Þjóðviljinn - 08.03.1983, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 08.03.1983, Blaðsíða 12
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 8. mars 1983 ALÞYÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið í Reykjavík - Félagsfundur Stjórn Alþýðubandalagsins í Reykjavík boðar til félagsfundar, þriðjudag- inn 15. mars kl. 20:30 í Hreyfilshúsinu á horni Grensásvegar og Miklu- brautar. Dagskrá: Ákvörðun framboðslista við komandi alþingiskosningar. Félagar fjölmennið. - Stjórn ABR. Landbúnaðarráðstefna á Akureyri Alþýðubandalagið heldur landbúnaðarráðstefnu á Akureyri, dagana 18. - 20. mars. Þátttakendur eru beðnir að láta vita af sér í síma 17500. ABR - Félagsvist Ný 3ja kvölda keppni Ný 3ja kvölda keppni í félagsvist hefst þriðjudaginn8. marskl. 20.00 íSóknarsaln- um, Freyjugötu 27 (gengið inn frá Njarðargötu). - Auk heildarverðlauna eftir 3 kvöld eru veitt sérstök verðlaun fyrir hvert kvöld og geta þeir sem vilja komið í eitt og eitt skipti. - Adda Bára Sigfúsdóttir borgarfulltrúi kemur í kaffihléi og segir nýj- ustu fréttir úr borgarstjórn. Adda Bára Blaðamennskunámskeið í Keflavík Alþýðubandalagið í Keflavík gengst fyrir blaðamennskunámskeiði fyrri hluta marsmánaðar. Hefst það laugardaginn 12. mars kl. 10 árdegis og seinni hluti þess verður fimmtudaginn 17. mars og hefst kl. 20.00. - Leiðbeinendur verða Vilborg Harðardóttir og Jón Asgeir Sigurðsson. - Þátttökugjald er kr. 200.-. - Námskeiðið er öllum opið en menn eru beðnir um að tilkynna þátttöku sem fyrst því fjöldi þátttakenda verður takmarkaður. - Skráning fer fram hjá Jóhanni Geirdal (s. 1054), Ásgeiri Árnasyni (s. 2349). Ritnefnd og stjórn Alþýðubandalagið í Reykjavík Fulltrúaráðsfundur Alþýðubandalagið í Reykjavík boðar til fulltrúaráðsfundar fimmtudaginn 10. mars kl. 20:30 í Sóknarsalnum við Freyjugötu. Fundarefni: Tillaga kjörnefndar um framboðslista félagsins við komandi alþingiskosningar. Fulltrúaráðsmenn fjölmennið - Stjórn ABR. Alþýðubandalagsfélagar Greiðið félagsgjöldin Stjórn Alþýðubandalagsins í Reykjavík minnir þá sem enn skulda gjald- fallin félagsgjöld á útsenda gíróseðla. Stöndum í skilum með félagsgjöldin og eflum þannig starf félagsins. - Stjórn ABR Kjördæmisráð AB á Vestfjörðum Fundur verður haldinn í kjördæmaráði Alþýðubandalagsins á Vest- fjörðum á ísafirði laugardaginn 12. mars nk. Fundurinn hefst kl. 10 árdegis. Dagskrá: 1. Skipan framboðslista til næstu alþingiskosninga, 2. Kjördæmamálið, 3.'Önnur mál. Stjórnin. Kjördæmisráð AB á Vestfjörðum Fundur verður haldinn í kjördæmaráði Alþýðubandalagsins á Vest- fjörðum á ísafirði laugardaginn 12. mars nk. Fundurinn hefst kl. 10 árdegis. Dagskrá: 1. Skipan framboðslista til næstu alþingiskosninga, 2. Kjördæmamálið, 3. Önnur mál. Stjórnin. Alþýðubandalag Keflavíkur Félagsfundur verður haldinn í Stangveiðifélagshúsinu við Suðurgötu, fimmtudaginn 10. mars kl. 20.30. Rætt verður um fyrirhugaðar kosningar o.fl. Félagar fjölmennið! Stjórnin Alþýðubandalag sunnan heiða Aðalfundur Alþýðubaftdalagsins sunnan heiða á Snæfellsnesi verður haldinn fimmtudaginn 10. mars kl. 21.00 á Vegamótum. Félagar fjöl- mennið! Inntaka nýrra félaga. Stjórnin. Alþýðubandalagið á Akranesi í hvað fara útsvörin? Almennur fundur í Rein, sunnudaginn 13. mars kl. 14. Fundarefni: Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar og stofnana hans fyrir árið 1983. Gestir fundarins: Daníel Árnason, bæjartæknifræðingur, Elís Þór Sig- urðsson, æskulýðsfulltrúi, Guðbjartur Hannesson, skólastjóri, Guðgeir Ingvarsson, félagsmálastjóri. Grímur Bjarndal, skólastjóri, Ingimundur Sigurpálsson, bæjarstjóri og Oddgeir Þór Árnason, garðyrkjustjóri. 1. Framsögu hefur Ingimundur Sigurpálsson, bæjarstjóri. 2. Almennar umræður - gestir fundarins svara fyrirspurnum um starf- semi og fjárhag stofnana bæjarins. Fundarstjóri: Engilbert Guðmundsson, bæjarfulltrúi. Bæjarbúar fjölmennii) í Rein og komið skoðunum ykkar á starfsemi og rekstri bæjarins á framfæri. Kaffi og meðlæti á boðstólum. - Bæjarmáiaráð Alþýðubandalagsins. Jón Pálsson, sundkennari Fæddur 6.6. 1904 — dáinn 212. 1983 Það kom mér óþægilega á óvart að dagar Jóns frænda væru taldir. Hann dó eftir stutta legu á Landa- kotsspítalanum í umfaðmaðri elsku dóttur sinnar, Amalíu Svövu, mánudaginn 21. febrúar. Jón fór í aðgerð vegna sjónarinn- ar, og síðan var talsverð batavon. Hann virtist svo hraustur að sjá, stálminnugur og andlegt atgervi í stakasta lagi. En þegar ég hringdi til hans í desember sl., þá sagðist hann hafa fengið slæma flensu, og skildi hann ekkert í því hvað hún væri lengi að fara úr sér. En við rannsókn kom í ljós að Jón var fár- sjúkur maður. Ég hafði vonast til að hann ætti lengra líf fyrir höndum, en Ritningarorðin standa ætíð fyrir sínu: „Við mennirnir ráðgerum, en það er Guð sem ræður“. Jón byrjaði að kenna sund 16 ára gamall með föður sínum, Páli Er- lingssyni, sundkennara. Þá voru gömlu sundlaugarnar þær einu í bænum. Ég minnist með hlýhug góðu daganna í gömlu laugunum þar sem Jón og Ólafur, bróðir hans, voru allt í öllu. Þeir kenndu bæjarbúum að synda og gættu þess að enginn drukknaði. Einnig geymdu þeir muni fyrir fólk. Þeir voru hlýir og vinalegir, traustvekj- andi persónuleikar og gerðu sér far um að allt gengi snurðulaust. Jón stofnaði sundfélagið Ægi með ungum áhugamönnum, var þjálfari félagsins um árabil, og fyrstu árin var öll vinna gefin. Þeg- ar ég var lítil var félagsandinn mjög góður, einlægni og áhugi hjá sund- fólki Jóns, enda bar það virðingu fyrir þjálfara sínum. Fyrr á árum leituðu sundkennarar af sjálfs- dáðum til Jóns, en hann var aldrei beðinn um að halda sundnámskeið eða sýnikennslu á endurmenntun- arnámskeiðum íþróttakennara, en í starfstíð Jóns voru aðeins teknir erlendir keppnis-sundþjálfarar, þar til að íslenskur sundþjálfari setti smiðshöggið 1979. Þegar Sundhöll Reykjavíkur tók til starfa árið 1937, þá var Jón ráð- inn sundkennari og starfaði þar þangað til hann komst á eftirlaun. Eftir það hélt hann áfram að kenna í sérsundtímum kvenna, og, eins og Jóni var lagið, að púrra upp hálfmannlaus sundfélög. Þannig færðist líf í tuskurnar í kvenna- tímanum og oft glatt á hjalla. Jón kenndi sígilt og gott sundlag fyrir skóla- og heilsuræktarsund. Taka tækni Jóns og öll meðferð var borin fram með sérstakri lagni kunnáttumannsins og rólegri yfir- vegun, ásamt þægilegu viðmóti við ndmendur, enda var Jón sérlega yfirlætislaus maður. Jón fylgdist ætíð vel með sundmennt og breyti- legum sundaðferðum annarra þjóða, enda gafst gott tækifæri þeg- ar hann fór út með sundlið í keppn- isferðir, en í því sambandi sagði Jón við mig: „Ég prófaði allt og reyndi að halda því besta“. Bæði Ólafur heitinn og Jón mátu mest sundþroska Þjóðverja, en þeir blanda ekki saman meðferð í keppnisþjálfun og kennslu í skóla- íþróttum. Aftur á móti höfðu Þjóðverjarnir þann sið að fara í skólana og sjá út bestu efnin, og síðan allt á fullu ef áhugi nemanda var fyrir hendi. Jón var fjölhæfur og hafði skemmtilega greind. Hann gat tal- að blaðlaust hvenær sem var, og var rökvís og gagnorður. Honum var létt um vísnasmíði og elskaði góða tónlist. Hann var mikill nátt- úruskoðandi og sportmaður á sín- um yngri árum og einstakur að meðhöndla og temja dýr. l En árin líða og fyrr en varir er tjíminn útrunninn. Óg þegar ég sá 'að hverju stefndi þá tímdi ég ekki að hann Jón væri að deyja. En Jón var rólegur og sáttur við alla og með því síðasta sem hann sagði við mig voru þessi orð: „Dísa, ég er að fara heim“. Jón átti glæsilega og trygga eigin- konu, Þórunni Sigurðardóttur, ættaða frá Hörgslandi á Síðu, en foreldrar hennar fluttu búferlum að Árnanesi, Höfn Hornafirði. Þórunn lifir mann sinn. Jón og Þórunn eignuðust 3 börn: Páll, elstur, útskr. úr Verslunar- skóla íslands og er afgreiðslu- maður. Sigurður, en hann lést af slys- förum fyrir nokkrum árum, og Amalía Svala, hjúkrunarfræðing- ur, og er hún gift Sigurði Sigurkarls- syni, fjármálastjóra hjá Al- mennum tryggingum. Jón og Þór- unn voru heppin með tengdason- inn, en hann reyndist þeim sem besti sonur. Svala og Sigurður eiga 3 börn, Sindra Karl 12 ára, Þórunni 11 ára, og Önnu Sigríði 4 ára, öðru nafni „körfublómið“ hans afa. Jón var einstakur í viðmóti við börn, nógur tími, enginn asi til að fá frið. Afabörnin hans missa mikið. Á samverustundunum með afa flaut allt í fróðleik og sögum, umhverfið gert forvitnilegt og spurningar og svör á reiðum höndum. Elsku Þórunn og fjölskylda. Ég og fjölskylda mín vottum ykkur finnilega samúð, og ég enda þessar línur með vísunni sem Jón kenndi mér eftir föðurbróður sinn, Þor- stein Erlingsson, skáld. „Þegar sólin nálgast æginn þá er gott að hvíla sig. Vakna ungur einhvern daginn með eilífð glaða í kringum sig“. Dísa Erlings. Búnaðarþing samþykkti Frekari takmarkanir á útflutningi hrossa Fjölmiðlar hafa frá því sagt, að heitar deilur hafi orðið á Bún- aðarþingi um útflutning á kynbóta- brossum. Rétt er að meiningar voru deiidar um málið en umræður fóru þó fram af mikilli hófsemd og ekki gat blaðamaður fundið neina hitalykt. Kom og á daginn að allt féll í ljúfa löð og var málið afgreitt með einróma samþykkt svohljóðandi ályktunar frá búfjárræktarnefnd: „Búnaðarþing lýsir stuðningi sín- um við nefndarálit milliþinganefnd- ar, sem kosin var á Búnaðarþingi 1982, til þess að marka stefnu í út- flutningi á hrossum. Þó telur þingið rétt að gerð verði sú breyting á lögum um útflutning hrossa, að rkki sé leyfilegt að flytja út yngri hross en fjögurra vetra og ekki önnur ótamin hross. Ennfremur verði ákveðið lágmarksverð á út- flutt kynbótahross á hverju ári“. Þorkell Bjarnason, hrossarækt- arráðunautur, sem er andvígur út- flutningi á kynbótahrossum, tjáði sig samþykkan þeirri miðlun, sem í ályktuninni felst, hún væri þó skref í áttina. -mhg Reykjaneskjördæmi Kvennalisti til alþingis Opnir fundir verða haldnir á eftirtöldum stöðum: Fyrir Hafnarfjörð, Garðabæ, Álftanes og Seltjarnarnes, þriðjudaginn 8. mars kl. 20.30 í Iðnaðarmannahúsinu í Hafnarfirði. Fyrir Suðurnes miðvikudaginn 9. mars kl. 20.30 í Safnaðarheimilinu Innri Njarðvík. Konurfjölmennið! Áhugahópur um kvennalista tilalþingis. Leiklistarskóli íslands auglýsir inntöku nýrra nemenda, sem hefja nám haustið 1983. Umsóknareyðublöð ásamt upplýsingum um inntökuna og námið í skólanum liggja frammi á skrifstofu skólans, að Lækjargötu 14b, sími 25020. Skrifstofan er opin kl. 9-15 alla virka daga. Hægt er að fá öll gögn send í pósti ef óskað er. Umsækjendur komi með umsóknir á skrif- stofu skólans, eða sendi þær þangað í ábyrgðarpósti fyrir 20. apríl n.k. Skólastjóri.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.