Þjóðviljinn - 24.03.1983, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 24.03.1983, Qupperneq 6
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 24. mars 1983 BLAÐAUKI Er á móti miklu tilstandi Ferming í Kirkju Óháða safnaðarins Pálmasunnudag 27. mars kl. 10.30 verða þessir unglingar fermdir í Kirkju Óháða safn- aðarins: Sigríður Dóra Gísladóttir, Móa- flöt 12, Garðabæ, Arnar Arnars- son, Dalseli 29, Reykjavík, Mark- ús Jósefsson, Víghólastíg 18, Kóp- avogi, Rúnar Jónsson, Akraseli 20, Reykjavík, Sverrir Kjartansson, Grófarseli 7, Reykjavík. Fermingarbarnið Unnur Baldursdóttir ásamt foreldrum sínum, Arndísi Steinþórsdóttur og Baidri Baldvinssyni. - (Ljósm.eik-). Hvernig hagar þú undirbúningi fermingarinnar? Rætt við Arndísi Steinþórsdóttur Unnur Baldursdóttir býr að Aðallandi 16 ásamtforeldrum sínum Baldri Baldvinssyni og Arndísi Steinþórsdóttur og á að fermast 10. apríl. Unnur á einn eldri bróður. „Við bjóðum örfáum vinum og ættingjum, allt fólk sem við um- göngumst,“ segir móðirin Arndís í spjalli um fermingartilstandið. „Þetta verður allt mjög hóflegt. Ég sé um eitthvað af þessu sjálf; ég er að hugsa um að grafa lax og sjóða, en flest mun ég kaupa tilbúið. Ég vinn úti allan daginn og verð að haga þessu í samræmi við minn tíma. Nei, ég hef nú ekki reiknað út ennþá hvað þetta kemur til með að kosta. Ég á eftir að athuga það - það er mikið auglýst núna í sam- bandi við fermingarmat og kaffi, en ég hef ekki gengið neitt frá slíku.“ Arndís og Unnur hafa þegar keypt fermingarfatnaðinn: kjól, jakka, sokka og skó ásamt undir- pilsi. Allt kostaði þetta 3.740 krón- ur. Gjöfum verður stillt í hóf. Arn- dís sagði þau hjónin ætla að gefa Unni hljóðfæri í fermingargjöf - klarinett, en Unnur leikur í skóla- hljómsveit á klarinett. „Ég er á móti miklu tilstandi í sambandi við fermingarnar,“ sagði Arndís. „Og leiðinlegt finnst mér þegar kynna þarf fermingarbarnið fyrir gestun- um - þá er nú gengið út í öfgar í þessu tilliti.“ Við óskum Unni Baldursdóttur til hamingju með væntanlega ferm- ingu og óskum henni allra heilla. ast _ húsbyggjendur ylurinn er " góður Algreiðutn einangrunarplast á Stór-Reykjavikursvaðið (ra mánudegi — fostudags Afhendum vöruna á byggingarstað. viðskiptamónnum að kostnaðar lausu. Hagkvsmt verð og greiðsluskilmalar við flestra hcfi. Borgarplait hf Borgameti umi*l n?0 allt til módelsmída Póstsendum samdægurs Fjarstýröir bilar, fjölmargargerðir (þessir bilar ná allt aö 70 km. hraöa) 111 Flugmódel i miklu úrvali. Svifflugur og mótorvélar fyrir fjarstýringar, linustýringar eöa frittfljúgandi. Fjarstýringar 2ja—8 rása. Fjarstýrð bátamódel i miklu úrvali. TðmSTUflDflHÚSID HF Laueouesi 16t-Rajtéuit s=S1901

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.