Þjóðviljinn - 09.03.1983, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 09.03.1983, Qupperneq 3
' Miðvikudagur 9. riiars 19&3 bJÖÐVlLJÍNlV — SÍÐA 3 Vegna fréttar af ráðstefnu ÆSI ♦ Ekki frétta- manna að breyta orðalagi segirí athugasemd frá Ómari Ragnarssyni Omar Ragnarsson sjónvarps- fréttamaður hefur sent frá sér at- hugasemd vegna ummæla for- manns SÍNE f Þjóðviljanum í gær en þar segir m.a. að sjónvarps- fréttamanni hafi greinilega ekki verið kunnugt um meðferð Við- skiptaþings nýlega á tillögum um niðurskurð á Lánasjóði íslenskra námsmanna. Athugasemd Ómars er á þessa leið: „Talsmaður Æskulýðssambands- ins, sem fyrir þess hönd miðlaði sjónvarpinu fréttum af ráðstefnu þess um atvinnumál ungs fólks, sagði orðrétt við mig í síma, skömmu fyrir sjónvarpsfréttir á sunnudagskvöld: “.í öðru lagi var samþykkt ályktun, þar sem mótmælt er tillögu viðskiptaþings Verzlunarráðs um að leggja beri Lánasjóð íslenzkra námsmanna niður“. Það erekki hlutverk frétta- manna að breyta að ástæðulausu orðalagi ályktana, sem þeim berast til birtingar, þótt fullyrðingar eða orðaval orki tvímælis. f þessu til- felli taldi ég ekki ástæðu til þess að ætla, að rangt væri með orðalagið farið af fulltrúa þeirra, sem sam- þykktu ályktunina, samanber rök flutningsmanna fyrir því, að „hug- myndir“ Verzlunarráðs jafngildi „tillögu“ um að skera sjóðinn nið- ur“. Fyrirlestur í lögbergi Um orsakir streitu Judith Bernstein, lektor í félags- •ráðgjöf við Norges Social og Kom- munal Högskole, flytur opinberan fyrirlestur í boði félagsvísinda- deildar fimmtudaginn 10. mars n.k. í stofu 102 Lögbergi kl. 20.30. Fyrirlesturinn nefnist „Sociala för- ándringar som orsaker til stress". Fyrirlesturinn er öllum opinn. Meirihluti stjórnar Blindrabókasafnsins sendir frá sér greinargerð vegna ráðningarmála Heimsþekktur trompettleikari hjá Smfómunni Á tónleikum Sinfóníuhljómsveit- ar íslands, sem Páll Pampichler Pálsson stjórnar á flmmtudag- inn kemur í Háskólabíói kl. 20.30, verður einn fremsti trompettlcikari heimsins, Rolf Smedvig, einleikari. Hann er nú fyrsti trompetleikari hjá Sinfóníuhljómsveitinni í Bost- on, en á sér langan frægðarferil sem einleikari með hljómsveitum og þátttakandi í kammermúsík. Hann fæddist í Seattle og hóf 5 ára gamall að læra á trompet. Fyrst hjá föður sínum og tóku þeir feðgar brátt að leika sarnan opinberlega, við mikinn fögnuð áheyrenda. Sem einleikari með hljómsveit kom Smedvig fyrst fram opinberlega 13 ára gamall, sem Sinfóníuhljóm- sveit Seattleborgar. Bauðst honum þá hár styrkur til að stunda nám við Juilliard, merkasta hljóðfæraskóla í New-York, en þáði ekki, því hon- um bauðst að nema hjá Armando Ghitalla, sem þá var fyrsti trom- pettleikari í Boston. Síðan hann lék trompetteinleik í Messu eftir Leonard Bernstein, þegar hún var frumflutt undir stjórn höfundar við opnun Kennedy Center í Washing- ton, hefur hann verið talinn meðal allra bestu trompettleikara vestan hafs sem austan. Á tónleikunum hér mun Sme- dvig leika trompettkonsertinn eftir Haydn, en sá er af flestum talinn einn fegursti konsert, sem saminn hefur verið fyrir þetta hljóðfæri. í upphafi tónleikanna mun Páll P. Pálsson stjórna „Snúningi" eftir landa sinn frá Graz, Werner Schulze, en það verk er tileinkað Sinfóníuhljómsveit íslands í tilefni Austurríkisfarar hennar veturinn 1981. Lokaverk tónleikanna verð- ur svo önnur sinfónía Síbelíusar, eitt glæsilegasta tónverk þjóð- legrar rómantíkur og, fyrir utan Finnlandíu, vinsælasta verk þessa mikla norræna snillings. - nihg Rolf Smedvig Pálmi Jónsson: „Við teljum, að þrátt fyrir þau hjálpartæki sem blindur maður a kost á við lestur svartleturs, sé það mjög erfitt og næstum ófram- kvæmanlegt fyrir hann að sinna þessu starfi nema með stöðugri aðstoð sjáandi manns“, segir m.a. í greinargerð sem fjórir stjórn- armenn í stjórn Blindrabókasafns íslands hafa sent frá sér vegna umræðna um stöðuveitingar hjá safninu og þá einkum höfnun Arnþórs Helgasonar í stöðu deildarstjóra í námsbókadeild. Varðandi starf deildarstjórans segir í greinargerð fjórmenning- anna; Elfu Bjarkar Gunnarsdótt- ur, Kristínar H. Pétursdóttur, Margrétar F. Sigurðardóttur og Ólafs Jenssonar, að mjög reyni á hæfileika hans til að ná góðri yfir- sýn yfir innihald og uppsetningu efnis, og mat hans á því hvernig aðlaga verður þetta efni til útgáfu. Einnig sé mikilvægt að deildar- stjóri nái skjótri og góðri yfirsýn yfir það efni sem stendur sjáandi og blindum til boða í námi og starfi, geti metið það og aðlagað eftir þörfum. „Hér er um að ræða mark- að, sem sjáandi maður á fullt í fangi með að fylgjast með, ekki aðeins bækur á svartletri, heldur einnig myndefni og upptökur." Pá kentur einnig fram í greinar- gerð fjórmenninganna að jafnhliða því sem Arnþór Helgasyni var hafnað í umrædda stöðu á fyrr- greindum forsendum, hafi honum verið boðið að gegna áfram sínu fyrra starfi við safnið. „Stjórn Blindrabókasafnsins vill að sjálfsögðu leitast við að skapa fötluðum starfsskilyrði innan safn- sins. Pað má þó ekki verða til þess að stofnunin nái ekki að sinna hlut- verki sínu á þann hátt, sem annars væri unnt“, segir í greinargerðinni. -lg- Stjórnin segi af sér eftir kosningar „Ég tel ekki ástæðu til að stjórnin segi af sér fyrir kosningarnar, nema nýjar orsakir geri það knýj- andi, en ég tel rétt og sjálfsagt að stjórnin segi af sér þegar að kosn- ingum loknum hvernig sem þær fara“. Þetta sagði Pálmi Jónsson landbúnaðarráðherra á kjördæm- isráðsfundi SjálfstæðisfTokksins í Norðurlandi vestra, sem haldinn var á Blönduósi 4. mars. Á fundinum var listi flokksins við komandi kosningar samþykkt- ur, en hann er skipaður í sam- ræmi við niðurstöður í prófkjörinu fræga í kjördæminu. Eftir Pálma kemur Eyjólfur Konráð Jónsson. Þriðja sætið skipar Páll Dagbjarts- son Varmahlíð. -óg Sjáandi maður á fullt í fangi með verkið Steingrímur J. Sigfússon jarðfræðingur, Þistilfirði. Svanfríður Jónasdóttir kennari, Dalvík. Helgi Guðmundsson trésmiður, Akureyri. Kristín Hjálmarsdóttir formaður Iðju, Akureyri. Kristján Ásgeirsson útgerðarstjóri, Húsavík. Listi AB í N or ðurlandskj ördæmi eystra Eftirfarandi einstaklingar I Norðurlandskjördæmi eystra munu skipa lista Alþýðubandalags- ins við næstu alþingiskosningar. Listinn var endanlega ákveðinn á aukakjördæmisþingi AB sem hald- ið var á Akureyri á sunnudaginn: 1. Steingrímur J. Sigfússon jarðfræðingur, Gunnarsstöðum, Þistilfirði. Fæddur 4. ágúst 1955. 2. Svanfríður Jónasdóttir kenn- ari, Sognstúni 4 Dalvík. Fædd 10. nóvember 1951. 3. Helgi Guðmundsson trésmiður, Hraunholti 2, Akureyri. Fæddur9. október 1943. 4. Kristín Hjálmarsdóttir formað- ur Iðju, félags verksmiðjufólks, Lyngholti 1 Akureyri. Fædd 26. maí 1935. 5. Kristján Ásgeirsson útgerðar- stjóri, Álfhóli 1, Akureyri. Fæddur 26. júlí 1932. 6. Dagný Marinósdóttir hús- freyja, Sauðanesi N- Þingeyjarsýslu. Fædd 12. maí 1947. 7. Erlingur Sigurðarson kennari Vanabyggð 10 C Akureyri. Fædd- ur 26. júní 1948. 8. Eysteinn Sigurðsson bóndi, Arnarvatni Mývatnssveit. Fæddur 6. október 1931. 9. Aðalsteinn Baldursson verka- maður, Baughóli 31 b Húsavík. Fæddur 11. nóvember 1960. 10. Björn Þ. Ólafsson íþróttakenn- ari, Hlíðarvegi 61 Ólafsfirði. Fæddur 16. júní 1941. 11. Ingibjörg Jónasdóttir skrifstof- umaður, Heiðarlundi 2 j Akureyri. Fædd 14. október 1950. 12. Stefán Jónsson alþingismaður, Syðra-Hóli Fnjóskadal, S- Þingeyjarsýslu. Fæddur 9. maí 1923. - hól.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.