Þjóðviljinn - 23.02.1983, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 23.02.1983, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 23. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5 „Húsaleiga almennt er of lág“, segir í fréttatilkynningu frá stjórn Húseigendafélags Reykjavíkur, en hana skipa (frá vinstri): Sigurður Helgi Guðjónsson, frkvstj., dr. Páll Sigurðsson, Sveinn Jónsson, varaform., Páll S. Pálsson, form., Alfreð Guðmundsson og dr. Pétur Blöndal. Húseigendafélag Reykjavíkur 60 ára: Ibúðaeigendur þurfa að hafa samstöðu „Það eru tiltölulega fáir hús- eigendur í félaginu og það hlýtur að gegna nokkurri furðu þar sem hér er um brýnt hagsmunamál að ræða. í félaginu eru nú um 2.500 manns, en íbúðir í Reykjavík eru 30.000, og 85 prósent þeirra eru í einkaeign“, sagði Sigurður Helgi Guðjónsson m.a. í samtali við blað- ið en hann er framkvæmdastjóri Húseigendafélags Reykjavíkur sem er 60 ára gamalt hinn 23. febrúar. Félagið var stofnað árið 1923 og hét þá Fasteignaeigendafélag Reykjavíkur - nafninu var breytt árið 1951. Framanaf var félagið fyrst og fremst hagsmunafélag leigusala í Reykjavík, en á síðustu áratugum hefur það þróast í þá átt að verða almenn hagsmunasamtök íbúðar- og húseigenda í Reykjavík. Pess misskilnings gætir enn nokk- uð, segja stjórnarmenn Hús- eigendafélagsins, að menn álíti fé- lagið eingöngu vera fyrir þá sem leigja út húsnæði. Það segja stjórn- armenn ekki rétt; félagið gyldi hér e.t.v. sögu sinnar, en nú orðið væri félagið fyrst og fremst hagsmunafé- lag sem hefði afskipti af ýmiss kon- ar löggjöf sem snerti hagsmuni íbúðar- og húsnæðiseigenda, t.d. húsaleigulög, lög um fjölbýlishús, lög um brunatryggingar og skatta- löggjöf. I fréttatilkynningu, sem Hús- eigendafélag Reykjavíkur hefur sent frá sér í tilefni afmælisins, segir m.a.: „Húseigendafélag Reykjavíkur telur brýnt, að eigendur íbúða til eigin nota, nú og í næstu framtíð, þurfi að hafa samstöðu, hvar í flokki sem þeir standa, um andóf gegn því að hið opinbera skerði eigna- og umráðarétt þeirra af húsnæði, dragi úr lánveitingum til húsbyggjenda til eigin afnota, í- þyngi húseigendum með ofsköttun eða skerði á annan hátt aðstöðu þessa fólks, svo að ný húsnæðis- vandræði skapist og leigjendum fjölgi." Húseigendafélagsstjórnarmenn segja einnig í áðurnefndri frétta- tilkynningu að skattheimta stjórn- valda íþyngi injög íbúðar- og hús- eigendum og gera þurfi íbúðar- húsnæði og arð af því skattfrjálst. Þá þurfi að breyta lögum um húsa- leigusamninga þannig að samn- ingsfrelsi einstaklinga verði virt, húsaleiga almennt sé of lág (nú get ég ekki stillt mig um upphrópunar- merkið, herrar mínir!) og gefi miklu lélegri arð af því fjármagni sem bundið er í húsnæði heldur en verðtryggðir innlánsreikningar og spariskírteini ríkissjóðs. Þá segja þeir ennfremur, að nauðsyn beri til að endurskoða grundvöll og út- reikning vísitölu húsnæðiskostn- aðar, sem hafi hækkað miklu minna en aðrar vísitölur - taka þurfi upp aðra vísitölu til viðmiðunar húsaleigu. Þá telur Húseigendafélag Reykjavíkur nauðsynlegt að borg- arstjórn Reykjavíkur bjóði hið allra fyrsta út lögboðnar tryggingar fasteigna í Reykjavík, svo sem mælt er fyrir í lögum. Jafnframt því ættu borgaryfirvöld að stilla ið- gjaldi slíkra trygginga svo í hóf, að ekki safnist upp digrir sjóðir í vörslu borgarinnar, langt umfram eðlilega áhættusjóði, á kostnað húseigenda, en Húseigendafélags- stjórnin telur að svo hafi verið undanfarið. ast. Finnsk listiðnaðarsýning i Norrœnahúsinu ,, Artisaani” Félagar úr samtökum hand- iðnaðarmanna í .Helsinki, Artisa- ani, standa fyrir mikilli list- iðnaðarsýningu sem var opnuð í Norræna húsinu nýlega. Á sýn- ingunni eru leirvörur ýmiss konar, skartgripir úr silfri og bronsi, þrykktir og ofnir textílar, prjóna- vörur og glermunir. Samtökin Artisaani voru stofn- uð 1974 af 13 félögum í Ornamo, félagi finnskra hönnuða. Félags- menn eru nú um 80, hvaðanæva úr Finnlandi. Flestir þeirra eru textíl- hönnuðir og leirlistamenn. Sam- tökin settu á stofn verslun í Hels- inki árið 1975. Þar er á boðstólum fjölbreytt úrval listiðnaðar: leirvörur, skartgripir úr silfri og bronsi, leður- og trévörur, textílar, föt, prjónavörur og glermunir. Stjórn Artisaam velur nýja fé- laga úr hópi umsækjenda, sem verða að hafa atvinnu af listiðn sinni og verða verk þeirra einnig að standast kröfur Artisaani um list- rænt gildi. Sl. ár sóttu 6 listamenn um inngöngu, en aöeins 3 voru valdir út. Sífellt bætast nýir félags- menn í hópinn, en einnig eru alltaf einhverjir sem hætta, t.d. ef þeir hefja störf við hönnun fyrir iðnaðarframleiðslu. Sýningin í Norræna húsinu verð- ur opin daglega kl. 14 - 19 til 1. mars nk. \\\ „Hvort maóistanna bíður frami Vxy í Alþýðubandalaginu eða öðrum /// flokkum borgarastéttarinnar skal * ósagt látið.“ Kreddufesta og hentistefna Það hefur vakið athygli margra að Verkalýðsblaðið, málgagn maóistanna á íslandi kom út í síð- asta sinn í síðustu viku, ef til vill fleiri en vissu'að blaðið væri til eða mundu eftir því, þar sem það hefur ekki sést á götunum í mörg ár. Það, sem þó er athygli verðast í þessu sambandi eru útskýringar maóistanna sjálfra í þessu útfar- artölublaði, á hruni samtaka sinna og örlögum blaðsins. Þar ber auðvitað hæst hinar venju- legu klisjur borgarastéttarinnai um „kreddufestu og trúarlega af- stöðu“. Það er auðvitað hárrétt að „Kommúnistasamtökin" hafa frá uphafi verið fram úr hófi kreddu- föst og flest bendir til að svo hafi einnig verið um fyrirrennara þeirra. Það var þó ekki, eins og borgarastéttin hefur haldið fram og maóistarnir jarma undir núna, vegna fylgni við byltingarsinnaða pólitík, þvert á móti jókst kreddufesta þeirra í sama hlut- falli og byltingarstefnan var gefin upp á bátinn, enda haldast kredd- ufesta og hentistefna ævinlega í hendur því hentistefnumennirnir hafa engar hugsjónir til að berjast fyrir og grípa því til þeirrar kreddu, sem hentar þeim hverju sinni og reyna með „útskýring- um“ að laga raunveruleikann að sínum eigin kreddum. Kreppa maóismans Það er einnig eftirtektarvert að í þessu útfarartölublaði var því sleppt að geta um raunverulega grundvallarorsök fyrir uplausn maóistahreyfingarinnar og ör- lögum blaðsins. Kreppa maóism- ans á sér aðrar og dýpri rætur. Það er auðvitað ekki hægt að fjalla ýtarlega um maóismann hér (í því sambandi verð ég að vísa til Raddar byltingarinnar 1. tbl. 83 og næstu þriggja tölublaða) en hins vegar er rétt að geta nokk- urra atriða varðandi það hvernig maóisminn hefur þróast. í kjölfar baráttunnar gegn krútséffendurskoðunarstefnunni efldist kommúnistahreyfingin verulega og margir nýir komm- únistaflokkar voru myndaðir þar sem þeir gömlu gengu til liðs við hentistefnuna. Mörgum þessara nýju flokka tókst þó ekki til fulls að losa sig úr viðjum hentistefn- unnar vegna áhrifa frá Maó Ze- dong og Kommúnistaflokki Kína. Þessi áhrif komu oftast fram í tilhneigingum til stétta- samvinnustefnu og undansláttar gagnvart endurskoðunarstefn- unni, einnig í formi upplausnar, sundrungar og klofningsstarf- semi. Semsagt, að flestu leyti dæmigerð hentistefnuáhrif. Þeg- ar leið á áttunda áratuginn ágerð- ust þessi einkenni í mörgum flokkum og eftir að þriggja- heima-kenningin kom fram á sjónarsviðið og hafin var alhliða barátta gegn þessum hentistefnu- áhrifum í kommúnistahreyfing- unni þróaðist maóisminn frá því að vera veikleiki í kommúnista- hreyfingunni yfir í að vera sér- stakt afbrigði nútíma endur- skoðunarstefnunnar. Mörgum flokkum hefur tekist að hreinsa sig af maóismanum, sumir klofnuðu en aðrir gerðu maóismann að sinni grundvallar- stefnu. Þar á meðal voru maóist- arnir hér á íslandi. í kjölfar þessa uppgjörs hefurkommúnistahreyf- ingin styrkst mjög í mörgum löndum, en maóistahreyfingin hefur nánast hrunið til grunna. I mörgum löndum hafa helstu ma- óistahópar verið lagðir niður eða klofnað í smáa trúhópa, hvern með sína kredduna til að „fílósóf- era“ í kringum. Það er því ekkert einsdæmi þótt maóistarnir hér á íslandi séu eins og þorskar á þurru landi þeg- ar hafsjó maóismans hefur skolað burt. En hvað verður um þorska, sem skolar upp á land eins og gerst hefur með maóistana? Maður skyldi ætla að þeir köfn- uðu hið snarasta, en þó virðist sem svo að nokkrir hafi lifað af ósköpin og náð næsta þróunar- stigi, semsagt orðið að skriðdýr- um. Það er nefnilega svo að þó að maóistarnir belgi sig út yfir því hvað þeir hafi lært mikið á þess- um áratug maóismans hafa þeir fyrst of fremst lært að skríða fyrir borgarastéttinni. Árásir á BSK Auðvitað notar Verkalýðs- blaðið tækifærið í andarslitrunum til að ráðast á Baráttusamtökin fyrir stofnun Kommúnistaflokks (BSK), sem virðist vera það eina sem sameinar maóistana í seinni tíð. í fyrrnefndu tölublaði skrifar m.a. Ari T. Guðmundsson, æðstiprestur KS baksíðugrein, sem á að heita skilgreining á stöðu svonefndrar vinstri hreyf- ingar í landinu. Það sem þar er skrifað um BSK er svipað öðru, Þorvaldur Þorvalds- son skrifar sent maóistarnir hafa skrifað um Baráttusamtökin. Það byggist alfarið á fordómum borgarastétt- arinnar og er auk þess fullt af rangfærslum og hroka. Þar segir m.a.: BSK neita umræðum til að grynna á mótsögnum milli þeirra og marx-lenínista og nýta sam- eiginlega langa reynslu KS, þó svo fjölmargt í almennri stefnu beggja sé eins. Ekki Rafa BSK krufið mat marx-lenínista á eigin vegferð eða krufið stefnuskrár þeirra...“ í fyrsta lagi verður Ari ekki marx-lenínisti bara af því einu að kalla sig það. í öðru lagi er sann- leikurinn sá að BSK gengust inn á að halda sameiginlegan um- ræðufund í eina skiptið, sem ma- óistarnir hafa lagt slíkt til, og hafa lýst sig reiðubúin til samstarfs um ákveðin mál, ef málefnaleg sam- staða næst. Hins vegar höfnuðu samtökin tilboði maóistanna um að vinna saman að ýtarlegri skil- greiningu á íslenska þjóðfé- laginu. Bæði er vitað mál að þessi tvenn samtök kæmust aldrei að sameiginlegri niðurstöðu og því væri slíkt aðeins tímaeyðsla. Einnig var það skilyrði af hálfu maóistanna að BSK legðu á hill- una baráttuna fyrir nýjum kommúnistaflokki. í þriðja lagi hafa BSK skrifað pólitískar greinar um maóismann almennt og KS sér í lagi í málgagn sitt Rödd byltingarinnar og nú hafið að skrifar ýtarlegan greina- flokk um maóismann. Stefnu- skrár maóistanna eru hins vegar yfirborðsleg og innihaldslaus slitur, sem ekki er miklum pappír eða bleki eyðandi á sérstaklega. Á hinn bóginn gáfu BSK fyrir meira en ári síðan ýtarlega stefnuskrá, sem maóistarnir hafa haft undir höndum síðan. Þeir hafa samt ekki skrifað staf um hana né um stefnu BSK yfirleitt. Allt, sem þeir hafa skrifað um Baráttusamtökin er skætingur, sleggjudómar og rangfærslur. Verðskulduð umbun Árum saman hafa maóistarnir keppst við að skrifta fyrir borg- arastéttinni, skrifað um hve „samtök þeirra voru slæm þegar þau voru byltingarsinnuð og þar af leiðandi þröngsýn og kreddu- föst“, og nú hafa þeir loksins að nokkru marki uppskorið laun erf- iðisins. í „klippt og skorið" Þjóð- viljans í dag (þriðjudag í sl. viku) tekur Óskar Guðmundsson ma- óistana í sinn föðurlega faðm og fer um þá hlýjum viðurkenning- arorðum fyrir að hafa snúið frá villu síns vegar. Hvort maóistanna bíður frami í Alþýðubandalaginu eða öðrum stjórnmálaflokkum borgarastétt- arinnar skal ósagt látið en svo virðist sem þeir þyki þar orðið í húsum hæfir. Hitt er ljóst að maóistahreyf- ingin á enga framtíð fyrir sér, nema ef vera skyldi sem skemmd- arverkahópur. Þorvaldur Þorvaldsson er tré- smiður í Reykjavík. Þorvaldur er einn helsti talsmaður „Baráttu- samtaka fyrir stofnun kommún- istaflokks“, en þau samtök eru vilhöll Albaníukommum Envers Hoxa.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.