Þjóðviljinn - 24.03.1983, Page 1

Þjóðviljinn - 24.03.1983, Page 1
FERMINGIN BLAÐAUKI Fermingarbörn í spurningatíma í Bústaðakirkju. (Ljósm. eik) Hvað er ferming nú um stundir? séra Gunnar Kristjánsson á Reynivöllum situr fyrir svörum Hvað er ferming nú á dögum? Uppfræðsla í trúfræðum, manndóms- vígsla, tilefni til að sýnast maður með mönnum, tækifæri til að kveðja saman stórfjölskylduna? Kannski alit þetta í senn í síbreytileg- um hlutföllum? í endurminningum og öðrum bókmenntum er að finna fróðlegar lýsingar á fermingum: þær gefa með sínum hætti innsýn í siði og efnahag, og það er líka Ijóst, að fermingar með opinberum yfir- heyrslum úr kverinu voru allmikil þrekraun. Séra Árni Þórarinsson rifjar það til dæmis upp í ævisögu sinni að hann lærir utan að svo- nefnt Balslevskver. Hann nefnir dæmi um yfirheyrsluaðferðina sem er eitthvað á þessa leið: „Fyrsta greinin í Balslevskveri er svona: „Hvað er það sem okkur mönn- unum ríður mest á? Svar: Oss mönnunum ríður mest af öllu á að geta verið og orðið Guðs ástfólgin börn, sem lifi hon- um til þóknunar og verði sáluhólp- in í sameiningu um hann“. Þegar barnið hefur þulið grein- ina, segir presturinn: „Það er rétt. Hvað er þá fyrst?" Barnið: „Að vera Guðs ástfólgin börn“. Presturinn: „Hvernig á að fara að því?“ Barnið: „ Að lifa honum til þókn- unar“. Presturinn: „Hvaða afleiðingar hefur það?“ Barnið: „Að við verðum sálu- hólpin í sameiningu við Guð“... Þetta þykir séra Árna, eftir á að hyggja, ekki snjallt uppeldi, enda er það löngu iyrir bí. En hvaða augum líta menn silfrið í dag? Við notum tækifærið og kyrrsetjum ungan prest, séra Gunnar Krist- jánsson á Reynivöllum og spyrjum hann nokkurra spurninga um ferm- ingu í samtímanum. Fermingin á sér langa sögu í kristninni, þótt hún sé hvergi á dag- skrá í Nýja testamentinu. Skírninni fylgdi handayfirlagning, sem bisk- upar önnuðust og svo er komið á Sjá næstu síðu Farsælast er að reyna að fá börnin til samstarfs. (Ljósm. Atli).

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.