Þjóðviljinn - 08.03.1983, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 08.03.1983, Blaðsíða 1
UOmiUINN Hægriflokkur Kristilegra demókrata vann drjúgan sigur í v- þýsku þingkosningunum Sjá 8 mars 1983 þriðjudagur 53. tölublað 48. árgangur Þingsályktunartillaga Alusuisse-manna Framsókn ósamstíga Ekki liggur enn fyrir hvenær til- laga meirihluta atvinnumálanefndar sameinaðs þings, um að taka álmál- ið úr höndum iðnaðarráðherra, kemur til umræðu. Mörg mál bíða afgreiðslu á þeim dögum sem eftir eru af þinginu og óvíst að allir þing- menn flokkanna, sem standa að til- lögunni taki því með gleði, að þetta mál verði fært fram fyrir ýmis af þeirra óskamálum. Vitað er, að ýmsir af þing- mönnum Framsóknar, einkum úr dreifbýli, eru ekkert áfjáðir í að þurfa að taka tillögu af þessu tagi til umræðu. Og ljóst er, að áherslu- munur er verulegur milli manna hjá Framsókn. Þannig stendur Halldór Ás- grímsson að tillögu með Sjálfstæð- ismönnum, um að taka álmálið úr höndum iðnaðarráðherra, Tómas Árnason virðist á sömu buxum. Samtímis stendur formaður flokksins, Steingrímur Hermanns- son, að tillögu í ríkisstjórn, um samninga við Alusuisse, undir for- ystu iðnaðarráðherra. Formaður Framsóknarflokksins stendur þannig að tillögu, sem gengur í kjarnaatriði málsins, þvert á tillögu S j álfstæðismanna. Eftir að tillagan sem Steingrímur stendur að var felld í þingflokki Framsóknar, hefur Steingrímur lýst því yfir, að hann geti einnig stutt tillöguna, sem Halldór Ás- grímsson stendur að. Sá málflutn- ingur er glöggt merki um það, hve tvístígandi Framsóknarmenn eru í málinu. Enda hlýtur það að vera kvíðvænlegt fyrir þingmenn Fram- sóknar af rafhitunarsvæðum, að þurfa að horfa framan í kjósendur sína, hafandi skrifað upp á upp- gjafartillögu íhaldsins. _ eng Samhljóða álit stjórnarskrárnefndar neðri deildar: Breytingin er málamiðlun Frá því 1959 er síðast var fjölgað þingmönnum hefur kjósendum fjölgað um helming, sagði Matthías Bjarnason er hann gerði grein fyrir áliti stjórnarskrárnefndar neðri deildar í gær. Lagði hann áherslu á, að ekki mætti efna til ófriðar á milli landshluta, þéttbýlis og strjálbýlis vegna þessa máls. Benti hann á að opinberum starfsmönnum hefði fjölgað um meir en helming frá því 1959 og að fjölgun þingmanna væri alls ekki mikii ef tekíð væri tillit til þessara atriða. Nefndin var einnig sam- mála um að flytja breytingartil- lögu, þar sem kveðið er á um að kosningarétt eigi þeir sem orðnir eru 18 ára eða eldri þegar kosning fer fram og að lögheimili á íslandi sé einnig skilyrði kosningaréttar, nema undantekningar séu ákveðn- ar í kosningalögum. Mælir stjórnarskrárnefndin öll með sam- þykki stjórnarskrárbreytingar- innar. Þyrlur sönnuðu ótvírætt gildi sitt á sameiginlegri stórslysaæfingu björgunarsveitanna á Suð-vesturhorninu. sem haldinn var fyrir ofan Hafnarfjörð sl. laugardag, en alls tóku um 400 manns þátt í æflngunni. - Mynd - eik, Furðuleg framkoma SUS á ráðstefnu ÆSÍ um atvinnumál ungs fólks í Ölfusborgum: Beittu neitunar valdinu óspart! m. a. gegn ályktun um jafnrétti fatlaðra til atvinnu Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er í dag: Fundur um friðar- hreyfingu kvenna í dag, 8. mars, er alþjóðlegur baráttudagur kvenna. Konur víða um heim hafa helgað daginn bar- áttu fyrir friði og afvopnun og í kvöld gangast Bandalag kvenna, Kvenfélagasamband íslands og Kvenréttindafélag íslands fyrir ráðstefnu að Hallveigarstöðum þar sem kanna á áhuga fyrir því að stofna íslenska friðarhreyfingu kvenna. Á fundinum, sem hefst kl. 20.30 verður kynnt erindi frá Friðarhópi kvenna sem stofnaður var s.l. haust og framsögu hafa þær Elín Pálmadóttir, blaðamaður og Kristín Ástgeirsdóttir, sagn- fræðingur. Reynsla fyrstu þriggja mánaðanna sýnirað það er meira en full þörf fyrir Kvennaatvarf á höfuðborgarsvæðinu. Frá 7. desember leituðu 107 einstaklingar til athvarfsins, 34 konur hafa dvalið þarog31 barn. Hörð pólitísk átök urðu á ráðstefnu Æskulýðssambands ís- lands um atvinnumál ungs fólks, sem haldin var í Ölfusborgum um helgina. Fulltrúar Sambands ungra sjálfstæðismanna beittu neitunar- valdi gegn fjölda tillagna sem full- trúar átta annarra aðildarfélaga ÆSÍ höfðu borið fram eða studdu. Meðal þeirra ályktana sem Samband ungra sjálfstæðismanna beitti neitunarvaldi sínu gegn, en fullt samkomulag annarra æsku- lýðsfélaga var um, fjallaði um jafn- rétti fólks til atvinnu, óháð búsetu, kynferði eða líkamlegri fötlun. Þá urðu rniklar deilur um iðnaðar- mál á ráðstefnunni. Tillögur Sjálf- stæðisflokksins, sem fyrst og fremst voru ákall um aukna er- Ienda stóriðju, áttu ekki nema at- kvæði þeirra einna, en tillaga meirihluta ráðstefnufélaga um al- hliða uppbyggingu almenns iðnaðar, var drepin með neitunar- valdi SUS. Sama gegndi um áskorun á stjórnvöld að tryggja með fullri hörku amk. tvöföldun raforkuverðs til Alversins í Straumsvík. Dæmið snerist hins vegar við varðandi til- lögu SUS um fordæmingu á iðnaðarráðherra og aðgerðir hans í álmálinu. Sú fordæming fékk ein- ungis atkvæði fulltrúa Sjálfstæðis- flokksins á ráðstefnunni. í lok ráðstefnunnar vítti íneiri- hluti þingfulltrúa Sambands ungra sjálfstæðismanna fyrir þá hegðan fulltrúa þess að beita neitunarvaldi gegn flestum þeim tillögum þing- fulltrúa sem til umræðu voru. - v. Sjá 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.