt að 20 farþega og hreyflarnir eru tveir með fjögurra blaða skrúfu. Mynd - eik. VIIjum sýna hvaö þær geta Boð þessa efnis barst samgöngu- ráðuneytinu skömmu eftir hamfar- irnar á Patreksfirði í síðasta má.n- uði. Ráðuneytið þáði boðið og veitti 300 þús. framlag t.l elds- neytiskaupa á þyrlurnar sem sam- svarar 40 flugtímum. Landhelgis- gæslan, landlæknisembættið, Slysa- varnafélag íslands, Rauða kross- inn og Almannavarnir munu starfa í samráði við frönsku þyrluá- hafnirnar og verða þyrlurnar til reiðu til sjúkra- og neyðarflugs næstu vikurnar. Ennfrenrur hefur verið ákveðið að fara kynningar- og þjálfunarflug um landið og halda björgunar- æfingar sem víðast. Þyrlurnar eru af gerðinni Puma 330 og í eigu landhers Frakka sem á 80 slíkar þyrlur fyrir. Vélarnar eru mjög fullkomnar, búnar ísvarnar- búnaði, flugþol er 4 klukkustundir og auk 3-4 manna áhafnar rúmar hver þyrla um 20 farþega mest. En þetta eru dýr tæki og kostar her þyrla um þrefalt verð Sikorskv þyrlu Landhelgisgæslunnar. ~ *§• „Þessar þyrlur eru fyrst og fremst hér til þjálfunar og upplýs- ingar fyrir stjórnvöld og okkur landsmcnn alla. Við ætlum að reyna að sýna hvcrs fullkominn þyrluiloti í höndum íslendinga cr megnugur. Þetta er einstakt tæki- færi sem okkur hefur boðist ineð þessu rausnarlega boði franskra stjórnvalda og vonandi fá nú flestir svör við spurningum sínum um hagkvæmni þyrlurcksturs á íslandi til hinna ýmsu nota“, sagði Pétur Einarsson hjá Flugmálastjórn, þeg- ar blaðamönnum voru kynntar frönsku þyrlurnar sem komnar eru til landsins. Eins og skýrt var frá í Þjóðviljan- um í gær, lána frönsk stjórnvöld tvær þyrlur sem eru taidar með full- komnustu þyrlum nútímans ásamt áhöfn, endurgjaldslaust til þjálfun- ar og kynningar íslenskum aðilum. Nú er vcrið að vinna að býggingu sjúkrastöðvar SÁÁ við Grafarvog og stórátak framundan í fjársöfnun. Framkvæmd hennar er nýstárleg. Ljósm. Atli. / / Nýstárlegur samningur SAA Frjálst framtak fær flmm miljónir króna til að annast eina umfangsmestu fjársöfnun sem fram hefur farið Samtök áhugafólks um áfengis- vandamálið, SAÁ, hyggjast senn hlcypa af stokkunum einni um- fangsmestu fjársöfnun sem fram hefur farið hér á landi og er stefnt að því að safna 24 miljónum króna til byggingar sjúkrastöðvar sam- takanna við Grafarvog. Hefur fyrirtækinu Frjálsu framtaki verið falið að skipuleggja og stjórna söfn- uninni en hún felst í því að skuldabréf að upphæð 1800 krónum verða boðin til kaups. Samkvæmt heimildum Þjóðvilj- ans liefur verið gerður samningur við Magnús Hreggviðsson í Frjálsu framtaki eins og áður sagði og fær fyrirtæki hans fimrn miljónir króna til ráðstöfunar. Af þeirri upphæð verður tekinn allur kostnaður við söfnunina svo sem gerð auglýsinga o.fl. ^ Bygging sjúkrastöðvar SÁÁ við Grafarvog er nokkuð á veg komin og samkvæmt áætlun á hún að kosta um 32 miljónir króna, fullbú- in. Árangurafbílahappdrætti SÁÁ fyrir jól varð allgóður samkvæmt upplýsingum frá samtökunum en enn vantar þó um 24 miljónir króna til að standa straum af kostnaði við bygginguna. Ætlunin er að senda gjafabréf til nokkurra tuga þús- unda karlmanna og þeim gefinn kostur á að greiða 1800 krónur í fimrn greiðslum, þ.e. 360 krónur í hvert sinn. - v. Kvennaframboð norðan og Ákvörðun tekin um helgina, en ekki eining um afstöðu „Það cina sem rétt er cftir haft er það, að konur frá Kvennafram- boðinu að norðan koma suður á laugardag til að sitja ráðstcfnu Jafnréttisráðs um konur í stjórn- málum og við höfum hug á að ræða framboðsmál við þær,“ sagði Helga Thorberg í samtali í gær vegna fréttar á baksíðu DV um að Kvennaframboðskonur hefðu ák- veðið að bjóða fram sameiginlegan kvennalista í Kcykjavík og á Akur- eyri við komandi þingkosningar. Helga sagði ennfremur, að kon- urnar væru að kanna undirtektir og undirbúa jarðveginn. Þær vildu einnig, að framboðið næði út fyrir Reykjavík og því ætluðu þær að ræða við norðankonurnar. Á- kvörðun hefur hins vegar engin ver- ið tekin í málinu, en niðurstaða ætti að fást unt helgina. „Eg tel framboð til þings ekki heppilegustu leiðina í kvennabar- áttunni þessa stundina," sagði Ingi- björg Sólrún Gísladóttir í gær í samtali við blaðið. „Mín afstaða grundvallast á því að Kvennafr- amboðið hafi ábyrgð og skyldunt að gegna í borgarstjórnarmálum fyrst og fremst og ég tel að við ætt- utn að einbeita okkur að þeim og utanþingsbaráttu. Með því að fara í þingframboð er í raun vertð að stofna stjórnmálaflokk, en ég vil líta á þetta sem hreyfingu. Mér finnst flokksstofnun einfaldlega ekki tímabær núna - við verðum að treysta betur vinnu okkar, en með þessu er ég hreint ekki að útiloka kvennaflokk um aldur og ævi. Mér finnst þetta bara ekki tímabært," sagði Ingibjörg Sólrún að lokum. „Þetta er einmitt tímabært nú," sagði Helga Thorberg hinsvegar. sunnan Hún sagði þessa aðgerð mjög af- ntarkaða í tíma og þarna væri hægt að beita miklum krafti í tiltölulega stuttan tíma. Hún kvað þær konur sem vildu kvennafrainboð vilja þjóðarátak í málefnum kvenna. „Við verðum að halda dampinum uppi. Þetta má ekki koðna allt nið- ur, eins og alltaf hefur gerst þegar áfangar hafa náðst í ntálum kvenna," voru lokaorð Helgu Thorberg. ast

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.