Þjóðviljinn - 18.02.1983, Qupperneq 15
Föstudagur 18. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19
RUV ©
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Gull í
mund. 7.25 Leikfimi.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgun-
orð: Vilborg Schram talar.
9.05 Morgunstund barnanna: „Vefurinn
hennar Karlottu“ eftir E. B. White
Ragnar Þorsteinsson þýddi. Geirlaug
Þorvaldsdóttir byrjar lesturinn.
9.20 Leikfimi. Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir
10.30 „Það er svo margt að minnast á“
Torfi Jónsson sér um þáttinn.
11.00 íslensk kór- og einsöngslög
11.30 Frá Norðurlöndum Umsjónarmað-
ur: Borgþór Kjærnested
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Á frívaktinni Sigrún Sigurð-
ardóttir kynnir óskalög sjómanna.
14.30 „Vegurinn að brúnni“ eftir Stefán
Jónsson Þórhallur Sigurðsson les (5).
15.00 Miðdegistónleikar Enska konsert-
hljómsveitin leikur Concerto grosso í F-
dúr op. 6 nr. 6 eftir Georg Friedrich
Hándel; Trevor Pinnock stj. / Melos-
kvartettinn leikur Strengjakvartett í e-
moll op. 44 nr. 2 eftir Felix Mendels-
sohn.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar
16.20 Útvarpssaga barnanna: „Ráðgátan
rannsökuð“ eftir Töger Birkelandí Sig-
urður Helgason les þýðingu sína (8).
16.40 Litli barnatíminn Stjórnandi: Gréta
Ólafsdóttir (RÚVAK).
17.00 Með á nótunum Létt tónlist og
leiðbeiningar til vegfarenda. Umsjónar-
menn: Ragnheiður Davíðsdóttir og
Tryggvi Jakobsson.
17.30 Nýtt undir nálinni Kristín Björg Þor-
steinsdóttir kynnir nýútkomnar hljóm-
plötur.
19.40 Tilkynningar. Tónleikar.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thor-
oddsen kynnir.
20.40 Kvöldtónleikar a. Forleikur nr. 5 í
D-dúr op. 4 nr. 5 eftir Pietro Antonio
Locatelli. Nýja fílharmoníusveitin í
Lundúnum leikur; Raymond Leppard
stj. b. Óbókonsert í a-moll eftir Johann
Sebastian Bach. Leon Goossens og
hljómsveitin Fflharmonía leika; Walter
Sússkind stj. c. Prelúdía og fúga í g-moll
eftir Dietrich Buxtehude. Lionel Rogg
leikur á orgel. d. Konsert í A-dúr fyrir
tvær fiðlur og hljómveit eftir Antonio
Vivaldi. Susanne Lautenbacher og Ern-
esto Mampaey leika méð Kammersveit
Emils Seilers; Wolfgang Hofmann stj.
e. Sinfónía nr. 3 í D-dúr op. 18 eftir
Johann Christian Bach. Kammersveitin
í Stuttgart leikur; Karl Múnchinger stj.
21.40 Viðtal Vilhjálmur Einarsson ræðir
við Óskar Valdimarsson, Höfn, Horna-
firði.
22.40 Kynlegir kvistir VII. þáttur -
„Kempan“ Ævar R. Kvaran flytur frá
söguþátt um Hallvarð Hallsson bónda á
Horni á Ströndum.
23.05 Kvöldgestir - Þáttur Jónasar Jónas-
sonar.
00.50 Fréttir. 01.00 Veðurfregnir.
01.00 Á næturvaktinni.
03.00 Dagskrárlok.
RUV
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 A döfinni. Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson. Kynnir Birna Hrólfsdóttir.
20.50 Prúðuleikararnir. Gesturíþættinum
er Chris Langham, breskur spaugari.
Þýðandi Þrándur Thoroddsen.
21.15 Kastljós. Þáttur um innlend og er-
lend málefni. Umsjónarmaður: Guðjón
Einarsson og Margrét Heinreksdóttir.
22.20 Hvað er svona merkilegt við það...?
(The $5.20 an Hour Dream) Ný banda-
rísk sjónvarpsmynd. Leikstjóri: Russ
Mayberry. Aðalhlutverk: Linda Lavin-
og Richard Jeackel. Myndin lýsir sókn
einstæðrar móður til jafnréttis við karl-
menn á vinnustað sínum í vélaverk-
smiðju. Þýðandi Ragna Ragnars.
23.55 Dagskrárlok.
fr
Skrítin
pólitík
Hattur eöa húfa?
Norðlendingur skrifar:
Það eru undarieg rassaköst
í sumum framsóknarmönnum
á Norðurlandi vestra nú um
stundir. Þeir vilja með engu
móti una úrslitum prófkjörs á
kjördæmisþingi og hafa hátt
um það að bjóða fram sérlista.
Og liver er svo ástæðan
fyrir slíku framtaki? Jú, hún
er sögð vera sú, að meiri hluti
fékkst ekki fyrir því á kjör-
dæmisþingi að færa Pál á Höll-
ustöðum niður í annað sæti á
framboðslistanum og Stefán
Guömundsson upp í það
fyrsta. Ekki er otsogum af því
sagt, að hún getur stundum
tekið á sig skrítnar myndir,
pólitíkin.
En hverju eru þessir menn
svo nær þótt orðið hefði verið
við kröfum þeirra? Varla er
gerandi ráð fyrir því að þeir
telji annan mann á listanum í
fallhættu. Hverju máli gétur
það þá skipt fyrir þá, ætli þeir
á annað borð að kjósa listann
með Pál í öðru sæti, hvort
hann fer á þing sem fyrsti
maður eða annar? Afstaða
þeirra væri þó skiljanleg, ef
Franskur strákur:
Óskar eftir
bréfavinum
Þjóðviljanum hefur borist
bréf frá ungum frönskum pilti
sem óskar að komast í bréfa-
skipti við Islendinga, stráka
eða stelpur á aldrinum 16-26
ára.
Sá franski heitir Michel
Grasscler og heimilisfang
hans er:
9, grande Rue
LÉ MÉNIL - 'I HILLOT
88160 LE THILLOT
FRANCE
Páll Pétursson
þeir neituðu að styðja listann
með Pál í öruggu sæti. En svo
virðist ekki vera ef marka má
þau ummæli, sem eftir þeim
eru höfð. Dularfullur hugsan-
agangur þessara framsóknar-
manna kemur mér náttúrlega
ekki við, en fáránlegri ástæða
fyrir sérframboði mun vand-
fundin en sú, sem þeir bera
fyrir sig.
Húnvetningar hafa verið
háværastir í þessu andskota-
liði Páls. En þeim tengist svo í
þessari sérkennilegu stjórn-
málabaráttu nokkur söfnuður
geðríkra sértrúarmanna á
Sauðárkróki. Þeir telja það
enganveginn viöunandi að
Stefáni Guðmundssyni sé
tryggt öruggt þingsæti. Þeir
líta svo á, að hann sé í heiminn
borinn til þess að skipa fyrsta
sætið og ekkert annaö. Fylgis-
menn Páls telja hinsvegar að
Stefáni sé fullur sómi sýndur
með því að hann skipi annaö
sætið pg megi hann vel una
þeim hlut. En þatinig viröast
tveir fætur komnir undir þetta
sérframboö og má að vísu
Stefán Guðmundsson
vera að betra sé að hafa tvo
brauðfætur en einn.
Nú hefur Páll á Höllustöð-
um auðvitað sína annmarka
eins og aðrir menn. 1 lann hef-
ur þó í ýntsu reynst athafna-
samur og dugandi þingmaður
og eftir því er yfirleitt tekið.
sem hann segir, þótt um af-
stöðu hans kunni stundum að
vera skiptar skoðanir. Svo vill
jafnan vera um þá, sem ekki
eru ætíð sammála síðasta
ræðumanni. Stefán er allur
heldur þokukenndari. Þeir
fáu, sem geta romsaö upp úr
sér nöfnum allra þingmanna,
vita að hann er þarna innan
veggja. Naumast margir
aörir.
Það hefur kannski verið
með þetta í huga sem einn
góður og gegn Framsóknar-
maður sagöi um daginn: Að
i skipta á Páli og Stefáni er eins
og að taka ofan myndarlegan
hatt og setja í staðinn upp húf-
upottlok.
En svo geta menn náttúr-
lega haft skiptar skoðanir á
höfuðfötum.
bamahorn
r
A
barna-
heimilinnu
Þessi mynd er eftir hana Huld Óskarsdóttur setn er 7 ára
gömul. Þar sjáum við barnaheimilið sem hún var á þegar
hún var bara 5 ára, og líkiega er það Huld sjálf sem er að
róla sér!
lóy'Uflfl. Frfigo.
8. 'f\f3
Barba pabbi
Hún Jórunn er greinilega kunnug Barbapöbbunum, enda
8 ára gömul og ábyggilega búin að skoða mikið af því
ágæta fólki. Við þökkum fyrir teikninguna.