Þjóðviljinn - 08.03.1983, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 08.03.1983, Qupperneq 10
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN , Þriðjudagur 8. mars 1983 Jóhann Már Maríusson: Athugasemd vegna útreikninga á hagkvæmni Búrfells Hr. ritstjóri, í tilefni frétta sem birtust í blaði yðar s.l. föstudag og aftur nú á þriðjudag, þar sem fullyrt er, að raforkusamningurinn við Alu- suisse nái ekki að greiða upp Búr- fellsmannvirkin á 45 árum, finnst undirrituðum óhjákvæmilegt að gera eftirfarandi athugasemdir, þar sem fréttirnar byggjast m.a. á mjög einhliða 'og villandi meðferð á upplýsingum sem Landsvirkjun hefur látið iðnaðarráðuneytinu í té. Eins og ráða má af útreikningum Háskólans sem Þjóðviljinn vitnar til í umræddum fréttum, fer það m.a. eftir forsendum um ávöxtun- arkröfu hvað telja má að tekjurnar frá ísal séu lengi að greiða upp lána- byrði og rekstrarkostnað svokall- aðra Búrfellsmannvirkja í þess konar samanburði, sem þar er gerður. Þjóðviljinn gerir 6% raun- vaxtakröfu í dollurum sem sam- svarar rúmlega 15% meðalvaxta- kröfu í dollurum miðað við tímabil- ið frá 1969-1982. Ég læt mér fróðari mönnum um vaxtamál eftir að dæma, hversu raunhæf þessi vaxtakrafa er, en bendi á, að Landsvirkjun hefur búið við mun betri meðalvaxtakjör á áðurnefndu tímabili og hafa vextirnir verið nei- kvæðir að meðaltali miðað við vísi- tölu heildsölu í Bandaríkjunum á umræddu tímabili. Um aðrar forsendur er þetta fram að færa. Upplýsingar sem Landsvirkjun hefur látið iðnaðar- ráðuneytinuí té,og stuðst er við í ofannefndum samanburði, eru raunverulegar orkusölutekjur og greiðslur vegna lánabyrði og rekstr- ar vegna Búrfellsmannvirkja á tímabilinu 1969-1982, og einnig lausleg ágiskun Landsvirkjunar um þróun orkuverðs til ísal á árunum fram til 1994 samkvæmt óendur- skoðuðum núverandi samningi. Þá er einskis metin sú mikilvæga viðurkenning sem fékkst með samningsbreytingunni 1975, að breyttar forsendur gefi m.a. tilefni til endurskoðunar rafmagnssamn- ingsins. Vakin skal og athygli á, að Þjóðviljinn byggir einnig afstöðu sína á ágiskunum um tekjur frá ísal næstu tuttugu ár eftir 1994 eða fram til ársins 2014. í núverandi, óendurskoðuðum rafmagnssamn- ingi er gert ráð fyrir orkuverðs- breytingu árið 1994, sem enginn getur reiknað út nú, en Þjóðviljinn byggir einnig á ágiskun um þetta atriði. Þegar hér.bætist, að útlit er fyrir, að sú verðviðmiðun (þ.e. Alcan List Price) sem er grundvöll- ur verðhækkunarákvæðis samn- ingsins verði lögð niður á næstu árum, sést einnig, hversu hæpnir þeir útreikningar eru sem Þjóðvilj- inn byggir frétt sína á. Til viðbótar því sem hér hefur verið rakið, má síðan vekja athygli á því að auk Búrfellsvirkjunar sjálfr- ar eru meðtalin í hinum svokölluðu Búrfellsvirkjum. Þóris- vatnsmiðlun, Búrfellslína 1 og 2, Straumsvíkurlína, spennistöðin við Geitháls og gasaflstöðin í Straumsvík. Þessi mannvirki öll eru ekki orðin til aðeins vegna raf- magnssamningsins við ísal, heldur gegna þau mikilvægu hlutverki í hinu samtengda raforkukerfi til orkuvinnslu og þjónustu fyrir allan almenning í landinu og áframhald- andi uppbyggingar raforkukerfis- ins, sem tvímælalaust ber að taka tillit til, þegar verið er að reikna út hagkvæmni rafmagnssamningsins við ísal. Má þá einnig taka fram, að mannvirki þessi munu endast mörgum áratugum lengur en sem svarar samningstímanum við ísal. Mannvirki þessi voru reist á mjög hagstæðum tíma fyrir olíukrepp- una 1973, og hefur af þessum sök- um orðið mikil eignamyndun hjá Landsvirkjun, sem færa má orku- sölusamningnum við ísal að hluta til tekna. Það er staðreynd sem rakin er vandlega í greinargerð með frum- varpi þingmanna Alþýðubanda- lagsins um leiðréttingu raforku- verðsins til ísal, að Alusuisse hefur með samningsendurskoðuninni ár- ið 1975 viðurkennt, að breyttar að- stæður, sem felast í þróun í ál- iðnaði, orkumálum og efnahags- ástandi í heiminum, gefi tilefni til að breyta samningum aðila. Þar með má telja, að ígildi endurskoðunará- kvæðis sé nú hluti af samningnum. Þar sem ýmsar grundvallarforsend- ur, sem lágu að baki samningsgerð- inni þá, hafa breyst verulega er nú fullt tilefni til þess að krefjast hækkunar raforkuverðs. Sterk rök má færa fyrir þessu og eru þau helstu þessi. 1. Hækkunarákvæði núgildandi samnings tryggja ekki fulla hækkun raforkuverðs í hlutfalli við breytingar á álverði svo að raforkukostnaður er nú lækk- andi þáttur í reksturskostnaði ísal gagnstætt því sem yfirleitt á sér stað við álframleiðslu er- lendis. 2. Mjög mikil og almenn hækkun orkuverðs hefur átt sér stað í heiminum svo að orkuverð til ísal er nú orðið hlutfallslega lægra miðað við verð til ál- bræðsluiðnaðar víða erlendis en það var eftir síðustu endur- skoðun. 3. Vegna verðbólgu og hækkandi fjármagnskostnaðar er verð á orku frá nýjum orkuverum nú miklu hærra í samanburði við orkuverð frá ísal en áður var. Því er haldið fram í áðurnefndri greinargerð þingmanna Al- þýðubandalagsins, að raforku- verðið hafi ekki verið óeðlilegt árið 1966, þegar upphaflega var um það samið, hvort sem miðað var við raf- orkuverð sem þá var algengt að álver greiddu eða annan mæli- kvarða. Ýmsar forsendur breyttust semdafærsla, sem hér er rakin, var um verulega hækkun á raforku- verðinu árið 1975. Nú hafa enn orðið breytingar á forsendum sem gefa á ný tilefni til endurskoðunar. Markmiðið með slíkri endur- skoðun hlýtur sem áður að vera það, að íslendingar fái eins mikinn arð og unnt er af þeirri íslensku orkulind, sem ísal nýtir. Sú rök- semdafærsla, sem hér er rakin, hlýtur að vera líklegri til árangurs en staðhæfingar byggðar á óraun- hæfum forsendum, að tekjurn- ar frá Isal muni ekki standa undir lánabyrði og rekstrarkostnaði Búrfellsmannvirkja á 45 árum. Slík æsiskrif geta aðeins orðið til' að beina kröftunum í tilgangslaust karp og veikja nauðsynlega sam- stöðu í þessu mikilsverða máli. Virðingarfyllst, Jóhann Már Maríusson, yfirverkfræðingur. ÚTBOÐ Tilboð óskast í gólfefni á sal (27x44), ganga og áhaldageymslu fyrir íþróttahús Digranes- skóla við Skálaheiði í Kópavogi. Verkið skal unnið í ágúst 1983. Tilboðsskrá verður afhent á tæknideild Kópavogs, Fannborg 2. Tilboðum skal skila á sama stað mánudag- inn 28. mars 1983 kl. 11 og verða þá opnuð að viðstöddum bjóðendum. Bæjarverkfræðingur Kópavogs. FÍSNARBLOT Minnum á árlegan fagnaö FÍSNAR n.k. laugardag 12. mars í Félagsheimilinu Drangey, Síðumúla 35. Þátttakatilkynnistfvrirmiðvikudagskvöldísíma 22631 (Áslaug), 75942 (Ólafur), 44705 (Sigurður) og 77510 (Þórólfur). Nefndin Blikkiöjan Ásgarði 1, Garðabæ Önnumst þakrennusmiði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verðtilboð SIMI 53468 í stuttu máli Sænsk-íslensk orðabók er komin út Ut er komin mikil sænsk-íslensk orðabók eftir þá Gösta Holm prófessor í norrænum fræðum í Lundi í Svíþjóð og Aðalstein Davíðsson, mennta- skólakennara í Reykjavík. Auk þess hafa ýmsir fleiri unnið Við bókina, norrænufræðingar við háskólann í Lundi og íslendingarnir Gyða Helga- dóttir, Erna Árnadóttir, Ólafur Sigurðsson og dr. Sigurður Þórarinsson. Þetta er fyrsta sænsk-íslenska orðabókin sem lítur dagsins ljós og er myndarlega af stað farið, þar sem stærð hennar er um 900 bls. Bókin kemur út samtímis hér og í Svíþjóð, hinn íslenski útgefandi er Almenna bókafélagið og hinn sænski Walter Ékstrand Bokförlag, Lundi. Hún hefur verið í smíðum í 13 ár og vinnan einkum farið fram í Lundi. Við samninguna hefur verið lögð áhersla á að bókin sé handhæg not- endum hvort heldur þeir eru íslenskir eða sænskir. í upphafi hennar er greinargerð um sænskan framburð og málfræði og einnig íslenskan fram- burð og beygingarfræði íslenskunnar. Þá eru og skrár yfir starfsheiti sænskra og íslenskra starfsmanna ríkis og kirkju og skrá yfir allmörg staðanöfn víðsvegar um heim á sænsku og íslensku. Þjóðhátíðargjöf Norðmanna Nú hefur verið úthlutað úr sjóðnum Þjóðhátíðargjöf Norðmanna fyrir þetta ár og fengu eftirfarandi aðilar styrki: Undirbúningsfélag rafeinda- iðnaðar, Samtök um kvennaathvarf, íslenskir ungtemplarar, Félag ísl. línumanna, Norskunemar, Styrktarfélag vangefinna og Félag jarð- og landfræðinema við Háskóla íslands. Styrkir voru fyrst veittir úr sjóðnum 1976 en nú var til ráðstöfunar 250.000 krónur. 24 umsóknir bárust um styrki. Höfuðstóll sjóðsins er 1 miljón norskra króna sem Norska stórþingið gaf íslendingum í tilefni 1100 ára byggðar hér á landi og er vaxtatekjum af því fé varið árlega til að styrkja hópferðir íslendinga til Noregs. Verkfræðingar mótmæla stöðuveitingu Stjórn Verkfræðingafélags íslands hefur mótmælt stöðuveitingu sam- gönguráðherra í embætti flugmálastjóra. Telur stjórnin að með skipan Péturs Einarssonar hafi gróflega verið gengið framhjá þeim umsækjanda sem hafi hlotið eindregið meðmæli Flugráðs, en hann sé jafnframt félagi í Verkfræðingafélagi íslands. Með stöðuveitingunni sé verið að vanvirða tæknimenntun, sérfræðilega þekkingu og starfsreynslu. Hafísinn í meðallagi Hafís í Grænlandssundi jókst allmikið í febrúar og er útbreiðsla hans norður af Vestfjörðum og Norðurlandi nú í rúmu meðallagi miðað við árstíma. Þetta kemur fram í athugunum sem unnar hafa verið af hafísdeild Veðurstofu íslands. Var ísjaðarinn ákvarðaður við ískönnun Landhelgis- gæslunnar og ískönnunarflug danskra vísindamanna í lok febrúar. Þá var ísjaðarinn í 37 sjómílna fjarlægð norðvestur af Straumnesi, 24 mílur norður af Straumnesi, 40 mílur norður af Horni og 75 mílur norður af Skagatá. Nýr flokkur spariskírteina Nú er hafin sala á verðtryggðum spariskírteinum ríkissjóðs í 1. fl. 1983 og er útgáfan byggð á heimild í fjárlögum fyrir yfirstandandi ár. Grunn- vísitala flokksins verður lánskjaravísitala marsmánaðar sem er 537. Þó nokkrar breytingar hafa verið gerðar á kjörum bréfanna frá því á sl. ári og má þar nefna að vextir hafa veri hækkaðir í 3.5 og verða þeir jafnháir allan lánstímann. Raungildi höfuðstólsins tvöfaldast á lánstíman- um, 20 árum. Þá er nýmæli að binditími skírteinanna styttist úr 5 árum í 3 ár og verða þau innleysanleg eftir 1. mars 1986. Þá breytist söluverð skírteinanna nú daglega eftir sérstökum reglum. Spariskírteinin nú eru gefin út í fjórum verðgildum, þ.e. 500,1000,5000 og 10.000 krónum. Breiðhyltingar safna til kirkju Hinn 4. desember sl. fór fram almenn fjársöfnun meðal almennings og fyrirtækja í Breiðholti I vegna byggingar Breiðholtskirkju í Mjóddinni. Uppgjöri söfnunarinnar er nú lokið. Samtals söfnuðust kr. 209.467,25. Byggingarnefnd færir einstaklingum og fyrirtækjum í Breiðholtssókn innilegar þakkir fyrir þessar stórkostlegu undirtektir og þau ómetanlegu fjárframlög, sem hér um ræðir. Byggingarnefnd Breiðholtskirkju hefur nú leitað eftir því við allar verslanir og fyrirtæki í Breiðholti I að þar megi koma fyrir sparibaukum þar sem almenningur getur látið nokkurt fé af hendi rakna til stuðnings kirkj ubyggingunni. Þess skal að lokum getið, að velunnarar kirkjubyggingarinnar geta lagt inn stærri fjárhæðir á reikninga byggingarnefndar, eftir því sem þeir óska. Er þar um að ræða hlaupareikning Breiðholtskirkju í Breiðholtsútibúi Verslunarbanka íslands nr. 402. Einnig sparisjóðsreikning Breiðholts- kirkju í Breiðholtsútibúi Landsbankans nr. 661. Ennfremur ávísanareikn- ingur nr. 3450 í Iðnaðarbankaútibúinu í Grensási. Fyrirlestur um vímuefni Hér á landi er staddur um þessar mundir Gunnar Nelker, forstjóri Ansvar International í Stokkhólmi. Gunnar Nelker flutti fyrir skemmstu erindi í sænska þinghúsinu á vegum bindindissamtaka sænskra þingmanna. Nefndist erindið Alko- holvanor, alkoholskador och alkoholpolitikk i internationell belysning. - Erindi þetta, sem á íslensku gæti kallast Alþjóðleg áfengismálastefna, drykkjuvenjur og tjón, mun hann flytja í Templarahöllinni við Eiríksgötu miðvikudaginn 9. mars. kl. 8.30. Fyrirlesturinn verður fluttur á sænsku, en snúið jafnóðum á íslensku. Öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.