Þjóðviljinn - 09.03.1983, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 09.03.1983, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN | Miðvikudagur 9. mars 1983 Afhverjuþarf rafmagnstaxtinn tilsvissneska álversins að hœkka? Islenskir orkunotendur borga 2/3 en; 1/3 af kostnaðarverði orkunnar til áh Landsvirkjun — meðalheildsöluverð á raforku Samanburður á þróun á raforkuverði til Islenska álfélagsins og almenningsveitna Hvert erverðiðsem ísal, álbræðsla svissneska álhringsins Alusuisse í Straumsvík, greiðir Landsvirkjun fyrir raforku? Orkuverðið er nú 6,45 mill á kílóvattstund eða 0.645 úr bandarísku senti. Við núverandi gengi dollarans gagnvart íslenskri krónu (sölugengi 3. mars = 20,16 kr) fær Landsvirkjun því andvirði nákvæmlega 13 aura fyrir kílóvattstundina. Þettaverð hefir staðið óbreytt í dollurum undanfarin 3 ár eða síðan á árinu 1980. Á sama tíma hefir dollarinn rýrnað verulega að verðgildi, svo að kaupmáttur raforkuteknanna á Bandaríkjamarkaði er nú 20- 30% lakari nú en var fyrir þremur árum. Þetta þýðir um leið, að nú með hverju árinu sem líður greiðir hinn erlendi aðili íslendingumminnafyrir orkuna. ísal-taxtinn er nú 50% af 1969-taxta Þegar álbræðslan í Staumsvík tók til starfa, 1969, og næstu 7 árin, var rafmagnsverðið óbreytt og óhagganlegt samkvæmt samning- um sem gerðir voru við Svisslend- inga árið 1966 fyrir forgöngu Jó- hannesar Nordal og viðreisnar- stjórnarinnar sálugu. Verðið var þá 3 bandarísk mill á kílóvattstund. Núverandi rafmagnsverð, 6,45 mill, sýnist vissulega vera hærra, en það er þó tóm missýning, því að alþjóðleg verðrýrnun peninga gerir 6,45 mill að mun minna verðmæti nú en 3 mill voru fyrir 14 árum. Sé miðað við byggingarvísitölu hér heima (góður mælikvarði á til- kostnað við byggingu raforkuvera) er rafmagnstaxtinn til fsal nú rétt um helmingur af upphaflegu raun- virði hans, þó að dollurunum hafi fjölgað! Fyrst 2-faldur munur, nú 5-faIdur munur, bráðum 7-faldur munur Frá upphafi rekstrar ál- bræðslunnar í Straumsvík, þegar orkuverðið var 3 mill á kílóvatt- stund, og fram til 1980 þegar verðið varð 6,45 mill sem það enn er, hækkaði gjaldskrá Landsvirkjunar til almennirtgsveitna (heildsölu- verð) úr sem svarar 5,47 mill í 23,64 mill. Af þessum sökum hefir orku- sala til almenningsveitna staðið undir vaxandi hlutfalli af heildar- tekjum Landsvirkjunar, enda þótt ísal fái yfir helming framleiddrar orku. Á undanförnum árum hefir bilið á milli ísal-taxtans og taxtans til almenningsveitna gleikkað hröðum skrefum. 1969-70 var verðið til almenningsveitna rétt um 2-falt hærra en til álsins. Árið 1978 var það um 3-falt hærra, árið 1981 um 4-falt hærra og sem stendur er það um 5-falt hærra. Að óbreyttum rafmagnssamningi vjð Svisslend- inga verður munurinn að líkindum 7-faldur í lok þessa árs. Það sem hér gerist er einfaldlega það, að rekstrar- og fjár- magns kostnaður Landsvirkjunar eykst miklu meir en sem nemur dollara- og gengishækkun ál- bræðslutaxtans, og til að hafa upp í kostnaðinn þarf Landsvirkjun að margfalda þann mun sem upphaf- lega var á orkuverðinu til áls og orkuverðinu til almennings. Landsvirkjun þarf sínar tekjur, og þeir fjármunir eru teknir með hreinni gjaldskrárhækkun af al- mennum orkunotendum í landinu. Því samkvæmt samningum þeirra Ingólfs Hellujarls, Nordals seðla- stjóra og Steingríms Strandagoða leyfist ekki að láta Svisslendinga sitja við sama borð og íslenska ork- unotendur. Annað hvort borgar ísal eða almenningur Samkvæmt rekstraráætlunum Landsvirkjunar og horfum um verðlag og gengi erlends gjaldeyris á yfirstandandi ári, verður orku- verð til almenningsveitna að hækka um 125,9% í ársbyrjun til ársloka 1983. Ef hins vegar orku- verð til ísal hefði hækkað upp í 12,5 mill á kílóvattstund frá og með 1. janúar 1983, hefðu tekjur Lands- virkjunar aukist við það eitt um 180 miljónir króna á árinu. Slík tekju- aukning mundi draga verulega úr áætluðum greiðsluhalla Lands- virkjunar. Þar með mundi áætiuð þörf á hækkun orkuverðs til al- menningsveitna á árinu 1983 lækka úr 125,9% í 51,3%. Nú hækkaði taxti Landsvirkjunar gagnvart ís- lenskum notendum um 29% 1. fe- brúar síðast liðinn, og mundi þá viðbótarhækkun um 17,3% 1. maí í vor jafna og tryggja greiðslustöðu Landsvirkjunar út þetta ár. Höfum safnað skuldum erlendis vegna ísal Hlutdeild Landsvirkjunar í er- lendum skuldum og greiðslubyrði þjóðarinnar út á við er mikil. I árs^ lok 1981 námu erlendar skuldir Landsvirkjunar til langs tíma um 28% allra slíkra skulda lands- manna, og er hlutfallið að líkindum eitthvað svipað í árslok 1982. Mik- inn hluta þessara erlendu skulda má rekja til hins lága orkuverðs sem fsal hefir fengið að njóta. Ef nú raforkuverðið til Isal hefði hækkað um 12,5 mill frá og með 1. mars í ár og upp í 20 mill frá næstu áramótum, mundi það nægja til að lækka erlendar skuldir Landsvirkj- unar til langs tíma um 40% á tíma- bilinu fram til ársloka 1986. Við það mundu erlendar skuldir þjóð- arinnar í heild hækka um 11%. Framleiðslu- kostnaður 19,4 en ísal borgar 6,45 Hrein rekstrargjöld Landsvirkj- unar á árinu 1982 námu 295 miljón- um króna (fjármagnsgreiðslur ekki meðtaldar). Hrein meðaleign írek- stri var 3.800 miljónir króna, þann- ig að 8 prósent arðgjöf af eignum í rekstri (8% er viðmiðun Alþjóða- bankans) jafngildir 304 miljónum króna. Heildarframleiðslukostn- aður í samræmi við arðgjafarkröfur Alþjóðabankans nam því á árinu um 600 miljónum króna. Heildar- orkusala á árinu nam 3.020 miljón- um króna, þannig að meðalfram- leiðslukostnaður á seldri orku nam við þessa arðgjöf 19,8 aurum á kíl- óvattstund, en það eru 16,2 mill (miðað við meðalgengi 1982: doll- arinn á 12,22 kr). Þetta meðalverð er hins vegar ekki nóg til að koma á jafnvægi í greiðslustöðu Lands - virkjunar á árinu:til að rekstur Landsvirkjunar hefði orðið halla- laus á árinu 1982 hefði arðgjöf af eignum í rekstri orðið að vera 11,2%. Samkvæmt því var raun- verulegur framleiðslukostnaður á seldri orku 23,7 aurar á kílóvatt- stund á árinu 1982 eða 19,4 mill. Þetta skulu menn svo bera saman við orkuverðið til ísal, 6,45 mill, og hafa þá um leið í huga, að í flestum löndum greiðir stóriðja raforku- verð sem nær a.m.k. meðalfram- leiðslukostnaði raforku hjá við- komandi orkuveitu. Þessi viðhorf eru raunar dálítið öðru vísi þegar vatnsorkuver eiga í hlut og fjármagnskostnaður er meirihluti framleiðslukostnaðar. Þá er talið viðunandi að lágmarks- verð til stórneýtenda sé nokkuð undir meðalkostnaði. Rökin fyrir þessu eru þau, að stóriðjan hefir allt að 60% lengri nýtingartíma á ári en almenningsveitur, að stóðiðjan tekur yfirleitt við fullri orku frá byrjun (í staðinn fyrir að almenningsveitur eru mörg ár að fullnýta hverja stórvirkjun) og að stóriðjan tekur að jafnaði við raf- orku með hærri spennu en almenn- ingsveitur. Við þessar aðstæður - segja sérfróðir aðiljar - er eðlilegt að stóriðja fái rafmagn við verði sem nemur 65% af því sem alm- enningsveitur greiða. Samkvæmt þessari kostnaðar- skiptingu hefði orkuverð Lands- virkjunar átt að vera 21,04 mill á kílóvattstund til almenningsveitna og 13,25 mill til stóriðju að meðal- tali árið 1982. Raunverulegt meðalorkuverð á árinu 1982 var aftur á móti 29,8 mill til almenning- sveitna og 6,45 mill til ísal. Þetta er langt undir 65% viðmiðunarreglu, og þá er dómur sérfræðinganna sá, að almenningur greiði niður ork- una til stóriðju með óeðlilega háu rafmagnsverði til annarra nota. Langt undir kostnaði við öflun viðbótarorku Búrfellsvirkjun er hagstæðasta virkjun sem ráðist hefir verið í. Næsta stórvirkjun á eftir, Sigöldu- virkjun, er á sambærilegu verðlagi með meira en tvöfaldan kostnað á orkueiningu. Aðrar og síðari virkj- anir eru svo hlutfallslega enn dýrar i en Sigalda. Það er því hrein glópska af íslendingum að selja þeim auðugu Svisslendingum raf- prku á verði sem skyldi miðast við hagstæðasta virkjunarkostinn. Hvað þá þegar nu verðið reyndist verða enn lægra en framleiðslu- kostnaðurinn á þeim góða stað. Orkustofnun, Landsvirkjun og Verkfræðistofa Sigurðar Thorodd- sen telja framleiðslukostnað raf- orku fyrir stóriðju í nýjum virkjun- um á Islandi vera 18-22 mill á kíló- vattstund. Er þá miðað við 6-8% ávöxtunarkröfu og verðlag í júní 1982. Orkuverð til almennings- veitna hér á landi var sumarið 1982 um 50% hærra en sem nam áætl- uðum kostnaði við öflun viðbótar- orku vegna þeirra. Aftur á móti greiðir ísal raforkuverð sem er um 65% undir áætluðum kostnaði við öflun viðbótarorku til stóriðju. Rafmagnstaxtinn til Isal er einsdæmi í heiminum Verðið á raforku til fsal ér það lægsta sem heimildir greina frá að viðgangist nokkurs staðar í heimin- um í viðskiptum óskyldra aðilja (þ.e. þegar álframleiðandinn á ekki, sjálfur orkuverið). Meðal- orkuverð í öllum álbræðslum Alu- suisse í júlí 1982 (að meðtöldu úti- búinu á íslandi) nam 20,0 mill. Meðalverð til álbræðslu í öllum löndum Evrópu í desember 1981 var 20,3 mill. Meðalverð til álvera í Bandaríkjunum á seinni hluta árs 1981 var 22.0 mill. Jafnframt er ljóst að orkuverðið fer alls staðar hækkandi. Á sama tíma sem rafmagn var 6,5% af heildarkostnaði við ál- bræðslu hér á landi (1980), var talið að hlutfall rafmagnskostnaðar í álíka gömlu álveri væri eðlilega áætlaður vera 23,6% heildarkostn- aðar, eða nær 4-falt hærri. Rafmagnssamningurinn frá 1975 milli ísal og Landsvirkjunar: • engin haldbær verðtryggingarákvæði eru í samn- ingnum • nú, 1983, er raunverð á orkueiningu lægra en það var 1969 • á föstu verðlagi reiknað lækkar rafmagnstaxti ísal ár frá ári ísal fær rafmagn á verði sem er lítið brot af fram- leiðslukostnaði þess ísal-taxtinn er langt undir kostnaði við öflun við- bótarorku til stóriðju afhending rafmagns á undirverði til ísal orsakar greiðsluerfiðleika hjá Landsvirkjun Landsvirkjun þarf í sífellu að hækka rafmagns- verðið til almenningsveitna íslendingar greiða niður verð á raforku til Svis- slendinga Svisslendingar greiða 2- falt til 5-falt meira fyrir rafmagn til álbræðslu erlendis en hér á landi. Þetta eru afleiðingar samningatækninnar sem þeir Jóhannes Nordal og Steingrímur Hermannsson beittu á Svisslendinga árið 1975. Hvað fáum við næst frá þeim félögum?

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.