Þjóðviljinn - 08.03.1983, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 8. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN —■ SÍÐA £
Stjórnir félaga allra
stjórnmálaflokka í Önundarfirði:
Frumvarpi til
stjómskipun-
arlaga
Stjórnir félaga aiira stjórnmála-
flokka í Önundarfirði hafa gert á-
lyktun þar sem skorað er á alia
þingmenn að fella það frumvarp
sem iagt hefur verið fram til stjórn-
skipunarlaga.
I ályktuninni, sem er undirrituð
af stjórnum Framsóknarfélags Ön-
firðinga, Alþýðubandalags Ön-
undarfjarðar, Sjálfstæðisfélags
Önundarfjarðar og Alþýðuflokks-
félags Önundarfjarðar, er sam-
þykkt að 1. Hafna framlögðu frum-
varpi til stjómskipunarlaga, sem
nú liggur fyrir alþingi, í núverandi
formi. 2. Mótmæla hugmyndum
um jafnt vægi atkvæða, þar sem
ennfremur ber að líta á jafnt vægi
byggða. 3. Benda á að misvægi at-
kvæða réttlætist m.a. af því að
stefnumörkun og undirbúningur
lagasetningar fer iðulega fram
innan þingsala, þar sem áhrifavald
hafnað
I |
íbúanna í nágrenni Alþingis er
sterkur þáttur. 4. Telja forsendur
fyrir aukinni valddreifingu óundir-
búna og ómótaða og aðeins sett
fram til að reyna að sætta dreifbýl-
isfólk við réttindaskerðingu. 5.
Fallast á breyttar reglur við úthlut-
un þingsæta í kjördæmum, en telja
höfuðatriði að hvert kjördæmi ráði
að fullu kjöri sinna fulltrúa. 6. Vara
við því að frekari samþjöppun
valds á suðvesturhorninu leiði til
óeiningar, sem valda mun óbætan-
legum skaða. 7. Skora á Vest-
firðinga og dreifbýlisfólk víða umi
land að snúast til varnar frekari
réttindaskerðingu með fundarsam-
þykktum og fleiri aðgerðum. 8.
Skora á alla þingmenn að fella
frumvarpið. Stöndum vörð um
þjóðríkið ísland“, segir að lokum í
ályktun stjórna flokksfélaga í Ön-
undarfirði. _ekh
Frá Búnaðarþingi
Búnaðarþingi
Búnaðarþingi var slitið fyrir há-
degi í gær. I þingsiitaræðu sinni gat
þingforseti, Ásgeir Bjarnason þess
m.a., að þingið hefði að þessu sinni
staðið í 15 daga og trúlega verið hið
styttsta um áratuga skeið.
Ásgeir Bjarnason sagði að 70
mál hefðu borist þinginu, 69 af
þeim vísað til nefnda og 64 verið
afgreidd. Þ.ingskjöl voru alls 136.
Haldnir voru 18 þingfundir auk
daglegra nefndarfunda. Unnið var
alla daga, helga jafnt sem virka,
„enda fulltrúar vanir vinnu og
gjörþekkja málefni landbúnaðar-
ins“, sagði Ásgeir.
Þá þakkaði Ásgeir Bjarnason
þingfulltrúum ágæt störf, svo og
öllum öðrum, sem komið hefðu við
sögu þinghaldsins með einum eða
öðrum hætti og sagði þir.gi síðan
slitið.
slltið
Teitur Björnsson bóndi á Brún
færði forseta þakkjr þingfulltrúa
fyrir ágæta verkstjóm. Sagðist
Teitur hafa setið 21 búnaðarþing
og minntist þess ekki að betur hefði
öðru sinni verið unnið á þingunum.
Óskaði hann þess að Búnaðarfé-
lag íslands og Búnaðarþing mættu
jafnan njóta svo góðrar forystu
sem nú.
-mhg
—I li íT>Íniílli ___!■■■■■■■■
Giscard d’Estaing, sem hér er á atkvæðaveiðum, varð fyrir svipuðu áfalli
1977.
Bæjarstjórnarkosningar í Frakklandi:
St j órnarf lokkarnir
hlutu drjúgan skell
Unglingar Kópavogs skipuleggja unglingastarfið:
„Vart verið haldin
þarfari ráðstefna”
París 7 mars. Frá Einari Má
Jónssyni. Vinstri flokkarnir
frönsku hlutu vondan skeli í fyrri
umferð bæjarstjórnarskosninga í
landinu á sunnudag, þótt tapið sé
ekki eins mikið og spáð hafði verið
fyrir nokkrum vikum.
Borgaraflokkarnir fengu samtals
51,5% atkvæða en vinstriflokkarn-
ir 46,5%. í síðustu bæjarstjórnark-
osningum árið 1977 voru hlutföllin
milli fylkinga svipuð, nema hvað
þá höfðu vinstrisinnar betur. Hins-
vegar brá svo undarlega við ári
síðar, 1978, að þá gátu hægriflokk-
arnir unnið sigur í þingkosningum.
Af þessu sprettur m.a. sú kenning,
að stjórnarflokkar hljóti alltaf að
tapa í bæjarstjórnarkosningum á
miðju kjörtímabili þingsins - þá
-virði menn óánægju, vonbrigði og
refsi stjórninni fyrir klaufaskap og
skyssur.
Þótt atkvæðatölur hafi nú snúist
við frá 1977 er ekki þar með sagt að
umskiptin verði eins mikil og þá.
Árið 1977 unnu vinstriflokkarnir
meirihiuta í sextíu borgum sem
hafa þrjátíu þúsundir íbúa eða
meir. En nú hafa þeir ekki tapað
nema 15 stórum borgum.
Reyndar er það svo, að í bæjum
sem eru smærri og hafa minna en
30 þús. íbúa standa vinstriflokk-
arnir sig allvel. En eftir því sem
borgirnar stækka verða kosning-
arnar síður um frammistöðu í
bæjarmálum en eftir því landspóli-
tískari. Til dæmis er tap vinstri-
manna mest í París, þar sem Gull-
istaforinginn Chirac borgarstjóri er
nálægt því að ná stóru slemmunni -
þ.e. vinna meirihluta í öllum 20
hverfum borgarinnar. Hann hefur
þegar unnið 18 í fyrri umferð. Og
Gaston Deterre innanríkisráð-
herra stendur höllum fæti í Mars-
eille.
Foringjar hægriflokkanna hafa
verið fremur hógværir eftir sigur-
inn og ekki heimtað nýjar þing-
kosningar. Um framhaldið ræður
svo miklu, hvort þær spár rætist, að
Frakkar fari að rétta úr kreppuk-
útnum um næstu áramót - en ein
skýringin á tapi stjórnarflokkanna
nú er sú, að traust manna á hæfni
þeirra til að „stjórna kreppunni“
stóráfallalaust, hafi minnkað.
Ekki er gott að sjá af úrslitunum
stöðu einstakra flokka, því að mjög
víða eru boðnir fram sameiginlegir
listar tveggja flokka eða fleiri. Þó
sýnast Sósíalistar standa sig betur
en Kommúnistar, sem halda áfram
að tapa fylgi. Og Gaullistar Chiracs
finna betri hljómgrun en liðsmenn
Giscards. _áb.
„Ráðstefnan tókst í alla staði ein-
staklcga vel og ég held að mér sé
óhætt að segja, að það hafi verið
samdóma álit allra sem hana sóttu,
að þarfari ráðstefna hafi vart verið
haldin,“ sagði Ásdís Skúladóttir er
við spurðum hana um unglinga-
ráðstefnuna, sem haldin var í
Kópavogi si. laugardag.
Eftir að ungíingar Kópavogs
höfðu fundað nær daglangt kusu
þeir 9 manna framhaldsnefnd til að
vinna fastmótaðar tillögur úr þeim
hugmyndum, sem fram komu á
ráðstefnunni. Nefndin mun síðan
halda með tillögurnar á fund
bæjaryfirvalda, og sagðist Ásdís
eiga von á því að félagsmálaráð
Kópavogs ynni að þessu með
krökkunum.
Á ráðstefnunni kom m.a. fram,
að unglingunum finnst Fagra-
brekka ekki ieysa úr þörfinni fyrir
félagsmiðstöðvarnar - önnur yrði
að koma þar samhliða. Þá vilja
krakkarnir fá að taka þátt í upp-
byggingu félagsmiðstöðva, vera
með í ráðum varðandi innréttingar
og hvernig þær yrðu notaðar. Einn-
ig hafa þau áhuga á að nýta skipti-
stöðina í Kópavogi, t.d. með uppá-
komum um helgar, listasýningum,
hljómsveitarupptroðslum og fleiru
í þeim dúr.
Meðal þeirra sem mættu á
ráðstefnuna var Laufey Jakobs-
dóttir, „amma“ reykvískrar
æsku, og sagði frá starfi sínu og
reynslu, en hún starfrækir salerni í
Grjótagötunni á kvöldin og um
helgar og voru unglingarnir í Kópa-
vogi sammála um að afstýra þyrfti
vandræðum af því tagi, sem Laufey
lýsti, og það yrði best gert með
uppbyggjandi starfi. ast
Kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd
Fundur hjá SHA
Kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd er yfirskrift þriðjudagsfundar Her-
stöðvaandstæðinga á Hótel Heklu kl. 20.30 í kvöld.
Keneva Kunz hefur framsögu á fundinum og ræðir um kröfuna um
kjarnorkuvopnaiaus Norðurlönd. Afstöðu stjórnmálaflokka og samtaka
og kynning á kröfunni.
FELAGSFUNDUR
Skipulagsmál verkalýðshreyfingarinnar
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur almennan félagsfund um skipulags-
mál verkalýðshreyfingarinnar þriðjudaginn 8. mars n.k. að Hótel Esju 2. hæð kl.
20:30.
Framsögumenn:
Hannes Þ. Sigurðsson varaform. VR
Ásmundur Stefánsson forsteti ASÍ
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, form. Sóknar.
Fundarstjóri:
Magnús L. Sveinsson.
Félagsmenn eru hvattir til þess að mæta á fundinn og taka þátt í umræðúm um
þetta þýðingarmikla mál.